Morgunblaðið - 20.02.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1986
21
Málin rædd f pásunni: Fremst eru hjónin Sigrún Jóhannesdóttir og
Gunnar Guttormsson, aftar Ásta Valdimarsdóttir og Hannes Magnússon
og hjá þeim er Peter Locke.
Lízt illa á lækkun
olíuverðs í marz
— með því erum við aðeins að taka
forskot á sæluna, segir Þórður
Asgeirsson, forstjóri Olís.
eftir öllum smáatriðum í undir-
búningi og jafnvel gera ráð fyrir
að hljómsveitarstjórinn kæmist í
sund.
Klauspéter Seibel fór vandlega
yfir verkið og gerði hlé þegar hann
vildi kanna eitthvað nánar. Hann
gekk hreint til verks og fór í erfíð-
ustu staðina þar sem vandamál
voru. A einum stað var hann ekki
ánægður með samræmið í pákunum
en þeir voru fljótur að leysa úr
því. -Hann heyrir alveg ótrúlega,
sagði einn kórfélaginn í hléinu og
óhætt er að staðhæfa að hann er
hæfur stjómandi. Hann býr í
Hamborg og starfar þar og í Niirn-
berg þar sem hann stjómar sin-
fóníuhljómsveit. Við ræðum örlítið
við hann síðar en hremmum nokkra
kórfélaga í hléinu.
Mikil söngg'leði
— Ég hef verið með í öllum
uppfærslunum á verkinu, segir
Sigurður Þórðarson einn kórmanna
þegar hann er spurður hvað hann
þekki til verksins.
Ertu þá farinn að sleppa bókinni?
— Mér finnst nú betra að hafa
hana við höndina en vitanlega er
best að horfa sem mest á stjómand-
ann. Já, þetta er alltaf jafngaman.
Þegar við sungum þetta í Þjóðleik-
húsinu stóðu kóramir nokkuð á
móti hvor öðmm og hljómsveitin
var á milli á sviði Þjóðleikhússins,
en nú em þeir alveg saman á svið-
inu. Sigrún Andrésdóttir, kona
Sigurðar, er einnig í kórnum og
reyndar kemur dóttir þeirra, Hrafn-
hildur, líka við sögu því hún er í
bamakórnum. — Eg hef verið frá
upphafi í óperukómum, og Söng-
skólakómum, sem er eins konar
undanfari hans, segir Sigrún, -og
var ég með í I Pagliacci og verð
vonandi með áfram.
Og af bverju eru þau hjónin í
kór?
— Sönggleðin er svo mikil, það
er mjög einfalt. En þetta er mjög
óvenjulegt verk og það þarf að taka
það allt öðmm tökum en önnur
verk, segja þau hjón. — Textinn
er hraður og erfiður en laglínurnar
em oft auðlærðar. Að því leyti er
það t.d. ólíkt öðmm verkum þar sem
textinn er oft endurtekinn og er
ekki svo mikill en laglínan flókin
og erfíð.
Við hleypum hjónunum í kaffið
en lítum út í sal þar sem tvenn
hjón sitja þegar með kaffið og rabba
saman. — Þetta er stórkostleg tón-
list og eftir að hafa verið á tónleik-
unum árið 1975 keyptum við plöt-
una, segja þau Sigrún Jóhannes-
dóttir og Gunnar Guttormsson,
margreynd í kórsöng, og sama má
segja um þau Astu Valdimarsdóttur
og Hannes Magnússon, öll hafa þau
sungið í kómm um árabil. En ekki
þetta verk áður?
— Nei, segja þau og em sam-
mála um verkið: — Þetta er að
ýmsu leyti erfitt þótt það sé vissu-
lega gaman og það er alltaf textinn
sem er erfíðastur. Og Ásta bætir
við að oft setji hún Carmina Burana
á fóninn heima þegar skapið þyng-
ist og komist hún þá jafnan strax
í samt lag aftur.
— Okkur þætti ekki verra að láta
það malla aðeins lengur áður en
við fæmm með það á tónleika. Hins
vegar er það ágætt að taka þetta
með svona áhlaupi, segir Gunnar
og bætir við að þetta verk muni
áreiðanlega höfða til yngra fólks
og því væri alveg óhætt að koma
á tónleika. — Það er einhvers konar
sterkur þjóðlegur undirtónn í verk-
inu og mjög skemmtilegur.
Locke stórkostlegur
— Þú mátt líka segja að hann Peter
Locke er alveg stórkostlegur, segja
frúrnar og herrarnir taka alveg
undir það. -Hann er bæði mikill
hæfileikamaður, segja þau öll,
— og hann er skemmtilegur félagi
og á skilið miklar þakkir fyrir það
sem hann hefur gert til að undirbúa
okkur.
