Morgunblaðið - 21.09.1986, Page 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986
Sónarskoðanir:
Skoðunartækní og mynd-
rænt næmi nauðsynlegt
— til að ná góðum árangri segja læknarnir Reynir
Tómas Geirsson og Sigurður V. Sigurjónsson
SÓNARSKOÐANIR eða ómskoð-
anir hafa færst mjög í vöxt
síðasta áratug eða frá þvi fyrsta
tækið var sett upp á kvennadeild
Landspitalans. I dag eru 19 són-
artæki eða ómsjár til á landinu,
þar af eru 12 staðsett utan
Reykjavíkur. Þetta er mun hærri
tala en tíðkast erlendis miðað við
íbúatölu. A höfuðborgarsvæðinu
hefur ríkið lagt fram fé til kaupa
á þessum tækjum en annars stað-
ar á landinu hafa bæjarfélög eða
félagasamtök séð um að fjár-
magna kaupin.
Ohætt er að segja að við íslend-
ingar fylgjumst vel með tækninni,
við erum tækjaglöð þjóð og annað
slagið ganga yfír holskeflur af hin-
um og þessum tækjafaröldrum,
menn muna eftir fótanuddtækjum,
litla ljósálfinum, sódastreamtíma-
bilinu og myndbandavæðingunni og
nú er síðasti faraldurinn í fullum
gangi, farsímafaraldurinn að
ógleymdum afruglaranum. Vegna
þess hve mjög við trúum á tæknina
er svo komið að við erum í fram-
varðarsveit þjóða hvað snertir
tölvuvæðingu, eigum tæknilegri
bfla og betur græjuð heimili en
gerist og gengur meðal nágranna-
þjóðanna. Sjúkrahús hafa notið
góðs af þessari tæknitrú, og af
þeim sökum eigum við einnig betur
búin sjúkrahús en gerist og gengur.
Sónartæki fyrst notuð til að
fylgjast með meðgöngu
Fyrst um sinn voru sónartækin,
eða ómsjámar eins og Sigurður V.
Siguijónsson iæknir vill nefna þau,
svo til eingöngu notuð til að fylgj-
ast með meðgöngu, kanna lengd
meðgöngutíma og hvort fóstrið
væri rétt skapað. Þau tæki sem
komið hefur verið upp úti á lands-
byggðinni eru almennt keypt í
þessum tilgangi. A síðustu árum
hafa ómsjár einnig verið notaðar
til skoðunar á líffærum í efra kvið-
arholi, en einnig til að skoða hjarta
heila og æðakerfí. Að sögn þeirra
sem til þekkja þarf sérstaka kunn-
áttu til að nýta að fullu þá mögu-
leika sem þessi tækni býður upp
á, og tækið kemur að minna gagni
ef sú þekking er ekki fýrir hendi.
Dæmi eru til um að konur hafí
farið í ómskoðun, fengið upplýsing-
ar um að þær gengju með eitt bam
en þau reynst fleiri. Sjúkdómsgrein-
ing getur verið röng þar sem næg
kunnátta hefur ekki verið fyrir
hendi til að lesa úr þeim upplýsing-
um sem þessi tæki geta veitt.
Spumingin er því hvort við séum
farin að trúa blint á tækin í stað
þess að nota þau sem hjálpartæki
við sjúkdómsgreiningu.
Skipulag nauðsynlegt
Læknamir Reynir Tómas Geirs-
son og Sigurður V. Sigutjónsson
hafa unnið við ómskoðanir í nokkur
ár. í nýlegri grein í Læknablaðinu
benda þeir m.a.á nauðsyn einhvers
konar skipulags í þessum efnum,
bæði hvað varðar staðsetningu og
val tækja og kunnáttu þeirra sem
með þau fara. Reynir Tómas, lækn-
ir á kvennadeild Landspítalans,
varði í gær doktorsritgerð um ár-
angur rannsókna sem hann gerði í
Bretiandi á ámnum 1981-85, en
hún fjallar um breytingar á rúm-
máli legs á meðgöngu, mælt með
sónartækni. Sigurður fæst nú eink-
um við ómskoðanir í efra kviðarholi
á Landspítalanum.
Reynir Tómas var spurður hvaða
áhrif þessi tækni hefði haft á störf
fæðingarlækna og hvort sá mögu-
leiki væri fyrir hendi að læknar og
sjúklingar hefðu fengið oftrú á
þessum tækjum.
