Morgunblaðið - 20.02.1986, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1986
35
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
Fiskurinn (19. feb.-
19. mars).
Ég ætla hér að fjalla um hið
dæmigerða fyrir Fiskamerkið.
Þar sem allir eru samsettir úr
nokkrum stjömumerkjum ættir
þú lesandi góður að hafa í
huga að vinur þinn í Fiska-
merkinu hefur einnig eiginleika
frá öðrum stjömumerkjum.
Tilfinningamaður
Fiskurinn er tilfínningamaður.
Hann hefur sterkt ímyndunar-
afl og lifir töluvert í eigin
heimi. Flest allir Fiskar em
næmir og viðkvæmir og ákaf-
lega móttækilegir fyrir utanað-
komandi áhrifum. Annars er
að mörgu leyti erfitt að lýsa
hinum dæmigerða Fiski. Hann
hefur góða aðlögunarhæfni og
á auðvelt með að falla að svo
til hvaða umhverfí sem er.
Hann á auðvelt með að skipta
um gerfí og getur hagað sér á
margvíslegan hátt eftir að-
stæðum.
Viðsýnn
Um flest alla Fiska má segja
að þeir em þægilegir í um-
gengni. Þeir em umburðar-
lyndir og þar sem þeir eiga
auðvelt með að setja sig í spor
annarra dæma þeir fólk yfir-
leitt ekki. Þeir vilja ná til sem
flestra og em því yfirleitt
kurteisir, fágaðir og vingjam-
legir.
Margir Fiskar em mannúðlega
sinnaðir. I stjómmálum er
Fiskurinn yfirleitt umburðar-
lyndur mannúðarmaður, tekur
afstöðu til einstakra málefna
en fylgir engum einum flokki
í blindni.
Fjö/breytileiki
Rík í eðli Fisksins er þörfin til
að tengja saman ólíka hluti og
öðlast heildaryfirsýn. Margir
Fiskar finna því hjá sér þörf
fýrir fjölbreytilega reynslu.
Vinahópur þeirra getur talið
margvíslegt og ólíkt fólk og
þeir geta átt erfitt með að finna
eitt ákveðið starf við hæfl.
Fiskurinn getur því verið leit-
andi.
Listrœnn
Margir Fiskar hafa listræna
hæflleika. Þeir hafa ímyndun-
arafl og næmi sem nýtist vel
í listræna sköpun. Meðal sviða
má nefna ljósmyndun, kvik-
myndagerð, dans, tónlist og
skáldskap. Þeir Fiskar sem
ekki fást sjálflr við listsköpun
hafaeigi að síðuryfirleitt mikla
ánægju af að njóta lista, að
sækja leiksýningar, hlýða á
góða tónlist og dansa. „Hljóm-
sveitin bytjaði að leika. Hún
réð ekki við sig og sveif á gólf-
ið. Við sem horfðum á dáðumst
að mýkt hennar og fími. Mér
kom í huga frásögn af Álfa-
drottningu, í dansinum virtist
hún óraunveruleg og ójarð-
nesk.“ Já, í dansi birtist mýkt
og næmi Fiska. Mýktina má
einnig sjá í göngulagi þeirra,
þeir ganga ekki, heldur „líða
um“.
Lífsflótti
Að lokum skulum við huga að
því sem Fiskar þurfa að varast.
Við skulum hafa það í huga
að hér er einungis rætt um
möguleika. Helsti veikleiki
þeirra er fólginn í draumlynd-
inu. Þeir virðast stundum út á
þekju, einangra sig frá um-
hverfínu og lifa í eigin drauma-
heimi. Þegar erflðleikar steðja
að eiga þeir það til að láta sig
hverfa. Þá telja þeir sér trú
um að mál séu þeim óviðkom-
andi. Stundum flýja þeir raun-
veruleikann í gegnum vímu-
gjafa. Áhrifagimi er einnig
þáttur sem þeir þurfa að vara
sig á, það að vera jábróðir síð-
asta ræðumanns og láta teyma
sig útí hluti sem henta þeim
engan veginn.
