Morgunblaðið - 15.05.1986, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR15. MAÍ1986
ÍSLENSKlR TEXTl
ARNAR-VIDEO
MYNDBANDAUMBOÐ
SIMI 82128
SPEARFIELDS DAUGHTER
Nýr stórkostlegur myndaflokkur á þremur spólum sem enginn má láta
fram hjá sérfara. Kominn á myndbandaleigur.
Nyr. afar spennandi urvalsmyndaflokkur, gerður eftir samnefndri
metsolubók Jon Clearys (High Road to Chma). Cleo Spearfield
er ung, myndarleg og metnaðarfull blaðakona sem leggur lit
sitt fuslega i hættu til þess að na i goða frett. Hun lendir i
atökum Vietnamstriðsins, kynmst ógnvekjandi hliðum borgara-
styrjaldarinnar a N-irlandi, og i Þyskalandi ræna hryðjuverka-
menn henni
Mynd um atok. astir og hatur.
I aðalhlutverkum eru urvalsleikararmr Christopher Plummer,
Nancy Marchand, Steve Railsback og Kim Braden.
Framleiðslu þessa myndaflokks lauk fyrir rétt rúrrum manuði
[DEL3
Enn eru rtokkur sæti laus
í fyrirhatnaiiausar
hringterðjr Úrvals um
NorSurlönd í júní og júlí
I sumar efnir Úrval til
tveggja hringferða
um Norðurlönd. Megin-
markmiðið er að kynnast
höfuðborgunum fjórum,
Osló, Stokkhólmi,
Helsinki og Kaupmanna-
höfn, með eins aðgengi-
legum hætti og kostur er.
Fyrirhafnar-
laus ferða-
máti
Ferðirnar hefjast með flugi
til Oslóar. Þaðan er farið
með lest til Stokkhólms,
síðan með ferju til Helsinki
og aftur til Stokkhólms.
Frá Svíþjóð liggur svo
leiðin með lest til Kaup-
mannahafnar.
Alls staðar er farið í
skipulagðar skoðunar-
ferðir um borgirnar og
nágrenni þeirra. Heimsóttir
verða margir forvitnilegir
staðir. Gist er á fyrsta
flokks gististöðum og
góður tími gefinn til að
slappa af og kíkja ( versl-
anir.
íslenskur fararstjóri sem
öllum hnútum er kunnugur
sér um að allt fari eins og
best verður á kosið.
Verð pr. mann:
( þríbýli: 39.810,- kr.
(tvíbýli: 40.710,- kr.
í einbýli: 45.010,- kr.
Innifalið: Flug, lestar- og
ferjuferðir, hótelgisting í 9
nætur, ferjugisting í 2
nætur, morgunverður í 11
daga, skoðunarferðir,
aksturfrá og að flugvelli úti
og íslensk fararstjórn.
Brottfarir:
Fyrri ferðin stendur yfir frá
24. júní til 5. júlí og sú
síðari frá 15. til 26. júlí.
FERMSKRIFSrOKN ÚRVAL
Ferðaskrifstofan Úrval v/Austurvöll. Sími (91) 26900.
<
V)
—i
fi
t=
Tjiróttin dans
eftir Níels Einarsson
I tilefni af nýafstaðinni íslands-
meistaradanskeppni í latln- og stað-
al-dönsum 1986, á vegum Dans-
kennararáðs íslands (DÍ er fram-
kvæmdavald Danskennarasam-
bands íslands og Félags íslenskra
danskennara), sem fram fór á Hótel
Sögu sunnudaginn 20. apríl sl. óska
ég öllum þátttakendum og dans-
kennurum þeirra til hamingju með
frábært verk.
Neðanskráðir danskennarar
höfðu allan veg og vanda af fram-
kvæmd keppninnar þau Auður
Haraldsdóttir, Sigurður Hákonar-
son og Asta Tryggvadóttir sem
jafnframt var raunverulegur fram-
kvæmdastjóri. Aðrir starfsmenn
keppnisdaginn unnu einnig gott
verk og eiga þakkir skilið.
Þar sem ég hef staðið í álíka
framkvæmd og þessi danskeppni
var, sbr. gömludansakeppnimar og
alþjóðadanskeppnimar hérlendis,
veit ég að það sem þau fram-
kvæmdu var mikið átak.
Einu afskiptin sem kennarar
Nýja Dansskólans höfðu af þessari
keppni önnur en þjálfun nemenda
og hvatning annarra danskennara
til að fara af stað með slíka dans-
keppni, voru að beiðni ofanritaðra
nefndarmanna að:
1 Útvega verðlaunagripi.