Æfingin verður að halda áfram
og eftir skamma stund er allt farið
í gang aftur. Stjómandinn heldur
áfram að fara vandlega í gegnum
verkið. Hann grípur Pál Pampichler
sem þama var nærstaddur og fær
hann til að stjóma nokkmm tökt-
um. Á meðan fer Klauspeter Seibel
út í sal til að hlusta betur eftir
einhvetju atriði. Hann virðist
ánægður og tekur aftur við sprotan-
um frá Páli. Kristinn og Júlíus Víf-
ill em kallaðir fyrir á viðeigandi
stöðum og fá hvatningu og þakkir
frá viðstöddum þegar þeir hafa
glímt við sínar strófur.
Góð byrjun
Brátt er æfingatíminn úti, tón-
listarmenn taka saman hafurtask
sitt og áður en Klauspeter Seibel
fer í sundið spyr ég hann hvort
hann sé ánægður með ganginn:
— Já, við emm að vísu að byija
en byrjunin er góð. Það komu upp
smávægileg vandamál og stundum
finnst mér hljómsveitin of sterk eins
og oft er en það lagast og við verð-
um með góða tónleika.
Auk Carmina Burana verður flutt
fyrsta sinfónía Beethovens og
vissulega em það ólík verk. — En
því ekki? segir Seibel. En er Carm-
ina Burana vinsælt verk í heima-
landi tónskáldsins?
— Já, það er með vinsælustu
tónverkum og oft flutt. Sérstaklega
er það oft tekið til flutnings í tónlist-
arskólum og þetta er vinsælasta
verk Orffs. Það er orðið alllangt
síðan ég kynntist því fýrst, ég var
líklega 11 ára, og ég hef kunnað
vel að meta það allar götur síðan.
Nei, það er orðið nokkuð langt síðan
ég stjórnaði því síðast.
Sem fyrr segir verður verkið flutt
á áskriftartónleikum í Háskólabíói
á fimmtudagskvöldið og ákveðið
hefur verið að endurtaka þá klukk-
an 17 á laugardag. jt
„Mér lízt mjög illa á fyrirheit
stjórnvalda um 10% lækkun á
verði gasolíu í marz. Með þessu
emm við að taka forskot á sæl-
una. Þessi ákvörðun þýðir að
innkaupaj öf nunar reikningur
verður neikvæður um meira en
50 milljónir í marz. Siðan þá
tekur hann að réttast við og það
getur tekið fram á síðari hluta
sumars miðað við olíuverð í
Rotterdam í dag,“ sagði Þórður
Ásgeirsson, forstjóri Olíuverzl-
unar íslands, i samtali við Morg-
unblaðið.
„Þetta er mjög slæmt, sérstak-
lega vegna óljósrar tilvigtar þessa
innkaupajöfnunarrreiknings. Sam-
kvæmt lögum, sem taka áttu gildi
um síðustu áramót, átti að leggja
hann niður í fyrri mynd og hvert
félag að hafa sinn eigin reikning.
Verði það svo, kemur það mjög
misjafnlega illa niður á olíufélögun-
um vegna þess, hve mismiklar
birgðir þau eiga af dýrri olíu. Því
verður mjög ójafnt hve mikið af
þessum 50 milljónum lendir á hveiju
félagi fyrir sig og auk þess verður
það ekki í samræmi við sölu félag-
anna hvers fyrir sig. Til að jafna
stöðu þeirra vegna þess, verður
því að hafa gamla sameiginlega
reikninginn í gildi meðan þessi
margræddi reikningur er neikvæð-
RÚMLEGA 78% grunnskóla-
kennara af öllu landinu svöruðu
spurningum i könnun um viðhorf
þeirra til starfsins og skipulags
menntamála, sem Þórólfur Þór-
lindsson prófessor í félagsvís-
indadeild Háskóla íslands vinn-
ur, að tilhlutan menntamálaráðu-
neytisins. Könnunin var að mestu
leyti unnnin i desember og bárust
með þessu móti, komumst við seint
eða aldrei niður í það verð hér
heima, sem annars hefði náðst.
