Morgunblaðið - 09.04.1986, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL1986
46
tn
Mark
Knopfler
A YNGRI
ÁRUM
Steven Spielberg hefur gert
kvikmynd „Leyndardómur
píramítans" er flallar um hinn
fræga spæjara Sherlock Holmes
á yngri árum. Þar er Holmes
látinn hitta sinn trygga fylgi-
naut John Watson árið 1879,
5i^ií5ísá«yrewárunum
Hver er hvers?
Peir sem við skemmtanaiðn-
aðinn vinna eru yfirleitt
mikið í sviðsljósinu, en vilja
gjarnan halda sinni fjölskyldu
fyrir utan slíkt. Hér er smáþraut
fyrir lesendur. Myndir af nokkr-
um frægum einstaklingum og
mökum þeirra eða fylginautum
(eftir því sem við best vitum) og
málið er hverja á að para saman?
Mark Knopfler
Brosmildir í félags-
skap prinsessunnar af
Wales.
er hann hóf skólagöngu í Lon-
don. Þeir félagar lenda vitaskuld
í leyndardómsfullum ævintýrum
eins og við er að búast.
— fyrirliði hljómsveitarinnar Dire Straits
„ n
ire Straits, breska hljómsveit-
in, er vel þekkt hér á landi og hefur
átt nokkur lög á vinsældalista rásar
2 að undanfornu. Ólíkt flestum
öðrum frægum hljómsveitum, segj-
ast þeir félagar hafa mjög gaman
af því að leika í litlum klúbbum og
nú nýverið birtust þeir óvænt í 18
ára afmæli er haldið var í einum
slíkum í Newcastle og fluttu þar
hljómlist sína gestunum til mikillar
ánægju.
Mark Knopfler stofnaði hljóm-
sveitina fyrir rúmum 8 árum. Hann
er aðalgítarleikari og semur flest
laga þeirra. Hann segist ekki lesa
nótur og gítarleikarinn Chet Atkins,
er gerði eitt sinn með honum plötu,
á að hafa látið það út úr sér, að
þessi breski náungi virtist ekkert
vita hvað hann væri að gera, en
það reyndist allt vera í besta lagi
er upp væri staðið. Mark Knopfler
fæddist í Glasgow fyrir 36 árum,
flutti til Newcastle á unga aldri og
sýndi fljótt áhuga á tónlist. Faðir
hans sem var ungverskur gyðingur,
arkitekt að mennt, var ánægður
með tónlistaráhuga sonarins og
reyndi að kenna honum að leika á
píanó og fiðlu, en með litlum árangri
því Mark vildi bara leika eftir eyr-
anu. Sinn fyrsta gítar fékk hann i
afmælisgjöf er hann varð 15 ára
og síðan hefur hann varla sést gítar-
laus. Að vísu gaf hann sér tíma til
að ljúka námi, lagði stund á ensku
við háskólann í Leeds og vann um
tveggja ára skeið við blaða-
mennsku, hjá Yorkshire Evening
Post.
Tónlistin varð ofan á og Mark
Knopfler hefur þénað mikið fé.
Byijunarörðugleikamir voru að
baki er „Sultans of Swing" komst
í efsta sæti á vinsældalistum um
allan heim fyrir átta árum. A eftir
hafa fylgt mörg önnur lög og hann
hefur einnig samið lög er aðrir
flytja s.s. Tina Tumer lagið „Private
Dancer". Töluverð mannaskipti
hafa orðið hjá Dire Straits og Mark
hefur verið spurður að því hvort
hann geri of miklar kröfur til manna
sinna. Því þvemeitar hann. Segist
aðeins vilja að menn leggi sig fram,
bæði hann og aðrir. Tónlistin sé
sitt líf og þegar hann sé að spila,
hvort sem það sé fyrir fáa eða
marga reyni hann að gera það betur
en nokkru sinni fyrr.
Þeir félagar eru látnir byija
snenuna að totta pípur.