Morgunblaðið - 15.05.1986, Page 54
54
MÓRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR15. MAÍ1986
Faðirokkar, t STÍGUR GUÐJÓNSSON
vélstjóri frá isafirði,
Kaplaskjólsvegi 54,
er látinn. Börnin.
t
Faðirokkar,
INGVAR MAGNÚSSON,
bóndi, Hofsstöðum,
lést 13. maí. Útförin auglýst síðar.
Ingólfur Ingvarsson,
ingunn Ingvarsdóttir,
Júlfus Ingvarsson,
Helga Ingvarsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BJÖRGVIN INGIBERGSSON
j blikksmiðameistari,
Langagerði 36,
lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans aö morgni 13. maí.
Aðalheiður Bjargmundsdóttir,
Bjargmundur Björgvinsson,
Ásdfs Björgvinsdóttir,
Aðalheiður B. Björgvinsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
t
TÓMAS R. JÓNSSON,
Blönduósi,
lést 10. maí. Útför hans fer fram frá Blönduóskirkju 17. maí kl.
16.00.
Ragnar Ingi Tómasson, Anna Guðmundsdóttir,
Ásta Heiður Tómasdóttir,
Nanna Tómasdóttir, Skúli Pálsson,
Kristín B. Tómasdóttir, Einar Kristjánsson
og fjölskyldur.
; t
Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
PÉTURBRANDSSON
loftskeytamaður,
Vatnsstfg 4,
lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 10. maí.
Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju föstudaginn 16. maí
kl. 10.30.
Jón Pétursson, Sigrfður Guðmundsdóttir,
; Guðmundur Pótur Jónsson, Hanna Björk Jónsdóttir,
Viktor Ingi Jónsson.
í
J
*
«
Bróðir minn, t JÓN JÓHANNESSON,
Dalbraut 9,
Bíldudal,
er látinn.
Útför hans verður gerð frá Bíldudalskirkju laugardaginn 17. maí
kl. 14.00. Aðalheiður Jóhannesdóttir.
t
Útför móður okkar,
DÝRFINNU JÓNSDÓTTUR,
fer fram frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 17. maí kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkað, en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Eyvindarhólakirkju.
Börnin.
t
Útför móður okkar,
KRISTÍNAR ÓLADÓTTUR
frá Stakkhamri,
sem lést að Oroplaugarstöðum 6. maí, fer fram frá Fossvogskirk-v
föstudaginn 16. maíkl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Börnin.
Sigrún Stefáns-
dóttir - Minning
Fædd 14. október 1898
Dáin 5. maí 1986
í dag er til moldar borin ástkær
tengdamóðir mín eftir árslanga
sjúkdómslegu.
Þegar ungt fólk dregur sig
saman er því lítt í huga að það er
að tengjast öðrum ættum og stofna
til tengsla við fjölda fólks. Fyrir
mér var þetta strax ótvírætt og
ánægjulegt. Sumarheimsókn og
dvöl að Eyjardalsá í Bárðardal þar
sem Sigrún tengdamóðir mín fædd-
ist árið 1898, hófst strax í til-
hugalífínu og varð fastur liður, ekki
síst þegar böm okkar hjónanna
voru fædd. Þar bjuggu þá systkini
hennar, Jón og Guðný, sem ég
þekkti síðan ætíð sem Jonna frænda
og Gýju frænku. Anna systir þeirra
varð einnig Anna frænka. Hún var
þá kennari á Laugum en dvaldi
lengstum að Eyjardaisá á sumrum.
Foreldrar þeirra systkina voru Stef-
án Jónsson og Anna Jónsdóttir sem
þar bjuggu áður. Löngu látnar voru
tvær systur, Aðalbjörgog Jónína.
Á næstu bæjum við Eyjardalsá
og víðar í sveitinni bjuggu nær- og
fjarskyldir frændur. Betri og elsku-
legri móttökur í fjölskyldufaðm en
verðandi tengdamóður, systkina
hennar og frændgarðs var ekki
hægt að hugsa sér. I Bárðardal fékk
ég að kynnast traustu þingeysku
bændasamfélagi sem færði mig nær
uppruna mínum, ættaður úr sýsl-
unni en fæddur og uppalinn í öðrum
landshiutum. Minningar mínar frá
þessum heimsóknum eru mér dýr-
mætur fjársjóður. Eldri böm okkar
hjóna eiga ljúfar minningar frá
þessum árum og enn er talað um
leikfélagana Mósa, Lubba og Grá-
loppu. Tengslin við þetta samfélag
urðu enn nánari þegar mér veittist
sú ánægja að vinna fyrir vinsælan
héraðslækni þeirra sumrin 1964 og
1965. Eftir að hafa flutt til Vestur-
heims til frekara náms, var unnt
að halda sambandinu við með stöku
sumarheimsókn.
Þegar fór að halla undan fæti
hjá Jóni og Guðnýju fluttu til þeirra
Baldur Vagnsson frændi þeirra og
kona hans Sæunn Gestsdóttir og
tóku við búrekstri. Guðný lést árið
1971 meðan við dvöldum enn vestan
hafs og auðnaðist okkur ekki að
fylgja henni til grafar. Þau hjónin
veittu Jóni góða umönnun þar til
hann varð að leggjast inn í sjúkra-
húsið á Húsavík, þar sem hann
dvaldist síðasta árið. Jón lést í júní
1974. Ættingjar hans og sveitungar
fjölmenntu að útför hans sem fór
fram frá Ljósavatnskirkju á fögmm
sumardegi. Undirbúningur hafði
farið fram með dyggilegri aðstoð
ættingja og vina í héraði einkum
Baldurs og Jóns Hermannssonar á
Hvarfí. Fyrir mér er þessi látlausa
virðulega jarðarför enn sú þjóðleg-
asta athöfti sem ég hef lifað. Reisn-
in yfír þessari jarðarför og einlægni
þeirra sem fylgdu Jóni síðasta
spölinn er ólýsanleg. Þannig vildi ég
verða kvaddur. Hafí búið í mér
alheimsborgaradramb eftir tæplega
8 ára dvöl erlendis læknaðist það
a.m.k. að hluta. Af systkinunum sex
frá Eyjardalsá er nú aðeins Anna
eftir, búsett á Dvalarheimilinu Hlíð
á Akureyri.
