Morgunblaðið - 15.05.1986, Page 27
[■
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1986
27
Rannsóknastofnun landbúnaðarins:
Varhugavert að setja
niður matarkartöf lur
mikla efa og ég ræddi málið við
nokkra vini mína. í hundrað ára
sögu Samvinnuhreyfíngarinnar
hefur oft verið mikil lognmolla og
sofandaháttur, en hreyfíngin hefur
komið sér upp gífurlega mikilli
þekkingu í verslunarmálum og
þegar hún lolcs hugðist verulega
taka sig á og setja upp eigið flagg-
skip í verslun, þá kitlaði það mig
að einróma skyldi vera leitað til
mín til þess að stjóma því verkefni
og það er ekki ólíklegt að ætla að
maður fái oftar en einu sinni á
ævinni tækifæri til þess að byggja
upp og reka stærstu verslun lands-
ins. Slíkt er heillandi verkefni sem
ekki er hægt að ganga framhjá.
KRON á stærstan hluta í Mikla-
garði, eða 52%, SÍS á 30% og
Kaupfélög Suðumesja, Hafnar-
Qarðar og Kjalamesþings eiga
afganginn. Ég hef haft mikið sjálf-
stæði í skipulagningu og rekstri í
góðri samvinnu við stjóm fyrirtæk-
isins. Þarna eru mikil umsvif enda
má segja að strax á fyrsta ári hafi
fyrirtækið orðið eitt hið stærsta í
rekstri á íslandi. Mikligarður er
rekinn sem sjálfstæð eining hjá
Samvinnuhreyfingunni, fjölskyldu-
verslun þar sem fjölskyldan getur
sinnt öllum sínum verslunarþörfum.
Við kappkostum að vera með 1.
flokks matvörur og mikið vöruval
af góðum fatnaði og sérvöm á sem
hagstæðustu verði. Til þess að full-
nægja þessu leitaði fyrirtækið strax
eftir viðskiptasamböndum, sérstak-
lega í sérvömnni. Við höfum haft
á boðstólum meiri breidd af gæða-
vömm, en ég held að sé á boðstólum
annars staðar, enda er kjörorðið
okkar „mikið fyrir lítið“. Ég hef
sent innkaupamenn nokkmm sinn-
um til Austurlanda og í síðustu ferð
fór fulltrúi SÍS með okkar inn-
kaupafólki og keypti þá m.a. úlp-
urnar sem hafa valdið miklu fjaðra-
foki í fréttum að undanförnu.
Jú, það má segja að samskiptin
við innkaupadeild Sambandsins séu
í raun og vem góð, en vegna þess
hve við emm stór eining og sjálf-
stæð þá fömm við okkar eigin leið-
ir, enda varð mikil sveifla strax
þegar Mikligarður hóf viðskipti og
ég held að það sé samdóma álit
manna að vömverð hafi lækkað og
þjónustan við neytendur batnað í
kjölfarið. Þegar við fómm af stað
hófst nýr þáttur með aukinni sam-
keppni, en það er eitt atriði sem
skiptir miklu máli í okkar stórinn-
kaupum, það er magnafslátturinn
sem lækkar vömverðið.“
Sjálfstæður rekstur
Miklagarðs
„Rekur þú Miklagarð í raun sem
einkafyrirtæki?"
„Ég rek það ekki á annan hátt
en ég myndi gera ef ég ætti fyrir-
tækið sjálfur. Ég hef verið heppinn
með ráðningar á yfírmönnum fýrir-
tækisins. Menn hafa lagt sig alla
fram um að ná sem hagkvæmustum
árangri í innkaupum og rekstri
almennt."
„Finnur þú fyrir Sambandspóli-
tíkinni í sambandi við rekstur Mik-
lagarðs?"
