Morgunblaðið - 15.05.1986, Blaðsíða 4
4__________________________________
Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR15. MAÍ1986
Tap liðins árs
tæpar 30 millj.
TÆPLEGA 30 milljón króna tap
varð á rekstri Steinullarverk-
smiðjunnar á Sauðárkróki á síð-
astliðnu ári. Þetta kom fram á
aðalfundi fyrirtækisins í fyrra-
kvöld, svo og að fjármálaráð-
herra og iðnaðarráðherra hafa
ákveðið að auglýsa til sölu hluta-
bréf ríkisins í fyrirtækinu, en
ríkið er 40% eignaraðili að verk-
smiðjunni.
í frétt frá verksmiðjunni segir
að hafa verði í huga, þegar litið er
á taprekstur sl. árs, að tilrauna-
reksturinn frá því í júlílok í fyrra
sé allur kostnaðarfærður, en sölu-
tekjur eingöngu vegna síðustu
þriggja mánaða ársins í fyrra.
Þar kemur jafnframt fram að
kostnaður við tilraunareksturinn
varð meiri en áætlanir gerðu ráð
fyrir, vegna galla á bræðsluofni
frá Elkem. Eru ráðgerðar samn-
ingaviðræður við Elkem vegna
þessa galla síðar í þessum mánuði.
Ámi Guðmundsson var kjörinn
formaður stjómar fyrirtækisins, en
aðrir í stjóm eru Snorri Egilsson,
Stefán Guðmundsson, Pentti Ljung-
quist og Ólafur Friðriksson. Fulltrú-
ar fjármála- og iðnaðarráðuneytis
eru Lára Ragnarsdóttir og Halldór
Kristjánsson.
Morgunblaðið/RAX
Bogí Araar Finnbogason tekur við gjöf Sambandsins úr hendi Er-
lends Einarssonar, forstjóra. Axel Gíslason aðstoðarforstjóri og Einar
Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóri SÁÁ, horfa á.
Sambandið gaf
100 þúsund krónur
STJÓRN Sambands íslenskra
samvinnufélaga ákvað á fundi
sínum á föstudaginn var að
styrkja starf nýstofnaðra sam-
taka foreldra fyrir vímulausa
æsku með fjárframlagi. Erlend-
ur Einarsson, forstjóri Sam-
bandsins, afhenti gjöfina, eitt
hundrað þúsund krónur, í dag.
Við henni tóku fulltrúar Samtaka
foreldra fyrir vímulausa æsku,
Bogi Amar Finnbogason, for-
maður undirbúningsnefndar,
Ragnheiður Guðnadóttir og Frið-
rik Theodórsson, sem einnig eiga
sæti í undirbúningsnefnd og
Hendrik Berndsen og Einar Kr.
Jónsson, formaður og fram-
kvæmdastjóri SÁÁ.
Erlendur Einarsson sagði við
afhendinguna, að þessi fjárstuðn-
ingur væri aðeins örlítill þakklætis-
vottur frá Sambandinu til þeirra,
sem nú væru að vinna framúrskar-
andi starf til þess að spoma við
vímuefnaneyslu ungmenna í
landinu. Af fáu hefðu menn meiri
áhyggjur en vaxandi neyslu eitur-
efna og gegn henni yrði að vinna
með öllum tiltækum ráðum. Hann
kvaðst vonast til þess, að þetta fjár-
framlag frá Sambandinu yrði til
þess að fleiri fyrirtæki í landinu
legðu málinu lið.
Bogi Amar Finnbogason þakkaði
gjöfina og sagði það gleðilegt, að
stærstu fjöldasamtök í landinu
hefðu orðið með þeim allra fyrstu
til þess að rétta Samtökum foreldra
fyrir vímulaua æsku hjálparhönd.
Árni ísaksson
veiðimálastj óri
Landbúnaðarráherra hefur
skipað Arna ísaksson fiskifræð-
ing í stöðu veiðimálastjóra frá
1. júní næstkomandi. Þá mun Þór
Guðjónsson láta af embættinu
eftir 40 ára starf.
Ámi ísaksson hefur starfað hjá
Veiðimálastofnun með námshléum
frá árinu 1961, en samfellt frá
1970. Hann var ráðinn fískifræð-
ingur við stofnunina í júlí 1967 og
skipaður_ deildarstjóri 1. janúar
1981. Ámi hefur verið fram-
kvæmdastjóri Laxeldisstöðvar ríkis-
ins í Kollafírði frá 1. júlí 1984.
Hann var settur veiðimálastjóri frá
1. nóvember 1984 til 30. aprfl 1985.
Fjórir aðrir sóttu um stöðuna:
Dr. Gísli Már Gíslason dósent, Há-
kon Aðalsteinsson rannsóknamað-
ur, Sigurður Guðjónsson verkefíiis-
stjóri og Sigurður R. Þórðarson
verkefnisstjóri.