2. Panta 4 borð á Hótel Sögu, þ.e.
eitt borð fýrir hvem dansskóla
sem var með þátttakendur. Þess-
ir dansskólar voru: Dansskóli
Sigvalda, Dansskóli Auðar Har-
alds, Dansskóli Sigurðar Hákon-
arsonar og Nýi Dansskólinn.
Önnur borð sem merkt voru frá-
tekin vom ekki á okkar vegum,
enda átti ekki að taka frá borð.
Ekki hef ég orðið var við að
neinn, hvorki danskennari né dans-
ari, sé ósáttur við úrslit, en af 200
keppendum geta ekki allir unnið.
Samt sem áður vinna allir með
aukinni þekkingu sem skapast af
æfingum.
Það er vafalaust erfltt að flokka,
svo hlutlaust geti talist, keppendur
í rétta riðla, þá sérstaklega þá sem
hafa verið aðstoðardanskennarar,
að þeir keppi ekki á móti leikmönn-
um. Geta má þess að allir þátttak-
endur vom til fyrirmyndar, bömin
og unglingarnir dönsuðu eins og
englar. Aldurshópurinn 35 ára og
eldri sýndi dansinum mikla virðingu
og sjálfír dansaramir íþróttaanda.
Hópurinn 16—34 ára var samsafn
hæfíleikamikilla dansara, sem eiga
mikla framtíð í dansinum, hvort
sem þau haldi áfram sem leikmenn
eða snúi sér að dansinum sem at-
Níels Einarsson
vinnu. Aðeins eitt par tók þátt í
riðli aðstoðardanskennara og ann-
arra launaðra dansara. Þetta par
verðandi danskennara stóð sig vel.
Ef framhald verður á þessum riðli
eins og öðmm er vonandi að aðstoð-
ardanskennarar og annað starfsfólk
Nýja Dansskólans verði með, en
sökum anna var ekki möguleiki á
þátttöku þeirra í þetta sinn.
Erlendu dómaramir þau Doris
Bmce Barker, Martin Cutler og
Carol Bedford unnu frábært starf,
vijð ákafíega erfiða aðstöðu.
Danssýning þeirra Martins og
Carol var frábært innlegg í þessa
danskeppni. Danssýning frá Jass-
ballettskóla Bám var stórkostleg,
og eiga stjómendur og dansarar
þakkir skilið. Hermann Ragnar
Stefánsson, forseti Danskennara-
ráðs íslands, og Bryndís Schram
kynnir vom réttar persónur á rétt-
um stað.
Segja má sem svo að þar sem ég
var ekki í framkvæmdanefnd
keppninnar ætti ég frekar að vera
gagnrýnandi. Ég veit að þetta verk
var mikið og erfítt og geri ráð fýrir
að við munum nota skynsemina og
læra af mistökum.
Ég hef ekki ætlað mér að gagn-
rýna það starf sem ofanritaðir
þremenningar unnu heldur óska
þeim til hamingju og jafnframt
þakka þeirra starf.
Þeir sem sáu þessa danskeppni
vita hve langt Islendingar em
komnir í þessari íþrótt, hið sorglega
er að sökum skorts á rými komust
færri áhorfendur að en vildu en
þröngt mega sáttir sitja.
Höfundur er dnnskennari ogfor-
maður Félags íslenskra danskenn-
ara.
Þjóðhátíð
Vestmannaeyja 1986
Vegna þjóðhátíðar Vestmannaeyja sem
haldin verður 1., 2. og 3. ágúst auglýsir
þjóðhátíðarnefnd Þórs eftirfarandi:
1. Óskað er eftir tillögum að þjóðhátíðar-
lagi og Ijóði 1986. Tillögum skal skilað á
snældum og vera merkt dulnefni, en nafn
og heimilisfang höfundar fylgi með í lok-
uðu umslagi. Tillögum skal skilað fyrir 15.
júní.
2. Óskað er eftir tilboðum frá hljómsveit-
um að leika fyrir nýju og gömlu dönsunum
á hátíðinni.
Tilboðum skal skilað fyrir 1. júní. Tillögur
og tilboð sendist í pósthólf 175, 902
Vestmannaeyjum, merkt: Þjóðhátíðar-
nefnd Þórs. Allar nánari upplýsingar veitir
Þór Vilhjálmsson í síma 98—1816 á kvöld-
in.
Þjóðhátíðarnefnd Þórs 1986.