Morgunblaðið - 21.09.1986, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986
Allsherjarsamtök opinberra starfsmanna?
Hugmyndir um var-
anlegt samstarf
BSRB, BHMR og BK
EKKI er útilokað að það samstarf um samuings- og verkfallsréttar-
mál, sem tekist hefur milli stærstu heildarsamtaka opinberra
starfsmanna í viðræðum við ríkisvaldið, geti orðið byrjun á víðtæk-
ara samstarfi og jafnvel stofnun allsherjarsamtaka opinberra
starfsmanna. Hugmyndir í þessa veru voru lauslega ræddar á sljórn-
arfundi í BSRB á miðvikudaginn, að sögn Kristjáns Thorlaciusar,
formanns BSRB.
Þessar hugmyndir kviknuðu í
framhaldi af umræðum á fundinum
um mótun sameiginlegrar afstöðu
BSRB, BHMR og Bandalags kenn-
arafélaga til samnings- og verk-
fallsréttarmála. Sameiginleg nefnd
þessara samtaka á þessa dagana í
viðræðum við samninganefnd ríkis-
ins um þau mál.
Fram kom á stjómarfundinum á
miðvikudaginn, að svo virtist sem
samtök opinberra starfsmanna
myndu þurfa að heyja vamarstríð
í kjara- og réttindabaráttu sinni á
næstu mánuðum og þvi gæti verið
heppilegt að samstarf þessara
þriggja heildarsamtaka yrði varan-
legt.
„Það er ekki hægt að segja að
þessar hugmyndir séu nokkuð ann-
að en einmitt hugmyndir ennþá,"
sagði Kristján Thorlacius í gær.
„Samstarf okkar í samningsréttar-
málum og fleiru gæti vel orðið
byijun á einhveiju meira. Mín skoð-
un er sú að þessar vangaveltur
þurfi miklar umræður í hlutaðeig-
andi samtökum og þar þurfa margir
að leggja orð í belg.“
Kristján sagðist telja líklegt og
eðlilegt, að þessar hugmyndir yrðu
ræddar á aukaþingi BSRB um
skipulagsmál, sem halda á í
Reykjavík 21. og 22. október næst-
komandi.
ísbergið kemur til Siglufjarðar.
Morgunbladið/Matthías Jóhannsson
Siglufjörður:
ísbergi breytt í fiskflutningaskip
ÍSBERG, sem er um 2.000 tonn,
eign útgerðarfélagsins Ok í
Kópavogi hefur verið tekið upp
i slipp á Siglufirði og á að breyta
því í fiskflutningaskip. Þetta er
stærsta skip sem gert hefur ver-
ið við á Siglufirði.
Að sögn Jóns Dýrfjörð, sem er
annar eigandi að vélaverkstæði
Jóns og Erlings, verða lestar skips-
ins hólfaðar niður að hluta og sett
í þær kælikerfi. Verkið hófst fyrir
rúmri viku og er búist við að 20
manns vinni við breytingarnar þeg-
ar verkið er að fullu komið í gang.
Auk Vélaverkstæðis Jóns og Erl-
ings vinna verktakafyriitækin Berg
og Rafljær á Siglufriði og Sveinn
Jónsson í Reykjavík ákveðna verk-
þætti.
M orgu nbl aðið/G u ðl augu r
Fyrsta námskeiði hófst í Vestmannaeyjum á föstudaginn. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra var
viðstaddur og setti námskeiðið formlega.
Starfsfræðslunámskeið fyrir verkafólk í fiskiðnaði:
Búist við 2000 þátt-
takendum fyrsta árið
FYRSTA starfsfræðslunámskeið fyrir verkafólk í fiskiðnaði var sett
í Verkalýðshúsinu i Vestmannaeyjum á föstudaginn.
í frétt frá sjávarútvegsráðuneyt-
inu segir að gert sé ráð fyrir að
ýfir 2 þúsund manns víðsvegar að
af landinu muni taka þátt í þessum
námskeiðum á fyrsta ári, en skil-
yrði fyrir rétti til þátttöku eru að
fiskvinnslufólk hafi undirritað
fastráðningarsamning. Boðið verð-
ur upp á tíu námskeið sem hvert
um sig er 4 klst. að lengd. Þegar
fiskvinnslumaður hefur unnið 12
mánuði samfellt samkvæmt fast-
ráðningarsamningunum, lokið
þessum tíu námskeiðum auk
tveggja vikna starfsþjálfunar, telst
hann sérhæfður fískvinnslumaður
og fær laun samkv. 20. launaflokk.