„Á fundi mínum með forystu-
mönnum Samvinnuhreyfíngarinn-
ar,. þar sem ég sit sem fram-
kvæmdastjóri samstarfsfyrirtækis,
hef ég ekki orðið var við neina póli-
tík, enda held ég að á undanförnum
árum hafí SÍS eðli síns vegna snúið
í æ ríkara mæli frá hinum hörðu
pólitísku tengslum. Slíkt hlýtur að
vera eðlilegast í nútímaþjóðfélagi
þar sem enginn einn flokkur á
Samvinnuhreyfínguna. í nútíma-
þjóðfélagi gengur slíkt ekki upp.
Sambandið vegna stærðar sinnar
er ekkert annað en spegilmynd af
þjóðfélaginu og ef það árar illa í
þjóðfélaginu gengur starf Sam-
bandsins í samræmi við það. Það
er hins vegar ljóst að um þessar
mundir eiga sér stað miklar hrær-
ingar í skipulagsmálum Sambands-
ins, ýmsar breytingar hafa verið
gerðar að undanförnu og þeim
hefur fylgt talsverður titringur
innan Sambandsins og það er jafn
ljóst að ýmsir aðilar eru óöruggir
með sína stöðu. Samvinnuhreyfíng-
in stendur á tímamótum, heilu
deildimar hafa verið lagðar niður,
öðrum hefur verið slegið saman,
ný fyrirtæki hafa verið stofnuð,
umræður eru um stofnun fleiri og
nýr forstjóri er að taka við, þannig
að um veruleg umbrot er að ræða.“
„Er enginn þrýstingur af hálfu
Sambandsins til samstarfs í sam-
bandi við Miklagarð?"
„Það er ekki pólitískur þrýsting-
ur, ég er algjörlega sjálfráður í
ráðningum og innkaupum. Við velj-
um hæfasta fólkið, bestu vöruna á
hagstæðustu kjörum og sem dæmi
um hreyfínguna í þessu má nefna
að um 30% af innkaupum okkar sl.
ár voru vörur frá SÍS, en við keypt-
um inn vörur frá liðlega 500 aðilum
á sl. ári og þar á meðal frá öllum
helstu heildverslunum landsins."
„Framtíðarstaða Miklagarðs?"
„Sjálfstæðismenn í borgarstjóm
voru upphaflega á móti staðsetn-
ingu Miklagarðs vegna þess að
fyrirtækið er staðsett á samþykktu
hafnarskipulagi við Sundin. I upp-
hafí var samþykkt leyfí fyrir versl-
unina í 5 ár, en nú hefur borgar-
stjóm samþykkt tveggja ára fram-
lengingu á leyfinu á meðan skipulag
hafnarsvæðisins verður endurskoð-
að. Mikligarður er orðinn fastur
punktur í verslunarmunstri borgar-
innar og svo snar þáttur að það er
óhugsandi að mínu mati annað en
að verslunin verði þar áfram."
Þetta er einfaldlega
spurning um af komu
og árangur
Hvemig er svo að vera sjálfstæð-
ismaður hjá Sambandsfyrirtæki?"
„Það háir mér ekkert og er mér
heldur til styrktar ef eitthvað er.
Þetta er fyrst og fremst spuming
um að ná árangri. Maður verður
að líta yfir sviðið allt, horfast í
augu við þróun og þreifingar með
það fyrir augum að ná árangri og
þá er það árangur fyrir alla. Þetta
er einfaldlega spuming um afkomu
og árangur þegar upp er staðið.
Sumir kunningjar mínir úr pólitíska
starfínu skilja ekkert í því hvemig
það fari saman að vera sjálfstæðis-
maður og vinna hjá Samvinnuhreyf--
ingunni, en þetta er að mínu mati
jafn úreltur hugsunarháttur og hitt
að ráða menn eingöngu eftir flokks-
pólitískum lit.“
„En þótt þú lifir og hrærist í
versluninni þá sinnir þú einnig
ýmsum þáttum í almennu félags-
starfi."
