Morgunblaðið - 26.06.1986, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.06.1986, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1986 Treholt leitaði ásjár hjá KGB Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins. Stómjósnarinn Ame Treholt leitaði ásjár sovézku leyniþjón- ustunnar, KGB, meðan hann sat í Ila-fangelsinu. Tveimur mán- uðum fyrir fyrirhugaðan flótta úr fangelsinu skrifaði hann bréf, sem stílað var á yfirmann hans hjá KGB, Genadij Titov. Lögreglan fann bréfið á laugar- dag við húsleit hjá blaðamannin- um og skáldinu Egil Ulateig, bezta vini Treholts, sem kom upp um flóttaáætlun hans. í bréfínu bað Treholt Titov um hjálp. Hann bað Titov að gefa út yfírlýsingar, sem væru sér í hag, því það hefði Egil Ulateig getað orðið málstað hans til fram- dráttar er hæstiréttur landsins fjallaði um mál sín. „Treholt ætlaðist til þess að ég afhenti KGB bréfíð svo það bærist Titov. Hann kynnti mig í bréfínu og bað Titov um að veita mér viðtal," sagði Ulateig. Ulateig kom þó aldrei bréfínu áleiðis og geymdi það í skjalasafni sínu. Hann var yfírheyrður í langan tíma í gær vegna bréfsins og lögreglan segist sátt við skýringar hans og hyggst ekki sækja hann til saka vegna þess. Hann er hins vegar grunaður um aðild að fyrir- hugaðri flóttatilraun Treholts. Faðir Treholts stefn- ir Verdens Gang Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunbladsins. FAÐIR Arne Treholts, Torstein, hefur sett sig í samband við lögfræðing sonarins og beðið hann um að hefja mál á hendur blaðinu Verdens Gang og blaðamanninum Michael Grundtspang, vegna ummæla hans í blaðinu. „Enn einu sinni hefur Treholt dregið íjölskyldu sína með sér niður í svaðið. Hann hefur sannað hæfíleika sína til að ráðskast með fólk að eigin vild. Já, hann hefur ekki bara ráðskast með fólk, held- ur einnig rægt það og ófrægt. “ Viðbrögð föður Treholts eru þó fyrst og fremst vegna eftirfarandi ummæla Grundtspangs: „Treholt hélt ekki miklu sambandi við föður sinn fyrir handtökuna. En eftir að sakir voru á hann bomar gerði hann allt sem hann gat til að notfæra sér trygglyndi hins aldna föður, sem reyndist fús til að hella sér yfir fjölmiðla með jöfnu milli- bili.“ Torstein Treholt telur að með þessu hafí blaðið haldið því fram að hann væri gömul bleyða, sem Ame hefði ráðskast með að vild. Hann telur ummælin ærumeið- andi og hefur beðið lögfræðing sonarins, Alf Nordhus, að undir- búa málaferli. Hin rúmlega 17 ára gamla vinkona Treholts neitar stöðugt að skýra frá aðild sinni að meintri flóttatilraun hans. Hún er sögð Thorstein Treholt hafa smyglað magnum 44 skammbyssu inn í fangelsið til Treholts. Byssan fannst grafin í jörð í fangelsisgarðinum. ísrael: Yfirmaður leyniþjón- ustunnar segir af sér Jerúsalem, AP. SHALOM, yfirmaður Shin Bet, leyniþjónustu ísrael, hefur sagt af sér. Afsögn hans kemur i kjölfar deilna um atburð sem átti sér stað árið 1984 þegar leyni- þjónustumenn myrtu tvo palest- ínumenn, sem rænt höfðu áætl- unarbíl frá Tel Aviv á hinn hroðalegasta hátt. Ekki er vitað hvenær afsögn hans tekur gildi né heldur hver tekur við stöðu hans. Samkvæmt fyrirskipun Chaim Herzog, forseta, verða Shalom og þrír aðrir leyniþjónustumenn, sem ábyrgð báru á verknaðinum, ekki dregnir fyrir dómstóla. Shimon Peres, forsætisráðherra, og Yitzhak Shamir, utanríkisráðherra, höfðu báðir lagst gegn því að ákæra yrði lögð fram á hendur Shalom. Töldu þeir að með réttarhöldum yrði starf- semi leyniþjónustunnar óhjákvæmi- lega gerð opinber. Er almennt Iitið á lyktir þessa máls sem sigur fyrir þá. Shamir var forsætisráðherra þegar palestínumennimir voru myrtir og hafa fjölmiðlar ásakað hann um að hafa átt þátt í að þagað var yfir þeim atburði. Nafn Peres hefur einnig verið nefnt í þessu sambandi. Sérstök nefnd hefur verið sett á laggirnar og mun hún rannsaka starfsaðferðir leyniþjónustunnar. Vinstri flokkar á þingi hafa lagt fram vantrauststillögu á hendur AP/Símamynd Grænf riðungum hefur tekizt að ná taki á skutulslínu norsks hrefnu- veiðara við Noregsstrendur