Morgunblaðið - 09.04.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL1986
23
Morgunblaðtó/Bjami
Frá vinstri Stefán Þórarinsson forstöðumaður, Davið Ólafsson Seðlabankastjóri, Jónas Rafnar formaður
bankaráðs Seðlabankans, Jóhannes Nordal Seðlabankastjóri, Ágústa Johnson ritari, Tómas Árnason
Seðlabankastjóri og Björn Þórhallsson aðstoðarbankastjóri.
silfri sem
úr
Seðlabanki íslands
tilefni þess að 100 ár eru liðin
frá því íslensk seðlaútgáfa hófst.
Minnispeningur
Islands gefur út í
Islensk seðlaútgáfa 100 ára:
Seðlabanki Islands gefur út minnispening
Á þessu ári eru liðin 100 ár
frá því íslensk seðlaútgáfa og
bankastarfsemi hófst í landinu.
Af því tilefni gefur Seðlabanki
íslands út 500 króna minnispen-
ing úr silfri og hefst sala hans í
dag. Þá voru liðin 25 ár frá því
Seðlabanki íslands hóf starfsemi
sína 7. apríl sl. Á fréttamanna-
fundi sem bankastjórn bankans
boðaði til kom fram að afmælis-
ins yrði ekki minnst sérstaklega
en áætlað er að leggja hornstein
að nýbyggingu bankans við Kalk-
ofnsveg 1 í byijun maí og verður
um leið opnuð höggmyndasýning
í húsinu en stefnt er að því að
Seðlabankinn og Þjóðhagsstofn-
un flytji í nýja húsnæðið um
næstu áramót.
Það yar 1. júlí 1886, sem Lands-
banki Islands tók til starfa og lét
í umferð fyrstu íslensku peninga-
seðlana. Minnispeningurinn sem
gefinn er út af þessu tilefni er með
mynd af íjallkonunni á framhliðinni
en fjallkonumynd var á bakhlið 50
króna seðilsins sem gefínn var út
1886. Á bakhlið er mynd af ára-
skipi undir seglum sem voru algeng
fyrir um 100 árum. Minnispening-
urinn er teiknaður af Þresti Magn-
ússyni teiknara, sem einnig teiknaði
myntseríuna sem gefin var út 1968.
Peningurinn er gefínn út í 20.000
eintökum, þar af eru 5000 peningar
úr “Viooo silfri og er söluverð þeirra
kr. 1.250 í vandaðri gjafaöskju. Þá
verða 15.000 stykki gefín út í
venjulegri sláttu úr “Viooo silfri og
er söluverð þeirra kr. 780 í plast-
hulstri. I upplýsingapésa sem fylgir
peningunum er í stuttu máli rakin
saga íslenskrar seðlaútgáfu í 100
ár. _
Ágóði af sölu peninganna mun
renna til Þjóðhátíðarsjóðs, en sjóð-
urinn veitir árlega styrki til varð-
veislu íslenskra menningarminja.
Minnispeningamir verða seldir bæði
á innlendum og erlendum markaði.
Hér á landi verða þeir til sölu í
bönkum, sparisjóðum og hjá helstu
myntsölum.
I tilefni afmælisins mun Lands-
bankinn í samvinnu við Seðlabank-
ann opna sýningu þar sem lýst
verður 100 ára starfsemi Lands-
„Ég er á móti
öllum höftum
- segir iðnaðarráðherra um innflutningskvóta á fatnað
„ÉG HEF ekki kynnt mér þessa
hugmynd sérstaklega en almennt
talað er ég á móti öllum höftum,“
sagði Albert Guðmundsson, iðn-
aðarráðherra, er hann var inntur
álits á hugmynd Guðlaugs Berg-
mann í Karnabæ um að settur
verði innflutningskvóti á fatnað
frá löndum í Austurlöndum fjær.
Albert sagði að þessar tillögur
Guðlaugs hefðu ekki borist iðnaðar-
ráðuneytinu og því ekki verið rædd-
ar þar sérstaklega. „Annaðhvort
verðum við að þola að vera í fríversl-
unarbandalögum og í frjálsri sam-
keppni eða þá að einangra okkur
með höftum og ég er ekki fylgjandi
því. Ég á reyndar bágt með að trúa
því að Guðlaugur sé allt í einu
orðinn fylgjandi slíkum viðskipta-
háttum. Hann hefur alltaf verið
mikill samkeppnismaður. Hitt er
svo annað mál að það getur verið
nauðsynlegt að grípa til einhverra
ráðstafana til að styrkja innlendan
fataiðnað. En ég er ekki fylgjandi
því að grípa til hafta í þeim tilgangi
eða niðurgreiðslna ríkisins eins og
Norðmenn eru famir að stunda,"
sagði iðnaðarráðherra.