Hann sagði að með þessari tækni
væri hægt að auka öryggi kvenna
á meðgöngutímanum ef rétt væri
með farið. Með því að ómskoða all-
ar konur a.m.k. einu sinni á
meðgöngutímanum mætti koma í
veg fyrir ýmis mistök og bæta ráð-
leggingar og meðferð á meðgöngu.
Ómskoðun getur t.d. gefíð góðar
upplýsingar um lengd meðgöngu
sem um 25 til 30% kvenna kann
ekki nákvæm skil á vegna óvissu
varðandi síðustu blæðingar. Þá
væri hægt að athuga flesta meiri-
háttar fósturgalla, hægt að fylgjast
með vexti fóstursins og hvort það
fái nægilega næringu. Hinsvegar
taldi hann konur oft ofskoðaðar eða
vanskoðaðar.
Fjöldi skoðana tryggir
ekki góða skoðun
„Það er algengt að konur fari
3-5 sinnum í þessi tæki, en fjöldi
skoðana tryggir ekki góða skoðun.
Það er talið nægilegt að fara einu
sinni til tvisvar á meðgöngutíma í
sónar eða ómskoðun og ég var t.d.
að frétta að á læknaþingi í Noregi
í síðustu viku var ákveðið að mælt
yrði með því við stjómvöld að kon-
um yrði boðið upp á eina skoðun á
meðgöngutímanum á 18.-19. viku
meðgöngunnar."
Hann taldi ennfremur að unnt
væri að spara tíma og fjármuni
með betri skipulagningu. Þá vildi
það einnig bregða of oft við að
konur væru sendar í sónar vegna
einhverra orsaka, sem sónartæknin
kann engin ráð við, konur væm t.d.
sendar í sónar vegna fyrirvara-
verkja.
Þeir Reynir og Sigurður vom
spurðir hvemig staðið væri að þjálf-
un lækna og hjúkmnarfólks til að
nota þessa tækni. Þeir sögðu að
því miður hefði talsvert skort á að
menn hefðu getað nýtt sér þessa
tækni nægilega vel, sumir hefðu
aldrei lært kerfisbundna aðferð við
skoðun. „Við héldum vikunámskeið
hér á spítalanum í fyrra, það var
mjög vel sótt en mönnum þyrfti að
standa til boða viðbótamámskeið
og verkleg þjálfun, en fólk hefur
ekki séð sér fært að notfæra séF
möguleika til þjálfunar á Landspít-
alanum eða Borgarspítalanum, en
á þessum stöðum er þegar komin
talsverð reynsla og þekking. Til að
stunda venjulegar ómrannsóknir á
meðgöngutíma þyrftu læknar eins
til tveggja mánaða námskeið að
minnsta kosti, en mun lengri þjálfun i,
væri nauðsynleg þeim sem vinna
t.d. við ómskoðanir í kviðarholi.“ ,;
Þeir sögðu ennfremur að á vegum
landlæknisembættisins stæði til að
gefa út bækling um notkun þessara
tækja í sambandi við mæðravemd. ,m>
,ni
Greining sjúkdóma
í efra kviðarholi
nákvæmari en áður
Sérsvið Sigurðar er ómun á bris-
kirtilssvæðinu og líffærafræði þess.
„Greining sjúkdóma í þessum
VERÐTRYGGÐIR REIKNINGAR
MEÐ FÖSTUM VÖXTUM
80%
VEXTIR
MÁNAÐA
BINDING
VEXTIR
^MMÁNAÐA
ÁVÖXTUN SEM MUNARUM
SAMVINNUBANKI ISLANDS HF.
Sigurður örn Brynjólfsson
Sýnir í
Ungverja-
landi
SIGURÐUR Örn Brynjólfsson
opnaði sýningu á plakötum og
teikningum 19. september sl. i
borginni Kecskemét í Ungveija-
landi. Sýningin stendur yfir í
þijár vikur.
Sigurður Öm dvelur um þessar
mundir í Kecskemét í boði Janos
Probsnér, forstjóra „Intemational
Experimental Ceramic Studio."
Hann verður þama í mánuð til að
kynna sér Ceramic stúdíóið og setja
upp sýninguna.
Auk þess að vera í kynnisferð
mun hann vinna að verkefnum fyr-
ir „Intemational Experimental
Cermaic Studio". Meðal þeirra verk-
efna er hönnun á kynningarbækl-
ingum, plakötum o.fl. sem hann
mun fullvinna hér heima.
Sigurður Öm hefur verið deildar-
kennari í auglýsingadeild MHÍ
undanfarin ár. Að auki hefur hann
rekið auglýsingastofu.