Morgunblaðið - 25.09.1986, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SETPEMBER 1986
Athugasemdir vegna
bréf s Lögverndar
eftir Hafþór
Inga Jónsson
Nýlega birtist í nokkrum flölmiðl-
um frétt, þar sem greint var frá
bréfí samtakanna Lögvemdar til
forsætisráðherra. Er þar m.a. vikið
að lögmönnum á einkar óskamm-
feilinn hátt. Af mörgu er að taka
og skal hér látið nægja að vitna til
eftirfarandi hluta bréfsins:
„Á íslandi vinna lögmenn sjálf-
stætt og eftirlitslausir, semja sínar
eigin reglur og skipa sína eigin siða-
nefnd. Þeir meðhöndla sjálfir
kvartanir og kærur sem á þá ber-
ast og sýkna sjálfa sig af alls konar
svindli og braski, sem hinn almenni
borgari verður þolandi að. Lögmenn
semja sjálfír sína gjaldskrá og sam-
kvæmt henni er þeim heimilt að
setja upp hvaða upphæð sem er.“
Stór orð og órökstudd, enda er
hér meira og minna hallað réttu
máli. Skal hér nánar vikið að þess-
um staðhæfíngum. Samkvæmt
lögum nr. 61/1942 um málflytjend-
ur ber stjóm Lögmannafélags
íslands að hafa eftirlit með því að
félagsmenn fari að lögum í starfí
og ræki skyldur sínar með trú-
mennsku og samviskusemi. Hefur
stjómin úrskurðarvald um endur-
gjald fyrir málflutningsstarf, ef
ágreiningur um það er borinn undir
hana. Þá getur stjómin skv. nefnd-
um lögum með úrskurði veitt
einstökum félagsmönnum áminn-
ingar og gert þeim að greiða sekt
fyrir framferði í starfí þeirra, er
telja má stéttinni ósamboðið. Úr-
skurðir stjórnarinnar skv. framan-
sögðu eru kæranlegir til Hæstarétt-
ar.
Af þessu má sjá að það er lög-
gjafínn, sem ákveðið hefur þá
skipan mála, að stjóm félagsins
hafí aga- og eftirlitsvald með fé-
lagsmönnum sínum. Til tryggingar
á réttaröryggi eru úrskurðir stjóm-
ar siðan kæranlegir til Hæstaréttar.
Stjóm félagsins er því að fram-
fylgja lagaboði þegar hún fjallar
um mál, er tengjast störfum lög-
manna. Þetta eftirlitsstarf er í sjálfu
sér ekki eftirsóknarvert, en hefur
verið talið nauðsynlegt vegna eðlis
lögmannsstarfsins. Hefur fólki með
þessum hætti m.a. verið boðið upp
á fljótvirkari leið vegna ýmissa
ágreiningsmála við lögmenn heldur
en að láta reyna á slík mál fyrir
almennum dómstólum (en dóm-
stólaleiðin er að sjálfsögðu alltaf
opin). Niðurstöður ágreiningsmála
fyrir stjóm félagsins eru auðvitað
mismunandi. Stundum er lögmaður
sýknaður eða reikningur staðfestur.
í annan stað er lögmaður áminntur
eða jafnvel sektaður. Þá hafa reikn-
ingar lögmanna oft sætt lækkun
eftir athugun stjómar á málsatvik-
um. Er sú staðhæfíng Lögvemdar
út í hött að lögmenn sýkni ætíð
sjálfa sig og er hér vegið mjög
ómaklega að störfum stjómar Lög-
mannafélagsins. Eg hef raunar
orðið þess var hjá lögmönnum, að
þeir telji jafnvel stjómina stundum
ganga of langt í viðleitni sinni til
að gæta réttar kæranda og þá á
kostnað hins kærða lögmanns.
Hér hefur verið vikið nokkuð að
eftirlits- og agavaldi stjómar Lög-
Mætum frosti með ESSO
þjónustuog ESSð frostlegil
Jafnvel þótt þú gerir ekkert annaö fyrir bílínn þinn skaltu ganga úr skugga um frostþol
vélarinnar. Það er öryggisatriði sem gæti reynst dýrt að gleyma.
Renndu við á næstu bensln- eða smurstöð ESSO og fáðu málið á hreint.
Okkar menn mæla frostþolið fyrir þig og bæta ESSO frostlegi á kælikerfið ef með þarf.
Rétt blandaöur ESSO frostlögur veitir fullkomna vernd gegn frosti. Einnig ryði og tæringu allra
málma sem notaðir eru í kælikerfum bensín- og dísilvéla.
ESSO FROSTLÚGUR - MARGFÚLD VERND!
Olíufélagið hf
Hafþór Ingi Jónsson
„Það er leitt til þess að
vita, að samtökin Lög-
vernd skuli ráðast g’egn
lögmannastéttinni í
heild með beinlínis
röngum fullyrðingnm.
