Morgunblaðið - 25.09.1986, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SETPEMBER 1986
33
Leit að krabbameini í ristli og endaþarmi:
Nærri 1.300 af 3.000
manns hafa svarað
UNDANFARIN ár hefur aukin
áhersla verið lögð á það innan
heilbrigðiskerfisins að leita or-
saka langvinnra sjúkdóma.
Krabbameinsfélagið hefur unnið
slíkt forvarnarstarf í áratugi
varðandi krabbamein í lungum,
leghálsi og brjóstum kvenna, seg-
ir í frétt frá félaginu.
í febrúar 1985 hófst frumkönnun
á skipulegri leit að æxlum í ristli
og endaþarmi hjá ákveðnum hópi
fólks á aldrinum 45—70 ára, en
krabbamein í þessum líffærum er
einkennalaust fyrstu árin. Könnun-
in nær til 6 þúsund einstaklinga.
Markmið könnunarinnar er meðal
annars að vekja athygli á því hvem-
ig koma má í veg fyrir krabbamein
með rannsóknum og eftirliti.
Frumkönnunin fer þannig fram
að þátttakendum eru send bréf sem
hafa að geyma uppiýsingar um eðli
ristilkrabbameins, leiðbeiningar um
mataræði og sýnatöku, auk annarra
gagna. Hagæðasýnum er skilað til
Krabbameinsfélagsins þar sem
kannað er hvort blóð er í þeim.
Finnist blóð er gerð ristilspeglun.
Þess skal getið, að blóð getur fund-
ist af öðrum orsökum en krabba-
meini.
Nú hafa 1.250—1.300 manns af
3.000 svarað, þar af hafa 22 ein-
staklingar þurft á nánari rannsókn-
um að halda. Krabbamein á
byijunarstigi greindist hjá einum
þátttakenda og var æxlið fjarlægt
með ristilspeglunartæki án skurð-
aðgerðar.
Framkvæmd könnunarinnar
gengur vel og er nú verið að senda
út gögn til þeirra 3.000 sem eftir
eru í rannsóknarhópnum. Þeim,
sem fengu bréf fyrri hluta árs, er
bent á að enn er hægt að svara.
Krabbameinsfélagið væntir góðs
árangurs af frumkönnun þessari
því skilningur fólks hefur aukist
mjög á gildi forvarnarstarfs í heil-
brigðismálum. Þeir, sem eiga kost
á því að taka þátt í könnuninni eru
hvattir til að svara fljótt, en með
góðri þátttöku fást nákvæmastar
niðurstöður.
Ný tækni í iðnaði
- námstefna hjá Iðntæknistofnun
„NÝ tækni í iðnaði“ heitir nám-
stefna sem Iðntæknistofnun
stendur fyrir föstudaginn 26.
sept. nk. Töl vustýringar og aukin
sjálfvirkni í iðnaði verður við-
fangsefni námstefnunnar, sem
ætluð er stjórnendum fyrirtækja
og öðru áhugafólki.
Námstefnan tengist verkefni,
sem Raftæknideild Iðntæknistofn-
unar vinnur að í samvinnu við
Iðnþróunarsjóð, með það fyrir aug-
um að auka framleiðni í iðnaði með
nýrri tækni.
Danskir og íslenskir fyrirlesarar
munu Iýsa því hvemig rafeindafyr-
irtæki í Danmörku hafa aðstoðað
við að nýta nýja tækni í iðnaði þar
og hvemig íslensk verkfræðifyrir-
tæki hafa leyst ákveðin stýriverk-
efni hér á landi. Aformuð
tækninýting í tréiðnaði á Norður-
löndum verður kynnt, ásamt öðru.
Námstefnan verður haldin í
Borgartúni 6 og hefst kl. 13.15.
Ananda Marga:
Haustmót
að Lýsu-
hóli á Snæ-
fellsnesi
ANANDA Marga fer í árlega
haustferð um helgina, og fer
haustmótið að þessu sinni fram
að Lýsuhóli á Snæfellsnesi.
A haustmótinu verða kennd
grundvallaratriði hugleiðslu og jóga
og verða sérþjálfaðir jógakennarar
með í ferðinni, að því er segir í frétt-
atilkynningu frá Ananda Marga.