Hefðum við beðið lengur með lækk-
un meðan við erum að selja þessa
dýru farma, hefði lækkunin orðið
miklu meiri, þegar að henni kæmi,
en með þessu móti. Með því að taka
lækkunina fyrir fram verðum við
að taka þessa ótímabæru lækkun út
fram á haust. Ég er anzi hræddur
um það, að í súmar byrji að nýju
gamli söngurinn um verðmismun
hér og erlendis og þá verði allir
búnir að gleyma lækkuninni í marz,
forskotinu á sæluna. Olíufélögin
AUGLÝSTIR hafa verið til um-
sóknar styrkir til þýðinga á
norrænum bókmenntaverkum á
vegum norrænu ráðherranefnd-
arinnar. Umsóknareyðublöð fást
í menntamálaráðuneytinu og
rennur umsóknarfrestur út 1.
apríl.
Norræna ráðherranefndin veitir
styrki til þýðinga tvisvar á ári og
fer fyrsta úthiutun fram í maí. Að
auki verður nú veittur öðru sinni
sérstakur styrkur sem nemur um
síðustu svörin 15. febrúar. Alls
komu inn 2.400 listar. Niðurstöðu
er að vænta eftir 2 til 3 mánuði.
„Þetta var langur listi, sem tók
hvern kennara að meðaltali um
þijár klukkustundir að svara,“ sagði
Þórólfur. „Spurningunum var svar-
að af mikilli samviskusemi og er ég
kennurum ákaflega þakklátur fyrir
þessar góðu undirtektir.“ Kennarar
verði því undir stöðugum, órétt-
mætum þrýstingi um lækkun. Mið-
að við eitt ár hefði það komið eins
út fyrir útgerðina að lækka þegar
tilefni var til en ekki þegar í marz.
Þar að auki er 50 milljóna króna
skuld á innkaupajöfnunarreikningi
fjámögnuð með auknum lántökun
í bönkunum og við þurfum að borga
vexti af upphæðinni og það enga
smápeninga. Þá hlýtur sá kostnaður
að leggjast á verðið auk þess, sem
álagning okkar er of lág. Tap á
sölu olíu og bensíns varð af þeim
sökum 200 milljónir króna á síðasta
ári, en tapið er að vísu ekki svo
mikið nú, en enn er tap á sölu allra
tegundanna og það gengur ekki til
lengdar. Að því kemur að við verð-
um að hætta þessu, því við getum
ekki látið okkur blæða út,“ sagði
Þórður Ásgeirsson.
360.000 íslenskra króna, en honum
er fyrst og fremst ætlað að renna
til þýðinga úr smærri málsvæðum
svo sem færeysku, grænlensku, ís-
lensku og samísku yfir á hin stærri
þ.e dönsku, norsku og sænsku. Að
sögn Gerðar Steinþórsdóttur sem
er varamaður fyrir hönd íslands í
úthlutunamefnd var styrknum
skipt síðast milli Færeyja og Græn-
lands, og því líkur á að íslendingar
eigi möguleika á úthlutun að þessu
sinni.
höfðu heimild til að vinna svörin í
vinnutíma en Þórólfur sagði að sér
virtist s_em allur gangur hefði verið
á því. Ýmist hefðu menn svarað í
kennslustundum, fundartímum eða
heima. „Hver endanlegur kostnaður
við könnunina verður get ég ekki
sagt um enn sem komið er, en hann
verður ekki mikill miðað við umfang
hennar," sagði Þórólfur.
Með því að taka forskot á sæluna
Nær fimmtíu manns voru á mótinu
Borgarfjörður:
••
Kristilegt stúdentamót í Olveri
Borgarfirði, 19. febrúar
Um síðustu helgi komu nær fimmtíu manns á
mót Kristilegs stúdentafélags sem haldið var í
sumarbúðunum í Ölveri undir Hafnarfjalli. Var yfir-
skrift mótsins „Viðhorf Krists til mín“. Fjölluðu
þeir Skúli Svavarsson kristniboði og Gísli Friðgeirs-
son tölvufræðingur um efnið, auk þess sem skipt
var upp í hópa og þátttakendur sjálfir ræddu efnið.
Mótið endaði á sunnudeginum með messu á Borg á
Mýrum, þar sem sóknarpresturinn Hlynur Árnason
messaði. Kristilegt stúdentafélag er ætlað fyrir þá,
sem eru orðnir 20 ára gamlir og helzti starfsvett-
vangur þess er í Háskólanum og Kennaraháskólan-
um, þótt það sé vitaskuld opið öllum þeim, sem
ekki eru í skóla eða hafa lokið framhaldsskóla.
Fundir í félaginu eru haldnir á Freyjugötu 27, þriðju
hæð, á föstudagskvöldum. Þar eru teknir fyrir
þættir kristinnar trúar og þeir ræddir, ásamt því
að sungið er og beðið. -pþ
Viðhorf grunnskólakennar til starfsins:
Rúmlega 78% taka þátt í könnun
Norrænir styrkir til
bókmenntaþýðinga