Morgunblaðið - 25.09.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SETPEMBER 1986
Fáskrúðsfj örður:
Verkfalli frestað
í sláturhúsinu
STJÓRN og trúnaðarmannaráð
verkalýðsfélagsins á Fáskrúðs-
firði ákvað í gærkvöld að fresta
til miðnættis á laugardag verk-
falli, sem átti að hefjast í slátur-
húsi kaupfélagsins á hádegi í
dag. Vinnumálasamband sam-
vinnufélaganna hafði óskað eftir
frestun verkfallsins til mánudags
en fulltrúar þess eru væntanlegir
austur í dag til að reyna að leysa
deilu verkalýðsfélagsins við
stjórn kaupfélagsins.
Eiríkur Stefánsson, formaður
verkalýðsfélagsins á staðnum, sagði
að kröfur verkafólksins væru að
allir starfsmenn í sláturhúsinu, um
það bil 45, fái aðgang að mötu-
neyti kaupfélagsins; þeir sem ekki
geti notað mötuneytið fái 250 krón-
ur greiddar á dag. Sömuleiðis er
gerð krafa um að 4-6 konur, sem
vinna á tímakaupi við hlið karla er
vinna í akkorði, fái sérstaka uppbót
á tímakaup sitt.
Sérkjarasamningur tollvarða:
85,4% tollvarða
greiddu atkvæði
með samningnum
TOLLVERDIR samþykktu nýjan
sérkjarasamning sinn við fjár-
málaráðuneytið með yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða.
Kjörsókn var góð, 89 af 98 toll-
vörðum í Tollvarðafélagi íslands
greiddu atkvæði, eða 90,8%.
Þegar atkvæði voru talin í gær-
Fyrirlest-
ur dr. Folk
kl. 16 í dag
Dr. G. Edgar Folk, prófess-
or í lífeðlisfræði við háskól-
ann í Iowa í Bandaríkjunum,
heldur fyrirlestur í dag kl.
16.00 á vegum Rannsóknar-
stofu HÍ í lífeðlisfræði.
kvöld kom í ljós að 76, eða 85,4%
voru fylgjandi samningnum, 10 eða
11,2% voru á móti en þrír seðlar
voru auðir, eða 3,4% atkvæða, að
sögn Sveinbjöms Guðmundssonar,
formanns TI.
Samningnum fylgir bókun um
afnám verkfallsréttar Tollvarðafé-
lagsins. Sú bókun mun væntanlega
verða að veruleika með nýjum lög-
um um samnings- og verkfallsrétt
opinberra starfsmanna, sem boðuð
hafa verið af Qármálaráðherra.
Nýi sérkjarasamningurinn gildir
að hluta frá 1. febrúar sl., þ.e.
þriggja launaflokka kauphækkun,
en að öðru leyti gildir samningurinn
frá 1. september.
Tekinn með
amfetamín
KARLMAÐUR var handtekinn á
mánudag og lagt hald á amfeta-
mín, sem fannst í fórum hans.
Var hann í gær úrskurðaður í
18 daga gæsluvarðhald.
Maður þessi, sem er 33 ára gam-
all, tengist máli sem kom upp í
síðustu viku, en þá voru tveir karl-
menn og ein kona handtekin.
Fundust 135 grömm af amfetamíni
í fórum mannanna. Annar maður-
inn, 24 ára hálfbróðir þess sem nú
var tekinn, hefur einnig verið úr-
skurðaður í gæsiuvarðhald til sama
tíma.
„Heyrði háan hvell
og sá neistaflug“
AXEL Helgason, sem býr í
Breiðholtinu í Reykjavík, varð
fyrir þeirri reynslu á þriðjudag
að skotið var á bifreið hans.
Fór skotið í gegnum hægri hlið
bifreiðarinnar og stöðvaðist í
baki sætisins sem Axel sat I.
