Morgunblaðið - 26.06.1986, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1986
---------1--------------
SCHWARZKOPF
Kaupmenn, hárgreiðslu-
stofur, innkaupastjórar
Lokað vegna
sumarleyfa
frá 5. júlítil 5. ágúst.
HEILDVERSLUN PÉTURS PÉTURSSONAR HF.
Suöurgöíu 14, símar 21020 og 25101.
vegna sumarleyfa frá 7. júlí til 28. júlí.
Ryðvarnarstöðin hf.
Bíldshöfða 14, sími 687755.
GOODYEAR
á hagstœðu verði
Hvort sem er í þurru færi eða blautu
í lausamöl eða á malbiki
á hálku eða í snjó eru:
MÝKT, GRIPFESTA OG GÓÐ ENDING
aðalsmerki Goodyear-hjólbarðans
LEIÐANDI í VERÖLD TÆKNIÞRÓUNNAR HJÓLBARÐA
GOODýYEAR
IpilHEKLA HF
Lflugaveqi 170-172 Stm> 21240
Tveggja hreyfla flugvél bætist í flugflotann
NÝ tveggja hreyfla flugvél af
gerðinni Beechcraft Queen Air
hefur bæst í flugflota lands-
manna.
Vélin rúmar 7 farþega auk
flugmanns og verður hún notuð
til leigu- og einkaflugs.
Flugvélin hefur hlotið einkenn-
isstafina TF ESJ og var smíðuð
árið 1967 en aðeins 3.000 stundir
eru liðnar af svokölluðu hreyfillífi
hennar.
Eigendur eru nokkrir einstakl-
ingar og hyggjast þeir leigja hana
út á vegum fyrirtækisins Flugfars
á Reykjavíkurflugvelli jafnframt
því sem þeir hyggjast nota hana
í einkaerindum.
Flugið hingað til lands tók 15
V2 klst. frá New York og við stýr-
in sátu þeir Hörður Hafsteinsson
og Sveinn Ólafsson flugmenn.
Arsfundur íslenskra sendikennara:
Ríkið leggi meira af mörk-
um vegna kynningar á ís-
lensku máli og menningu
Árlegum fundi íslenskra sendi-
kennara erlendis er nú nýlokið i
Kaupmannahöfn, en alls starfa
níu lektorar sem sendikennarar
á Norðurlöndunum, í Þýskalandi
og í Frakklandi.
A fundinum kom fram ósk um að
íslenska ríkið legði sjálft meira að
mörkum við kynningu á eigin
menningu, en í fréttatilkynningu
frá fundinum, segir að sendikennar-
amir fái styrk sem nemi fargjaldi
þeirra til íslands á ári og auk þess
bókakaupastyrk sem dugi fyrir fjór-
um nýjum bókum árlega. Sendi-
kennaramir kynntu starfsemi hver
hjá sér, rædd voru kennslugögn og
var sérstaklega fagnað nýrri
kennslubók í íslensku fyrir erlenda
stúdenta eftir Astu Svavarsdóttur
og Margréti Jónsdóttur. Rætt var
um stöðu íslensku sem háskólagre-
inar og kom m.a. fram að hingað
til hefur hún naumast nokkurs
staðar verið til sem sérstakt fag.
Eini háskólinn á Norðurlöndum sem
hingað til hefur haft íslensku sem
sérstaka grein er háskólinn í Árós-
um og hefur þar verið hægt að taka
íslensku sem aukafag til lokaprófs.
Nú hefur íslenska verið tekin upp
sem sérstakt fag við háskólann í
Bergen og líkur eru á að sama sé
í bígerð í Osló.
Sendikennaramir era allir laun-
aðir af þeim háskólum sem þeir
starfa við. ísiendingar eiga sjálfír
enga stofnun, sem vinnur að út-
breiðslu íslenskrar tungu og menn-
ingar á borð við stofnanir annarra
þjóða t.d. British Council, Goet-
hestofnunin þýska og Menningar-
stofnun Bandarílg'anna. Einnig eiga
Danir og Norðmenn sínar menning-
arstofnanir víða um heim og kosta
sjálfír kennslu við háskólana.
