Morgunblaðið - 25.09.1986, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SETPEMBER 1986
17
WXRNER
HOME
VIDEO
IMY MYIMDBOIMD FRATEFLI MEÐISLENSKUM TEXTA
WVRNER HOME VIDEO
WVRNER HOME VIDEO
TowiHung
stmphhoSTEVE McQUEEN • PAUL NEWMAN
WILLIAM HOLDEN • FAYE DUNAWAY
FFtOW NMANSn MQS MP’aYPANEROOMMUNCAHONS COMttkNY
Jafnframt minnum við á þessar stórgóðu myndir með fslenskum texta
TEFLI
VIDEO
Œ
Síðumúla 23, R.
Sfmar: 686250,
688080.
Victory of Entebby
Frásögnin er byggö á viðburöum sem gerðust i rauninni
og eru einstakir í hinni Ijótu sögu flugrána. Þegar frönsku
flugvélinni Air France 139 var rænt af ofstækisfullum Þjóð-
verjum og palestinskum hryðjuverkamönnum og snúið til
Úganda, urðu stjórnvöld i (srael að taka ákvörðun upp á
líf og dauða. Átti að ganga að kröfum hryðjuverkamann-
anna eða gera „voniausa" tilraun til að bjarga 106 gyöing-
um sem var haldið í gislingu í 4000 kílómetra fjarlægð?
Meðal heimsþekktra leikara í myndinni eru Burt Lancast-
er, Kirk Douglas, Richard Dreyfuss, Elizabeth Taylor, Linda
Blair og Anthony Hopkins. Þetta er mynd um ísraelsku
hermennina sem þorðu . . . og sigrðu.
National Lampoons Vacation
Spennið beltin og búið ykkur undir algera klikkun. Chevy
Chase býst til að aka með konu sína, Beverly D'Angelo
og tvö börn frá Chicago til Kaliforníu til að fara í heims-
frægan skemmtigarð þar. Þau lenda i ýmsum leiðindum á
leiðinni. Það þyldu fæstir til lengdar. En þegar þau kom-
ast loks í skemmtigarðinn sjá þau að erfiðleikarnir byrja
fyrst þá. Chevy Chase er einn fremsti gamanleikari sem
leikur í kvikmyndum nú og lék aðalhlutverk i myndum eins
og Foul Play og Caddyshack. Hann leikur hinn hrjáða föð-
ur. Imogene Coca leikur af stakri snilld sérvitra frænku
sem ferðast með þeim hluta leiðarinnar. Harold Ramis
leikstýrir þessari viðburðarriku grínmynd. Ein fremsta sýn-
ingarstúlka heims, Christie Brinkley, kemur skemmtilega
á óvart í fyrsta kvikmyndahlutverki sínu.
The Shining
Hugtakið „spennandi" öðlað-
ist nýja og stórbrotna merk-
ingu þegar „The Shining” kom
fyrst fyrir augu almennings.
Jack Nicholson og Shelley
Duvall fara hamförum undir
styrkri stjórn Stanley Kubrick
í þessari frábæru mynd sem
byggð er á samnefndri met-
sölubók hins eina og sanna
Stephen King.
The French Leut-
enant’s Woman
Mögnuö stórmynd sem hvar-
vetna hefur hlotið frábæra
dóma og aðsókn eftir því. Þær
bregðast sjaldan myndirnar
sem Meryl Streep leikur i en
hún fer á kostum í henni þess-
ari. Myndin er byggð á
samnefndri metsölubók eftir
hinn viðlesna rithöfund Joh'
Fowles.
Best Friends
í þessari mynd leiöa saman
hesta sína tveir af vinsælustu
gamanleikurum heims, Burt
Reynolds og Goldie Hawn.
Útkoman er stórgóö gaman-
mynd sem enginn verður
svikinn af.
«ÖD1 .STR0K<JBR^YI»ft\5'
x«ís';<\íín > f tiui
* • -.■Í .
Runaway Train
Runaway Train var ein umtalaðsta myndin á síðasta ári enda er hún af flestum talin
með bestu spennumyndum síðari ára. Sérstaklega þykir allur leikur, leikstjórn svo og
kvikmyndataka vera i sérflokki. Það kom því engum á óvart þegar Jon Voight hlaut út-
nefningu til Óskarsverölauna fyrir frammistöðu sína í myndinni. Tveimur föngum tekst
að flýja úr einu illræmdasta og jafnframt traustasta fangelsi Alaska. Þeir komast óséðir
um borð í járnbrautarlest sem á að færa þá nær frelsinu. Og hvort hún gerir, því brátt
nær hún ógnvekjandi hraða enda lestin stjórnlaus eftir að lestarstjórinn hafði fallið út-
byrðis. Allar tilraunir til að stöðva lestina reynast árangurslausar, hún eykur stöðugt
ferðina. Spennan er í algleymingi. Áhorfendum eru látin eftir endalok myndarinnar án
frekari umsagnar, þau svíkja örugglega engan.
Leikidréttaleildnn
nxu 1
takið mynd fráTEFLi
The Academy
Eftir að hafa orðið vitni að hinni léttgeggjuðu „Police Aca-
demy" ættu fáar myndir að geta komið á óvart en „Up
The Academy" tekst það svo sannarlega. Þeir Chooch,
Ike, Harsh og Oliver eru nýliðar i herskóla. Þeir koma hver
úr sinni áttinni og eiga ekkert sameiginlegt annað en að
vera allsherjar vandræðagemlingar. Meginástæðan fyrir
skólavist þeirra er sú, að foreldrar þeirra töldu sig ekki
eiga annarra kosta völ, en að senda þá nauðuga viljuga í
herskóla, þar sem barinn yrði úr þeim andsk. óþekktin og
prakkaraskapurinn i hinstu tilraun til að koma þeim til
manns. Fjórmenningarnir gera þessa áætlun þó að engu,
en í stað foreldranna fá nú bara kennararnir smjörþefinn
af bellibrögðum þeirra.
Towering Inferno
Glerturninn er hæsta bygging heims. Hann er i San Franc-
isco og er 138 hæðir. Þess er beðið að húsið verði vígt
formlega. Stjórnmálaleiðtogar, iðnjöfrar og annað fyrirfólk
er viðstatt vigsluna. Skrifstofur eru á 83 fyrstu hæðunum
en þar fyrir ofan eru íbúðir. Efst er glæsilegur veitingastað-
ur og á þaki hans geta þyrlur lent. Vígslukvöldið viröist
arkitekt nússins, Doug Roberts, ekki jafnhrifinn og bygg-
ingameistarinn James Duncan. Sama er að segja um
slökkviliðsstjórann Michael O’Hallorhan. Hann veit hve
hættulegt er að byggja svo há hús að slökkviliðiö geti
ekki starfaö i þeim. Athöfnin i þakhúsinu stendur sem
hæst þegar gölluð raflögn í kjallara hússins veldur ikveikju
á 81. hæð. Það er kviknað i!
ÍSLENSKUR TEXTI