Auk kennslu í undirstöðuatriðum
jóga, verður farið í skoðunarferðir
um Snæfellsnes. Lagt verður af
stað í haustferðina frá Aðalstræti
16 kl. 18 á föstudag 26. september
og komið til baka á sunnudags-
kvöld. Kynningarfyrirlestur um
jóga og fyrirhugaða haustferð verð-
ur haldinn í Aðalstræti 16, 2. hæð
í kvöld, kl. 20:30.
Hjólarall í
Hafnarfirði
JC félagið i Hafnarfirði heldur
hjólarall á götum Hafnarfjarðar
næstkomandi sunnudag. Keppt
verður í þremur flokkum, keppn-
isflokki (30 km), almennings-
flokki eldri (10 km) og
almenningsflokki yngri (6 km).
Hefst keppnin klukkan 13 við
Lækjarskóla.
Hjólreiðamenn í keppnisflokki
munu keppa um Iðnaðarbanka-
skjöldinn, en það er farandgripur
sem bankinn hefur gefið. Auk þess
verða veittir verðlaunapeningar fyr-
ir fyrstu þijú sætin í öllum keppnis-
flokkum.
Klukkan 16 á sunnudag verður
einnig keppt á svokölluðum BMX
hjólum í tveimur flokkum og verður
keppnin á bak við bensínstöð ESSO
við Reykjavíkurveg. Keppt verður
um BMX bikarinn sem verslunin
Markið hefur gefíð til keppninnar.
Skráning þátttakenda fer fram í
kvöld, fimmtudag. í frétt frá JC
Hafnarfírði fer félagið þess á leit
við ökumenn að þeir sýni þátttak-
endum fyllstu tillitssemi í keppninni
á sunnudag.
Leiðrétting
í frétt um skipun í embætti sak-
sóknara í Morgunblaðinu í gær er
ranglega farið með titil Karls F.
Jóhannssonar. Rétt er að hann er
fulltrúi sýslumannsins í Ámessýslu
og bæjarfógetans á Selfossi.
Aðalfundur
kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins
í Austurlandskjördæmi
verður haldinn í Valaskjálf, Egilsstöðum föstudaginn 26. september
nk. kl. 21.00 og veröur framhaldið laugardaginn 27. september.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tekin ákvörðun um hvernig staðið veröur aö framboði fyrir næstu
alþingiskosningar.
Stjómin.
Um kvöldið verður haldið haustmót Sjálfstæðisflokksins á Austur-
landi í Valaskjálf.
Sjálfstæðisfólk
á Austurlandi
Haustmót sjálfstæðismanna á Austurlandi verður haldið i Valaskjálf
laugardaginn 27. september og hefst með borðhaldi kl. 20.00. Aö
lokinni dagskrá verður dansað til kl. 3.00. Mætum öll.
Undirbúningsnefnd.
Vestlendingar
Kjördæmisráö sjálfstæðisfélaganna i Vesturlandskjördæmi boðar til
fundar í Hótel Borgarnesi sunnudaginn 28/9 kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Tekin ákvörðun um hvernig staðið skuli aö niöurröðun á framboðs-
lista fyrir næstu alþingiskosningar.
2. Önnur mál.
Alþingismennimir Friöjón Þórðarson og Valdimar Indriöason mæta
á fundinum. .... . .
Stjóm kjordæmisráðs.
Austurland
Hérað — Egilsstaðir — Fellabær
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn f „Samkvæmispáfanum"
í Fellabæ sunnudaginn 28. sept. kl. 15.00. Á fundinum verða al-
þingismennirnir Egill Jónsson, Halldór Blöndal og Sverrir Hermanns-
son og ræða stjórnmálaviðhorfið. Kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Kjördæmisráð.
„Stórglæsilegur og höfðinglegur gæðingur", Skór númer 823.
Knapi er Benedikt Þorbjörnsson.
16 vetra stóðhestur
seldur til Þýskalands
EINN af þekktustu stóðhestum
landsins, Skór númer 823, hefur
verið seldur til Þýskalands. Skór
sem er orðinn 16 vetra er hrein-
ræktaður Hornfirðingur. „Hann
hefur ekkert gildi lengur sem
reiðhestur og er þarna eingöngu
verið að kaupa kyngæðin, og er
þetta byrjunin á þvi að gera
ræktunina sjálfa að útflutnings-
vöru,“ sagði Gunnar Bjarnason
ráðunautur um hestaútflutning i
samtali við Morgunblaðið.
