Morgunblaðið - 20.02.1986, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1986
41
Sarah bjargaði
apaunganum
frá flóðhestunum
Síðan hafa þau verið óaðskiljanlegir vinir
Betra rúm er ekki hægt
að hugsa sér, mjúkur
inniskór með sæng sem
er gamall þvottapoki.
Monty er lítill apaungi og ef Sarah hefði
ekki komið honum til hjálpar á sínum
tíma hefði hann ekki lifað nema í nokkrar
klukkustundir. Unginn Monty fæddist í dýra-
garði í London og eitt sinn er apamóðirin var
eitthvað að sinna unganum sínum missti hún
hann og þá fór ekki vel. Básinn þar sem
aparnir halda til er nefnilega beint fyrir ofan
þann stað sem flóðhestarnir hafa tii umráða
og vesalings unginn datt beint niður til þeirra.
Fyrir hreina tilviljun voru tveir gæslumenn,
Jim og Sarah, að gæta að flóðhestunum þegar
atburðurinn varð. Sarah sem sá hvap gerðist
bað Jim að leiða athygli dýranna að einhverju
öðru en þessum ósjálfbjarga unga og um leið
og það tókst hljóp Sarah að apanum og tók
hann í sína vörslu.
Hún fór rakleiðis til apamóðurinnar með
Monty en þá gerðist nú það undarlega; móðirin
vildi hreint ekki sjá afkvæmi sitt og á þeirri
stundu ákvað Sarah bara að ættleiða hann.
„Eg hef ekki séð eftir þeirri ákvörðun.
Monty er bæði blíður og afskaplega góður
vinur. Ekki er hann plássfrekur, sefur í
gömlum inniskó af mér, baðar sig í kaffibolla
og borðar mjög lítið. Svo er þetta svo þægilegt
að ég get haft hann með mér hvert sem ég
fer. Hann situr í hliðarvagni á vélhjólinu mínu
á leiðinm í vinnuna og á meðan ég er önnum
kafin liggur hann í vasa mínum og sefur eða
situr á öxlinni á mér og fylgist með. Monty
hefur nefnilega mikinn áhuga á dýrunum og
fylgist vel með þeim nema þegar að flóðhest-
unum kemur. Þá grefur hann sig niður í vasa
minn og lítur ekki upp, fyrr en hann er viss
um að við séum komin framhjá.“
Sam Malone úr Staupasteini
(Cheers) sængar hjá hvaða konu
sem er og þykir því með eindæmum
lauslátur...
Abby Cunningham Ewing hjálp-
aði til við að ræna tviburum, átti í
ástarsambandi við mág sinn JR
Ewing og gerir næstum hvað sem
er ef peningar eru annarsvegar.
Robin Leach er ekki eins slæm-
ur og JR en það er nú kannski
ekki að marka. Að minnsta kosti
var hann látinn fylgja á listanum.
Robin fer annars með hlutverk i
þáttunum „Lifestyles of the rich
and famous".
Blance Devereaux eltir hvern
karlmann sem á vegi verður ...
Angela Channing úr Falcon
Crest er ekkert lamb að leika við
og lætur tilfinningar ekki hlaupa
með sig í gönur. Hún ber ekki virð-
ingu fyrir neinu og alls ekki fyrir
fjölskyldu sinni. Konukindin hefur
næstum gert dóttur sína sturl-
aða...
Jack Abbot úr „The young and
the restless", mútar og hótar systur
sinni, sefur hjá stjúpmóður sinni...
JR Ewing er illræmdastur, hefur
aldrei getað staðist freistingar,
ekki verið konu sinni Sue Ellen trúr
lengur en í tvær vikur í senn, svindl-
ar einsog hann getur í viðskiptum
og...
COSPER
COSPER 9620 '
— Hvaðfáum viðí kvöldverð?
4n
A U T A K J i ■ ■ O T
Nautahakk
10 kr. nautahakk
Nautahnakkafillet
Nautalundir
Nautafillet
Nautagullasch
Nautainnanlæri
Nautabuff
Nauta Roast Beef
K w A L F A K J ■ ■ O T
298 kr. kg.
259 kr. kg.
369 kr. kg.
728 kr. kg.
688 kr. kg.
525 kr. kg.
599 kr. kg.
550 kr. kg.
550 kr. kg.
Kalfahryggir
Kálfakótilettur
Kálfahakk
Kálfasnitchel
Hangikjötslæri
Úrb. hangikjötslæri
Hangikj.frampartur
Úrb. hangikjötsframp.
165 kr. kg.
188 kr. kg.
195 kr. kg.
397 kr. kg.
329 kr. kg.
237 kr. kg.
375 kr. kg.
S V w 1 N A K J ■ ■ O T
Svínalæri
Svínabógar
Svínahryggir
Svínakótilettur
Svínahamb.hryggur
m.beini
Úrb. svínahamb.
hryggur
247 kr. kg.
245 kr. kg.
470 kr. kg.
490 kr. kg.
508 kr. kg.
630 kr. kg.
L A M B A K J ■ ■ O T
Lambalæri
Lambakótilettur
Lambahryggir
Lambalæristeikur
Lambalærisneidar
Hreinsuð svið
Lado lamb læri beinl.
255 kr. kg.
225 kr. kg.
225 kr. kg.
209 kr. kg.
325 kr. kg.
118 kr. kg.
435 kr. kg.
KJÖTMIÐSTÖOIN Laugalaek 1. s. 686511