Morgunblaðið - 09.04.1986, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 09.04.1986, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL1986 „Það eru æðri máttarvöld, sem halda mér lifandi. Þetta var kraftaverk," sagði Pálmar Gunnarsson í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Morgunbiaðið/RAX „Guð mínn góð- ur við fljúgum ut- an í fjallshlíðina“ „ÞAÐ ERU æðri máttarvöld sem halda mér lifandi, þetta var kraftaverk," sagði Pálmar Gunnarsson, sem bjargaðist á giftu- samlegan hátt úr flugslysinu hörmulega í Ljósufjöllum á laugar- daginn, í samtali við Morgunblaðið á gjörgæzludeild Borgarspít- alans í gærkvöldi. Hann slasaðist talsvert er TF-ORM fórst en er á góðum batavegi. í slysinu missti hann konu sína og dóttur. í samtalinu lagði Pálmar áherzlu á þakklæti sitt til allra þeirra sem lögðu fram vinnu við leitina og björgunina, sérstaklega til Flugbjörgunarsveitarinnar. „Ég vil þakka öllu þessu fólki þeirra miklu aðstoð. Guðs blessun fylgi þeim,“ sagði Pálmar Gunnars- son. Pálmar fótbrotnaði og hand- leggsbrotnaði í flugsiysinu, vinstra auga er skaddað, hann nefbrotnaði, slagæð í kviðarholi skarst í sundur og missti hann mikið blóð. Pálmar er á batavegi og sömu sögu er að segja um Kristján Guðmundsson, sem einn- ig komst lífs af úr flugslysinu. Eins og tröllshramm- ur rif i í vélina í upphafí samtalsins talaði Pálmar um flugið fram að því að slysið varð: „Á leiðinni frá ísafírði hafði ég fylgst vel með flugmanninum og fannst hann rólegur og afslappað- ur, öruggur í öllu sem hann gerði. Ég hafði kíkt á hæðarmælinn við og við og það rifjaðist upp fyrir mér í dag, án þess að ég þori að fullyrða það, að mér finnst hann aldrei hafa farið ofar en í 9 þúsund fet. Þegar vélin lækkaði flugið og við höfum verið að nálgast Snæ- fellsnes hélt ég að við værum að komast á leiðarenda og sagði við Auði kpnu mína: „Nú er stutt eftir." Ég varð aldrei var við að neitt væri að mótor og fannst vélarhljóðið eðlilegt allan tímann. ís hafði hins vegar sezt framan á vélina á leiðinni. Þá allt í einu var eins og trölls- hrammur rifí í flugvélina. Hún þrýstist niður og við köstuðumst til eins og öryggisbeltin leyfðu. Mikil skelfíng greip um sig og fólkið hrópaði í angist. Flug- maðurinn reyndi að rífa vélina upp og beygja. Ég kastaðist út t hlið vélarinnar vinstra megin. Út um glugga sá ég fjallshlíðina nálgast á ógnarhraða og ég sagði: „Guð minn góður, við fljúgum utan í íjallshlíðina." Ég þrýsti litla bam- inu mínu að mér og reyndi að ýta konu minni niður til að veija hana eins og ég gat. Því miður tókst það ekki. Um það bil sem vélin skall í hlíðina hrópaði ég: „Guð minn almáttugur. Guð blessi okkur öll sem erum um borð í þessari vél.“ Ég hélt fast utan um kopu mína og dóttur og hrópaði: „Ég elska ykkur, Guð blessi ykkur." Litla stúlkan mín var dáin Hér tekur Pálmar sér málhvíld. Hann lifír slysið trúlega upp aftur. Þegar hann er tilbúinn að halda áfram stoppar hann nokkrum sinnum til að stijúka tár úr augum sínum. Hann rifjar upp stundimar löngu og erfíðu eftir slysið: „Ég held að slysið hafí orðið 20—25 mínútum yfír eitt á laugar- daginn. Ég rotaðist við höggið er vélin skall í hlíðina, en rankaði við mér þegar klukkuna vantaði 15 mínútur í tvö. Þá var litla stúlk- an mín dáin í örmum mér, en konan mín lá mikið slösuð í sætinu við hliðina. Ég reyndi eftir fremsta megni að hjálpa henni og gat hagrætt henni í sætinu, en átti þó