Flestir lögmenn vinna
erilsöm og vandasöm
störf af alúð og vand-
virkni og taka fullt tillit
til viðkvæmra og erf-
iðra aðstæðna, sem upp
kunna að koma.“
mannafélags íslands og hvernig því
er skipað með lögum. Þar má hins
vegar vel hugsa sér breytingar.
Dettur mér t.d. tvennt í hug í þessu
sambandi. í fyrsta lagi væri hugs-
anlegt að fella þetta sérstaka vald
með öllu niður og eftirleiðis hefðu
þá eingöngu almennir dómstólar
með slík mál að gera. Væri það í
samræmi við þá meginreglu að al-
mennir dómstólar skuli leysa úr
ágreiningsmálum. í öðru lagi kæmi
til álita að í stað stjómar félagsins
væri sérstakri nefnd falið að annast
þennan málaflokk. í nefndinni sætu
auk lögmanna t.d. dómarar og leik-
menn (ólöglærðir menn). Slíkri
skipan hefur verið komið á í Dan-
mörku og gefíst vel.
Svo vikið sé að gjaldskrármálum
er það rétt að Lögmannafélag ís-
lands gefur út viðmiðunargjaldskrá,
sem aðalfundur félagsins hefur
samþykkt. Hið sama að þessu leyti
gildir um fjölmargar aðrar stéttir
sjálfstætt starfandi manna. Er þó
ekki þar með sagt að lögmenn geti
sett upp hvaða fjárhæð sem er fyr-
ir þjónustu sína. Dómstólar gætu
t.d. að sjálfsögðu lækkað þóknun,
ef ágreiningur um slíkt væri fyrir
þá lagður, og umrædd þóknun þætti
ósanngjörn. Hins vegar getur það
komið fram í þessu sambandi, að
dómstólar þurfa oft að taka afstöðu
til einstakra gjaldskrárliða, sérstak-
lega við ákvörðun málskostnaðar.
Hafa dómstólar þá yfírleitt lagt
gjaldskrá félagsins til grundvallar.
Þá er í greindu bréfí Lögverndar
á það minnst, að ísland sé eitt
Norðurlanda sem ekki hafí neina
sérstaka réttarhjálp. Skal hér vikið
nokkrum orðum að þessum ummæl-
um. Fyrst skal tekið fram að til eru
lagaákvæði, sem heimila dóms-
málaráðuneytinu að veita fjárvana
fólki svokallaða gjafsókn eða gjaf-
vöm í dómsmáli. í því réttarfars-
hagræði felst m.a. að viðkomandi
er skipaður talsmaður og greiðir
ríkissjóður talsmanninum þóknun
eftir ákvörðun dómara. Þessi laga-
ákvæði eiga þó einungis við um
rekstur dómstóla og er því þröngur
stakkur sniðinn. Þessi mál hafa
verið til umræðu innan Lögmanna-
félags íslands og á síðasta aðalfundi
félagsins var m.a. svofelld tillaga
samhljóða samþykkt:
„Aðalfundur LMFÍ, haldinn
föstudaginn 21. mars 1986, beinir
því til stjómar félagsins að vinna
ötullega að því á komandi starfsári:
1. að heimildir til gjafsóknar og
gjafvarnar verði rýmkaðar veru-
lega.
2. að settar verði reglur um gjaf-
sókn og gjafvöm í málum sem
lögmenn veita aðstoð í utan rétt-
ar.
3. að breytt verði reglum um
greiðslu kostnaðar við vörn í
opinberum málum í því skyni að
bætt verði staða sakbominga,
m.a. með því að greiða kostnað
af sérfræðiaðstoð sem veijandi
þarf á að halda."
Er nú unnið að því að semja ítar-
lega greinargerð með tillögu þessari
og að því loknu, væntanlega innan
skamms, verður málið kynnt dóms-
málaráðherra. Væntir félagið þess
að unnt verði að koma á réttarhjálp
með svipuðu sniði og tíðkast í ná-
grannalöndum okkar.
Að lokum þetta: Það er leitt til
þess að vita, að samtökin Lögvemd
skuli ráðast gegn lögmannastétt-
inni í heild með beinlínis röngum
fullyrðingum. Flestir lögmenn vinna
erilsöm og vandasöm störf af alúð
og vandvirkni og taka fullt tillit til
viðkvæmra og erfíðra aðstæðna,
sem upp kunna að koma. Hins veg-
ar hefur því aldrei verið neitað af
hálfu Lögmannafélags íslands að
innan félagsins kunni að fínnast
einstaklingar, sem betur hæfðu
önnur störf. Allar starfsstéttir eiga
sína svörtu sauði, sem iðulega
skemma og rýra álit viðkomandi
stéttar.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Lögmannafélags fslands.
Pakki
Tungotu 5
sími 25330
sssá!
io
K.e«nl
ivisvat
i viV-U
Skrifstofu enska
4 vikna námskeið
Innritun stendurvfir
Meira en þú geturímyndad þér!