Morgunblaðið - 15.05.1986, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1986
65
Morgunbladið/Hartvig Ingólfsson
Brandur Tómasson flugvirki og kona hans, Jónína Gísladóttir.
i hálfa öld
BRANDUR Tómasson flugvirki,
sem oft er af starfsfélögum sín-
um kallaður „faðir íslensku flug-
virkjastéttarinnar", lét af störf-
um um sl. áramót, eftir 48 ára
farsælan starfsferil. Brandur var
sá starfsmaður Flugleiða sem
hafði lengstan starfsaldur að
baki. Þó að nokkuð sé liðið síðan
hann lét af störfum þykir rétt
að fjalla hér örlítið um þessi
tímamót, þvi ekkert hefur um
þau verið fjallað í fjölmiðlum.
„Brandur er hress eins og ungl-
ingur og hefði þess vegna alveg
getað haldið áfram,“ sagði einn
starfsfélaga hans í samtali við
Morgunblaðið. En þó að starfs-
ævinni sé lokið með formlegum
hætti, mun hann, að einhvetju leyti
í frístundum, ljúka verkefni sem
hann hefur unnið að og felst í
endurbótum á hjólabúnaði Fokker
;P27 flugvélanna. Segja kunnugir
að ef vel takist til, geti það hugsan-
lega þrefaldað endingartíma þeirra.
Eins og fyrr segir á Brandur 48
ár að baki í faginu. Hann fæddist
á Hólmavík og hélt þaðan til
Reykjavíkur þar sem hann nam
vélfræði. Þaðan lá leiðin í fram-
haldsnám hjá þýska flugfélaginu
Lufthansa. Arið 1938 hóf Brandur
svo störf hjá nýstofnuðu Flugfélagi
■íslands og gegndi starfi yfirflug-
virkja í rúmlega 30 ár og í 18 ár
til viðbótar var hann almennur flug-
virki, síðast á hlutaverkstæði Flug-
leiða.
Á sínum langa starfsferli var
Brandur samstíga hinni öru tækni-
þróun sem orðið hefur í fluginu. Á
frumbýlisárum flugsins hér á landi
þurfti oft að smíða sérhæfð verk-
færi til að gera við flugvélarnar og
þá kom sér vel að Brandur var
völundarsmiður. Flugvirkjar Flug-
leiða nota ennþá sum verkfærin sem
hann smíðaði en þó urðu mörg
eldinum að bráð þegar stórbruninn
varð í flugskýlinu nr. 5 um árið. Á
tímum Catalina-flugbátanna í ís-
lensku atvinnuflugi smíðaði Brand-
ur öryggisbúnað sem festi hjólin
uppi og notuðu m.a. dönsku og
bresku flugherirnir búnað þennan.
Tilefni þess að Brandur smíðaði
búnaðinn var, að ein „Katan“ varð
að nauðlenda í Kleppsvíkinni því
hjólin festust ekki uppi. Kunnugir
telja ekki leika vafa á því, að þessi
uppfinning Brands hefði náð út-
breiðslu um allan heim ef „Kötum-
ar“ hefðu ekki verið farnar að úreld-
ast og víða komnar úr notkun.
Þar sem handlagni Brands var
ekki á færi hvers og eins fer af
því mörgum sögum, en líklega lýsir
eftirfarandi fyrripartur henni hvað
| best:
„Mikið er hvað maður sá er laginn,
hver rakaði sig í rennibekk um daginn."
Því miður kann blaðamaður ekki
alla vísuna, en hún var ort einhveiju
sinni þegar annir voru svo miklar
á verkstæði Flugfélagsins, að menn
máttu ekki vera að því að raka sig.
Taldi vísuhöfundur víst, að Brandi
hefði veist létt að raka sig í renni-
bekknum ef honum hefði á annað
borð dottið það í hug.
Flugvirkjafélag íslands hélt
Brandi kveðjuhóf skömmu eftir að
hann lét af störfum og voru þar
samankomnir rúmlega eitt hundrað
vinir og samstarfsfélagar. Voru
nokkrar ræður fluttar þar sem
minnst var ýmissa atburða úr sögu
flugsins og flugvirkjunar. Eiginkon-
ur flugvirkja hafa bundist félags-
skap sem nefnist „Fífumar" og
önnuðust þær undirbúning veisl-
unnar af miklum myndarskap.
Meðfýlgjandi ljósmyndir vom tekn-
ar í kveðjuhófínu.
Þrír úr röðum fyrstu fslensku flugvirkjanna og samstarfsmenn um
áratugaskeið. Frá vinstri: Brandur Tómasson, Ingólfur Guðmundsson
(Ingó) og Ásgeir Magnússon.
Leikfélagasamband Norðurlands:
Kynntar hugmyndir
um „byggðaleikhús“
efnum. Einnig að einstakar upp-
færslur áhugaleikfélaga komi oft á
tíðum vel til greina sem sjónvarps-
leikrit.“
Að fundi loknum sátu gestimir
sýningu Leikfélags Blönduóss á
sjónleiknum „Vígsluvottorðið“ í
leikstjóm Carmen Bonitch.
