Morgunblaðið - 25.09.1986, Blaðsíða 7
7
S-Múlasýsla;
Sigurður
sýslumaður
SIGURÐUR Eiríksson var í gær
skipaður sýslumaður í Suður-
Múlasýslu og bæjarfógeti á
Eskifirði.
Sigurður Eiríksson
Sigurður Eiríksson fæddist 24.
maí 1951 á ísafirði. Hann lauk
námi í lögfræði við Háskóla íslands
árið 1978 og starfaði síðan í eitt
ár sem fulltrúi yfirborgarfógeta í
Reykjavík. í júlímánuði 1979 varð
hann fulltrúi við embætti sýslu-
mannsins í Eyjafjarðarsýslu og
bæjarfógetans á Akureyri og
Dalvík. Aðalfulltrúi við embættið
varð hann í maí 1985. Hann er
kvæntur Sigrúnu Gísladóttur og
eiga þau tvö böm.
Sigurður var skipaður í embætti
sýslumanns frá 1. október nk. að
telja og tekur við starfinu af Boga
Nilssyni, en hann hefur verið skip-
aður rannsóknarlögreglustjóri.
Aðrir umsækjendur um embættið
voru Guðjón Magnússon, fulltrúi við
embætti ríkissaksóknara og Þor-
valdur Ari Arason, hæstaréttarlög-
maður.
KRONtek-
ur við rekstri
Víðis 1. okt.
STJÓRN Kaupfélags Reykjavík-
ur og nágrennis (KRON) sam-
þykkti á sljómarfundi sínum í
fyrrakvöld kaup á versluninni
Víði í Mjóddinni. Ólafur Stefán
Sveinsson, viðtakandi kaupfé-
lagsstjóri KRON, sagði í samtali
við Morgunblaðið eftir stjórnar-
fundinn að kaupverð væri
trúnaðarmál og vildi hann ekki
tjá sig um það. KRON tekur við
rekstri Víðis frá og með 1. októb-
er nk.
„Stjómarmenn vom mjög sammála
um að fara inn í þennan rekstur
og halda honum á lofti jafnmyndar-
lega og gert hefur verið hjá Víðis-
mönnum fram til þessa og það
verður okkar stefna að þessi verslun
haldi þeim ferskleika og glæsileika
sem tvímælalaust einkenna hana.
Mjóddin er sá verslunarstaður í
Reykjavík sem er hvað eftirsóknar-
verðastur og það sést best á því
að Hagkaupsmenn reyndu að kom-
ast þarna inn. Þeir áttu í viðræðum
við Víðismenn um leið og við.“
Ólafur sagði að þetta væri fyrsta
skref KRON í því að endurskipu-
leggja verslunarhættina. Ætlunin
er að byggja tvær hæðir ofan á
húsið, eins og ráð var gert fyrir í
teikningu þess. A annairi hæðinni
verður 2.000 fermetra verslunar-
rými og á þeirri þriðju skrifstofu-
húsnæði. Ólafur sagði, að öllu því
starfsfólki, sem nú starfaði hjá Víði,
stæði til boða endurráðning hjá
KRON og vonaðist hann til að
starfsfólkið yrði áfram við störf.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25.
SÉTPEMBER 1986
i.oct. JUVENTIIS
Laugardalsvelli
Michael Laudrup
Forsalan:
hefst í Austurstræti
í dag kl. 12.00.
Vinningurinn er hinn glæsilegi
FIAT UNO sem Fiat-umboðið gaf
í tilefni leiksins. Dregið verður
að leik loknum.
umboöiö
SKEIFUNNI 8 - SIMI 68 88 50
Allir aðgöngumiðar gilda
sem happdrættismiðar.
VEí
FJÖLDA
ÁSKORAN.
og gífurlegra vinsælda hefur verið ákveðið að endur-
taka Kínatónleika Stuðmanna nk. föstudags- og
laugardagskvöld íallra, allra, allra síðasta sinn í
Broadway.
Hinir stórkostlegu Kína-
tónleikar íslensku hljóm-
sveitarinnar bingdáranna
STRAX, sem slógu Svo eft-
irminnilega í gegn í Kína,
verða nú fluttir í síðasta
sinn í Broadway.
Tónleikarnir hefjast fyrir mat-
argesti kl. 21 bæði kvöldin og
að þeim loknum leika Stuð-
menn fyrir dansi eins og þeim
einum er lagið til kl. 3.
Forsala aðgöngumiða er hafin í Broadway þar sem borð
eru einnig frátekin í síma 77500.
^UÐIilEnn BKCADWAT
L