Morgunblaðið - 25.09.1986, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SETPEMBER 1986
37
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Hυ yfir Voginni
í dag ætla ég að flalla um
árið framundan hjá Voginni.
Einungis er fjallað um sólar-
merkið. Eru lesendur minntir
á að afstöður á önnur merki
en sólarmerkið hjá hveijum
og einum hafa einnig sitt að
segja.
Ferðalög nœsta
sumar
Júpíter, pláneta þenslu og
menntunar, er hlutlaus fyrir
Vogir fram til 1. mars 1987.
Næsta ár þar á eftir verður
hann í Hrútsmerkinu. Vogir
koma því til með að fínna til
þarfar fyrir útfærslu, þarfar
til að stækka við sig, ferðast,
læra og almennt að öðlast
nýja reynslu. Eftir mars 1987
verður því þörf fyrir hreyfíngu
og samfara því eirðarleysi og
leiði ef viðkomandi er fastur
í þröngri vanabindingu.
„Létt“ ár
Satúmus, pláneta aga,
ábyrgðar og lögmála efnis-
heimsins (laga og reglna) og
því stundum hindrana, er í
Bogmanni allt næsta ár og
er þvi Vogum hagstæð. Þær
ættu því ekki að verða fyrir
ytri mótspymu eða þurfa að
rekast á veggi á næstu ámm.
Þeim ætti síðan að ganga vel
að skipuleggja sig og aga.
Næsta ár getur því talist
„létt“, eða svo notað sé hug-
tak úr veðurfræðinni, má
búast við að hæð haldist yfir
Vogarlandi.
Ekkert umrót
Úranus, pláneta breytinga,
byltinga, frelsis og sjálfstæð-
is, er einnig í Bogmanni og
því hagstæð Vogum. Lítið
ætti þvi að vera um óþægileg
upprót eða yfírgengilega
spennu og taugastreitu. Þær
Vogir sem fæddar em frá
u.þ.b. 11.—21. október ættu
að hafa ágætt svigrúm til að
vera þær sjálfar og skapa sér
frelsi.
Andleg áhrif
Neptúnus, pláneta andlegra
mála, lista, ímyndunarafls og
þess óáþreifanlega, er í Stein-
geit og kemur við sögu hjá
þeim Vogum sem fæddar em
frá 27. sept.—1. okt. Þessar
Vogir mega búast við því að
opnast andlega og fá aukinn
áhuga á listum og trúmálum,
og verða á allan hátt næmari
persónur. Hætta er á að
draumlyndi aukist og að sama
skapi óvissa. Ef þessar Vogir
gæta þess ekki að vera í já-
kvæðu umhverfí og umgang-
ast jákvætt fólk geta þær
tapað lífsorku og fundið til
þreytu. Varast þarf sókn í
vímugjafa.
Engin
sjálfsskoÖun
Plútó, pláneta dauða, hreins-
unar og endursköpunar, eða
garðyrkjumaðurinn, er í
Sporðdreka og kemur þvf lítið
við sögu hjá Vogum næstu
árin. Það táknar að Vogir
þurfa ekki að takast á við
sálrænar hreingemingar og
dvelja mikið í innri sjálfsskoð-
un.
Úr alfaraleiÖ
Segja má þegar á heildina er
litið að stjamspekilegar af-
stöður séu Vogum hagstæðar
þessi árin, en jafnframt frekar
rólegar. Spenna tímanna ligg-
ur því ekki á Voginni. Umrót
liðinna ára em að baki, Plútó
var í Vog 1972-1983, Úran-
us 1968—75 og Júpíter og
Satúmus báðir í kringum
1981. Það er helst Neptúnus
sem er virkur á næsta ári og
síðan Júpíter. Þegar Úranus
fer inn í Steingeit 1988/89
fara hjólin síðan að snúast
aftur fyrir alvöru.
X-9
UÓSKA
SMÁFÓLK
5ENP YOU «0NEY?I PON'T
(4AVE ANY MONEY! l'M
JU5T A LITTLE KlPlUIHERE
WOULPI GET M0NEY7!
