Morgunblaðið - 09.04.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1986
5
Á teikningunni hér til hliðar getur að'
lita áætlun um aðalholræsi, svo og
lauslega kostnaðaráætlun við hvert
framkvæmdasvæði og framkvæmd á
tilteknu árabili.
1986. Grafarvogsræsi og bráðabirgð-
aútrás — 8 millj kr.
1986—1988. Holræsi við Sætún-Skúla-
götu ásamt dælustöðvum og útrásum
—156 millj. kr.
1988—1990. Holræsi við Ægisiðu
ásamt dælustöðvum og útrásum — 126
mil|j. kr.
1990—1991. Holræsi við Eiðsgranda-
Ánanaust ásamt dælustöðvum og útr-
ásum — 61 millj. kr.
1991. Holræsi í Sundahöfn — 32 millj.
kr.
1992—1993. Holræsi frá Sundahöfn í
Laugarnes og hreinsi- og dælustöð í
Laugarnesi — 87 millj. kr.
1993. Hreinsistöðvar í Skeijafirði og
Orfirisey — 55 millj.
Samtals nema þessar framkvæmdir
525 millj. kr.
Stórátak í holræsagerð í Reykjavík:
60 milljónum króna varið
til framkvæmda á þessu ári
Lögð fram 8 ára áætlun um hreinsun fjöru og sjávar umhverfis borgina
Nafnasamkeppni
Hagkaups:
5.700 til-
lögur bárust
HAGKAUP hefur borist 5.741
tillaga í samkeppni sem fyrirtæk-
ið efndi til um nafn á verslunar-
stórhýsið sem það er að byggja
í Nýja miðbænum. I þessum til-
lögum er að finna 2.308 nöfn.
Að sögn Sigurðar Pálmasonar
hjá Hagkaup voru flestar tillögum-
ar um nafnið Miðgarður eða 76,
Kringlan 75 auk hundraða tilbrigða
við það nafn, Kauphöllin 70, Hag-
bær 59, Pálmalundur 59, Háborg
50 og svo mætti lengi telja.
Þá má nefna tillögur eins og
Allt undir sama hatti, Allraland,
Alvara og Blöndungurinn. Eitthvert
þeirra nafna, sem bárust, verður
örugglega notað, sagði Sigurður
Pálmason.
Upphaflega áætlunin gerði ráð
fyrir að búið yrði að velja nafnið í
lok 15. viku, þ.e.a.s. þeirrar viku
sem nú er að líða.
Verðlaun í samkeppninni eru
125.000 krónur.
Sat aðeins
kynningarfund
Arnarflugsmanna
MORGUNBLAÐINU barst í gær
athugasemd frá Jóni Snorrasyni,
framkvæmdastjóra hjá Húsa-
smiðjunni hf., vegna baksíðufrétt-
ar blaðsins í gær af Arnarflugi
hf. Athugasemd Jóns er svo hljóð-
andi:
„Undirrituðum gafst kostur á,
ásamt ýmsum öðrum aðiljum, að
sitja kynningarfund hjá forráða-
mönnum Amarflugs hf. fyrir
nokkru. Að öðru leyti hef ég ekki
haft afskipti af málefnum félags
þessa síðan þá.
Reykjavík, 8. apríl 1986.
Jón Snorrason,
framkvæmdastjóri hjá
Húsasmiðjunni hf.“
LÖGÐ hefur verið fram i borgar-
ráði áætlun um aðalholræsi, sem
felur í sér hreinsun sjávar og
fjöru umhverfis borgina í áföng-
um á næstu árum. Að sögn
Davíðs Oddssonar, borgarsljóra,
er gert ráð fyrir að rúmum 60
milljónum króna verði varið til
þessara framkvæmda á þessu ári,
en áætlað er að verkinu ljúki
1993 og heildarkostnaður verði
samtals 525 milljónir króna. Búið
er að bjóða út fyrsta áfanga, sem
tekur til holræsa við Sætún og
Skúlagötu, frá Ingólfsgarði út í
Laugamestanga.
Davíð Oddsson sagði, að þegar
hefði verið gert verulegt átak við
hreinsun úrgangs í Grafarvogi, en
þar væri búið að hreinsa tveggja
kílómetra strandlengju. Væri það
fyrsta stóra átakið í langan tíma,
sem gert hefði verið í þessum efn-
um. Nýja áætlunin gengi hins vegar
út frá því, að við lok næsta kjör-
tímabils verði öll Ægisíðufjaran,
frá Fossvogsbotni að landamerkjum
Reykjavíkur og Seltjamamess orðin
hrein og jafnframt allt svæðið frá
Elliðaám og inn að gömlu höfninni.
Við lok kjörtímabilsins er svo gert
ráð fyrir að hreinsuð verði íjaran
við Eiðsgranda og Ánanaust. Borg-
arstjóri sagði, að borgin hefði þegar
hreinsað Fossvoginn að sínu leyti,
en þar sem Kópavogur hefði enn
allmargar rásir út í Fossvoginn
væri hreinsun þar erfiðari en ella
þyrfti að vera. „Við lítum á það sem
forgangsverkefni að hreinsa allar
Qömr í kringum borgina, sam-
kvæmt þessari áætlun,“ sagði
Davíð. „Hingað til hefur mönnum
vaxið kostnaðurinn í augum, en við
sjáum nú, miðað við þær fjárveit-
ingar sem við veitum í þetta á þessu
ári, að þetta er raunhæfur kostur."
Þórður Þorbjamarson, borgar-
verkfræðingur, sem kynnti áætlun-
ina í borgarráði, sagði í samtali við
Morgunblaðið að hér væri um að
ræða nýja tækni í holræsagerð hér
á landi, sem felur meðal annars í
sér að lagnir em lagðar út í viðun-
andi hafdýpi og viðunandi strauma,
þannig að lými myndist fyrir ör-
vemgróður í sjónum til að vinna á
úrganginum, áður en hann berst
upp á fjörur aftur. Auk þess væri
gert ráð fyrir hreinsistöðvum með
síuverki, sem hreinsa allt sýnilegt
úr skolpinu og ná úr því um 40%
af þeim lífrænu efnum sem í því
er. Þijár slíkar hreinsistöðvar verða
í holræsikerfínu, í Laugamesi, við
Örfírisey og í Skeijafírði.
í
I
{
I
Kaffipokinn
sem heldur ekki uatni
Danski KAFFE FILTER-pokinn er
sá.sterkasti á markaðinum. Pú
þarft hvorki að bretta upp á
kantana svo hann rifni ekki,
né nota tvo poka, til að uppáhell-
ingin heppnist vel. KAFFE
FILTER rifnar ekki, en heldur
samt ekki vatni.
KAFFE FILTER-pokunum er
pakkað í látlausar umbúðir, sem
gera það að verkum að verðið er
nánast helmingi lœgra en á
öðrum kafþpokum.
NOTAÐU STERKASTA OG ÓDÝRASTA
KAFFIPOKANN Á MARKAÐINUM.
\
j*
I
i
t
l
i
I