Morgunblaðið - 15.05.1986, Page 25

Morgunblaðið - 15.05.1986, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1986 25 Málefnafátækt vinstri manna — dylgjur um skoðanakönnun Heimdallar út í hött eftir Þór Sigfússon Heimdallur, félag ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík, hefur nýlega gengist fyrir skoðanakönn- un um borgarmálefni fyrir Reykvík- inga á aldrinum 18-30 ára. Bæði Alþýðublaðið og Þjóðviljinn hafa birt greinargóðar lýsingar á inni- haldi þessarar skoðanakönnunar, en jafnframt hafa þessi blöð ásakað ungt sjálfstæðisfólk í Reykjavík um „gróflegar persónunjósnir" og „al- gert siðleysi". Það er víst ekkert nýmæli að vinstri menn reyni hvað þeir geti til að hylja málefnafátækt sína í borgarmálefnum með því að reyna að blása út ólíklegustu mál. Það sýnir sig kannski best í Alþýðublað- inu, þar sem umræðan um skoðana- könnunina þekur eina heila síðu af ijórum. Aður en lengra er haldið tel ég rétt að skýra út vinnuaðferðir þær sem viðhafðar hafa verið hjá ungu sjálfstæðisfólki í sambandi við þessa skoðanakönnun. 500 manna úrtak var valið af handahófi úr hópi Reykvíkinga á aldrinum 18-30 ára. Hópur ungs fólks í Sjálfstæðis- flokknum skipti þessu niður í hverfi og var könnunin síðan afhent þátt- takendum beint. Öllum þátttakend- um var jafnframt tiikynnt að þeir mættu ef þeir óskuðu senda könn- unina í pósti á skrifstofu félagsins, ómerkta að sjálfsögðu. Var því fólki afhent frímerki. Kemur nú að þætti Alþýðublaðs og Þjóðvilja í þessu máli. í Al- þýðublaðinu segir svo: „A síðustu blaðsíðu þessarar skoðanakönnunar er rækilega spurt, hvaða stjóm- málaflokk viðkomandi ætlar að kjósa. Spumingamar skipta mörg- um tugum. Þessi skoðanakönnun er siðlaus." í blöðunum er býsnast yfir ýmsum spumingum sem Heimdallur leggur fyrir ungt fólk í Reykjavík og hlýtur sú gremja vinstri manna að vera táknræn fyrir hrikalega málefnafátækt. Þeir böl- sótast yfir því að spurt sé hvem af efstu mönnum á listum hvers flokks viðkomandi telji hæfastan til þess að gegna borgarstjóraembætti. Getur verið að flokksblöð krata og alþýðubandalagsmanna séu feimin við samanburðinn á Davíð Oddssyni annars vegar og Bjama P. Magnús- syni og Sigurjóni Péturssyni hins vegar? Ennfremur er gagnrýnd spuming, sem er afar einföld en þó brennur hún á vömm ýmissa Reykvíkinga: „Hverjar telurðu líkur á góðu samkomulagi vinstri flokk- anna og virkri stjóm þessara hópa næstu fjögur ár?“ Eflaust má full- yrða að þessi spuming sé leiðandi að því leyti að bæði Sigutjón Péturs- son og Össur Skarphéðinsson hafa haft uppi efasemdir um ágæti vinstri sameiningar. Sigurjón lýsti því yfir að vinstri samvinnan í borgarstjóm hafi verið mjög baga- leg. Láir honum einhver stór orð þegar dæmin liggja svo glöggt fyrir? „Það er víst ekkert ný- mæli að vinstri menn reyni hvað þeir geti til að hylja málefnafátækt sína í borgarmálefnum með því að reyna að blása út ólíklegustu mál.“ Það er ljóst að ásakanir vinstri manna eru út í hött. En við Reykvrk- ingar getum lært ýmislegt af því að fylgjast með þessum bægsla- gangi á ritstjómarskrifstofum flokksblaðanna. Málefnin hafa al- gerlega vikið fyrir rógburði, sem ber keim af minnimáttarkennd og hræðslu við að staðreyndimar komi fram um málefna- og mannafátækt. Heimdallur er langstærsta stjóm- málafélag ungs fólks á íslandi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slík skoðanakönnun er gerð á meðal ungs fólks af félaginu enda höfum Þór Sigfússon við séð ástæðu til þess að leita svara við ákveðnum spumingum sem upp kunna að koma um málefni líðandi stundar til þess að átta okkur betur á því, hvað ungt fólk er að hugsa og hvað það vill. Þannig höfum við getað fylgt eftir baráttumálum ungs fólks í borgarstjóm sem ann- ars staðar. Stóm spumingunni er hér enn ósvarað: Hvaða ástæður liggja að baki því, að vinstri menn sjá ástæðu til þess að fara stórum orðum um athafnir ungs sjálfstæðisfólks, sem miða fyrst og fremst að því að fá vitneskju um þau mál sem efst eru á baugi hjá ungu fólki? Er kannski ástæða til að fullyrða, að lýðræðis- leg vinnubrögð séu í orði en ekki á borði hjá þeim, sbr. það að aldrei voru haldnir jafn margir lokaðir fundir eins og í tíð vinstri manna ’78-’82? Ungt sjálfstæðisfólk mun áfram beita sér fyrir því að koma baráttumálum ungs fólks áleiðis og mun ekki láta vinstri pressuna trufla sig við það. Það er þó einlæg ósk okkar að vinstri menn kynni stefnumál sín fyrir almenningi í stað þess að einblína á athafnir ungs sjálfstæðisfólks. Það sem af er hefur það unga fólk í Reykjavík sem tekið hefur þátt í skoðanakönnun Heimdallar, verið sátt við hana. Ljóst er, að þessi hópur áttar sig á því að hún er til þess ætluð, að ungt sjálfstæð- isfólk geti betur greint forystu- mönnum sínum frá þeim málum, sem efst eru á baugi hjá ungu fólki í Reykjavík. Höfundur er formaður Heimdall- ar. Eigum á diWX'M Sfc*"»S5EES!HE og garðvinnuna. Svalakassar og festingar í miklu urvali. Morgunblaðið/Albert Kemp Frá sýningu kvennanna á Fá- skrúðsfirði. Sýningkveima á Fáskruðsfirði Fáskrúðsfirði. NOKKRAR konur hér á Fá- skrúðsfirði efndu til sýningar í húsnæði grunnskólans laugar- daginn 10. maí þar sem þær sýndu ýmsa muni, sem þær unnu í vetur undir handleiðslu Guð- mundu Einarsdóttur. Var þetta útasaumur, brúðugerð og fata- saumur. Samtímis sýningunni var flóamarkaður og kaffisala á vegum kvenna er staðið hafa fyrir söfnun til byggingar dval- arheimilis aldraðra. Allmargt manna mætti á staðinn. — Albert LeirkerTerracotta, (úti og inni). Mikið úrval. Lífrænn garðáburður i blómabeð, matjurtagarða og a grasflatir. Útiker í mörgum stærðum. Veqgpottar úr leir. Hvítir, rauðir og brunir, margar stærðir. Tilbúinn garðáburður í 5,10 og 50 kg. Poku™' 2. Mosaeyðir (1,5 kg. a37,5 m .) Garðverkfæri og vökvunartæki. Gífurlegtúrval. Tréker undirtréog runna. Plöntusalan er hafin - Mikið úrval útibloma %■ Blómum „TrioraHÍÖaVCrold Gróðurhusinu ■sSvið Sigtúrv. Símar 36770-686340

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.