erfítt með það þar sem hægri hlið mín, þeim sem megin sem Auður sat, var öll brotin. Mér tókst að skekkja mig í sætinu þannig að ég gat vafíð fótunum utan um hana. Hún fékk þá ein- hveija hlýju frá mér. Kuldinn var svo ofboðslegur. Ég hugsaði um að ég mætti ekki sofna, að ég yrði halda rænunni. Mér tókst það og held það sé enn eitt kraftaverk- ið. Flugmaðurinn lifði slysið af og ég sá að hann hreyfði sig. Ég kallaði tvisvar á hann meðan við biðum. Hann yppti aðeins öxlum við spumingum mínum. Ég sá að flugmaðurinn hreyfði hendina skömmu áður en björgunarmenn- imir komu. Kristján sat fyrir framan mig í vélinni. Hann var mikið kvalinn og var með hljóðum allan tímann. Eg held að tveir ferðafélaga minna hafi látist samstundis." Var orðinn úrkula vonar „Ég lifði allan daginn í öruggri trú um að okkur yrði bjargað. Þegar ekkert gerðist og farið var að dimma missti ég vonina. Mér fannst veðrið fara versnandi, það blés í gegnum velina og utan á hana hlóðst ís. Ég hugsaði með mér að núna væri þetta endanlega búið. Þá rétt á eftir sá ég blikk- andi ljós og hrópaði til björgunar- mannanna af öllum lífs- og sálar- kröftum. Er þeir skömmu síðar komu gangandi upp hlíðina veifaði ég eins og ég gat. Ég heyrði þá síðan tilkynna að flakið væri fundið og einhveijir væru með lífsmarki um borð.“ í lok samtalsins ítrekar Pálmar þakkir sínar til björgunarmanna. Hann biður góðan Guð að blessa þá og er hann fer í huganum yfír þessa atburði segir hann: „Þetta er svo hryllilegt allt saman að því verður vart lýst með orðum. Ég hélt ekki að nokkur maður gæti lent í svona löguðu. Að horfa upp á fólkið dáið eða að deyja allt í kringum sig og ég sitjandi með 11 mánaða gamla dóttur mína dána í fanginu. Þetta varsvo hryllilegt." - áij. Barnasíðan BARNASÍÐAN nefnist nýr þátt- ur sem hefur göngu sina á blað- síðu 40 í Morgunblaðinu í dag. Eins og nafnið gefur til kynna er þáttur þessi ætlaður bömum. Bamasíðan mun birtast á um það bil tveggja vikna fresti og eru böm hvött til að senda þættinum efni. Umsjónarmaður Bamasíðunnar er Málfríður Finnbogadóttir. Málfríður Finnbogadóttir um- sjónarmaður Barnasíðunnar. RÚVAK: Fimm sóttu um UMSÓKNIR um stöðu deildar- stjóra Ríkisútvarpsins á Akur- eyri voru lagðar fram á fundi útvarpsráðs í gær. Fimm sóttu um stöðuna, en umsóknarfrestur rann út 3. apríl síðastliðinn. Umsækjendur eru Ema Indriða- dóttir fréttamaður, Ólafur H. Torfa- son blaðamaður og Stefán Jökuls- son dagskrárgerðarmaður. Tveir umsækjenda óska nafnleyndar. Stúdentaráð HÍ: Vaka myndar meiri- hluta með fjór- um umbótasinnum Gengu úr Félagi umbótasinna og- stofnuðu nýtt Á Stúdentaráðsfundi í gær- kvöldi var myndaður nýr meiri- hluti í ráðinu. Samkomulag tókst á milli Vöku, félags lýðræðissinn- aðra stúdenta, og fjögurra af fimm ráðsliðum Félags umbóta- sinnaðra stúdenta um meirihluta. Félag vinstri manna og Félag umbótasinna höfðu haft meiri- hlutasamstarf síðan í janúar sl. Eyjólfur Sveinsson frá Vöku var kjörinn formaður Stúdentaráðs. Félagsfundur umbótasinna í fyrrakvöld hafnaði samkomulagi sem hafði tekist milli fulltrúa Vöku og umbótasinna, sagði Eyjólfur Sveinsson, nýkjörinn formaður Stúdentaráðs, í samtali við Morgun- blaðið. Hins vegar samþykkti fund- urinn samstarf við Félag vinstri manna. Fjórir áðumefndir fulltrúar umbótasinna lögðust gegn sam- þykkt fundarins og hafa sagt sig úr félaginu. Þeir hafa nú myndað nýtt félag, Stúdentafélagið