Morgunblaðið - 15.05.1986, Qupperneq 55
55
leiðin til að komast þangað með
einhverri hagkvæmni var að Frjáls-
íþróttasambandið tæki á leigu þotu
með íþróttahópinn sem var milli
50-60 manns og fá annað eins af
farþegum með. Þær systur Anna
og Sigrún tóku því fegins hendi að
slást í hópinn, orðnar háaldraðar.
Ekki var það til að minnka ánægju
þeirra og stolt yfir sigri íslands
þegar í ljós kom að íþróttamaðurinn
sem vann óvæntasta og besta afrek-
ið var fjarskyldur ættingi að norð-
an. Fyrirhuguð var ferð til Evrópu
sl. sumar með þeim systrum, en
veikindi Sigrúnar komu í veg fyrir
það.
Sigrún hélt góðri heilsu þar til
hún veiktist fyrir ári. Fram til þess
tíma bjó hún ein í íbúð sinni á
Skeggjagötu og annaðist jafnvel
sameiginlegt bókhald og fjárreiður
húseigenda. Sá hún líka ætíð um
að í Alftamýri væru til kleinur með
kaffinu. Hátíðarstund vikunnar var
oftast sameiginleg helgarmáltíð. Þá
vorum við Sigrún vön að lyfta glasi
með smátári. Ég sakna margs að
henni genginni. Blessuð sé minning
hennar. Tengdasonur
Kveðja frá Heimilisiðnaðar-
félagi Islands
Þann 5. maí sl. andaðist á Hrafn-
istu í Hafnarfirði, Sigrún Stefáns-
dóttir, einn af ötulustu stuðnings-
mönnum Heimilisiðnaðarfélags Is-
lands um árabil og heiðursfélagi
þess.
Sigrún var Þingeyingur að ætt
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1986
og uppruna, fædd að Eyjadalsá í
Bárðardal, 14. október 1898. Hún
hlaut meiri skólamenntun en al-
gengt var um ungar stúlkur á
hennar aldri. Hún stundaði nám í
Gagnfræðaskóla Akureyrar 1918,
Samvinnuskólanum e.d. 1919—’20
og Kunstflidskolen í Kaupmanna-
höfn 1920—’22.
Sigrún kenndi í Bárðadalsskóla-
hverfi 1918—’ 19 ogsíðan hannyrðir
íReykjavík 1948—’52.
I mörg ár var það á stefnuskrá
Heimilisiðnaðarfélags íslands að
koma á fót útsölu með heimilisiðn-
aðarvöru. Árið 1951 var verslunin
„Islenzkur heimilisiðnaður" stofn-
uð. Sigrún var ráðin framkvæmda-
stjóri og gegndi því starfi óslitið til
ársins 1967 og kom það því í hennar
hlut að móta verslunina. Byrjunar-
örðugleikar voru miklir, ófullnægj-
andi húsnæði og þröngur fjárhagur
en smá saman rétti verslunin úr
kútnum og varð sá stuðningur við
félagsstarfið sem menn höfðu gert
sér vonir um.
Það var ómetanlegt lán fyrir
Heimilisiðnaðarfélagið að fá Sig-
rúnu til starfa. Hún var alin upp á
menningarheimili þar sem hún
vandist vönduðum og ijölbreyttum
heimilisiðnaði. Hefur sú þekking og
reynsla komið henni að góðu gagni
í vandasömu starfí.
Sigrún vann, af mikilli ósérhlífni
og þrautseigju, merkilegt braut-
ryðjendastarf við að stuðla að góðri
framleiðslu og arðvænlegri sölu á
íslenzkum heimilisiðnaði. En versl-
unin var stofnuð til að sinna þeim
markmiðum félagsins, „að stuðla
að arðvænlegri sölu á íslenskum
heimilisiðnaðarafurðum" eins og
það er orðað í fyrstu lögum þess.
Sigrún þekkti vel íslensku ullina
og hina mörgu og góðu eiginleika
hennar og vann að því að fá hana
unna á sem bestan og fjölbreyttast-
an hátt. Hún lét m.a. taka ofan af
ullinni og vinna þellopa og band. Ur
þessu efni voru svo unnir margir
góðir gripir og seldir í versluninni.
Á fyrstu árum verslunarinnar var
langt í frá að íslenska ullin væri
almennt metin að verðleikum. Sú
verðmætaaukning íslensku ullar-
innar og hinn mikli ullariðnaður
sem orðið hefur til í landinu á síð-
ustu áratugum á í rauninni tilveru
sína að þakka því áhugasama og
þrautseiga fólki, eins og Sigrúnu,
sem aldrei missti sjónar á ágæti
íslensku ullarinnar.
Þrátt fyrir annasamt starf tók
Sigrún mikinn þátt í félagsstarfinu
innan Heimilisiðnaðarfélagsins.
Hún sótti norræn heimilisiðnaðar-
þing á vegum þess og kynnti þar
íslenskan heimilisiðnað ' með fjöl-
breyttum sýningum. Sat í stjóm
félagsins frá 1959—1973 og í stjóm
verslunarinnar í mörg ár eftir að
hún hætti störfum sem fram-
kvæmdastjóri. Heimilisiðnaðarfélag
íslands og allir sem unna íslenskum
heimilisiðnaði standa í milli þakkar-
skuld við Sigrúnu Stefánsdóttur
fyrir störf hennar og framlag til
þeirra mála.