Samkomulag hefur verið gert um
fyrirkomulag þessara námskeiða
sem haldin verða í samvinnu við
verkalýðsfélög og atvinnurekendur
á hveijum stað.
Halldór Asgrímsson sjávarút-
vegsráðherra setti fyrsta námskeið-
ið í Vestmannaeyjum. Námskeiðin
eru hluti af samkomulagi sem
Vinnuveitendasamband íslands og
Vinnumálasamband samvinnufé-
laga annarsvegar og Verkamanna-
samband íslands hins vegar gerðu
um málefni fiskvinnslufólks, í kjara-
samningunum 26. febrúar sl.
Meginmarkmið samkomulagsins
var að auka atvinnuöryggi starfs-
manna í fiskvinnslu og að staðið
yrði fyrir sérstakri starfsþjálfun
fólks í fiskvinnslu. Samkomulagið
tók gildi 1. júní eftir að gengið var
frá þátttöku Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs, en sjóðurinn greiðir laun
fiskvinnslufólks meðan það situr
námskeiðin.
Alkirkjuráðið ályktar um málefni Nigaragua:
Hvetur til þess
að komið verði
í veg fyrir er-
lendar íhlutanir
Framkvæmdanefnd Alkirkjur-
áðsins lauk fundi sinum í
Bústaðakirkju á föstudaginn. Á
fundinum var rætt um margvís-
leg málefni en hæst bar
umræður um málefni Nic-
aragua og alnæmissjúkdóminn.
I yfirlýsingu sem nefndin lét
frá sér fara um þessi málefni
segir að Aikirkjuráðið lýsi yfir
stuðningi við þjóðina í Nic-
aragúa, sem þar er að reyna
að byggja upp samfélag, og
ákalli kirkjur sem aðild eiga
að ráðinu til að hvetja ríkis-
stjórnir landa sinna til að nota
áhrifavald sitt og koma þannig
í veg fyrir erlenda ihlutun í
málefnum Nicaragua. Þá hvatti
nefndin kirkjurnar til að bregð-
ast við alnæmissjúkdómnum á
viðeigandi hátt og reyna að
græða sár þeirra sem um sárt
eiga að binda.
Dr. Emilio Castro, fram-
kvæmdastjóri Alkirkjuráðsins,
sagði á blaðamannafundi sem
haldinn var í gær að málefni Suð-
ur-Afriku hefðu verið rædd en
engin yfirlýsing yrði gefin út um
það mál að svo stöddu. Hann
ræddi hins vegar málefni Nic-
aragua lítillega og lýsti yfir
samstöðu með fólkinu í landinu
sem hann sagði nausynlegt að
hughreysta. Lagði hann áherslu á
að Nicaragua væri ógnað. Rétt-
indum fólksins og sjálfsákvörðun-
arrétti hefði verið misboðið. Fólkið
hefði þurft að líða þjáningar og
það væri hrópandi á hjálp til að
koma á friði og framfylgja rétt-
læti. Sagði hann að þrátt fyrir
andstöðu við yfirvöld í Banda-
ríkjunum hefðu hópar innan
kirkjunnar í Bandaríkjunum lýst
skoðun sinni og andstöðu við
stefnu stjórnarinnar í málum Nic-
MorKunblaðið/Ámi Sœborp
Fjölmenni var við samkirkjulega guðsþjónustu í Langholtskirkju sl. föstudagskvöld.
aragua.
Um alnæmissjúkdóminn sagði
Castro: „Tilfellum fer fjölgandi
og margir hafa orðið til þess að
fordæma þá sem ganga með hann.
Það er hins vegar ástæða til að
leggja áherslu á að alnæmi er
sjúkdómur og á að meðhöndlast
sem siíkur. Vegna þess hversu
alvarlegur hann er, er þörfin fyrir
sálusorgun og umönnun kirkjunn-
ar rík. Það þarf að hjálpa sjúkl-
ingnum að sætta sig við nálægð
dauðans og einnig þarf að aðstoða
ættingja."
Umræða um fóstureyðingar
hefur verið talsverð að undan-
fömu hér á lándi og var Castro
að því spurður hvort Alkirkjuráðið
hefði eitthvað unnið að slíkum
málum, eða gefið út einhverjar
yfirlýsingar um þau? Sagði hann
að Alkirkjuráðið hefði ekki lýst
neinu yfir varðandi fóstureyðing-
ar og sagði að um flókið mál
væri að ræða. „Kirkjan hlýtur
ætíð að taka málstað lífsins,
standa með lífinu. Alkirkjuráðið
hefur hins vegar ekki unnið að
þessu máli og því erfitt að segja
nokkuð ákveðið í jafn flóknu máli
og þessu,“ sagði Castro.