Morgunblaðið - 25.09.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SETPEMBER 1986
Menn munu bítast eins
og ljón um sigurinn
segir Birgir Bragason keppnisstjóri
Sjöunda alþjóðlega Ljómarallið verður ræst á Fífu-
hvammsvegi í Kópavogi kl. 18.00 í dag. Þá munu tuttugu
keppnisbUar leggja í sérleið um svokallaðar Kópvogsgryfj-
ur og verður það upphafið að 1500 km langri keppni.
Fyrsta leiðin er hugsuð fyrir áhorfendur, sem gefst kostur
á að sjá rallbíla í hörkukeppni við bæjardyrnar.
„Það verður staðið yfir allt, ekið
á fullu allan tímann og stefnt á sig-
ur,“ sögðu Þorvaldur Jemsson og
Pétur Sigurðsson, sem aka Opel
Kadett í keppninni. Bíll þeirra býð-
ur tæpast upp á toppsætið, en
umsögn þeirra sýnir vel hugarfar
allmargra ökumanna til keppninn-
ar. „Það verður hart barist um
Renault-bræðurnir Guðmundur og Sæmundur Jónssynir á loka-
spretti undirbúnings. Með þeim í bilnum er Róbert Guðjónsson,
sérlegur tækniráðgjafi... _________________
Hugsa um rallakst-
ur 365 daga á ári
sigurinn, bæði um efstu sætin og
svo í flokki óbreyttra bfla. Það er
kominn mikill hugur í keppendur
og ég tel að þeir muni bítast eins
og ljón, um sigurinn alla keppn-
ina,“ sagði keppnisstjóri Ljóma-
rallsins, Birgir Þór Bragason.
„Rallið er 600 km langt á sérleið-
um, sem eru 22 talsins, en þar fer
keppnin raunverulega fram. Leið-
imar eru miserfiðar og munu taka
sinn toll af keppnisbílum. Því miður
er aðeins ein erlend áhöfn í keppn-
inni, en ástæðan fyrir því er sú að
ekki var leitað eftir því að fá er-
lenda ökumenn á réttum tíma, það
var of seint. það verður bara að
gera betur næst,“ sagði Birgir. Eina
erlenda áhöfnin er frá Skotlandi,
félagarnir Philip Walker og Gordon
Dean aka kraftmiklum Ford Escort
RS. Þeir hafa tvívegis komið áður,
en í bæði skiptin orðið að hætta í
miðri keppni." Staðan er Island tvö
Philip núll,“ sagði Philip í gaman-
sömum tón í samtali við Morgun-
blaðið. „Það þýðir ekki að gefast
upp, ég vil ljúka Ljómarallinu og
kem því enn á ný. Bíllinn er góður,
Renault-bræðurna kalla aðrir rallökumenn þá. Tvíburarnir Guð-
mundur og Sæmundur Jónssynir eru meðal fjögurra bræðraáhafna,
sem í Ljómarallinu keppa. Þeir eru dæmi um venjulega klúbböku-
menn, reka keppnisbílinn á eigin kostnað, smiða stundum sjálfir
nauðsynlega varahluti, jafnvel eigin verkfæri ef með þarf! Pyngjan
er alltaf tóm, allir peningar fara í rallið og samt eru þeir alltaf
stórhuga. Hugsa þeir minnst 365 daga á ári um rallakstur. Blaðamað-
ur Morgunblaðsins rak nefið inn í skúr hjá þeim.
„Það fer svakalegur tími í þetta, í rúmið á nætumar. Fyrir utan
allar helgar og mörg kvöld liggjum vinnu við bflinn höfum við eytt mikl-
við í og undir bflnum,“ sögðu þeir
bræður, sem aka Renault 5. „Eftir
hvert rall þarf að yfirfara allt og
fyrir Ljómann höfum við tekið allt
í gegn, hveija skrúfu og suðu. Það
liggur við að maður taki bflinn með
um tíma í að skoða leiðir, fram og
til baka. Það er nauðsynlegt að vita
um ástand leiðanna og þekkja
hættuiegustu kaflana," sögðu þeir.
