Morgunblaðið - 25.09.1986, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SETPEMBER 1986
29
eður?
sætið árið 1982 og er þannig enn
á uppleið. Þama sannast e.t.v. hið
fomkveðna að sígandi lukka er best!
Nú eru nokkrir einstaklingar sem
hyggja á slíkt hið sama. Ég nefni
þar til sögunnar Bessí Jóhanns-
dóttur, Geir H. Haarde, Guðmund
H. Garðarsson og Jón Magnússon
en þau röðuðu sér í sætin 8—11,
nálægt hinum öruggu úr síðasta
prófkjöri. Baráttan er hörð og ljóst
að nýliðamir eiga undir högg að
sækja.
Konur í prófkjöri
sjálfstæðismanna
Almennt má segja um gengi
kvenna í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins til alþingis að það hafí
verið lítið eins og sést á meðfylgj-
andi línuriti. Engu er líkara en að
þær fjölmennu frambærilegu konur,
sem boðið hafa sig fram í tímans
rás, gjaldi þess að flokksmenn og
stuðningsmenn hugsi sem svo: „Al-
veg er nóg að hafa eina konu í
öruggu sæti á lista." Allavegana
hefur sú verið niðurstaða prófkjörs
undanfarinna ára — ein kona hefur
oftast verið í einu af ömggu sætun-
um, nema árið 1970 er þær voru
tvær og árið 1979 þegar engin kona
var í öraggu sæti á lista flokksins
til alþingis.
Auður Auðuns er í 2. sæti
1959—1967 en hlaut 4. sætið í próf-
kjöri árið 1970.
Ragnhildur Helgadóttir er í 5.
sæti árið 1959, hlýtur hið 6. í próf-
kjöri árið 1970, er valin í hið 3. af
kjömefnd árið 1974, vinnur það
sæti í prófkjöri árið 1977, hlýtur
7. sætið í prófkjöri árið 1979 og
5. sæti í prófkjöri árið 1982.
Geirþrúður H. Bemhöft hlaut 9.
sætið í prófkjörinu árið 1970, kjör-
nefnd valdi hana í það sæti á ný
árið 1974 og árið 1977 hlaut hún
þetta sæti í prófkjöri.
Guðrún P. Helgadóttir er í 10.
sæti á listanum árið 1963 og í því
11. árið 1967.
Elín Pálmadóttir hlaut 10. sætið
í prófkjöri árið 1978 og aftur árið
1979 en 12. sætið árið 1982.
Áslaug Ragnars var valin í 12.
sætið árið 1974 (af kjömefnd).
Árdís Þórðardóttir
Björg Einarsdóttir hlaut 11. sæt-
ið í prófkjöri árið 1979.
Bessí Jóhannsdóttir hlaut 11.
sætið í prófkjöri árið 1982.
Nú má Ijóst vera af því að líta á
þessa stöðu að þær Ragnhildur
Helgadóttir og Bessí Jóhannsdóttir
náðu báðar góðum árangri í próf-
kjörinu árið 1982. En betur má ef
duga skal. Þær hyggja á þátttöku
í komandi prófkjöri. Mitt mat er
að allt kapp eigi að leggja á að
tryggja þeim Ragnhildi og Bessí
öragg sæti. Ragnhildur sómir sér
vel í 2. sæti listans að mínu mati
og Bessf f þvf 5. Þær hafa báðar
sýnt það og sannað að þeim er
treystandi til að vinna af heilindum
að framgangi sjálfstæðisstefnunn-
ar, að öllum öðram frambjóðendum
ólöstuðum. Þetta tel ég raunhæf
markmið enda losna nú fleiri sæti,
sem telja má líklegt að flokkurinn
vinni hér í næstu kosningum, en
áður hefur verið raunin á. En svo
sannarlega myndi það gleðja mitt
hjarta ef flokksmenn tækju á sig
rögg og hefðu fullt jafnræði milli
kynja í 8 efstu sætunum, þ.e. veldu
í þau 4 konur og 4 karla.
Höfuadur er framkvæmdastjóri
heildverslunarinnar Birgis sf.
^eirársveit
AP/Símamynd
Hryðjuverkamenn skeyta því engu hveijir verða fyrir barðinu á þeim. Svona var umhorfs í versl-
anamiðstöð í París eftir eitt sprengjutilræðið. Þá lést einn maður og 21 slasaðist, sumir alvarlega.
Linkindin við hryðjuverka-
menn kemur Frökkum í koll
RÍKISSTJÓRNIR í Frakklandi, jafnt til hægri sem vinstri, hafa
löngum trúað því, að besta leiðin til að forðast hryðjuverk væri
að sýna hryðjuverkamönnum umburðarlyndi og linkind. Lengi
vel virtist sem þær hefðu rétt fyrir sér en nú hefur þessi stefna
hefnt sín með óvanalega grimmilegum hætti. Á rúmum hálfum
mánuði hafa átta menn beðið bana og rúmlega 160 slasast I
hryðjuverkum í París.
að gefa eftir. Fyrir skömmu vora
látnir lausir tveir franskir gíslar
af níu, sem era I haldi hjá öfga-
mönnum úr flokki shíta í Líbanon,
og fyrir þá greitt mikið lausnar-
gjald og enn er verið að semja
um lausn hinna á bak við tjöldin.
