Morgunblaðið - 26.06.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1986
27
Segjast hafa vísbendingar um
að dr. Josef Mengele sé enn á lífi
Grænland:
Olof Palme
Frankfurt, Vestur-Þýskalandi, AP.
FÓLK, sem lifði af tilraunir
Josefs Mengele í útrýmingar-
búðum nasista, sagði á mánu-
dag, að það hefði í höndum
nýjar vísbendingar um, að
læknirinn væri enn á lífi.
Vera Kriegel, formaður Meng-
ele-samtakanna í Israel, sagði, að
á beinunum, sem grafin voru upp
í Embu í Brasilíu 6. júní á síðasta
ári, hefðu ekki fundist merki um
sjúkdóm þann, sem þjáð hefði
Mengele á þriðja áratug aldarinn-
ar.
„Beinin, sem fundust í Brasilíu,
eru ekki líkamsleifar Mengele,"
sagði Kriegel í Frankfurt, er hún
hafði rætt við Christoph Schaefer
saksóknara, sem sér um leitina
að Mengele fyrir hönd Vestur-
Þýskalands.
Kriegel sagði, að samkvæmt
læknisskýrslum frá styijaldartím-
anum hefði nasistalæknirinn verið
með beinsjúkdóm í vinstri fæti.
„Sérfræðingar hafa tjáð okkur,
að merki hefðu átt að sjást eftir
sjúkdóminn," sagði hún.
_Avi Erlich, lögfræðingur ísra-
elsku samtakanna, sagði, að sönn-
unargögn sýndu, að Mengeie hefði
verið hjá tannlækni eftir 1979.
Það ár lést sá, sem líkamsleifamar
í Embu voru af.
„Tannlæknir í Brasilíu, kona
að nafni Wieno, hefur undir hönd-
um skjöl, sem skráð voru eftir
1979 og koma heim og saman við
skýrslur um tannviðgerðir á
Mengele," sagði Erlich, en vildi
ekki gefa frekari upplýsingar.
Schaefer saksóknari sagði, að
ísraelsku slqolin yrðu rannsökuð
og kannað, hvort í þeim væri að
finna nýjar vísbendingaf. Málinu
væri enn ekki lokið.
„ Við vildum gjama fínna Meng-
ele og draga hann fyrir dóm,“
sagði hann. „En við drögum mjög
í efa, að hann sé enn á lífí. Allar
okkar rannsóknir hingað til hafa
hnigið í þá átt.“
Schaefer neitaði að segja til um,
hvenær rannsókninni lyki endan-
lega.
fær friðar-
verðlaun
Frá N J.Bruun, fréttaritara
Morgunblaðsins í Grænlandi.
GRÆNLENSKA friðarhreyfing-
in (Sorsunnata) hefur ákveðið að
veita Olof Palme, fyrrum forsæt-
isráðherra Svía, sem féli fyrir
morðingjahendi í febrúarmán-
uði, friðarverðlaun samtakanna.
Sænsku ríkisstjóminni hefur
verið boðið að senda fulltrúa til
að veita verðlaununum viðtöku,
en afhending þeirra fer fram við
hátíðlega athöfn 1. september
næstkomandi.
Verðlaunin em veitt Palme vegna
starfa hans að í þágu friðar, af-
vopnunar og mannúðar. Auk Palme
mun Hans Pavia Rosing, fyirum
forseti Sambands Inúíta (ICC),
einnig hljóta friðarverðlaun hreyf-
ingarinnar.
Grænlenska friðarhreyfíngin
hyggst hefja undirskriftasöfnun þar
sem þess verður krafíst að sett verði
á stofn sérstök nefnd til að hafa
eftirlit með þeirri starfsemi sem
fram fer í herstöðvum Bandaríkja-
manna á Grænlandi. Krafa friðar-
hreyfingarinnar er sú að tryggt
verði að herstöðvar Bandaríkja-
manna sinni eingöngu því vamar-
hlutverki sem þeim er ætlað sam-
kvæmt samningi ríkisstjóma Dan-
merkur og Bandaríkjanna frá árinu
1951.
Áfrýjunardómstóll í
Bandaríkjunum:
Tollgæslunni ber
ekki að afhenda
Marcosi góssið
San Francisco, AP.
Áfrýjunardómstóll i Banda-
ríkjunum staðfesti á mánudag
hald, sem bandaríska toll-
gæslan lagði á u.þ.b. 8,4 miUj-
óna dollara eignir Ferdinands
Marcos, fyrrum forseta
Filippseyja, er hann kom til
Hawaii snemma á þessu ári.
Samkvæmt úrskurðinum skal
haldið gilda, þar til dómur
hefur gengið um, hver sé
lögmætur eigandi góssins.
Dómstóllinn féllst á kröfu
bandaríska dómsmálaráðuneyt-
isins um að koma í veg fyrir
framgang héraðsdómsúrskurð-
ar, sem kveðinn var upp í Honol-
ulu sl. þriðjudag. Var þar kveðið
á um, að tollgæslan hefði ekkert
umboð haft til að leggja hald á
eignimar og bæri því að skila
þeim í hendur Marcosar.
Seðlabanki Filippseyja hefur
höfðað tvö mál gegn Marcosi í
Honolulu. Heldur bankinn fram,
að Marcos hafi stolið fyrmefnd-
um eignum úr þjóðarbúi Filipp-
seyinga.
Fyrstí ratmvcrtilegí
luxussmábíllínn!
„Skutlarifrá LANCIA
Það er bjart framundan hjá kaupendum smábíla, því nú er kominn á markaðinn
byltingarkenndur lítill bíll, sem á ekkert sameiginlegt með öðrum smábílum,
nema stærðina!
LANCIA „SKUTLAN" er framleídd af rótgrónum bílaverksmiðjum, sem híngað
til hafa eingöngu einbeitt sér að framleíðslu stórra, vandaðra luxusbíla og sport-
bíla.
Hún er „lítíl að utan — en stór að ínnan" og býður upp á áður óþekkt þægindi
og íburð í bílum af þessari stærð: Luxusinnrétttingu með sérbólstruðum sætum,
fullkomið mælaborð, rafknúnar rúður, rafknúnar hurðalæsingar og margt
fleira.
Með öllu þessu kostar Skutlan aðeins 278.000 krónur!!
Lancia „SKUTLAN" er fyrir þá, sem kjósa lítinn, Iipran 5 manna bíl, sem býður
samt upp á íburð og þægindi eíns og í bestu luxusbílum.
Komdu því og skoðaðu og reynsluaktu Skutlunni frá LANCLA — þú verður ekki
fyrir vonbrígðum!!
BILABORG HF.
Smiöshöföa 23sími 6812 99