Morgunblaðið - 25.09.1986, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SETPEMBER 1986
5
Gætið ykkar,
Benz, BMW, Audi, Volvo og
SAAB, hér kemur
LANCIA THEMA!
Fyrir suma er aðeins það besta
nógu gott og nú eiga þeir nýjan
valkost, sem er LANCIA THEMA.
Hann er framleiddur af gömlum og
grónum bílaverksmiðjum, sem hafa
um áraraðir einbeitt sér að smíði
vandaðra luxusbíla og sportbíla.
LANCIA THEMA kom á
markaðinn fyrir rúmu ári og er ekki
ofsögum sagt að hann hafi slegið í
gegn á luxusbílamarkaðnum í
Evrópu og fáir bílar hlotið eins
lofsamlega dóma og umsagnir og
hann.
Lítum á nokkrar:
Gísli Sigurðsson k
MQRGUNBLAÐIÐ,12.JÚNÍ 19861
„Hér er um alveg nýja hönnun að
ræða, sem tekist hefur vel. Línurnar
eru allar ávalar og það leynir sér
ekki, jafnvel tilsýndar að þar fer bíll
í háum gæðaflokki... Allur frágangur
er til fyrirmyndar, sætin stór og
þægileg. Hér er mikill hraðbrautar-
vargur, hámarkshraðinn 220 km/klst,
þegar miðað er við 165 ha. vélina,
hún var í bílnum sem prófaður var.
Hann fer í hundraðið á undir 8 sek.
og gerit allt með mikilli mýkt og
elegans. Með turbo-gerðinni hefur
LANCIA verulegt tromp á hendi;
bíl, sem keppir við Saab 9000,
Renault 21, BMW 525, Audi 100 og
Benz 230. Ég hef reynt þá alla nema
Saab 9000 og tel að Lancia Thema
standi sig með mikilli prýði í þeim
flokki.“
„CAR“, BRETLANDI,
JANÚAR 1986
Samanburðarprófun á SAAB 9000
Turbo 16, Renault 25 V6 Turbo og
LANCIA THEMA TURBO.
„Lancia Thema er fágaðasti
bíllinn. Undirvagn og fjöðrun eru
frábær, smíði og frágangur eru fyrsta
flokks og þægindi og sæti eru í hæsta
flokki. Sem hraðskreiður 4 dyra
fólksbíll, þá er LANCIA THEMA í
fremstu röð þeirra eftirsóknar-
verðustu.“
Sigurður Hreiðar
DAGBLAÐIÐ, 5. JÚLÍ 1986
í akstri er bíllinn eins og hugur
manns... Þannig búinn (með 165 ha.
turbo vél) er bíllinn einstaklega
kraftmikill, léttur í vöfum og svarar
hverju og einu eins og best verður á
kosið... Gírarnir fimm ganga ljúftog
örugglega milli skiptinga og fjöðrunin
er þýð, án þess að vera lin... Þar við
bætist að sætin eru fjarskalega
þægileg... Og þetta, sem gerir
LANCIA bílana svo áhugaverða í
mínum augum: Þeir virka svo þéttir,
skröltlausir og stabílir.“
„WHAT CAR“, BRETLANDI,
DESEMBER 1985
Samanburðarprófun á Mercedes
Benz 190E, BMW 520i, Audi 90, Alfa
Romeo 90 og LANCIA THEMA
TURBO.
„LANCIA THEMA TURBO
kemur best út af þessum 5 bílum að
því er varðar hröðun og
hámarkshraða. Á öllum sviðum
býður Thema upp á mest þægindi.
Hann er ekki bara mjög rúmgóður,
haganlega innréttaður og þægilegur,
farangursgeymslan er líka stór, vel
löguð og þægileg í hleðslu. Sætin eru
frábær, og öll stjórntæki rétt staðsett.
Ef tekið er tillit til hve Thema er
geysilega aflmikil, þá kom
bensíneyðslan okkur á óvart. Að
jafnaði eyddi bíllinn aðeins rúmum
10 lítrum á hundraðið.“
Mikið hrós, ekki satt? En
LANCIA THEMA á það skilið. Því
ekki að kynnast Thema af eigin raun?
Við bjóðum ykkur að koma, skoða
og kynnast þessum frábæra bíl.
LANCIA THEMA kostar frá aðeins
733 þúsund krónum með
ríkulegum búnaði.
BÍLABORG HF
SMIÐSHÖFÐA 23, SÍMI 68-12-99
gengisskr. 20.9.86