Æviferil Sigrúnar rek ég ekki
náið en fyrir mér er hvað athyglis-
verðastur dugnaður hennar við að
afla sér menntunar á þeim árum
sem slíkt var forréttindi karla-
manna. Fyrst með námi í Gagn-
fræðaskólanum á Akureyri þar sem
hún lauk Gagnfræðaprófí og síðar
í Samvinnuskólanum þaðan sem
hún lauk námi meðal fyrstu ís-
lenskra kvenna. Árin 1920-1922
dvaldi hún við nám í Kaupmanna-
höfn. Frá 1923 til 1940 stundaði
hún veitinga- og gistihúsrekstur í
Borgamesi ásamt þáverandi eigin-
manni sínum, Vigfúsi Guðmunds-
syni. Markverðast á atvinnuferli
hennar mun þó ætíð verða talið
vinna hennar að íslenskum heimilis-
iðnaði. Hún var forstöðukona ís-
lensks heimilisiðnaðar frá 1951-
1967 og vann þar áfram í áratug
eftir að hún var komin á eftirlauna-
aldur. Fyrir störf sín að heimilisiðn-
aðarmálum var hún sæmd Riddara-
krossi. Eftir að hún var hætt að
vinna utan heimilis síns tók hún
þátt í leiðbeinandastörfum í föndri
og hannyrðum fyrir „gamla fólkið"
sjálf orðin hálfníræð.
Við hjónin fengum að hefja okkar
búskap í íbúð hennar og meðan við
dvöldum þar í góðu samlyndi fædd-
ust tvö eldri bömin okkar hjónanna.
Ánægja hennar af bamabörnunum
var mikil. Meðan á dvöl okkar í
Vesturheimi stóð var hún dugleg
við heimsóknir til fjölskyldu sinnar
þótt hún væri komin á efri ár.
Þegar litið er til baka em minnis-
stæð mörg persónuleg atvik frá
fyrstu kynnum eins og óumbeðinn
þvottur og viðgerð á gömlu togara-
peysunni minni. Eg var hissa hvað
hún var hlýrri og liprari eftir það
í vetrarveðrum á Halamiðum.
Ógleymanleg er einnig óvænt pen-
ingasending þegar ég fór á íþrótta-
námskeið erlendis að sumarlagi,
einkum þegar allar líkur vom þá á
að ekkert yrði úr frekara vinfengi
milli unga fólksins. Gleði hennar
þegar vel gekk á atvinnuferli mín-
um var sönn, einnig var stuðningur
og hvatning einlæg þegar á móti
blés.
Sigrún hafði mikla ánægju af
ferðalögum hvers konar og við fjöl-
breyttar aðstæður. Fyrstu sameig-
inlegu ferðimar vom útilegur og
tjaldferðalög með okkur hjónunum
og bamabömunum hér heima, en
síðar í þjóðgörðum Bandaríkjanna.
Sannaðist • vel hið fornkveðna
„þröngt mega sáttir sitja" þegar
við dvöldum sex saman í tjaldi. Ein
síðasta sameiginlega stórferðin var
til Alta í Norður-Noregi í fylgd með
íslenska landsliðinu í ftjálsíþróttum
í Kalott-keppni. í minn hlut kom
að vera einn af fararstjómm. Eina
Birting afmæl-
is- ogminning-
argreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
I minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki em
tekin til birtingar fmmort ljóð
um hinn látna. Leyfílegt er að
birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3
erindi og skal þá höfundar getið.
Sama gildir ef sálmur er birtur.
Meginregla er sú, að minningar-
greinar birtist undir fullu nafni
höfundar.
Systirokkar, t SIGRÍÐUR SVEINBJARNARDÓTTIR,
Ystaskála,
Vestur-Eyjafjöllum,
verður jarðsungin frá Ásólfsskálakirkju föstudaginn 16. maí kl.
15.00. Systklni hinnar látnu.
t
Útför
GUNNHILDAR GUNNARSDÓTTUR
frá Breiðholti, Garöabœ,
fer fram frá Garðakirkju laugardaginn 17. maí kl. 11.00.
Geirþrúður Gunnarsdóttir,
Margrét Lilja Friðriksdóttir,
Geirþrúður Ársælsdóttir,
Gunnar Yngvason.
t
Útför móður okkar,
DAGMAR JÓNSDÓTTUR,
Snorrabraut 75,
ferfram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 16. mai kl. 13.30.
Geir Valgeirsson,
Guðrún J. Valgeirsdóttir,
Ingibjörg Valgeirsdóttlr,
Sigrfður Þ. Valgeirsdóttir
og fjölskyldur.
t
HREINN ÁSGRÍMSSON,
fyrrverandi skólastjóri,
Vogum, Vatnsleysuströnd,
verður jarðsunginn frá Kálfatjanarkirkju laugardaginn 17. maí kl.
13.30 e.h. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað. Þeir sem vilja
minnast hins látna láti Krabbameinsfélagið njóta þess.
Hulda Kristinsdóttir og dætur,
foreldrar og systkini hins látna.