Morgunblaðið - 26.06.1986, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1986
25
Stjórnvöld í S-Afríku:
Hóta að gera
dagblöð upptæk
Kína:
Líf stí ðarfangelsi
fyrir fjárdrátt
Peking, AP.
FYRRVERANDI starfsmaður
Jóhannesarborgf, AP.
YFIRVÖLD í Suður-Afríku
sögðu í gær að ekki yrði hikað
við að stöðva útgáfu eða gera
upptæk dagblöð sem ekki fylgdu
Jarðskjálft-
ar í Japan
Tókýó, AP.
TVEIR HARÐIR jarðskjálftar
gengu yfir Japan á þriðjudag og
miðvikudag.
Jarðskjálftinn á þriðjudag mæld-
ist 6,9 stig á Richterkvarða og varð
rétt fyrir hádegi. Háhýsi í Tókýó-
borg gengu í bylgjum, neðanjarðar-
lestir stöðvuðust og Narita-flugvelli
var lokað um stundarsakir á meðan
skemmdir voru kannaðar. Gefin var
út aðvörun um að flóðbylgja gæti
gengið jrfír 900 km strandlengju
við Kyrrahaf. Fyrir dögun á mið-
vikudag varð annar jarðskjálfti er
mældist 5,2 stig á Richterkvarða.
Átti hann upptök sín á sama stað
og sá fyrri, um 60 km undir hafs-
botni út af Bososkaga, stutt frá
höfuðborginni, Tókýó. Ekki var
gefín út viðvörun um hugsanlega
flóðbylgju og engar fregnir hafa
borist um skemmdir eða slys á
mönnum í þessum jarðskjálftum.
Bandarísk athugunarstöð á
Hawaiieyjum tilkynnti á þriðjudag,
að á mælum stöðvarinnar hefði
mælst jarðskjálfti sem var 7,1 stig
á Richterkvarða og hefði átt upptök
sín á hafsbotni í grennd við Nýju
Gíneu. Ekki hafa borist frekari
fregnir af þeim skjálfta.
reglum ríkisstjórnarinnar um
fréttaflutning á meðan neyðar-
ástand ríkir í landinu. í gær gaf
P.W. Botha forseti einnig út lög
sem leyfa öryggissveitum sljórn-
arinnar að hafa afskipti af öllum
svæðum sem lýst er „ókyrrum".
Sveitir þessar eru undanþegnar
ölhim löggjöfum.
Upplýsingamálaráðherra lands-
ins, Louis Nel, sagði í yfirlýsingu
til dagblaðanna í gær að þeim væri
skylt að fylgja reglum stjómarinn-
ar, þar sem þær væru lög landsins
þá stundina. Hann tilkynnti einnig
erlendum fréttariturum að stjómin
myndi taka til hvaða ráða sem henni
þætti tilhlýðileg, til að sjá til þess
að reglum hennar væri framfylgt.
Reglur um fréttaflutning sem
stjómin hefur sett fela m.a. í sér
að ekki sé leyfílegt að miðla fréttum
af starfsemi öryggissveita og að
birta yfírlýsingar sem hvetja til
byltingar.
Stjómin hefur gert upptæk tölu-
blöð tveggja dagblaða, en ekki
stöðvað útgáfu nokkurra þeirra
enn. Þremur erlendum fréttamönn-
um hefur verið vísað úr landi síðan
neyðarlögin voru sett.
Oliver Tambo, forseti Afríska
þjóðarráðsins, átti á þriðjudag við-
ræður við bresk stjómvöld, þar sem
hann sagði að eina leiðin til að fá
stjómina í Suður-Afríku til að láta
af aðskilnaðarstefnu sinni, sé að
beita efnahagslegum þvingunum.
Hann sagðist þó vondaufur um að
honum hefði tekist að fá Lyndu
Chalker, aðstoðamtanríkisráðherr?
Bretlands, á sitt mál.
mm
•F
Oliver Tambo, forsetí Afríska
þjóðarráðsins.
kínversku póstþjónustunnar hef-
ur verið dæmdur í lífstíðarfang-
elsi fyrir fjárdrátt.