„Ég sinni að sjálfsögðu einnig-
mínum hugðarefnum. Sem ungling-
ur sinnti ég skyttiríi af miklum
áhuga og þegar ég var 12 ára
gamall lánaði Hannes Ólafsson
fóstri minn mér haglabyssuns sína,
Barónsbyssuna, og þegar ég var
14 ára gaf hann mér riffil. Aldrei
hefur mér verið sýnt annað eins
traust, enda var Hannes heitinn
fóstri minn sá maður sem mér hefur
þótt einna vænst um af öllum
mönnum sem ég hef kynnst. Um
árabil var ég liðtækur radíóáhuga-
maður með kallmerkið TF-3JS. Ég
var þá í radíósambandi við menn
um allan heim og um tíma var ég
í stjóm alþjóðlegra áhugasamtaka
á því sviði og sat m.a. í stjórn með
Barry Coldwater frá Bandaríkjun-
um. Svo hef ég yndi af því að slást
í stjómmálunum. Ég hef alla tíð
starfað mikið innan Sjálfstæðis-
flokksins, sat í stjóm Heimdallar á
mínum yngri árum og um þessar
mundir er ég formaður í einu
stærsta hverfafélagi sjálfstæðis-
manna í Hóla- og Fellahverfi, sit í
stjóm fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík og ýmsum nefnd-
um, m.a. vegna komandi sveitar-
stjórnarkosninga og einnig er ég
formaður í Foreldra- og kennarafé-
lagi Hólabrekkuskóla og úr því að
þú spyrð um hugðarefnin þá vil ég
einnig nefna Skorradalinn þar sem
við eigum sumarhús og ævintýra-
vin.
Ég er bjartsýnismaður að eðlis-
fari. Á þeim verkefnum sem ég tek
að mér hef ég trú og áhuga og vinn
því að þeim af fullum krafti með
það að kjörorði að það sem er gott
fyrir fólkið er gott við mig.“
Rannsóknastofnun landbúnað-
arins hefur sent frá sér eftirfar-
andi frétt þar sem fólk er varað
við að setja niður í garða sína
kartöflur sem keyptar hafa verið
sem matarkartöflur:
Með reglugerð landbúnaðarráðu-
neytisins um sölu og dreifingu á
kartöfluútsæði frá 24. febrúar
1986, er reynt að spoma við frekari
útbreiðslu á kartöflusjúkdómnum
hringroti. Á almennum markaði
má eingöngu selja útsæði frá fram-
leiðendum sem til þess hafa fengið
leyfí. Slíkt leyfí hafa nú 43 fram-
leiðendur á Norðurlandi og 5 á
Suðurlandi. Rannsóknastofnun
landbúnaðarins hefur í samvinnu
við Búnaðarsambönd Eyjafjarðar
og Austur-Skaftafellssýslu skoðað
útsæðið hjá þessum framleiðendum
og ekki fundið sjúkdóminn né gmn
um tilvist hans.
Matarkartöflur em seldar frá
framleiðendum þar sem sjúkdómur-
inn hefur fundist. Þrátt fyrir að þær
séu fallegar útlits og ósýktar, geta
þær borið smit. Því em ræktendur
hvattir til þess að setja ekki niður
matarkartöflur heldur annað hvort
eigið útsæði eða kartöflur sem seld-
ar em sem útsæði. Ef einhverjir
hafa þegar sett niður matarkartöfl-
ur er mikilvægt að ekki sé tekið
undan þeim útsæði á næsta ári.
bomba!
. Nauta.
hamborgan
með brauði
AÐEIHS
kr.
19 pr.stk. Grí///<o,
00 19
URVALS
I l| Nautahakk
_ LEkkertvesen!; AOEIHS OO .00
39SM
pr.kg.
VÍÐIR
Opið tU kl.18.30
íMjóddinni
en til ki. 18 í Austurstraeti
)
AUSTURSTRÆTI 17- MJÓDDINNI
Grein:ÁrniJohnsen