Morgunblaðið - 26.06.1986, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1986
SJÁIÐ ÍSLAND
ÚR 40.000
FETA HÆÐ
Nú gefst í fyrsta sinn kostur á útsýnis-háflugi í 8 sæta þotu
Þotuflugs. Landið tekur á sig nýjan svip séö ofan úr heið-
hvolfi jarðar þar sem himinninn er svartur og myndir verða sem
teknar úr geimfari frekar en flugvél.
Ferðin kostar kr. 6.400,- fyrir manninn (á mann).
Nánari upplýsingar og sætapantanir í síma 27809 og utan
skrifstofutíma í síma 40202.
Ef hópar æskja þess að farin sé sérstök flugleiö þá vinsamlegast
semjið um slíkt fyrirfram.
Grandagarði 1 b, Reykjavík
í blíðu og stríðu
Rætt við tvo sænska félagsráðgjafa
sem hafa sérhæft sig í samskiptavanda-
málum kynjanna.
Göngum göngum ....
Að ganga sértil heilsubótar.
Tápogfjör
Kíkt í heimsókn á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Veggspjaldatiskan
Matur
Rússnesk matargerðarlist.
Myndbönd
Föstudcigsblaðið er gott forskot á helgina
Thomas Hulce sem pizzusalinn Jónatan. Víðsfjarri tónskáldinu
Amadeusi.
Listamanna-
draumar í L A
92 mín. Austurrísk-Bandarísk.
1985.
Sagt er að lunginn úr leikara-
stétt Bandaríkjanna sé þjónandi á
vertshúsum stórborganna og fleiri
í LA en nokkuri annarri. Þökk sé
sjálfri draumafabrikkunni,
Hollywood. í Bergmálsgarði
fylgjumst við einmitt með þrem
ungmennum þar í borg sem öll
ganga með frama- og listamanns-
drauma í maganum. Susan Dey
hyggst verða leikkona, en það sem
hún hefur enn haft upp úr krafs-
inu er strípsýningar í afmælis-
boðum. Hjá henni leigir pizzu-
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbíó: Bergmálsgarður
— Echo Park ★ ★ ★
Leikstjóri: Robert Dornheim.
Framleiðandi: Walter Shenson.
Handrit: Michael Vanture.
Myndataka: Karl Kofler.
Tónlist: David Rickets.
Klipping: Ingrid Koller.
Aðalleikendur: Susan Dey,
Thomas Hulce, Christopher
Walker, Michael Bowen, John
Paragon.
sendillinn Thomas Hulce, ljóð- og
tónskáld í frítímum. í hinum helm-
ing hússins býr austurríski kraft-
lyftingamaðurinn Michael Bowen.
Sá hyggst verða Amold Scwart-
zenegger annar.
Harla óvenjuleg mynd og kær-
komin í einfaldleika sínum og
virðingu fyrir þessum þrem rek-
öldum á víðáttumiklum ströndum
borgar tækifæranna. Bergmáls-
garður fjallar nefnilega ekki um
þær manngerðir sem við sjáum
alla jafna í níu myndum af tíu,
þær sem slá í gegn, heldur hinar
sem eru að sækja á brattann og
eru að klöngrast í fjallsrótunum.
Og eru knúnar áfram af draumn-
um einum.
Myndin um þetta utangarðsfólk
er þó engin grátsaga heldur sögð
á bráðskemmtilegan hátt og mein-
fyndin. Aðalpersónumar mynda
einnig ástar-þríhyming. Day er
framagjam tækifærissinni sem til
að byrja með er hrifinn af hinum
austurríska kraftakarli en er undir
lokin farin að gefa hinum ástsjúka
Hulce gaum. Hvomgur sjá pilt-
amir sólina fyrir henni.
Það kemur á óvart að sjá Hulce
í þessari litlu, vinalegu mynd, eftir
að hafa komist á toppinn í Amad-
eus. Allavega er hlutverk hans
hér ekkert stjömuefni. Hugsan-
lega er þáttur hans vinargreiði
frá Amadeustímanum í Vín,
hveiju sem því viðvíkur er hann
greinilega óragur við að velja sér
viðfangsefni. Því er þó ekki að
neita að meðleikarar hans stela
athyglinni, bæði hin útsmogna og
kynþokkafulla Day og hinn for-
kostulegi Austurríkismaður og
hans meinháðski kraftlyftingar-
kafli. Senuþjófurinn sjálfur er þó
enn einn nýgræðingurinn á tjald-
inu til viðbótar, John Paragon í
hlutverki slepjulegs, brilljantín-
greidds nektardansaramangara.