Fyrmm varapóstmeistari í einu
af úthverfum Pekingborgar, Li
Changlan, var nýlega fúndin sek
um að hafa dregið að sér fjárhæð
er svarar til um hálfri milljón ísl.
kr. er hún var starfsmaður póst-
þjónustunnar í þorpi nokkm á ámn-
um 1973 til 1981. Hún viðurkenndi
ekki afbrotið, en áfrýjunarbeiðni
hennar var hafnað. Kínversk stjóm-
völd hafa að undanfömu tekið mjög
hart á auðgunarbrotum og hafa
ýmsir fyrrverandi ráðamenn hlotið
dóma fyrir slíkt.
Ráðstefnu um alnæmi lokið:
Fræðsla eina vörnin gegn
útbreiðslu sjúkdómsins
París, AP.
Þriggja daga alþjóðlegri ráðstefnu um alnæmi, sem 2.500 manns
viðs vegar að úr heiminum sóttu, lauk í Paris i gær. Á siðasta
degi ráðstefnunnar kom fram að haldi fram sem horfi, muni um
300.000 ný tilfelli af alnæmi bætast við árið 1991.
Sérfræðingar sem sátu ráð-
stefnuna, ætla að alnæmi geti
orðið að mjög alvarlegu heilbrigð-
isvandamáli í heiminum, sérstak-
lega í þróunarlöndunum. Þeir
lögðu áherslu á að enn hefur ekki
verið fundin lækning á sjúk-
dómnum og ekki er útlit fyrir að
takist að mynda mótefni gegn
veirunni í nánustu framtíð. Lækn-
amir hvöttu til aukinnar fræðslu
og forvama til að hefta útbreiðslu
sjúkdómsins.
Sovéskur vísindamaður til-
kynnti um tólf tilfelli af alnæmi
í Sovétríkjunum og væru þeir
smituðu bæði Sovétmenn og inn-
flytjendur frá Afríku og Asíu.
Hann sagði að ekki væri mikið
um homma í Sovétríkjunum og
þeir sem rannsakaðir hefðu verið,
hefðu ekki borið alnæmisveiruna.
Hann bætti því við að heilbrigðis-
yfírvöld í Sovétrílq'unum hefðu nú
hafíð eftirlit með blóðgjöfum til
að koma í veg fyrir að veiran
berist á þann mátatil annarra.
Fulltrúar um 30 hópa í Evrópu
og Bandaríkjunum, sem beita sér
fyrir aukinni fræðslu um alnæmi,
sátu einnig ráðstefnuna og hvöttu
þeir til aukins stuðnings frá yfir:
völdum til að sinna fræðslunni. í
ályktun sem fulltrúar hópanna
sendu frá sér f gær, kom fram
að feimni yfirvalda við orðaval
stæði í vegi fyrir að fræðsla um
alnæmi næði verulegum árangri.
Læknamir á ráðstefnunni
lögðu ríka áherslu á að öll þau lyf
sem reynd hafa verið til að lækna
sjúkdóminn, verði að reyna og
rannsaka mikið lengur áður en
hægt væri að staðhæfa um lækn-
ingarmátt þeirra og nota þau í
almennri meðferð.
BÍÓHÚSIÐ
Sími: 13800
GENE HACKMAN MATT DILLON
OPNUNARMYND BÍÓHÚSSINS ER
VfSkotmarkid“
“TARGET" GAYLE HUNNICUTT • JOSEF SOMMER Original Score by MICHAEL SMALL Story by LEONARD STERN
Screenplay by HOWARD BERK and DON PETERSEN Produced by RICHARD D. ZANUCK and DAVID BROWN
Directed by ARTHUR PENN
|Réad The Wamcr~Faperback j
Sýnd í dag kl. 9 og 11.15.
Bönnuð börnum
Ath.: Boðssýning kl. 5.
proouctions Presents A ZANUCK/BROWN Production AN ARTHUR PENN Film
GENE HACKMAN • MATT DILLON
ÍDAG
OPNAR
BÍÓHÚSIÐ
LÆKJARGÖTU 2