Senda þér peninga? Ég á
enga peninga! Ég er bara
krakki! Hvar ætti ég að
fá peninga?
TELLYOU UIHATILL PO...
AFTERI FINI5H COLLEGE
ANPGET A JOBJ'LL TRYTO
5ENPY0UA LITTLE;OKAY?
Ég skal segja þér hvað
ég skal gera ... Þegar
ég hef lokið námi og far-
in að vinna skal ég reyna
að senda þér eitthvað
lítilræði. Er það í lagi?
^ - 2 / © 1986 United Feature Syndlcate.lnc.
Hættu að kvabba á mér!!
Bandaríkjamaðurinn Bob
Hamman hefur unnið flesta
heimsmeistaratitla af löndum
sínum. Á innlendum vettvangi
er hann í öðm sæti, skammt á
eftir Barry Crane, tvímennings-
spilaranum snjalla, sem myrtur
var í fyrra. Crane bætir þvi ekki
við sig fleiri stigum svo Hamman
ætti ekki að verða skotaskuld
úr því að komast í fyrsta sætið
með tíð og tíma. Hér er slemma
sem Hamman þræddi nýlega
heim:
Vestur gefur; allir á hættu.
Vestur
♦ KDG86
▼ DG3
♦ 954
♦ 52
Norður
♦ 1094
▼ 6
♦ ÁDG87
♦ Á1083
Austur
♦ 73
▼ 98742
♦ K1063
Suður 4 K6
♦ A52
VÁK105
♦ 2
♦ DG974
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 tígull Pass 2 lauf
Pass 3 lauf Pass 3 hjörtu
Pass 4 lauf Pass 4 spaðar
Dobl Pass Pass Redobl
Pass 5 hjörtu Pass 6 lauf
Pass Pass Pass
Hamman var í suður og redobl
hans á fjórum spöðum dobluðum
sýndi fyrstu fyrirstöðu í spaða.
Vestur kom út með spaða-
kóng, sem Hamman drap strax
á ás og tók tvo efstu í hjarta
og henti spaða úr blindum. Spil-
aði svo eins og á opnu borði
væri: Tók tígulás og spilaði
drottningunni. Austur lagði
kónginn á og Hamman tromp-
aði. Hann trompaði næst hjarta
(drottningin féll), tók laufás og
tígulgosa og henti spaða heima.
Trompaði svo tígul heima hátt
og þegar vestur gat ekki yfir-
trompað var spilið í höfn:
Norður ♦ 10 ▼ - ♦ 8
Vestur ♦ 108 Austur
♦ DG9 ♦ 3
¥- 11 ▼ 98
♦ - ♦ -
♦ 5 Suður ♦ 5 VlO ♦ - ♦ DG ♦ k
Hamman spilaði hjartatíunni
og vestur varð að trompa. Það
var yfírtrompað { blindum og
fritíglinum spilað og spaða hent
heima, hvort sem austur tromp-
aði með kóngnum eða ekki.
Á Lloyds Bank-skákmótinu í
Lundúnum í síðasta mánuði kom
þessi staða upp í viðureign enska
alþjóðlega meistarans Hodgson,
sem hafði hvítt og átti leik og
norska stórmeistarans Agde-
stein.
21. Re5!! — Kxe5? (Nú verður
svartur mát, en staða hans var
reyndar einnig töpuð eftir 21. —
Haf8, 22. f4 - Bxg2, 23. Hxb7
með hótuninni 24. Hdd7) 22. Hf7
— Bd5, 23. c5! og svartur gafst
upp, því hann á ekkert svar við
hótuninni 24. f4 mát. Agdestein
vann allar aðrar skákir sínar á
mótinu, átta að tölu. Hodgson
varð annar með 7lA v. og þeir
Jóhann Hjartarson, enski stór-
meistarinn Chandler og Skotinn
Condie deildu þriðja sætinu og
hlutu sjö vinninga.
r