Morgunblaðið - 26.06.1986, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1986
3
V^terkurog
Ll hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Of mikið
framboð á
Bretlands-
markaði
OF MIKIÐ framboð af fiski á
markaði í Bretlandi hefur stuðl-
að að lágu verði að undanfðrnu
að sögn Tómasar Kristjánsson-
ar hjá Landsambandi íslenskra
útvegsmanna. Börkur seldi í
Bretlandi í gærmorgun. Á
mánudagsmorgun seidu Halk-
ion og Asbjörn í Grimsby og
Hull. I vikunni verða 120 gámar
af frystum fiski í sölu á Bret-
landsmarkaði.
Halkion seldi 88 tonn í Grimsby
fyrir 4.460 þúsund krónur, meðal-
verð var 52,81 kr. á kíló. Ásbjörn
seldi í Hull, 174 tonn fyrir 7.808
þúsund krónur, meðalverð var
44,81 kr. ákíló.
Gunnar Rafn Einars-
son skattstjóri Norður-
landsumdæmis eystra
Fjármálaráðherra hefur
skipað Gunnar Rafn Einars-
son, viðskiptafræðing og
löggiltan endurskoðanda, í
embætti skattstjóra Norður-
lands eystra frá og með 1.
júlí nk.,en þá lætur Hallur
Sigurbjörnsson af embætti að
eigin ósk.
Guðmundur er fæddur 12. júní
1949 á Blikastöðum í Mosfells-
sveit. Hann útskrifaðist sem
stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1969 og við-
skiptafræðiprófí lauk hann frá
Háskóla íslands í janúar 1974.
Löggiltur endurskoðandi varð
Gunnar Rafn árið 1979. Hann
hefur undanfarin átta ár starfað
sem skrifstofustjóri Hraðfrysti-
stöðvarinnar í Reykjavík. Auk
þess starfaði hann á endurskoð-
unarskrifstofu Bjöms Steffensen
og Ara Thorlacius frá 1975 til
1978 og þar á undan starfaði
hann um árabil hjá Ríkisendur-
skoðun.
Stofnlánadeild landbúnaðarins:
Lenging lána, frestun af-
borgana og lækkun vaxta
STOFNLÁNADEILD landbúnað- bygginga- og jarðakaupalán af-
arins hefur ákveðið breytingar á borgunarlaus fyrstu 2 árin.
lánakjörum bænda hjá deildinni,
meðal annars með lengingu lána
og lækkun vaxta. Ráðstafanirnar
eru gerðar til að létta greiðslu-
byrði bænda sem margir eru með
erfiða fjárhagsstöðu.
Lánstími á verðtryggðum og
gengistryggðum lánum sem Stofn-
lánadeild yfírtók nýlega frá Veð-
deild Búnaðarbankans verður
lengdur um 15 ár, úr 10 til 12 árum
í 25 ár. Vextir af þessum lánum
verða lækkaðir í 2% eins og er á
almennum lánum. Ofangreind lán
eru flest tilkomin vegna breytinga
á lausaskuldum bænda í föst lán á
undanfömum árum.
Lánstími bygginga- og jarða-
kaupalána og skuldbreytingalána
verður lengdur um 5 ár. Lánstíma
lána þeirra bænda sem eru með
sérstaklega erfiða greiðslustöðu má
lengja meira, eða allt að 10 árum,
enda liggi fyrir meðmæli frá fjár-
hagskönnunarnefnd landbúnaðar-
ráðuneytisins og Búnaðarfélags ís-
lands.
Afborgunum af lánum vegna
loðdýraræktar verður frestað vegna
erfíðrar stöðu búgreinarinnar.
Gert er ráð fyrir því að bændur
sæki um lengingu lána sínna fyrir
15. ágúst næstkomandi.
Þá hefur einnig verið tekin
ákvörðun um að framvegis verða
Sigmundur Stefáns-
son ráðinn skattstjóri
Reykjanesumdæmis
Gunnar Rafn Einarsson
Eiginkona Gunnars Rafns er
Fanney Kristbjarnardóttir og
eiga þau þrjú böm.
Sex umsækjendur sóttu um
embættið auk Gunnars. Þeir voru
Grétar Már Sigurðsson lögfræð-
ingur, Guðmundur Gunnarsson
skattendurskoðandi, Haukur
Sigurðsson viðskiptafræðingur
og Jón Dalmann Armannsson
skrifstofustjóri. Tveir umsækj-
enda óskuðu nafnleyndar.
Fjármálaráðherra hefur
skipað Sigmund Stefánsson
Iögfræðing í embætti skatt-
stjóra Reykjanesumdæmis frá
og með 1. júlí nk. Fráfarandi
skattstjóri er Sveinn Þórðar-
son, sem gegnt hefur embætt-
inu í 20 ár og lætur nú af störf-
um fyrir aldurs sakir.
Sigmundur er fæddur á Siglufirði
4. júní árið 1949. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri árið 1969 og fór eftir það
í lögfræðinám við Háskóla íslands.
Fyrsta veturinn sinn í Reykjavík
starfaði hann sem prófarkalesari á
Morgunblaðinu með námi, en lög-
fræðiprófinu lauk hann vorið 1975.
Þá hóf hann störf sem fulltrúi hjá
Skattstofu Reykjanesumdæmis og
ári síðar varð hann skrifstofustjóri
embættisins.
Eiginkona Sigmundar er Elísabet
Kristinsdóttir og eiga þau tvö böm.
Sigmundur Stefánsson
Auk Sigmundar sóttu þeir Ingvar
J. Rögnvaldsson lögfræðingur og
Magnús Jóhannesson um embættið.
' Lambakjötið frá
Sláturfélaginu
er ljúffengur grillmatur
Sláturfélagið hefur á boðsfólum mikið úrval af mögru
og góðu lambakjöti, enda er grilltíminn nú genginn í
garð og íslenska lambakjötið er sérlega gott á grillið.
Kraftmikið og náttúrlegt bragðið nýtur sín mjög vel
þegar kjötið er grillað. Þurr hitinn frá kolunum gerir
kjötið í senn mjög safaríkt og meyrt. Glóðað er
lambakjötið brúnt, stökkt og bragðmikið að utan,
en Ijósrautt og safaríkt að innan: Ósvikin, Ijúffeng
villibráð.
Hjá Sláturfélaginu færðu líka rauðvínslegið og
jurtakryddað lambakjöt, og auk þess sérstakt meyrt
lambakjöt sem er sérgrein okkar. Gott á grillið.
SLÁTURFÉLAG
SUÐURLANDS