Stígandi. Samstarfssamningurinn er á dá- lítið öðrum nótum en þeir samning- ar sem gerðir hafa verið undanfarin ár, sagði Eyjólfur. Að venju er lögð mikil áhersla á lánamál náms- manna, en einnig felur samningur- inn í sér að gert verði verulegt átak í félagsmálum stúdenta og kynn- ingu á Stúdentaráði bæði innan og utan háskólans. Auk Eyjólfs Sveinssonar voru kosnir í stjóm Stúdentaráðs: Gylfí Ástbjartsson varaformaður, Bene- dikt Bogason jrjaldkeri, Ama Guð- mundsdóttir, Asdís Guðmundsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir með- stjómendur. Jafnframt var Ásdís Guðmundsdóttir tilnefnd fulltrúi Stúdentaráðs í Lánasjóð íslenskra námsmanna. Bílaborg: Lækkar verð á varahlutum í gamla bíla MAZDA-UMBOÐIÐ BUaborg hf. hyggst lækka verð á varahlutum í Mazda-bifreiðir, árgerð 1980 og eldri, um 30 - 50%. Gert er ráð fyrir að lækkunin taki gildi í næstu viku. Þórir Jensson, forstjóri Bílaborg- ar hf., sagði í samtali við Morgun- blaðið að þessi lækkun hafí komið til tals eftir að tollar á bílum lækk- uðu, en eftir þá lækkun féllu eldri bílar, 6—7 ára gamlir, mikið í verði. Þórir sagði að hann vissi ekki til þess að önnur bílaumboð ætluðu að lækka verð á varahlutum í eldri bíla. Hann sagðist búast við því að þessi verðlækkun hjá Bflaborg hf. yrði til þess að önnur bflaumboð kæmu í kjölfarið og verð á varahlut- um í gamia bfla mundi aimennt lækka. Ritsíminn: 6.400 skeyti á einum degi 25 línur rauðglóandi frá morgni til kvölds UPP undir 80 manns unnu við það á Ritsímanum sl. sunnudag að afgreiða um 6.400 skeyti. Er þetta með því allra mesta, sem Ritsíminn hefur afgreitt á einum degi. Um 800 börn voru fermd þennan dag á landinu. „Við urðum að taka gamla Sig- tún undir starfsemina og vorum þar með viðbótarlínur fyrir númerið- okkar, 06,“ sagði sagði Óli Gunn- arsson varðstjóri á Ritsímanum. „Alls voru um 25 línur í notkun og allar rauðglóandi frá kl. 9 um morguninn til 8 að kvöldi." Að sögn Óla var ekki hægt að anna öllum beiðnum og þurftu því nokkur skeyti að bíða mánudagsins „eins og alltaf gerist á svona anna- sömum dögum. Álagið á er gífur- legt og eitthvað verður undan láta og einhveijir eru óánægðir eins og gengur." Óli sagði, að þrír dagar væru áberandi að þessu sinni, hvað varð- aði skeytafjölda. „Það var einnig mjög mikið að gera annan í páskum og verður annasamt nk. sunnudag — þá verða fermd um eða yfír 600 böm,“ sagði sagði hann að lokum. Fiskmarkaður við höfnina? SAMÞYKKT var samhljóða á fundi borgarráðs í gær, að fela hafnarstjóm að kanna mögu- leika á að í Reykjavík verði opnaður uppboðsmarkaður á fiski, svipað og tíðkast víða i hafnarborgum erlendis. í samþykkt borgarráðs er miðað við að haft verði samráð við físk- markaðsnefnd sjávarútvegsráðu- neytisins í því skyni, að fyrsti uppboðsmarkaður af þessu tagi hér á landi verði opnaður í Reykjavík. Ingibjörg Rafnar, formaður hafnar- stjómar, sagði í samtali við Morg- unblaðið, að upphafleg hugmynd um fiskmarkaði kæmi frá sjávarút- vegsráðuneytinu og væri þar miðað við að markaðir yrðu opnaðir víðar um landið. Hún sagði að ekki væri endanlega ákveðið hvar í Reykja- víkurhöfn markaðssvæðið yrði, ef af opnun yrði, en rætt hefði verið um stórt ónotað svæði vestan við Ægisgarð í þessu sambandi. Næsta skref yrði líklega það, að Hafnar- stjóm myndi fela starfsmanni sín- um að ræða við fiskmarkaðsnefnd um nánari framvindu málsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.