TT:::?l!!!:l:?l~?!::n::!!!!::!i!!!i!::f!:i:!i!!:i!!!!!!!!:!!!!i!!!!:!i!:.l!íiiTT~::!!?!!?!Fli!??!!!!?!:'!!i::!i::::iHUii-:--u--!nT-*ltrT”"J- ... , ....— — ■
e/tJf/aufí/'/Mt /ane/a**<trr/w
©IW5 Klng Fealure* Syndicale. Inc World rlghls reserved
{É6 Æt/aði /e> s£r//>
itttói/// / tfw/M/fi///,
' HAN/Z 9/ fffior/fifii
UD/Jfí PROT/ST i/r- lfi
EiDfíjK/6//z »1/^
yÐ/iAG&rJ
{fffín// /Afí APfi/VJA
i //c//zM//Aff sfíjörA ft/s
\///Þc/fí.Fv/twRm// ,
ÓK/fífíí>/s/;fMéfí/ Sfífí
1 v.-tíiyfífíf/ FAfi///.
" . sx/r-
/fyofí. pzffí
V£fí0/A(J////y s?
Þá£M Fáfífí/ r
DÝRAGLENS
SMÁFÓLK
I KNOU) EVERVBOPV IN
THI5 FAMILY HATE5 ME!
I'M GOHNA 60 WHEKE
l'M APPRECIATEP!
Ég veit að allir í fjölsi.v .
unni hata rnig! Ég ætla uo
fara þangað sem ég er
metin______
THERE MU5T BE A
PLACE IN THI5 UJOR.LP
UIHERE 1‘PBEAPPRECIATER.
t>að hiýtur að vera einhver
staður í heiminum sem
kann að meta mig ...
Bentu mér á einhvem ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það er alltaf gaman að vinna
spil á einhverju nafnfrægu
bragði, eins og til að mynda
kastþröng eða öflugum blindum.
Þegar hægt er að koma við
tveimur slíkum brögðum í einu
spili verður ánægjan með sælu-
vímu:
Norður gefur.
Norður ♦ Á753 ♦ Á7
♦ K964 ♦ KD9
Vestur Austur
♦ D984 ♦KG -
♦ G954 ♦ 1082
♦ 53 ♦ ADG10872
♦ 852 ♦ 3
Suður ♦ 1062 ♦ KD63 ♦ - ♦ ÁG10764
Vestur Norður Austur Suður
— 1 spaði 3 tíglar 4 tíglar
Pass 4 spadar Pass 5 lauf
Pass 6 lauf Allir pass
Þriggja tígla sögn austurs
setti N/S út af laginu og varð
til þess að þeir keyrðu í fremur
slaka slemmu. Vestur spilaði út
tígli og sagnhafí gerði sér strax
grein íyrir því að hann fengi
aldrei nema 11 slagi með því
að stinga hjarta í borðinu. Hann
ákvað því að fjölga trompslögun-
um frekar með því að stinga
alla tíglana heima og halda þar
með möguleikanum opnum fyrir
kastþröng á vestur á hálitunum.
Til þess varð vestur að eiga
a.m.k. 4-4 í hjarta og spaða.
Eftir að hafa trompað tígul í
fyrsta slag dúkkaði sagnhafi
spaða til að koma á réttri hrynj-
andi fyrir kastþröngina, og eins
til að taka af austri spaðavaldið.
Austur spilaði aftur spaða til
baka og sagnhafi notaði innkom-
ur sínar vel til að stinga tígul.
í fjögurra spila endastöðu var
hann inni í blindum á hjartaás:
Norður
♦ 73
♦ 7
♦ -
Vestur ♦ - Austur
♦ D ♦ 9 ♦ -
♦ G95 llllll ♦ 102
♦ - ♦ DG
♦ - Suður ♦ 10 ♦ KD6 ♦ - ♦ - ♦ -
Laufníunni var spilað og
spaða kastað heima, og vestur
varð að gefast upp.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlega mótinu í Wijk aan
Zee í Hollandi í janúar kom þessi
staða upp í B-flokki í viðureign
júgóslavneska stórmeistarans
Hulak, sem hafði hvttt og átti
leik, og Braga, Argentínu.
39. Bf6! og svartur gafst upp,
því hann verður mát eða tapar
drottningunni. Hulak sigraði í
B-flokknum, hlaut 8 v. af 11
mögulegum. Næstur varð 17 ára
gamall Hollendingur, Jeroen Pi-
ket, með 7 v. Piket var lengst af
efstur og þurfti 1 'h vinning úr
síðustu tveimur skákunum til að
ná áfanga að stórmeistaratitli, en
tapaði þeim báðum.