Sendikennaramir fást við ýmis-
legt fleira en kennslu og er það
mismunandi eftir löndum hversu
mikill hiuti starfsins er kennsla og
hversu mikill hluti þess er rann-
sóknarstarf eða kynningarstarf á
íslenskum málefnum. Sá háttur
hefur mjmdast á þessum fundum
að fundarmenn kynni samstarfs-
mönnum sínum rannsóknir sem í
gangi em. í fyrra kynnti Dagný
Kristjánsdóttir rannsóknir sínar á
sálgreiningu til bókmenntatúlkunar
og í ár fjallaði Halldór Ármann
Sigurðsson um rannsóknir sínar á
því sem hann nefnir tóm eða ósögð
frumlög í íslenskum setningum.
Ifyrsta íslenska sendikennara-
embættið var stofnað við háskólann
íslenskir lektorar að loknum fundi í Kaupmannaliöfn 1. júní sl. Frá
vinstri: Erlingur Sigurðsson Helsingfors, Böðvar Guðmundsson
Björgvin, Halldór Armann Signrðsson Kiel, Margrét Jónsdóttir
Reykjavík, Þorleifur Hauksson Uppsölum, Dagný Kristjánsdóttir
Osló og Eyvindur Eiríksson Kaupmannahöfn. Myndina tók Einar
Már Jónsson París, en auk hans vantar á myndina Steinunni Le
Breton í Caen, og Kristinn Jóhannesson Gautaborg.
í Bergen 1954 og var dr. Hreinn
Benediktsson prófessor fyrstur til
að gegna því starfi. Hin era í Osló,
Uppsölum, Gautaborg, Helsingfors,
Kaupmannahöfn og utan Norður-
landa í Kiel, Caen og París. Allt
era þetta lektorsstöður og auk þess
er við Oslóarháskóla prófessor í ís-
lensku, Vésteinn Ólason. Auk þess
er íslenska kennd í Bandaríkjunum,
Kanada, Ítalíu og auk þess í flestum
Austurevrópulöndum. Sú kennsla
er öll kostuð af viðkomandi löndum
og stofnunum.
Fram kom á fundinum að þar
sem íslendingar kosta sjálfír svo
litlu til við kennslu í tungu sinni
og menningu á erlendri grand, era
þessar stöður í stöðugri hættu. Um
leið og samdráttur á sér stað í skóla-
málunum í löndunum, heyrast radð-
ir um að fella eigi niður stöður í
íslensku eins og reyndar hefur gerst
í Englandi. Verði áframhaldandi
samdráttur í háskólamálum megin-
landsins í líkingu við það sem verið
hefur á sl. tíu áram, gæti því svo
farið að lokum að íslenska yrði
hvergi kennd nema á íslandi. Því
er orðið biýnt að íslenskir stjóm-
málamenn móti sjálfstæða og mark-
vissa stefnu á þessu sviði, segir í
fréttatilkynningu frá fundi sendi-
kennaranna.
„Opið hús“ á fimmtu-
dagskvöldum í sumar
Sumardagskrá Norræna hússins hefst fimmtudaginn 26.júní,
kl.20:30, undir nafninu „Opið hús“. Þetta er árviss viðburður í starfi
hússins og er dagskráin einkum sett saman með tilliti til norrænna
ferðamanna og flutt á einhveiju Norðurlandamálanna.
Á dagskrá þessari verður leitast
við að kynna ýmsa þætti íslenskrar
menningar svo sem sögu landsins
og náttúra, bókmenntir og listir.
Að hveiju erindi loknu er gert
kaffíhlé og síðan sýnd einhver af
kvikmyndum Ósvalds Knudsen.
Kaffístofa Norræna hússins og
bókasafnið verða opin frameftir á
fimmtudögum í sumar, eða svo
lengi sem „Opið hús“ verður á
dagskrá og sú nýbreytni verður
tekin upp að bækur um ísland og
hljómplötur með íslenskri tónlist
verða til sölu í bókasafninu.
Á fyrsta „Opna húss“- kvöldinu,
nú á fímmtudaginn, heldur Guð-
mundur Sigvaldason jarðfræðingur,
fyrirlestur á dönsku um eldstöðvar
og heita hveri á íslandi og sýnd
verður kvikmynd Ósvalds Knudsen,
„Eldur í Heimaey" með norsku tali.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir, Islendingar jafnt sem er-
lendir ferðamenn.