Kaupandinn er þýskur auðkýf-
ingur, Wemer Dietz að nafni, sem
búsettur er í Rínardölum. Gunnar
sagði að íjóðveijinn hefði kynnt sér
vel íslensku hrossaættimar og feng-
ið ást á homfírsku hrossunum.
Hann telur að þau séu án nokkurs
vafa bestu hross heimsins.
Dietz keypti 4 hryssur í Áma-
nesi í Homafírði í vor og 3 hryssur
á Svínhóium í Lóni, og 2 óvanaða
veturgamla fola að auki. Hann vildi
ólmur fá að kaupa Hrafn númer
583, 26 ára gamlan stóðhest frá
Ámanesi, eins og fram hefur komið
í Morgunblaðinu, en hann var ekki
falur. Var hann þá búinn að nefna
búgarð sinn í höfuð á Hrafni. Gunn-
ar sagði að í framhaldi af því hefði
Dietz spurt um Skóg, hvort hann
væri falur. Hrossaræktarsambönd-
in á Suður- og Vesturlandi hafa átt
Skóg frá árinu 1981 og notað mik-
ið og féllust þau á að selja hann
fyrir það verð sem boðið var, það
er 300 þúsund krónur. Fer hestur-
inn með hrossafiutningaskipi til
Þýskalands í byijun næsta mánaðar
og má búast við að hann kosti ekki
undir 400 þúsund krónur þangað
kominn.
Gunnar sagði að Wemer Dietz
hefði orðið himinlifandi þegar hann
frétti um að gengið var að tilboði
hans og slegið þegar í stað upp
kampavínsveislu af því tilefni og“
kæmi hann hingað í vikunni til að
líta á gripinn og ganga endanlega
frá kaupunum.
Skór er glórauðstjömóttur og er
fæddur í Flatey, Mýrum, Austur-
Skaftafellssýslu. Hann er fæddur
árið 1970 hjá Bergi Þorleifssyni í
Flatey. Sigurbjöm Eiríksson og
Halldór Sigurðsson keyptu hann
1973 og seldu síðan til hrossarækt-
arsambandanna árið 1981. Skór er
undan Faxa 646 frá Ámanesi og
Mön 3926 frá Flatey. Föðurfaðir
hans er Hrafti 583 og föðurmóðir
Brúnka 3214 sem bæði em frá
Ámanesi. Móðurfaðir hans er Eldur
538 frá Fomustekkum og móður-
móðir Bleik 2904 frá Flatey.
„Stórglæsilegur og höfðinglegur
gæðingur", er umsögnin sem hann
fær f Ættbókinni.
Gunnlaugur Guðmundsson og Erla Levy.
Gunnlaugsbúð
í Foldahverfi
FYRSTA matvörubúðin i Folda-
hverfi við Grafarvog verður
opnuð í dag í bráðabirgðahús-
næði að Hverafold 1—3. Eigend-
ur eru hjónin Gunnlaugur
Guðmundsson kaupmaður og
kona hans Erla Levy. Búðin heit-
ir Gunnlaugsbúð. Gunnlaugur
kaupmaður sagðist vilja undir-
strika að húsnæði matvörubúðar-
innar væri til bráðabirgða.
Hann vonaðist til þess að verslun-
in yrði komin undir þak í framtíðar-
húsnæði sínu eftir svo sem tvö ár,
þama við Hverafold. Gunnlaugsbúð
í Grafarholtshverfi verður opin
mánudaga—miðvikudaga kl.
9—18.30, en fram til kl. 20 á
fimmtudags- og föstudagskvöldum
og til kl. 16 á laugardögum. c,
Gunnlaugur Guðmundsson kaup-
maður er enginn byijandi í þessari
atvinnugrein. Hann hefur um langt
árabil rekið verslun sína, Gunn-
laugsbúð, á homi Freyjugötu og
Baldursgötu. Ætla þau hjónin nú
að reka tvær matvöruverslanir und-
ir því nafni.