Morgunblaðið/SigJóns.
Frá undirritun samningsins í gær. Stefán Ómar Jónsson bæjarstjóri, Guðmundur Sigurðsson bæjar-
fulltrúi, Guðmundur Kr. Jónsson bæjarfulltrúi og Guðmundur Þorvaldsson bóndi, Laugarbökkum.
„Einstök lipurð
sýnd þéttbýlinu“
„ÉG HELD að þessi samningur
sé mjög mikils virði, ekki síður
kaldavatnsréttindin," vegna
þess að hér fyrir ofan bæinn
eigum við ekki öll réttindi,"
sagði Guðmundur Sigurðsson
bæjarfulltrúi um samninginn
að lokinni undirritun.
„Ég tel nauðsynlegt að bæjar-
félagið tryggi sér vatnsréttindi.
Það er ljóst að svæði okkar í
Laugardælum er fullnýtt, og full
þörf á að afla vatnsréttinda í ná-
grenni bæjarins," sagði Guð-
mundur ennfremur. Guðmundur
Kr. Jónsson bæjarfulltrúi sagðist
telja þetta tímamótasamning fyrir
Selfoss, sem yki öryggi í vatnsöfl-
un fyrir bæinn. „Þama skapast
möguleikar á að ná í bæði heitt
og kalt vatn fyrir hinn almenna
notanda og fyrir atvinnustarfsemi
sem þarf á slíku að halda í miklum
mæli. Við gerðum þennan samn-
ing þegar upp kom að þessir aðilar
vildu leigja bænum réttindin á
þessum einstæðu kjörum. Við
höfum átt mjög góð samskipti við
þá Laugarbakkamenn og allar
samningaviðræður hafa gengið
mjög vel,“ sagði Guðmundur.
„Ég bind miklar vonir við þenn-
an samning," sagði Stefán Ó.
Jónsson, bæjarstjóri, „það er ljóst
að hér með Ingólfsfjalli er mikið
kalt vatn og heitt vatn er hér líka
í verulegum mæli. Við erum því
vel í stakk búnir með orku, eftir
þennan samning. Með samningn-
um sýna Laugarbakkamenn ein-
staka lipurð við þéttbýlið og að
því leyti er þetta tímamótasamn-
ingur."
— Sig.Jóns.
„ Vil að
þéttbýlið
ogjörðin
njóti hlunn-
indanna“
— segir Guðmundur
Þorvaldsson bóndi
á Laugarbökkum
„MITT viðhorf í þessu máli er
það að jörðin njóti þessara
hlunninda sem heita og kalda
vatnið gefa, en ekki ég sjálfur
sérstaklega með einhverri
hárri peningaupphæð," sagði
Guðmundur Þorvaldsson bóndi
á Laugarbökkum eftir að hann
hafði undirritað samninginn.
Guðmundur flutti að Laugar-
bökkum 1961 eftir að hafa starfað
sem lögregluþjónn í Reykjavík í
16 ár. Hann sagðist alltaf hafa
nýtt heita lind sem væri að fínna
í hlaðinu til þess að hita upp húsið
og heitt vatn væri að fínna víða
f landareigninni. „Það er ekki
hægt fyrir einn bónda að leggja
út í tvísýnar framkvæmdir við að
virkja heitt vatn. Ég vil því að
þéttbýlið taki þá áhættu og njóti
m-í -í
mí
’mé/i
hlunnindanna af vatninu," sagði hlunnindum jarðar sinnar til þétt-
Guðmundur sem stigið hefur býlisins við Ölfusárbrú.
einstkta skref með framsali á — Sig. Jóns.
Rangárvallahreppur:
Listi sjálfstæðismanna og óháðra ákveðinn
ÁKVEÐINN hefur verið fram-
boðslisti sjálfstæðismanna og
óháðra við hreppsnefndarkosn-
ingaraar i Rangárvallahreppi 14.
júní nk.
Listinn verður þannig: 1. Fannar
Jónasson viðskiptafræðingur. 2.
Drífa Hjartardóttir húsmóðir 3.
Hjördís Gísladóttir meinatæknir 4.
Unnur Þórðardóttir skrifstofumað-
ur 5. Amór Egilsson læknir 6.
Garðar Sigurðsson verslunarmaður
7. Ámi Magnússon bóndi 8. Garðar
Jóhannsson framkvæmdastjóri 9.
Gunnar Bragason háskólanemi og
10. Páll G. Bjömsson framkvæmda-
stjóri.
Við síðustu hreppsnefndarkosn-
ingar fékk listi sjálfstæðismanna
og óháðra 4 hreppsnefndarmenn
kjöma, þá Pál G. Bjömsson, Jón
Thorarensen, Gunnar Magnússon
og Áma Hannesson, en enginn
þeirra gaf kost á sér til setu í sveit-
arstjóm á næsta kjörtímabili.
— Jón