Rob Lowe að fullvissa þjálfara sinn, Ed Lauter, um að hann vilji
komast aftur á klakann.
*
A köldum klaka
Bíóhöllin: Youngblood ★ ★
Leikstjóri: Peter Markle.
Handrit: Markle.
Kvikmyndataka: Mark Irwin.
Tónlist: William Orbit/Torch-
song.
Tónlist með Mr. Mister, Donnu
Summer, Nick Gilder ofl.
Aðalleikendur: Rob Lowe,
Cynthia Gibb, Patrick Swayze,
Ed Lauter, Jim Youngs.
Kanadísk/bandarísk frá New
United Artists. 1985.
í myndinni Youngblood er
íjallað um íshokkí, þá hröðu og
háskalegu íþrótt sem er næsta
óþekkt hérlendis. Rob Lowe er
efnilegur leikmaður sem heldur
að heiman af bóndabýlinu í leit
að frægð og frama. Vegnar vel
uns besti vinur hans á svellinu er
örkumlaður af andstæðingunum.
Snýr þá aftur til kotsins þar sem
eldri bróðir hans stappar í hann
stálinu á nýjan leik. Piltur heldur
til baka og hefnir.
Garpskapur á íþróttavellinum
er orðin gatslitin tugga en kvik-
myndagerðarmennirnir bjarga sér
fyrir hom að þessu sinni með
því að bjóða vandvirknisleg vinnu-
brögð og sýna að þeir kunna að
halda uppi spennu. Að auki er
forvitnilegt að fá að kynnast þessu
glæfraspili sem nefnist íshokkí.
Það er sem maður sé kominn í
hringleikahús á tímum Rómveija.
Ahorfendur öskra á blóð og
keppnismennirnir svífast einskis í
hita leiksins - öllum brögðum er
beitt.
Youngblood er því æsileg fyrir
augað. Rob Lowe skautar af
skörungsskap og bræðir sjálfsagt
margt stúlkuhjartað á köldu svell-
inu. Annars eiga hann, Swayze
og George Finn í hlutverki fautans
í liði andstæðinganna, ríkan þátt
í að byggja upp hressilega
spennukafla. Þá er einkar
ánægjulegt að sjá það gamal-
kunna hörkutól, Ed Lauter, í
mannsæmandi hlutverki. í heild
er Youngblood ekki ýkja merki-
leg kvikmynd en dálaglega sam-
ansett, af kanadískum kvik-
myndagerðarmönnum, og spenn-
andi afþreying.
Aðalfundur Æðarverndarf élags
Snæfellsness- og Hnappadalssýslu
Æðarverndarfélag Snæfellsness-
og Hnappadalssýslu hélt aðal-
fund sinn í Stykkishólmi fyrir
stuttu. Á fundinn mættu m.a.
Sigurlaug Bjarnadóttir, formað-
ur Æðarræktarfélags Islands, og
Árni Snæbjörnsson, ráðunautur
Búnaðarfélagsins. Höfðu þau
áður heimsótt varpstöðvar á
Vestfjörðum og víðar.
Ámi flutti erindi um ræktun og
eflingu æðarvarps og var það erindi
mjög fróðlegt og athyglisvert. Hann
sýndi skyggnur um þróun æðar-
varps frá aldamótum, hversu vel
það stóð um aidamót og þar til
lægðin var sem mest um 1960. Með
auknum og almennum áhuga æðar-
ræktenda nú, hefði varpið aftur
snúist til betri vegar, margar til-
raunir til aukningar þess hefðu
borið árangur og enn væri leitað
leiða svo sem með skjólbeltum, út-
ungun og fleiru sem áhuga vekti.
Nefndi hahn í því sambandi ýmsar
varpstöðvar og hvemig þar hefði
til tekist. Verstu óvinir varpsins
væru vargfuglar og væri allt gert
til að fækka þeim. Minnst var á
skemmdarstörf hrafns, minks og
tófu. Gegn öllu þessu þyrfti að vera
á varðbergi.
Hermann Guðmundsson, formað-
ur félagsins, gat starfs félagsins
og hvað hefði áunnist á liðnum
árum. Einar Karlsson stýrði fundi
og ræddi einnig um aukningu
varpsins. Tíðarfarið hefur mikið að
segja, sérstaklega miklar rigningar,
sem geta eyðilagt uppskeruna.
Sigurlaug Bjarnadóttir ræddi fé-
lagsmál og markaðsmál og sérstak-
lega kom hún inn á mikilvægi
umhirðu í varpi. Dúnninn er verð-
mæt vara og um hann verður að
hugsa og leggja alúð við að hann
geti orðið sem bestur.
Árni