Morgunblaðið - 09.04.1986, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL1986
51
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
ujtw -// lf
Þessir hringdu . . .
Miskunnarlaus
fréttaflutningur
Margrét hringdi:
„Fréttaflutningur sjónvarps-
ins af slysum er æði miskunnar-
laus. Þegar Hafþór heitinn
fannst í Sundahöfn var algjör
óþarfí að sýna svo ýtarlega
þegar jeppinn var dreginn upp
úr sjónum. Það er mjög sárt
fýrir ættingja að þurfa að horfa
á slíkt og þjónar auk þess engum
tilgangi."
Stóru vinningamir
Magnea Gunnlaugsdóttir
hringdi:
Eg er hrædd um að margir
hafí misst málið þegar vinninga-
skrá í ákveðnu happdrætti birt-
ist og sá stóri sem allir biðu
eftir lenti hjá umboðinu annað
árið í röð. Þetta er öfugt við
beljumar sem verða að nautum.
Happdrættin auglýsa stóru
vinningana með pompi og pragt,
gefa svo út miða á hvert manns-
bam í landinu og kannski rúm-
lega það. Það er útaf fyrir sig
gott að styðja gott málefni en
undir niðri blundar nú gróðavon-
in um þann stóra sem fær fólk
til að vera með. En það fer ekki
að duga mikið lengur þegar
maður veit að umboðin spila
sjálf á megnið af miðunum.
Hvað ætli bílamir hafi verið
margir sem hamingjusamir
vinningshafar óku heim á síð-
asta ári?
HEILRÆÐI
Sjómenn.
Kynnið ykkur staðsetningu handslökkivitækja um
borð í skipi ykkar.
Kynnið ykkur notkun þeirra.
Kynnið ykkur ástand þeirra.
Munið: Hafið ávallt greiðan aðgang að handslökkvitækjum, það
er aldrei að vita hvenær grípa þarf til þeirra.
Reykhús Morgunblaðsins
Agnar Helgason skrifar:
Það er til háborinnar skammar
fyrir Morgunblaðið hvemig lög um
tóbaksvarnir eru þverbrotin af
starfsfólki blaðsins í afgreiðslusöl-
um þess. Reykkóflð á almennu
auglýsingaafgreiðslunni er þvílíkt
að venjulegt fólk, sem ekki reykir,
stendur nánast á öndinni, þegar
komið er þar inn fýrir dyr.
Ástæðan fýrir þessum reiðiskrif-
um mínum nú er sú, að fyrir nokkru
átti ég leið þar inn í þeim tilgangi
að koma auglýsingu í blaðið. Með
mér var lítil frænka mín sem er
astmaveik. Það var talsvert að gera
í afgreiðslunni þegar við komum inn
og því þurftum við að bíða um stund
áður en röðin kæmi að okkur. Úr
því varð þó aldrei því litla stúlkan
byijaði fljótlega að hósta í reykjar-
svælunni, svo ég átti ekki annarra
kosta völ en að fara með hana út.
Þegar út var komið fékk bamið svo
slæmt astmakast að ég hélt bók-
staflega að það ætlaði að kafna.
Það er argasta skerðing á mann-
réttindum að geta ekki komið inn
á opinbera afgreiðslustaði án þess
að þurfa að anda að sér skít og
sjúkdómasvælu frá afgreiðslufólki.
Það er glæpsamlegt að geta ekki
farið með bamið sitt (eða annarra)
inn á opinbera staði án þess að
því liggi við köfnun. Ég vænti þess
að næst þegar ég kem inn á af-
greiðslu Morgunblaðsins hafí
starfsfólk verið skikkað til að reykja
sína stauta á afmörkuðum stöðum
og það tryggt að reykmengunin
berist ekki út á almennt afgreiðslu-
svæði, eins og lög gera ráð fyrir.
Úttektarmiðar svo allir
megi sjá þurfalinginn
Velvakandi góður.
Tilefni þess að ég sting niður
penna er þáttur Sonju B. Jónsdóttur
„Kastljós" 21. mars síðastliðinn.
Hann fjallaði um fátækt á íslandi.
Mig setti hljóða við að hlusta á
hann og hlýtur svo að hafa verið
um fleiri. Að slíkur smánarblettur
skuli vera á íslensku þjóðfélagi, að
einstæðar mæður og ung böm líði
næringarskort er meira en hægt
er að þola í okkar samfélagi. Öryrkj-
ar og lífeyrisþegar eiga sjálfsagt
ekki sjö dagana sæla, þegar full-
frískt fólk sem vinnur fullan vinnu-
dag og meira en það, fær ekki lifað
af og leitar á náðir félagsmálastofn-
unar. Þar er bikarinn tæmdur í
botn og tekið á móti úttektarmiðum
svo allir megi sjá þurfalinginn.
Stjómendur slíkrar lágkúru og lág-
launastefnu, háir sem lágir, eiga
skilyrðislaust að fá greiddan hluta
af sínum launum í úttektarmiðum,
svo enginn munur verði á. Peningar
félagsmálastofnunar og laun þeirra
koma úr sama kassa, ekki satt?
En hvað bærist innra með at-
vinnurekendum þegar þeir borga
smánarlaun fyrir keypta vinnu
þessa fólks? Það væri fróðlegt að
vita.
Að lokum, prestar þessa lands:
Hjálpið þeim sem bágt eiga. Reynið
að höfða til bróðurkærleika og
samkenndar í þeim sem í dag niður-
lægja fólk fyrir vinnu sína en út-
hluta öðrum hátt í mánaðarlaun í
ferðapeninga.
Svava
Flip'n'File
fyrir disklinga og snældur
Fæst einnig: Bókabúö Braga, Laugav. 118 v/Hlemm.
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRDI, SÍMI 651000.
TIL ÞEIRRA SEM EIGA STÓR SVEFN-
HERBERGI . . .
Á LAGER OKKAR ER ÚRVAL AF GEYSI-
FALLEGUM ÞÝSKUM OG HOLLENSK-
UM SVEFNHERBERGISSETTUM SEM
ERU MEÐÁFÖSTUM NÁTTBORÐUM
OG LAUSUM OG ERU YFIR 312 CM Á
BREIDD. ÞESSI BREIÐU RÚM SEUUM
VIÐ MEÐAN BIRGÐIR ENDAST MEÐ
SÉRSTÖKUM TILBOÐSKJÖRUM.
AÐEINS 20% ÚTBORGUN OG AF-
GANGUR Á ALLT AÐ 10 MÁNUÐUM.
■nii .... f || r U 9 m *
Tegund Karlsruhe Vandað eikarsett með lausum og föstum hirslum. Massívireikarlistar. Verð með dýnu 180x200 cm. kr. 66.790.- Útborgun aðeins kr. 13.790.- Afborgun aðeins kr. 5.300 á mán.
Við tökum að sjálfsögðu greiðslukortin sem útborgun á kaupsamninga og sem staðgreiöslu með 5% afslætti.
HÚS6A6NABÖLLIN BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK @ 91-6811 99og68 1410