Morgunblaðið - 26.06.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.06.1986, Blaðsíða 22
22__________ Egilsstaðir: MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1986 Bókagjöf frá Félagi frj álshyggj umanna Fundur landbúnaðarráðherra Norðurlanda settur 1 morgun Egilsstöðum. FORMLEGUR fundur landbún- aðarráðherra Norðurlanda var settur í Valaskjálf á Egilsstöðum kl. 9.00 í morgun. Fundinn sitja allir landbúnaðarráðherrar Norðurlanda nema finnski ráð- herrann auk fjölda sérfræðinga og starfsmanna ráðuneytanna, eða um 80 manns. Fundargestir komu til Egilsstaða síðla þriðjudags og í gær var efnt til ráðstefnu um aukabúgreinar í norrænum landbúnaði. Á ráðstefn- unni hélt Sigurður Blöndal, skóg- ræktarstjóri ríkisinst erindi um skógrækt á íslandi, Áke Quist frá Finnlandi hélt erindi um loðdýra- rækt og Torgus Nordba frá Noregi hélt erindi um ferðamannaþjónustu til sveita. í gærkvöldi sátu ráð- stefnugestir kvöldverðarboð Jóns Helgasonar landbúnaðarráðherra eftir að hafa skoðað Hollormsstað- arskóg undir leiðsögn Jóns Lofts- sonar skógarvarðar. Eftir ráðherra- fundinn í dag verður ráðstefnustörf- um fram haldið en ráðstefnunni lýkur á föstudag. Ólafur NÝLEGA aflientu þeir dr. Hann- es Hólmsteinn Gissurarson, framkvæmdastjóri og kennari í Viðskiptadeild Háskóla íslands, og Gunnlaugar Sævar Gunn- laugsson, framkvæmdastjóri, Háskólabókasafni að gjöf fyrir hönd Félags ftjálshyggjumanna bækur um stjómmál og hagfræði að andvirði um 35 þús. kr. Hafði Félag ftjálshyggjumanna safnað fé til þessarar bókagjafar hjá ýmsum fyrirtækjum og einstakl- ingum, en í bréfi þess til Háskóla- bókavarðar segir meðal annars: „Félag fijálshyggjumanna hefur lengi haft áhuga á því að stuðla að sem traustastri fræðilegri kjöl- festu íslensks almennings og menntamanna í umræðum um þjóð- mál og stjómmál. Slík kjölfesta felst ekki síst í góðum bókakosti, sem tiltækur sé þeim, sem nema vilja, og hvergi er slíkur bókakostur nauðsynlegri en í Háskóla íslands, þar sem mikill hluti komandi menntamannakynslóðar fer um.“ Hér er í fyrsta lagi um að ræða tímaritið Frelsið, sem Félag frjáls- hyggjumanna hefur gefíð út frá 1980, innbundið í heild sinni í þrem- ur eintökum, og mun það geta legið frammi á ýmsum lesstofum Háskól- ans. Einnig eru í bókagjöfinni flest nýlegustu rannsóknarritin, sem breska vísindastofnunin Institute of Eeonomic Affairs í Lundúnum hefur gefið út, en sú stofnun fæst við að greina þá möguleika, sem eru á að leysa mál fremur með markaðsviðskiptum en ríkisafskipt- um og verðlagningu fremur en skattlagningu. Ýmis önnur rit eru einnig í bóka- gjöfínni, til dæmis sum helstu hagfræðirit Ludwigs von Misess, hins kunna austurríska hagfræð- ings, sem var einn ótrauðasti stuðn- ingsmaður markaðskerfisins á fyrri hluta þessarar aldar, rit Ludwigs Erhards, kanslara Vestur-Þýska- lands og höfundar þýska efnahags- undursins, og breska blaðamanns- insPaulsJohnsons. Félag fijálshyggjumanna er að safna fé til þess að geta gefíð svip- aðar bókagjafír í lestrarstofur fram- haldsskólanna um land allt nú í „Áberandi fjarvera fulltrúa Bandaríkjanna og Bretlands“ — sagði Haraldur Kröyer, fulltrúi Islands á ráðstefnunni Á ÞRIÐJU ráðstefnu alþjóða- þings Sameinuðu þjóðanna, sem haldin er út af málefnum Suður- Afríku, var samþykkt samhljóða ályktun um algjört viðskiptabann aðildarrikjanna gagnvart Suð- ur-Afríku til þess að þvinga' stjórnina þar til að láta af að- skilnaðarstefnunni og gefa svörtum íbúum landsins tækifæri á meiri þátttöku i stjórn landsins. Ráðstefnan fór fram í París dagana 16.