„Ég var einn í bílnum og var
á heimleið eftir vinnu," sagði
Axel. „Þegar ég var kominn upp
Breiðholtsbrautina og ætlaði að
beygja inn Norðurfell heyrði ég
háan hvell og sá neistaflug fyrir
aftan sætið. Mér datt strax í hug
að skotið hefði verið á bílinn, en
fannst heldur ótrúlegt að slíkt
kæmi fyrir og sagði því við sjálfan
mig að tómar gosflöskur á gólfi
bflsins hefðu rekist svona harka-
lega saman. Þegar ég var kominn
heim fór ég að velta þessu nánar
fyrir mér og gat ekki sætt mig
við þá skýringu. Ég hef farið tölu-
vert á skytterí og taldi mig þekkja
skothvell. Ég fór því út aftur og
þá sá ég gatið á hægri bílhlið-
inni. Við nánari skoðun fann ég
svo gat á baki sætisins þar sem
kúlan hafði farið inn. Hún hefur
stöðvast á treijum í sætinu og var
þá komin að bakinu á mér, aðeins
sætisáklæðið á milli. Ég verð að
viðurkenna að mér varð ekki um
sel þegar ég uppgötvaði það.“
Rannsóknarlögregla ríkisins
vinnur nú að máli þessu og eru
hugsanleg vitni beðin að hafa
samband við hana. Ekki er vitað
úr hvers konar skotvopni kúlan
kom.
Verðlags- og búvörusamningar á lokastigi:
Bændur gefa eftir
hækkun kindakj öts
Fyrirlesturinn flallar um notk-
un senditækja við eðlisfræði-
legar rannsóknir og verður
hann fluttur á ensku. Fyrir-
lesturinn verður fluttur að
Grensásvegi 12, 2. hæð og er
öilum opinn. Greint var frá því
í Morgunblaðinu í gær að fyrir-
lesturinn væri í kvöld, en eins
og fyrr segir hefst hann kl.
16.00.
Hafskipsmál:
Rannsókn
er lokið
RANNSÓKNARGÖGN vegna
Hafskipsmálsins voru afhent
ríkissaksóknara i gær.
Þórir Oddsson, settur rannsókn-
arlögreglustjóri, sagði að rannsókn
væri nú lokið hjá rannsóknarlög-
reglu ríkisins varðandi Hafskip. Þó
gæti ríkissaksóknari farið fram á
að einhveijir þættir máisins yrðu
rannsakaðir nánar, ef hann teldi
nauðsyn á.
/ SEXMANNANEFND hefur
ákveðið að hækkun verðlags-
grundvallar sauðfjárafurða komi
ekki til framkvæmda fyrr en
haustið 1987 þrátt fyrir að kom-
ið hafi í ljós við endurskoðun
grundvallarins að kostnaðarliðir
hafa verið vanmetnir um 5-10%.
Fulltrúar bænda og neytenda í
sexmannanefnd urðu sammála
um þessa afgreiðslu, en þess má
geta að Landssamtök sauðfjár-
bænda hafa gert ályktanir sem
hníga í þessa átt, það er að ekki
beri að hækka kindakjötið nú.
Verðlagssamningar í sexmanna-
nefnd eru ekki að fullu frágengnir
en vegna endurskoðunar verðlags-
grundvallar landbúnaðarafurða og
skiptingar grundvallarins í sauð-
flárbú annars vegar og kúabú hins
vegar í stað blandaðs bús hefði
komið til hækkunar búvöruverðs ef
þessi sérstaka samþykkt sex-
mannanefndar hefði ekki komið til.
Þess ber þó að geta að ekki er
búið að ganga frá verðlagningu
mjólkurafurða, en hækkunarþörfín
er mun minni þar en í sauðfjáraf-
urðum.
Jafnhliða verðlagssamningunum
hafa staðið yfír samningaviðræður
samninganefnda ríkis og bænda
vegna búvörusamninga, það er
samninga um það magn sauðfjár-
og mjólkurafurða sem ríkið tryggir
bændum fullt verð fyrir á verðlags-
árinu 1987-88. Samningaviðræður
eru á lokastigi og var jafnvel búist
við undirritun samnings seint í
gærkvöldi. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins var búist við
óbreyttu magni sauðfjárafurða frá
yfirstandandi verðlagsári, það er
11.800 tonnum a.f kindakjöti, vegna
frestunar bænda á verðhækkun
kjötsins. Jafnframt er gert ráð fyr-
ir sérstökum aðgerðum til að
minnka kindakjötsgallið um 800
tonn, það er auknum framlögum til
niðurskurðar sauðfjár vegna riðu-
veiki og til eflingar búháttabreyt-
inga. I gærkvöldi var búist við að
samið yrði um 105 milljón lítra
framleiðslu á mjólk, sem er einni
milljón lítra minna en heimilt er að
framleiða á yfírstandandi verðlags-
ári, en það er talið samsvara lækkun
útflutningsuppbóta um 1% eins og
ákvæði eru um í búvörulögunum.