Heiðu dóttur hennar og öðmm
vandamönnum er sendar innilegar
samúðarkveðjur.
Jakobína Guðmundsdóttir
t
Systir okkar og mágkona,
MAGDALENA BJÖRNSDÓTTIR,
Blönduósi,
verður jarðsungin frá Biönduóskirkju laugardaginn 17. mai kl.
14.00.
Jónina Björnsdóttir,
María Björnsdóttir,
Sigurlaug Björnsdóttir, Jón Guðmundsson,
Einar Björnsson, Valgerður Tómasdóttir,
Hermann Búason
og frændsystkini.
t
Þökkum samúð og hlýhug við fráfall
FRÍÐU GÍSLADÓTTUR,
Hjarðarhaga 46.
Sendum sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks á deild 7, Borgarspital-
anum.
Halldór Haraldsson, Susan Haraldsson,
Ragnheiður Haraldsdóttir, Hörður Arinbjarnar
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns,
ÞÓRARINS HELGA JÓNSSONAR.
Jenný O. Jónsson og aðstendendur.
Handsnyrting í Cortex
Nýlega opnaði Ebba Kristinsdóttir aðstöðu til handsnyrtingar
og akrýlnaglagerðar á hárstofunni Cortex sem er til húsa að
Bergstaðastræti 28a í Reykjavík.
Könnun Hagvangs á bóksölu i apríl:
Jörð í Afríku mest
selda skáldsagan
Fyrirtækið Kaupþing hf. hefur
nú framkvæmt fjórðu mánaðar-
legu könnun sína á sölu bóka
fyrir félag íslenskra bókaút-
gefenda og er um að ræða sölu
aprílmánaðar 1986.
Úrtakið í könnuninni var 16
verslanir af 105 úr skrá útgefenda
yfir söluaðila sína og áætlar Kaup-
þing að það nái yfir um það bil
30-35% af heildarmarkaðnum. Við
val úrtaksins var tekið tillit til bú-
setudreifingar í landinu. Kannan-
irnar ná eingöngu til sölu almennra
verslana.
Eins og í fyrri könnunum var
sala einstakra titla mjög misdreifð
eftir verslunum án þess að það
megi skýra með stærðarmun þeirra
eingöngu. Því ber að varast að
draga of ákveðnar ályktanir af
niðurstöðunum, þrátt fyrir það
hversu stórt úrtakið var.
Kennslubækur eru ekki teknar með
í könnununum.
Eftirfarandi eru 5 söluhæstu
bækumar í hveijum flokki:
Barna- og unglingabækur:
Einar Áskell...Gunilla Bergström.
Depill..................Eric Hill.
Ronja ræningjad....Astrid Lindgren.
Klukkubókin...Vilbergur Júlíursson.
Blómin á þakinu....Ingib. Sigurðard.
Skáldsögur:
Jörð í Afríku.......Karen Blixen.
Isfólkið........Margit Sandemo.
Margsaga........Þórarinn Eldjám.
RefsifangamirWilliam Stuart Long.
Stúlkan á bláa hjólinu ....Régine De-
forges.
Aðrar bækur:
Sálmabók
Ensk-ísl. orðab. Sigurður Öm Bogas.
Samheitaorðabókin .Útg.: Hásk. ísl.
Biblían
TJöfdar til
XJLfólksíöllum
starfsgrcinum!
i
Sam
Varahlutir í CUMMIIMS og D
vid!
DIESEL vélar.
á læara verdien Þú átt aö venjast
Hveritig?
Með því að skipta við BÆTIR H/F
umboðsmenn fyrir KORODY-
COLYER, einn stærsta framleiðanda
nýrra og endurbyggðra varahluta
fyrir GM diesel vélar. Ef þú þarft til
dæmis að skipta um spíssa í DETROIT
DIESEL vélinni, þá tökum við gömlu
spíssana upp í þá nýju og þú greiðir
aðeins um þriðjung af verði „origin-
al“ spíssa. Við höfum slífar,
stimpla, pakkningar, spíssa,
hedd, olludælur o.fl. í
CUMMINS-855 og DETROIT DIES-
EL 53; 71; 92; 6,2L og 8,2L. Allir
varahlutir frá KORODY-COLYER
þurfa að standast strangt gæðapróf
áður en þeir fara á markað. Árs
ábyrgð á öllum varahlutum, nýjum
sem endurbyggðum. Höfum varahluti
KORODY-COLYER
og gerum við ALLISON sjálfskipt-
ingar fyrir vörubíla og þungavinnu-
vélar. Fullkomin sérhæfð þjónusta fyr-
ir diesel vélaviðgerðir.
Lækkaðu rekstrarkostnaðinn með vör-
um frá KORODY-COLYER.
Útvegum varahluti í flestar gerðir BÆTIR H/F, Smiðjuvegi 52,
dieselvéla. Geymið auglýsinguna. Kópavogi, SÍmÍ 79050.