-20. júní með þátttöku 132 ríkja. Fulltrúi íslands á ráð- stefnunni var Haraldur Kröyer, sendiherra í París. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að mjög áberandi hefði verið fjarvera full- trúa Bandaríkjanna og Bretlands auk þess sem fulltrúar Frakklands, Ítalíu, Hollands, Japan og ísraeis hefðu aðeins verið áheymarfulltrú- ar, þar sem ríkisstjómir þessara þjóða efuðust mjög um ágæti refsi- aðgerða af þessu tagi. „Norðurlöndin, Ástralía og nokk- ur önnur Evrópulönd gerðu þó fyrir- vara á samþykktinni hvað varðar ádeilu á einstakar ríkisstjómir um að taka ekki þátt í sameiginlegum aðgerðum. Sérstaklega lá í því orðalagi annars vegar ádeila á Bandaríkin og Bretland fyrir að hafa fellt með neitunarvaldi síðustu samþykktir öryggisráðs SÞ á árinu og einnig ádeila á ísrael fyrir við- skipti sín við Suður-Afríku.“ Har- aldur sagði að fulltrúar Norðurland- anna hefðu verið sammála um að draga ekki út einstök ríki og for- dæma þau fyrir þeirra stefnu eða ætla þeim einhvem óheiðarleika þar sem þau ríki hefðu markað sína stefnu. Utanríkisráðherrar Noregs, Finnlands og Svíþjóðar vom fulltrú- ar sinna landa og vararáðherra frá Danmörku. Haraldur sagði að fjöldi gesta hafí verið á ráðstefnunni, m.a. hefði Lisbet Palme, ekkja Olofs Palme, fyrrverandi forsætisráð- herra Svíþjóðar, flutt ræðu á ráð- stefnunni og minnst manns síns og þess þáttar er hann átti í að styðja svarta íbúa Suður-Afríku í þeirra sjálfstæðisbaráttu. Algjöru viðskiptabanni á S-Afríku lýst yfir í alþjóðaþingi SÞ: haust, er þessir skólar heija aftur starfsemi sína. (Fréttatilkynning) Vorhreingerning á Skaga strönd. Ljósmynd: Snorri Snorrason Viðurkenning veitt fyrir nýjungar á sviði tölva: Starfsgreinasjóður Rotary úthlutar í annað sinn tölvuvinnslu, segir í fréttatilkynn- ingu frá sjóðnum. Þeir félagar, Vilhjálmur og Öm, stofnuðu í sameiningu fyrir- tækið íslenzk forritunarþróun sf. árið 1983. Markmiðið var að vinna að þróun og dreifíngu hugbúnaðar fyrir tölvur. í samvinnu við fleiri aðila komu þeir árið 1985 fótun- um undir fyrirtækið Artek hf. sem vinnur að þróun og sölu svonefnds ADA-þýðanda á erlendum vett- vangi. Að sögn Amar hefur þýð- andinn þegar vakið nokkra athygli erlendis, byijað var að auglýsa hann í febrúar síðastliðnum í Vilhjálmur Þorsteinsson og Öm Karlsson fengu verðlaun Starfsgreinasjóðs Rotary á ís- landi fyrir árið 1986. Sjóðurinn var stofnaður í tilefni af 50 ára afmæli íslensku Rotaryhreyfing- arinnar sem var 1984. Hlutverk hans er að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi afrek sem unnin em í einhverri starfsgrein á umdæmissvæðinu. Viðurkenningin er að þessu sinni veitt fyrir mikla hugkvæmni, fmmkvæði og djörfung tvímenn- inganna við að þróa og koma á framfæri heima og erlendis mjög athyglisverðum hugbúnaði fyrir Vilhjálmur Þorsteinsson bandarískum tölvublöðum og er Artek nú komið með dreifiaðila í mörgum Evrópulöndum, ísrael, Japan og Suður-Kóreu. Stærsti markaðurinn fyrir hugbúnað er þó í Bandaríkjunum og þar hyggst Örn Karlsson Artek hasla sér völl. Kvað Öm það mikinn heiður að fá nú þessa viðurkenningu Starfsgreinasjóðs og mjög örvandi fyrir þá félaga. Verðlaunaupphæðin var að þessu sinni 150 þúsund krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.