Tilgangur sambandsins er að efla
samskipti og samstarf á milli leik-
félaga á Norðurlandi og vinna að
ýmsum hagsmunamálum þeirra.
Telja þau þegar árangur af því
starfi. Stjóm sambandsins skipa nú:
María Áxfjörð, Húsavík, sem er
formaður, Leifur Guðmundsson,
Öngulsstaðahreppi og Sigurður
Þórisson, Grenivík. — Fréttaritari.
nusavin.
LEIKFÉLAGASAMBAND Norðurlands, sem stofnað var fyrir þrem-
ur árum, hélt aðalfund sinn síðast í apríl á Blönduósi. Mættir voru
32 fulltrúar frá 10 leikfélögum á Norðurlandi. Sérstakur gestur
fundarins var Signý Pálsdóttir fráfarandi leikhússtjóri hjá Leikfélagi
Akureyrar.
Hún kynnti fyrir fundarmönnum
hugmyndir um svonefnt „byggða-
leikhús" en það eru leiksýningar
þar sem byggt er á sögu eða at-
burðum sem gerst hafa á, eða í
næsta nágrenni við staðinn sem
leikið er.
Fundurinn taldi afstöðu ríkisfjöl-
miðlanna neikvæða til áhugaleik-
listar í landinu og samþykkti eftir-
farandi ályktun: „Aðalfundur Leik-
félagasambands Norðurlands, hald-
inn á Blönduósi 26. apríl, beinir
þeirri áskorun til Ríkisútvarpsins,
það er leiklistardeilda útvarps og
sjónvarps, að áhugaleikfélögum á
íslandi verði gert kleift að leggja
til leikrit og/eða leikþætti til flutn-
ings í útvarpi meira en verið hefur.
Leikfélagasamband Norðurlands
álítur að óverðskuldaðrar tregðu
gæti hjá ráðamönnum þessarar
stofnunar að fást til að koma til
móts við áhugleikfélögin í þessum
Landsþing lögreglumanna:
Krefst
úrbóta
í launa-
málum
Tólfta þing Landssambands
lögreglumanna, sem haldið var í
Reykjavík 21,—23. apríl sl.,
krefst róttækra úrbóta í launa-
málum stéttarinnar þannig að
hæfir menn fáist til frambúðar-
starfa, segir í frétt frá landssam-
bandinu.
Þingið krefst þess að skýr ákvæði
verði sett um réttarstöðu lögreglu-
manna almennt og einnig átelur
þingið stjómvöld harðlega fyrir að
láta lögreglumenn bera vopn við
gæslustörf án þess að settar hafí
verið reglur um vopnaburð lög-
reglumanna.
Þingið undrast þá stefnu stjóm-
valda að bjóða lögreglumönnum
þvílík kjör að reyndir og fullmennt-
aðir lögreglumenn snúi sér í miklum
mæli í önnur störf og telur þá stefnu
stjómvalda ámælisverða að eyða
miklum fjármunum í viðhald gam-
alla og úr sér genginna tækja þegar
sýnt er að endumýjun er betri
kostur.
Þingið skorar á stjómvöld að
sýna málinu skilning því hér er
ekki aðeins um framtíð stéttarinnar
að ræða heldur einnig öryggi borg-
aranna. (Fréttatilkynning)
„Sumarstarf fyrir börn
og ungUnga 1986“:
Bækling-
urinn kom-
innút
Bæklingurinn „Sumarstarf
fyrir böm og unglinga 1986“ er
kominn út á vegum íþrótta- og
tómstundaráðs og er honum
dreift til allra aldurshópa í skól-
um Reykjavíkurborgar um þess-
ar mundir. í bæklingi þessum er
að finna upplýsingar um fram-
boð félaga og borgarstofnana á
starfi og leik fyrir böra og
unglinga i borginni sumarið
1986.
Um er að ræða eftirtaída aðila:
Dagvistun bama, íþróttafélögin í
borginni, KFUM og K, Skátasam-
band Reykjavíkur, Skólagarða
Reykjavíkur, Útideild, Unglingaat-
hvarfíð, Vinnuskóla Reykjavíkur og
íþrótta- og tómstundaráð.
Starfshættir þeir sem um getur
í bæklingnum em fyrir aldurinn 2
til 16 ára. Flest atriði snerta íþróttir
og útivist en einnig em kynntar
reglulegar skemmtisamkomur ungs
fólks.
Útgjöld þátttakenda vegna
starfsþáttanna em mjög mismun-
andi. Foreldrar sem hug hafa á að
hagnýta sér framboð borgarinnar
og félaganna fyrir böm sín em
hvattir til þess að draga ekki inn-
ritun þeirra. (Fréttatilkynning)
Jr
TENTE
húsgagna-
hjól
PEKKING
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670
ÖRKIN/SlA