Morgunblaðið - 26.06.1986, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1986
45
Sýning á verkum
Oskars Theódórssonar
Um þessar myndir heldur ungur
íslenskur listamaður, Óskar
Theódórsson, sýningu á verkum sín-
um í íslenska skólanum í París.
Óskar er fyrsti gesturinn sem sýnir
verk sín í boði skólans, en ætlunin
mun vera sú að sýna verk fleiri
ungra íslenskra listamanna í því
skyni að gefa nemendum skólans
og öðrum gestum tækifæri til að
kynnast og fylgjast með ungri list
frá Islandi.
sem hafa áhuga á því að taka þátt
í sýningu í Islenska skólanum á
næsta skólaári, á að hafa samband
við Önnu Theódórsdóttun
6 rue Henri-Berreau
91100 Corbeil Essonnes
France
Sími: 60880512.
Sýningin var opnuð sunnudaginn
24. maí og stendur til loka júnímán-
aðar. Á sýningunni eru tólf verk
og eru þau öll unnin á árinu
1984—85. Átta þeirra eru vatnslita-
verk og fjögur unnin með krít.
Allflest minna verkin á ísland með
myndum af víkingum, víkingaskip-
um, álfum o.fl.
Aðsóknin að sýningunni hefur
verið mjög góð og er þegar búið
að selja rúmlega helming verkanna.
Að lokum er rétt að benda þeim,
Eyja Ásgrímsdóttir, íslensk kona búsett í París, og Ágústa, einn
kennara skólans, virða fyrir sér nokkur verk Óskars.
Hundapelsar í
tísku næsta vetur
Ef fram heldur sem horfir
má búast við að samkeppnin
fari harðnandi á ullarmörkuðum
víða um heim á næstunni. Meðan
við íslendingar einblínum á sauð-
kindina og ef til vill minka og
þvíumlík loðdýr sem hráefni i
fataframleiðslu, stendur Pauline
Jones í stórræðum við fatasaum
úr hundahárum heima hjá sér —
i Kent í Englandi.
Það var í rauninni fyrir algera
tilviljun sem Pauline fór að gera
tilraunir með hundahár í hönnun
sinni. Hún átti tvo „Shetland“-fjár-
hunda, sem, eins og aðrir hundar,
fóru úr hárum tvisvar á ári. I hvert
sinn sem Pauline burstaði feld
þeirra leiddi hún hugann að því
hversu mikil synd það væri að
----
Billy Joel og Christie Brinkley
með mynd af frumburði sinum,
Alexu Ray, sem skírð var í
höfuðið á söngvaranum Ray
Charles.
færi upplýsti Billy Joeí að dóttir
hans hefði hlotið nafnið Alexa Ray,
í höfuðið á verðlaunahafanum.
henda öllu þessu fína hári. Eftir
mikil heilabrot ákvað hún að safna
þessu saman og prófa síðan hvort
ekki væri hægt að búa til pijóna-
gam úr þessu. Og, viti menn, —
það tókst og áður en varði var hún
komin útí framleiðslu á flíkum, sem
búnar eru til úr þessu sérkennilega
hráefni. Ekki leið á löngu uns hún
var farin að fá pantanir víða að,
enda eru föt þessi víst bæði ending-
argóð og algerlega vatnsþétt. Ekki
vill framleiðandinn þó gefa upp
leyndarmálið sem að baki vinnslu
þessari liggur. „Nú, þegar pening-
amir em famir að streyma inn,
dettur mér ekki í hug að gefa það
upp. A.m.k. ekki fyrr en ég er búin
að tryggja mér ömggt forskot í
fjöldaframleiðslunni,“ segir hún.
Hlýtt og notalegt — fram-
kvæmdakvendið Pauline Jones í
flíkum, sem hún framleiðir úr
hárum hunda sinna.
COSPER
— Lækkaðu í sjónvarpinu, við heyrum varla öskrið í stráknum.
KJÚKLINGA- PIE
MARGRÉT BRANDSDÓTTIR
Deig:
250 ghveiti
125 gsmjörlíki
salt
4-6 msk. ískaltvatn.
Fylling:
1 kjúklingur (ca. 800g)
1 dóssveppir
1 grænpaprika
1 laukur
50 gsmjörlíki
2 msk. hveiti
2 tsk. Worchestersósa
pipar
Á pie-iö:
1 eggjarauöa
1 msk. mjólk.
Deig:
Sigtið hveiti, smjörlíki og salt og hnoðið saman. Iskalda
vatnið hnoðað saman við. Hnoðað í kúlu, sett í álpappír og
geymt í ísskáp í 30 mín. Slðan er deiginu skipt í tvennt og
búnar til (rúllaðar út) tvær kringlóttar kökur. Önnur á að
vera dálítið stærri og er henni þrýst ofan í pie-form og
brúnirnar látnar standa aðeins uppfyrir.
Fylling:
Prífið kjúklinginn. Sjóðið hann í vatni og safanum frá
sveppunum við meðalhita í ca. 30 mín. Takið kjötið af
beinunum og skerið í litlabita. Þvoið paprikunaog sneiðið
í litla bita. Afhýðið laukinn, brytjið smátt og steikið í feiti í
um eina mín. Setjið hveitið út í og hrærið vel. Hellið síðan
3/81 af kjúklingasoðinu út í. Sjóðið í 5 mín. og bragðbætið
með Worchestersósu, pipar og salti. Kælið. Blandið
saman kjötinu, sveppunum, paprikunni og sósunni og
hellið síðan í formið.
Síðan er hin hringlaga kakan lögð ofan á. Bleytið
barmana með vatni og þrýstið vel saman. Skerið kross
yfir kökuna (svo hún springi ekki við bakstur).
Eggjarauðu og mjólk hrært saman og smurt yfir pie-ið.
Bakist við 200 gráður í ca. 35 mín.
ísfugl
Simi: 666103
S0TT-H0LLT
0GÓDÝRT
Kjúklingur er hollur, góöur og síðast en ekki síst
ódýr matur.
einu sinní í viku og velji sér kjúklingadag.
Hér birtist spennandí uppskrift úr samkeppni
ÍSFUGLS, veldu þér kjúklingadag og reyndu
uppskriftina.