STJÓRN Sinfóníuhljómsveitar
íslands hefur falið Sigurði
Björnssyni, framkvæmdastjóra
hljómsveitarinnar, að fara á fund
gríska hljómsveitarstjórans Kar-
olos Trikolidis og fara fram á
að endurskoðaður verður samn-
ingur, sem gerður hefur verið
við hann um að stjórna Sinfóníu-
hijómsveitinni i um átta vikna
skeið á næsta starfsári.
Hákon Sigurgrímsson, formaður
stjómar sinfóníuhljómsveitarinnar,
sagði í samtali við Morgunblaðið
bankans. Þar mun Seðlabankinn
sýna ýmsa verðmiðla frá fyrri öld-
um og alla íslenska peningaseðla
sem gefnir hafa verið út. Á sýning-
unni, sem haldin verður í Seðla-
bankahúsinu, verður sýnd kvik-
mynd um framleiðslu á seðlum og
mynt. Þar verða einnig sýndar
teikningar af nýja 5000 króna seðl-
inum sem Auglýsingastofa Kristín-
ar hf. hefur hannað og gefínn verð-
ur útíjúní.
Þá má geta þess að ný útgáfa
af „Iceland" kemur á markað um
mitt sumar eða síðar á þessu ári.
Þessi útgáfa verður nokkuð stærri
en fyrri útgáfur með alhliða lýsingu
á landi og þjóð á ensku.
VLT HRAÐABREYTAR
fyrir: dælustýringar,
færibönd, loftræstingar,
hraðfrystibúnað o.fl.
Danfoss VLT hraöa-
breytar fyrir þriggja fasa
rafmótora allt aö 150 hö.
Hraðabreytingin er
stiglaus frá 0-200% og
mótorinn heldur afli viö
minnsta snúningshraöa.
Leitið frekari upplýsinga
í söludeild.
= HEÐINN =
VÉLAVERSLIJN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA- LAGER
Fyrirhugað að endurskoða
samninginn við Trikolidis
Sigurður Björnsson framkvæmdastjóri Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar farinn utan til viðræðu við stjórnandann
að ákveðið hefði verið að fá Trikol-
idis til að endurskoða samning sinn
við hljómsveitina. Sú ákvörðun
kemur í kjölfar þess að Starfs-
mannafélag sinfóníuhljómsveitar-
innar ritaði stjóminni bréf þann 20.
mars síðastliðinn þar sem skorað
er á stjómina að hætta við ráðningu
Trikolidis. Tilefni áskomnarinnar
var að starfsmenn hljómsveitarinn-
ar töldu Trikoldis ekki starfi sínu
vaxinn.
Sigurður fór utan á sunnudaginn
og mun væntanlega hitta Trikolidis
að máli um miðja þessa viku.
HEWLETT PACKARD KYNNIR
UNIX NÁMSKEIÐ
HP á íslandi heldur UNIX námskeið í apríllok.
UNIX er fjölnotenda og fjölverka stýrikerfi
til almennra nota sem einfaldar tölvumeðferð,
gerir það afkastameira, sveigjanlegra og
eykur framleiðni þeirra sem í því vinna.
NÁMSKEIÐ I
25., 28. og 29. apríl
GRUNDVALLAR
HUGTÖK ( UNIX
Skráarkerfi og skipanaupp-
bygging Skel (SHELL): Inntak/
úttak/pípur. Einfaldar skipanir.
Vi ritþórinn.
UNIX
FRAMHALDIÐ
Hvernig „META" tákn eru
notuð. Hvernig skal skrifa
skelja (SHELL) forrit. Sam-
setning skipana.
skipanir.
Flóknari
UNIX
HJÁLPARFORRIT
(utility programs)
Tæki til hugbúnaðarþróunar.
Þýðing og tenging (compiling
and linking). Make - Forrita
sköpun. SCCS - Eftirlit for-
ritaskráa (Source Code Con-
trol System). AWK - Skýrslu
skrift.
NÁMSKEIÐ II
30. apríl og 2. maí
KERFISSTJÓRNUN
(System Administration)
Sérstaklega verður fjallaö um
stjórnun HP-UX kerfa, aðallega
með HP 9000/500 tölvuna í
huga.
HEWLETT
PACKARD
Vinsamlega tilkynnið
þátttöku ( síma 671000
HP Á ISLANDI • Höfðabakka 9-112 Reykjavík