Aðspurðir um hvort þeir deildu mik-
ið í keppni að hætti tvíbura sögðu
þeir: „Það kemur fyrir. Stundum
hnakkrífumst við. Einu sinni dutt-
um við út vegna brotinnar spindil-
kúlu. Fyrir keppni vildi annar okkar
skipta um hana, hinn ekki og það
var ekki gert. Síðan bilaði hún og
það þýddi margra daga rifrildi á
eftir. Annars gengur þetta bara
vel. Samvinna er það sem gildir og
við erum að þessu til gamans. Við
fáum mikla útrás dagana, sem
keppnin fer fram, en það kostar
mikla vinnu og erfíði að komast í
keppni," sögðu þeir Sæmundur og
Guðmundur.
Rásröð keppenda í Ljómarallinu:
1. Jón Ragnarsson/Rúnar Jónsson Ford Escort RS 260
2. Þórhallur Kristjánss./Gunnlaugur Rögnvaldss. Peugeot Talbot 200
3. Hafsteinn Aðalsteins/Ulfar Eysteinsson Ford Escort RS 260
4. Philip Walker/Gordon Dean Ford Escort RS 260
5. c Ásgeir Sigurðsson/Bragi Guðmundsson Lancer 110
D. 7. Steingrímur Ingason/Unnsteinn Ingason Nissan 130
8. Eiríkur Friðriksson/Þráinn Sverrisson Ford Escort 160
9. Ævar Hjartarson/Jóhann Þorsteinsson Skoda 100
10. Hjörleifur Hilmarsson/Sigurður Jensson Toyota Corolla 180
11. Þorvaldur Jensson/Pétur Sigurðsson Opel Kadett 110
12. Guðmundur Jónsson/Sæmundur Jónsson Renault 130
13. Daníel Gunnarsson/Garðar Flygenring Opel Kadett 140
14. Guttormur Sigurðsson/Mikael Reynis Ford Escort 150
15. Guðni Amarsson/ÆgirÁrmannsson BMW Turbo 170
16. Friðrik Sigurbergsson/Grétar Sigurbergsson BMW 2002 130
17. Helga Jóhannsdóttir/Ríkharður Kristinsson Lada Samara 65
18. Hjálmar Kristjánsson/Þór Kristjánsson Ford Escort 90
19. Bragi Guðmundsson/Amar Theodórsson Lada 70
20. Ólafur Baldvinsson/Þorsteinn McKinstry Lada 70
21. Þorgeir Kjartansson/Sigurður Pétursson Opel Manta 90
22. Þorsteinn Ingason/Sighvatur Sigurðsson Lada Sport 80
Samningur Islands og Bandaríkjanna:
Auðveldar framkvæmd
varnarsamstarfs ríkjanna
SAMNINGURINN, sem rikissljórnir íslands og Banda-
ríkjanna hafa gert með sér til lausnar deilunni um skipa-
flutninga fyrir varnarliðið, var^ undirritaður í New York í
gær. Það voru þeir Matthías Á. Mathiesen, utanríkisráð-
herra íslands, og George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sem staðfestu samninginn.
grundvelli Norður-Atlantshafs-
samningsins, sem undirritaður var
Ríkisstjómin samþykkti samn-
inginn á fundi sínum á þriðjudag-
inn. Jafnframt samþykkti hún að
tillögu Þorsteins Pálssonar, sem
gegnir starfi utanríkisráðherra í
fjarveru Matthíasar Á. Mathiesen,
að leggja samninginn fyrir Alþingi
í formi þingsályktunar, þegar það
kemur saman í næsta mánuði.
