Morgunblaðið - 15.05.1986, Page 1
80SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
105. tbl. 72. árg. FIMMTUDAGUR15. MAI1986 Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Morgunblaðið/RAX
Bandaríski
sjóherinn
stöðvar ^
herskip írana
Washington og Nikósíu. AP.
BANDARÍSKT herskip stöðvaði
á mánudag íranska freigátu
vegna þess að hún fór full nærri
bandarísku flutningaskipi á
Omanflóa. Skipverjar íranska
skipsins fengu fyrirmæli um að
hafa sig á brott, sem þeir og
gerðu.
íranar gerðu í gær loftárásir á
olíuvinnslustöð íraka nærri borginni
Kiruk í norðurhluta íraks. Stöðin
var reist nýlega og má vinna þar
milljón tunnur af olíu á dag. íranska
útvarpið greindi frá því að vinnslu-
stöðin hefði verið gereyðilögð. Árás-
in var gerð til að gjalda fyrir
sprengjuárásir íraka á olíuvinnslu-
stöðvar nærri Teheran, höfuðborg
írans.
íranar segja einnig að 500 íraskir
hermenn hafí látið lífíð í bardögum
undanfama tvo daga. írakar kveð-
ast aftur á móti hafa hrundið árás
írana og fellt 780 þeirra.
Þjófur bjó
ár í sófa
Doncaster, Englandi. AP.
INNBROTSÞJÓFUR, sem faldi
sig i eitt ár í sófa, fékk vægan
dóm vegna þess að dómarinn
taldi að hann hefði þjáðst nóg
og dæmdi hann til átta mánaða
skilorðsbundins fangelsis.
Lögreglumaður bar því vitni fyrir
réttinum að hinn atvinnulausi Bob
Cleghom hefði tekið botninn úr sófa
á heimili ættingja síns í bænum
Doncaster á Norður-Englandi og
búið þar í heilt ár. Cleghom var
handtekinn gmnaður um að hafa
stolið myndbandstæki, en honum
tókst að flýja úr greipum lögregl-
unnar.
Cleghom neitaði að segja frétta-
monnum hvemig hann lifði sófa-
vistina af og hvemig hann var
handtekinn. „Þið emð að sóa_ tíma
ykkar. Ég segi ekki neitt. Ég er
þegar búinn að gera mig að fífli,"
sagði innbrotsþjófurinn.
Koma á upp viðvörunar-
kerfi vegua kjamorkuslysa
segir Mikhail S. Gorbachev í ávarpi til sovésku þjóðarinnar
Moskvu, Bonn. AP.
NÍU manns hafa látist og 299
hafa verið lagðir inn á sjúkrahús
vegna slyssins í Chemobyl-kjam-
orkuverinu, að því er fram kom
í sjónvarpsávarpi Mikhails S.
Gorbachev, aðalritara sovéska
kommúnistaflokksins, til sovésku
þjóðarinnar í gær. Þetta er i
fyrsta skipti sem Gorbachev
ræðir um slysið opinberlega. í
ávarpinu sagði Gorbachev að
hann hefði framlengt banni við
tilraunum með kjamorkuvopn til
6. ágúst og bauð jafnframt Ron-
ald Reagan, forseta Bandaríkj-
anna, til viðræðna í Evrópu eða
borginni Hiroshima í Japan um
algert bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn. Þá lagði hann til
nánara alþjóðlegt samstarf á
sviði kjarnorkumála, þar sem
áhersla yrði lögð á viðvömnar-
kerfi vegna slysa.
Gorbachev sagði orsakir kjam-
orkuslyssins ekki að fullu kunnar.
Þó hefði orkuflæði í kjamakljúfnum
aukist mjög skyndilega, vetni hefði
safnast saman, sem síðan hefði leitt
til sprengingar og geislavirkni hefði
komist út f andrúmsloftið. Hann
sagði að stjómamefnd kommún-
istaflokksins hefði tekið að sér að
sjá um hreinsunarstarf vegna slyss-
ins og lokun kjarnakljúfsins og
hefði sérstök nefnd á hennar vegum
undir forsæti Nikolai I. Ryzhkov,
forsætisráðherra, það verk með
höndum.