í fyrradag. Þar með gátu skipveijar á hvalfangaranum ekki skotið á hrefnu og sigldu til hafnar. Skip grænfriðunga var tekið í gærmorgun og flutt öðru sinni á tveimur vikum til hafnar í Noregi. Moby Dick færður aftur til hafnar Peres, en samsteypustjóm hans mun reynast auðvelt að standa hana af sér. Osló, AP. NORSKA strandgæzlan tók Moby Dick, skip grænfrið- unga, öðru sinni og færði það til hafnar í Vardö í gær. Astæða tökunnar er endurtekin brot á fjögurra sjómílna landhelgi Noregs. Skipveijar á Moby Dick urðu við fyrirmælum strandgæzlunnar um að sigla út á alþjóðlega sigl- ingaleið á þriðjudag eftir að hafa reynt að hindra sjö norsk hvalveiði- skip. í fyrrinótt sigldu skipveijar hins vegar aftur inn í landhelgi og tók strandgæzluskipið Staalbas skip þeirra fast og dró til hafnar. Moby Dick hefur haldið sig við Noregsstrendur í einn mánuð í þeirri von að hindra hrefnuveiðar Norðmanna meðfram strandlengj- unni. Á þriðjudag sigldu græn- friðungar á þremur gúmbátum upp að einum hvalfangaranum og náðu að binda sig við skutulsreipi hans. Hinn 11. júní sl. var Moby Dick færður til hafnar og skipstjórinn sektaður. Hann neitaði að greiða sektina og var þá ákveðið að stefna honum fyrir rétt í ágúst. Fékk hann að láta úr höfn þegar sett hafði verið bankatrygging fyrir greiðslu sektarinnar. Nú á hann á hættu að verða dæmdur til enn hærri sektargreiðslna. People Express: Of mikil umsvif urðu því að falli Newark, New Jersey, AP. SÉRFRÆÐINGAR telja, að bandaríska flugfélagið hafi lent í erfiðleikum vegna ofþenslu, rangra áætlana og óvæntrar samkeppni. Nú er verið að kanna möguleika á sölu fiugfélagsins alls eða hluta þess. Hugmyndin að baki félagsins er talin ágæt. Það býður afar lág fargjöld, en enga sérþjónustu, sem önnur flugfélög hafa hins vegar lagt. mikla áherslu á. Talsmaður People Express segir, að enn hafí engar ákveðnar viðræð- ur farið fram um hugsanlega sölu félagsins. Hann viðurkenndi, að forráðamenn félagsins hefðu van- metið keppinautana, en ofreiknað vaxtarmöguleikana. Talsmaðurinn sagði ýmsar spamaðarleiðir nú til umræðu hjá fyrirtækinu, m.a. sala á dótturfyrir- tækinu Frontier Airlines, sala á flugvélum, fækkun á starfsfólki og lækkun launa. Sérfræðingamir hafa einnig bent á, að fyrirtækið hafí sennilega lækkað fargjöld á röngum tíma og of mikið í einu. Einn þeirra bætir hins vegar við, að uppgangur þess hafi þvingað keppinautana til að lækka fargjöld sín; það hefðu þeir aldrei gert ótilneyddir. Olíklegt væri, að fargjaldaverð hækkaði á ný, þar sem aðstæður á markaðnum væru breyttartil frambúðar. Veður víða um heim Lcagst Hsest Akureyrl 17 skýjafl Amsterdam 10 23 heiöskfrt Aþena 20 34 heiðskfrt Barcelona vantar Berlin 11 24 helðskfrt Brössel 15 25 heiðskfrt Chicago 12 16 skýjað Dublln 12 19 skýjað léttskýjað Feneyjar 28 Fronkfurt 12 23 helðskfrt Genf 13 24 heiðskfrt Helslnki 13 23 helðskfrt Hong Kong 26 29 rignlng Jerúsalem 17 24 skýjað Kaupmannah. 12 21 helðskfrt Las Palmas 22 skýjað Lissabon 14 23 skýjað London 1« 25 skýjað Los Angeles 16 25 heiðskfrt Luxemborg 16 22 lóttskýjað Malaga vantar Matlorca vantar Miami 25 30 skýjað Montreal 11 19 skýjað Moskva 9 12 skýjað NewYork 21 30 helðskfrt Osló 12 27 heiðskfrt Parfs 14 25 heiðskfrt Peking 13 26 heiðskfrt Reykjavfk 9 skýjað Rfóde Janeiro 13 27 heiðskfrt Rómaborg 17 32 heiðskfrt Stokkhólmur vantar Sydney vantar Tókýó 21 25 skýjað Vfnarborg 14 21 helðskfrt Þórshöfn 11 þoka Gengi gjaldmiðla London, AP. DOLLAR lækkaði á gjaldeyris- mörkuðum í Evrópu I gær, m.a. vegna þess að búist er við vaxta- lækkun í Bandaríkjunum. Gull- verð hækkaði. Sterlingspundið hækkaði og kostaði 1,5195 dollara síðdegis í gær (1,5115). Gengi dollarans var annars þannig, að fyrir hann feng- ust 2,2115 vestur-þýsk mörk (2,2283), 1,8135 svissneskir frank- ar (1,8220), 7,0550 franskir frank- ar (7,0800), 2,4895 hollensk gyllini (2,4990), 1.516,75 ítalskar límr (1.524,75), 1,38525 kanadískir dollarar (1,38635) og 165,85 jap- önskjen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.