Samningurinn fer hér á eftir svo
og samkomulag sem gert var sam-
hliða honum:
Samningur milli Banda-
ríkja Ameríku og Lýð-
veldisins íslands til að
auðvelda framkvæmd
varnarsamstarfs ríkjanna
Ríkisstjórn Bandaríkja
Ameriku og ríkisstjórn lýðveldis-
ins íslands
minnugar þess að ríkisstjórn
Bandaríkja Ameríku og ríkisstjóm
lýðveldisins íslands hafa með vam-
arsamningi milli Bandaríkja
Ameríku og lýðveldisins íslands á
5. maí 1951 („vamarsamningur-
inn“), um langt skeið gert ráðstaf-
anir varðandi notkun aðstöðu á
íslandi til varnar landinu og þar
með einnig til vamar svæði því, sem
Norður-Atlantshafssamningurinn
tekur til;
taka mið af mikilvægi varnar-
samningsins fyrir samskipti
Bandaríkjanna og íslands, svo og
einstæðu gildi hans fyrir Norður-
Atlantshafsbandalagið;
viðurkenna þörfina á því, að
Bandaríkin og Island beri skyldur
og njóti réttinda samkvæmt vamar-
samningnum með réttmætum
hætti;
taka tillit til langvarandi þátt-
töku skipa, sem gerð hafa verið út
af íslenskum skipafélögum, og
bandarískra skipa í flutningum fyr-
ir vamarliðið milli Bandaríkjanna
og íslands í þágu vamarráðstafana
á grundvelli varnarsamningsins;
viðurkenna að sanngjöm þátt-
taka skipa beggja landanna í
vöruflutningum vegna vamarsamn-
ingsins muni treysta samskipti
aðilanna og bæta samvinnu á nauð-
synlegum sviðum vamarmála;
viðurkenna brýna þörf á að
tryggja fullnægjandi sjóflutninga
milli Islands og Bandaríkjanna með
skipum, sem gerð eru út af íslensk-
um skipafélögum, og bandarískum
skipum meðan vamarsamningurinn
er í gildi;
árétta skerf Islands til hinna
einkar mikilvægu samgangna á sjó,
er tengja aðila Norður-Atlantshafs-
bandalagsins;
hafa orðið ásáttar um eftirfarandi:
1. grein
Flutningaþjónusta á sjó milli ís-
lands og Bandaríkjanna með farm
(vegna vamarsamningsins skal látin
í té af bandarískum skipum og skip-
um, sem íslensk skipafélög gera út,
á grundvelli samkeppni samkvæmt
grein þessari milli skipafélaga með
skip undir bandarískum fána og
íslenskra skipafélaga. Slík sam-
keppni skal leiða til samninga er
tryggi, að bæði skipafélögum með
skip undir bandarískum fána og
íslenskum skipafélögum verði Unnt
að taka virkan þátt í flutningunum.
Þessum markmiðum verði náð með
því, að Bandaríkin og ísland komi
sér saman um hlutfallsskiptingu
farms, sem flytja skal sjóleiðis
vegna vamarsamningsins, milli
skipa, sem gerð eru út af íslenskum
skipafélögum, og bandarískra skipa
á grundvelli slíkrar samkeppni.
2. grein
Samningur þessi er háður full-
gildingu ríkisstjómar Bandaríkja
Ameríku og ríkisstjómar lýðveldis-
ins Islands í samræmi við stjóm-
skipunarreglur ríkjanna. Hann
tekur gildi þegar skipst hefur verið
á fullgildingarskjölum í Reykjavík.
3. grein
(1) Samningur þessi skal gilda
meðan vamarsamningurinn eða
samningur, sem kemur í hans stað,
er í gildi. Hvor aðili um sig getur
hvenær sem er tilkynnt hinum, að
hann hyggist segja samningi þess-
um upp. Uppsögn tekur gildi 12
mánuðum eftir dagsetningu slíkrar
tilkynningar.
(2) Samningur þessi skal ekki
hindra ráðstafanir sem hvor aðili
um sig telur nauðsynlegar til vemd-
ar brýnum öryggishagsmunum
sínum.
4. grein
Ákvæði samnings þessa og sér-
hvers samkomulags um fram-
kvæmd hans, sem gert er
samkvæmt 1. gr., skulu ganga fyr-
ir ákvæðum hvers kyns eldri
ósamrýmanlegra laga og reglu-
gerða Bandaríkja Ameríku og
lýðveldisins íslands.
Samkomulag milli Banda-
ríkjaAmeríku og lýðveld-
isins Islands varðandi
samning til að auðvelda
framkvæmd varnarsam-
starfs ríkjanna
Ríkisstjórn Bandaríkja
Ameríku og ríkisstjórn lýðveldis-
ins íslands
hafa vegna samnings milli
Bandaríkja Ámeríku og lýðveldisins
íslands til að auðvelda framkvæmd
vamarsamstarfs ríkjanna sem und-
irritaður var í New York hinn 24.
september 1986
orðið ásáttar um eftirfarandi:
1. Flutningaþjónusta á sjó milli ís-
lands og Bandaríkjanna með
farm vegna vamarsamningsins
skal látin í té af bandarískum
skipum og skipum, sem íslensk
skipafélög gera út á grundvelli
samkeppni með vissu millibili
verði efnt til milli skipafélaga
með skip undir bandarískum
fána og íslenskra skipafélaga.
Samkeppni skal hveiju sinni
leiða til samninga við bæði