Gorbachev vottaði fjölskyldum
og vinnufélögum hinna látnu og
slösuðu samúð sína. Hann endurtók
fyrri ásakanir stjómvalda í garð
ríkja á Vesturlöndum um að þau
hefðu ýkt afleiðingar slyssins úr
hófí. Þarlendir stjómmálamenn
reyndu að sá fræjum tortryggni í
garð hinna sósfalísku ríkja, sagði
hann. Hann sagði að þegar hefði
verið brugðist við fregnum um slys-
ið með viðeigandi hætti. íbúar í
Sovétríkjunum hefðu verið látnir
vita og erlendum ríkjum hefði verið
tilkynnt um slysið í gegnum sendi-
ráð þeirra. Engin skýring kom hins
vegar fram í ávarpinu á því hvers
vegna erlendum ríkjum var tilkynnt
svo seint um slysið, sem raun bar
vitni.
Gorbachev þakkaði hins vegar
ýmsum erlendum sérfræðingum og
fyrirtækjum fyrir að hafa boðið
fram aðstoð sína og sent Sovét-
mönnum nauðsynleg hjálpargögn í
skyndi. Hann nefndi sérstaklega
með nafni tvo bandaríska sérfræð-
inga í mergflutningi, sem nú starfa
við aðhlynningu sjúkra í Moskvu.
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, sagði í gærkveldi, að
Vestur-Þjóðveijar myndu halda
ótrauðir áfram að nýta kjarnorku
með friðsamlegum hætti. Áf kjam-
orkunni stafaði minni mengun, en
því að brenna kolum, sagði hann.
Pólska ríkisstjómin aflétti í
gærkvöldi banni við því að beita
búfénaði á haga og hætt var að
ráðleggja fólki að borða ekki græn-
meti. Sagði í tilkynningu ríkis-
stjómarinnar að geislavirkni væri
nú orðin eðlileg. Norðmenn, sem
töldu sig að mestu hafa sloppið við
geislavirkni frá Chemobyl-slysinu,
skýrðu frá því í gær að 30—40
sinnum hærri geislavirkni en eðli-
legt er hefði fundist í sveitum í
Þrændalögum. Ingvar Lindahl, yfír-
maður þessara mála í Noregi, tók
það hins vegar skýrt fram að þrátt
fyrir allt væri þessi geislun minni
en fyndist víða í Noregi af náttúm-
legum orsökum, svo sem á þeim
stöðum þar sem úraníum finnst í
jörð.
Sovétríkin:
Bandarísk-
um sendi-
manni vísað
úr landi
Moskvu. AP.
SOVÉTMENN hafa vísað einum
vamarmálaráðunaut bandaríska
sendiráðsins í Moskvu úr landi,
þar sem hann hafði verið staðinn
að verki við njósnir, að því er
opinbera fréttastofan Tass
hermdi í gær eftir heimOdum
innan sovésku leyniþjónustunn-
ar, KGB. Jaroslav Vemer, tals-
maður bandaríska sendiráðsins,
staðfesti í gær að maðurinn, Erik
Sites, hefði yfirgefið Sovétríkin
á laugardaginn var, en vildi ekki
tjá sig um ásakanir KGB.
Þetta er í annað sinn á þessu ári
sem bandarískum sendiráðsmönn-
um er vísað frá Sovétríkjunum
vegna ásakana um njósnir. í mars-
mánuði var Michael Sellers, öðrum
sendiráðsritara við sendiráðið, vísað
úr iandi. Vemer sagði að Sites hefði
starfað við vamarmáladeiid sendi-
ráðsins, en sagðist ekki vita hvaða
stöðu hann hefði gegnt þar, né hve
lengi hann hefði starfað í Moskvu.
í frétt Tass sagði að óvefengjan-
legar sannanir væm fyrir njósnum
Sites í Sovétríkjunum. Hann hefði
verið staðinn að verki, er hann átti
fund með sovéskum ríkisborgara
og væri nú þessi þegn í yfírheyrslu.
Frásögn Tass af brottvísun Sellers
fyrr á árínu var nánast með sama
hætti og nú. Sú brottvísun kom í
kjölfar þess að Bandaríkjamenn
kröfðust mikillar fækkunar i starfs-
liði Sovétríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum.
AP/Símamynd
Shcharansky ræddi viðReagan
Sovéski andófsmaðurinn Anatoly Shcharansky og Ronald Reag-
an, forseti Bandaríkjanna, áttu með sér hálftima fund í Hvita
húsinu seinnipart þriðjudagsins. Sjá frétt um fundinn á blaðsíðu
30.