Morgunblaðið - 15.05.1986, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR15. MAI1986
53
Opið bréf
til Selmu Júlíusdóttur formanns
Samtaka dagmæðra í Reykjavík
eftirSigrúnu
Jónsdóttur
Dagmæður í Reykjavík taka laun
samkvæmt gjaldskrá Samtaka
dagmæðra. í gjaldskránni eru ýmis
atriði sem þarfnast skýringa. Þess
vegna legg ég fram eftirfarandi
spumingar með ósk um svör.
1. Semja Samtök dagmæðra við
einhvern ákveðinn aðila um
kjaramál. Ef svo, hver er þá
sá aðili? En ef ekki, hver ákveð-
urgjaldskrá Samtakanna?
2. Þarf verðlagseftirlitið að sam-
þykkja gjaldskrá Samtakanna
eða einhver annar aðili?
3. Ber dagmóður að afhenda
forráðamanni bams, sem er í
gæslu hjá henni, gjaldskrána
og upplýsingabæklinginn frá
Félagsmálastofnuninni?
3. a Þegar breyting verður á gjald-
skrá, ber þá dagmóður að
afhenda nýja gjaldskrá for-
ráðamanni bams? Ef svo er,
með hvað löngum fyrirvara?
4. Talað er um starfsreynslu
dagmóður í gjaldskránni, er þá
átt við starfsreynslu við bama-
fæslu?
gjaldskrá Samtakanna stend-
ur: „Greitt skal fyrir þann
fjölda tíma og máltíða sem
samið er um í upphafi mánaðar,
þó ekki sé notað,“ þýðir þetta
að maður geti samið um breyti-
legan tímafjölda frá mánuði til
mánaðar ef þörf krefur (t.d.
fyrir þá sem hafa breytilegan
vinnutíma)?
6. Kaupgjaldið fyrir umsaminn
tíma eru laun dagmóðurinnar
Leiksýning á
Barðaströnd
Barðaströnd.
LEIKFÉLAG Patreksfjarðar sýndi
hér leikritið Leynimel 13 undir leik-
stjóm Kristjáns Jónssonar. Sýning-
in tókst mjög vel og sóttu hana 75
Barðstrendingar og að sögn leik-
enda vom þetta bestu undirtektir,
sem þeir höfðu fengið til þessa.
-SJÞ
og greiðist þó ekki sé notað,
en hvernig má það vera að
greiða þurfi fyrir útlagaðan
kostnað, fæði, viðhald, leikföng
og fl., þá daga sem bamið er
fjarverandi svo og á lögboðnum
frídögum?
7. Ber dagmóður að sýna forráða-
manni barns staðfestingu á
starfsreynslu sinni svo og stað-
festingu á námskeiðum sem
hún hefur sótt?
„Tímakaup er ekki tekið ef
barnið er fast 3 tíma á dag eða
lengur, þá er einnig tekin mán-
aðargreiðsla, stendur í gjald-
skrá Samtakanna, gildir þetta
ekki um reynslutímann (2 vik-
ur)?
9. Þarf fastráðning að hefjast í
beinu framhaldi af reynslu-
tíma?
10. Er einhver aðili, sem fylgist
með að dagmæður framfylgi
þeim skilyrðum sem sett em
við leyfisveitingu?
11. Ber dagmóður að sýna forráða-
manni bams matarkort það,
sem fylgir leyfi dagmæðra?
12. Hvers vegna fær Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar,
nánar tiltekið umsjónarfóstmr,
ekki gjaldskrá Samtaka dag-
mæðra?
13. I gjaldskrá Samtakanna stend-
ur, að ef dagmóðir veikist, beri
henni að greiða til baka þá
daga sem hún er frá. Ber henni
einnig að gera það ef bamið
er forfallið sömu daga og hefði
ekki nýtt umsaminn gæslu-
tíma?
Að lokum langar mig til að vekja
athygli á eftirfarandi: í upplýs-
ingabæklingi Félagsmálastofnunar
stendur: „Oæskilegt er að bam
komi með sælgæti í daggæsluna
en komi það fyrir ber að afhenda
það dagmömmunni, sem skiptir
því milli þeirra bama, sem í hennar
umsjón em.“ Væri ekki ráðlegt að
sleppa sælgætinu alveg. Tann-
læknafélag Islands hefur mælt með
einum sælgætisdegi í viku með til-
liti til tannvemdar.
Höfundur er skrifstofunmður,
sem þarf að nýta sér þjónustu
dagmóður.
ryaib er alveg sama eftir hverju þú sækist í
sumarleyfinu - þú finnur það allt í Róm:
Gott veður, frábæran mat, æðislega flott föt,
glæsilegar byggingar, fornminjar, fjörugt
næturllf, fjölskrúðugt götulíf, stórkostleg
söfn og skemmtilegt fólk við hvert fótmál.
Svo er líka örstutt á úrvals baðströnd.
Vikan á 1. flokks hóteli
kostar aöeinsfrá
kr 30.930.-á mann
Brottfarir eru alla mánudaga og föstudaga.
Flogið er samdægurs til Rómar með við-
komu í Luxemborg. I Róm stendur valið um
fjögur frábær hótel og verð fyrir viku er frá
kr. 30.930,- í tvíbýli. Innifalið er flug, gisting
í 7 nætur í Róm og morgunverður.
Sérstök hóþfevö 20.júní
Flogið er samdægurs I gegnum Lúxemborg
til Rómar. Þartekurfararstjóri á móti hópn-
um og ekur honum á Hotel Mondial, sem
er mjög gott 3ja stjörnu hótel á besta stað -
rómað fyrir góða þjónustu. f boði eru fjöl-
breytilegar skoðunarferðir.
Verð í tvibýli er kr. 31.690,-.
í einbýli kr. 36.060,-. Innifalið er flug,
gisting í 7 nætur í Róm, morgunverður
og íslensk fararstjórn. Á heimleið er gist
eina nótt í Luxemborg (ekki með í verði),
og þar er hægt að framlengja dvölina að
vild. Ríflegur barnaafsláttur.
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og um-
boðsmenn um land allt.
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL
—V—
Feröaskritstofan Úrval v/Austurvöll. Sími (91) 26900.
NYRSKOÐA
FRAKR.139.900
JOFUR
HF
" ■' "7
NYBYLAVEGI 2 • SIMI 42600
(