Stefna Frakka gagnvart útlendum öfgamönnum hefur beðið skip-
brot og afleiðingin er sú, að nú þarf fólk utan Evrópubandalagsins
og Sviss að fá vegabréfsáritun til að komast til Frakklands og á
Bandaríkjamenn era ekki hátt
skrifaðir hjá mönnum á borð
við Khomeini og klerkana í íran
og þar í landi era þeir jafnan
kallaðir „Stóri Satan". Frakkar
hafa aftur á móti reynt að fara
bil beggja gagnvart klerkunum
en með þeim árangri einum, að
nú era þeir ekki nefndir annað
en „Litli Satan". Margir Frakkar
hafa lengi litið á sjálfa sig sem
vini herskárra „frelsishreyfínga"
víða um heim og þess vegna skilja
þeir ekki þá stöðu, sem nú er
komin upp.
„Ég hef alltaf átt erfitt með
að skilja fólk frá Miðausturlönd-
um,“ sagði blómsali í París, „og
ég skil það enn síður nú. Ég vil
hins vegar ekki, að Chirac, for-
sætisráðherra, gefí þumlung eftir
hvemig sem á stendur."
í skoðanakönnun, sem franska
blaðið Le Figaro gerði meðal 800
manns, kom fram, að 75% þeirra
töldu, að þjóðin ætti í beinni styij-
öld við hryðjuverkamenn og 70%
vildu ekki neina eftirgjöf hveijar
sem aðstæðurnar væra.
Ástæðan fyrir hiyðjuverkunum
í Frakklandi er á yfirborðinu sú,
að samtök kristinna Líbana, sem
þó styðja Palestínumenn, vilja fá
lausan úr fangelsi hryðjuverka-
manninn Georges Ibrahim
Abadullah. Var hann dæmdur fyr-
ir að bijóta frönsk lög um
vopnaburð og einnig fyrir aðild
að morði tveggja manna, banda-
rísks hermálafulltrúa og ísraelsks
sendiráðsmanns. Raunveraleg
ástæða fyrir ofbeldinu er þó vafa-
laust miklu frekar mótsagna-
kennd stefna Frakka í málefnum
Miðausturlanda.
Hiyðjuverkin virðast sanna hve
það er tilgangslaust að stefna
einni fylkingunni í Miðausturlönd-
um gegn annarri eins og Frakkar
hafa gert. Þeir hafa séð írökum
fyrir vopnum og kjamorkutækni
og samtímis reynt að halda uppi
vinsamlegri sambúð við erkióvini
þeirra, írani; þeir hafa gert ísrael-
um og Frelsisfylkingu Palestínu-
mannna jaftit hátt undir höfði og
keypt franska gísla í Líbanon
lausa nxeð því að verða við kröfum
mannræningj anna.
Afskipti Frakka af málefnum
Miðausturlanda má rekja langt
aftur en í Alsírstríðinu, sem hófst
landamærunum er ströng gæsla.
árið 1954 og stóð í átta ár, fengu
þeir í fyrsta sinn smjörþefínn af
skipulögðum hryðjuverkum. í
kjölfar þess komu síðan ofbeldis-
verkin, sem leynihreyfíng innan
hersins, OAS, beitti sér fyrir í
þeirri trú, að þau gætu tryggt
yfirráðin í Alsír.
Þessi óöld hafði mjög lamandi
áhrif á frönsku þjóðina og átti
líklega mestan þátt í að franskár
ríkisstjómir leituðu leynilegra
samninga við alls kyns hryðju-
verkahópa með það fyrir augum
að halda ofbeldinu utan landa-
mæranna. Þessi stefna bar góðan
árangur þar til nú nýlega.
Árið 1984 komu Frakkar ríkis-
stjóminni í Miðafríkuríkinu Chad,
sem er fyrram frönsk nýlenda, til
hjálpar þegar uppreisnarmenn
virtust vera að ná þar yfírhönd-
inni með aðstöð Líbýumanna.
Samdi Mitterrand, forseti, um það
við Gaddafí, Líbýuleiðtoga, að
hvorir tveggja drægju heri sína
til baka en Gaddafi efndi samn-
inginn með því að auðmýkja
Frakklandsforseta opinberlega.
Frakkar fluttu sinn her á brott
en Gaddafí fór hvergi.
Hvenær sem erfíð mál hafa
komið upp hafa Frakkar, ólíkt
því, sem er með ísraela og flestar
vestrænar þjóðir, verið tilbúnir til
A.m.k. 123 franskir hermenn í
friðarsveitunum í Miðausturlönd-
um hafa fallið fyrir hendi skæra-
liða, franski sendiherrann Louis
Delamare var myrtur í Beirút árið
1981, skömmu síðar tveir aðrir
sendiráðsstarfsmenn og nú fyrir
skemmstu einnig hermálafulltrúi
franska sendiráðsins þar í borg,
Christian Goutierre.
Fyrram ríkisstjóm Sósíalista-
flokksins tók einnig silkihönskum
á frskum og baskneskum hryðju-
verkamönnum, sem leituðu hælis
í Frakklandi, en Jacques Chirac,
núverandi forsætisráðherra, sneri
skyndilega við blaðinu gagnvart
þeim og líklega neyðist hann til
að hafa sama hátt á með arabíska
hryðjuverkamenn.
Franska blaðið Láberation dró
fyrir nokkram dögum mikið dár
að þessari mislukkuðu stefnu, að
reyna að vera viðhlæjandi allra í
senn. Á forsíðu blaðsins birtist
teikning af Hussein, íraksforseta,
Assad, Sýrlandsforseta, og Kho-
meini, erkiklerk í íran, vera að
ráðast á Chirac með byssur og
hnífa á lofti. „Nei, hættið nú,“
segir Chirac skelfingu lostinn.
„Við vinimir ætlum þó ekki að
fara að slást."
Höfundur er fréttamaður
AP-fréttastofunnar.