Morgunblaðið - 25.09.1986, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SETPEMBER 1986
55
mi’ t l fas«a ife r
SVEI mér þá ef landslið íslands
í dag er ekki besta knattspyrnu-
landslið sem þjóðin hefur nokkru
sinni eignast. Þar er valinn maður
í hverju rúmi, eins og Bjarni seg-
ir, og hvergi veikan hlekk að
finna. Eftir jafnteflið við Frakka á
dögunum bjuggust eflaust flestir
við þvf innst inni að nú kœmi
skellurinn á móti Sovótmönnum.
En öðru nœr. Liðið lék ennþá
betur nú en fyrir hálfum mánuði
og enginn vafi er á því að íslenska
liðið var jafngott því sovéska f
leiknum. Og að gera jafntefli við
tvö af fremstu landsiiðum heims
á stuttum tíma er ekki heppni.
Landslið okkar er einfaldlega
mjög gott. Nú erum við efstir í
riðlinum okkar í Evrópukeppn-
inni, og ef liðið heldur áfram að
leika svona, eins og það œtti að
geta, þá eigum við góða mögu-
leika gegn Norðmönnum og
Austur-Þjóðverjum — semsagt
möguleika á mjög góðu sæti í riðl-
inum.
t Arnór Guðjohnsen skorar hér
mark íslands i leiknum í gær og
Dasaev, markvörðurinn heims-
frægi í liði Sovétmanna, kemur
ekki neinum vömum við eins 09
sjá má á myndinni hér að ofan. A
myndinni hér til vinstri sóst Amór
ákveðinn á svip rétt í þann mund
sem skotið reið af hjá honum en
sovéskir varnarmenn lyfta hönd-
um til þess að fá dæmda hendi.
Á baksíðunni í dag hjó okkur sést
að Arnór notaði „hendi guðsu til
að laga knöttinn fyrir sér eins og
sagt var um frægt mark í heims-
meistarakeppninni í sumar.
ísland - USSR
Efstir í riðlinum
eftir stórleik
íslenska landsliðið er skipað
ágætum einstaklingum. Nokkrir
eru atvinnumenn í fremstu röð í
Evrópu, eins og allir vita, nokkrir
eru atvinnumenn með miðlungslið-
um og nokkrir eru áhugamenn hér
heima. En þegar þeir koma saman
og klæðast landsliðspeysunum þá
hverfur sá munur. Þessir strákar
spila allir fyrir einn, og einn fyrir
alla. Árangur liðsins er fyrst og
fremst árangur liðsheildarinnar.
Landsliðsmennirnir virðast bók-
staflega njóta þess að leika fyrir
ísland, leggja sig alla fram, og
þegar við bætist skynsamlegt leik-
skipulag landsliðsþjálfarans þá
verður skyndilega til mjög fram-
bærilegt landsliös á alþjóöamæli-
kvarða. Þetta er ekkert glanslið,
en agað, baráttuglatt og seigt.
Leikurinn í gærkvöldi þróaðist
nokkuð öðruvísi en leikurinn gegn
Frökkum á dögunum. Þá lók
íslenska liöið mjög aftarlega,
Frakkarnir voru mikið með knött-
inn á vallarmiðjunni og mikið
reyndi á öftustu varnarmennina. í
gærkvöldi tóku íslendingarnir
hressilega á móti andstæðingum
sínum strax á miðvellinum og í
síðari hálfleik var jafnræði með liö-
unum. ísland átti þá fjölda hættu-
legra skyndisókna, einkum vegna
stórkostlegs leiks Ásgeirs Sigur-
vinssonar sem bar af öllum hinum
frægu Sovétmönnum, og lék
líklega sinn allra besta landsleikfrá
upphafi.
Islendingar sluppu reyndar með
skrekkinn á fyrstu mínútunum þeg-
ar Blochin skaut þrumuskoti í
samskeytin og afturfyrir eftir
snotran samleik inni í vítateignum.
Eftir þetta þreifuðu iiðin hvort á
ööru í 25 mínútur án þess að skapa
sér verulega góð marktækifæri,
en bæði fengu þau nokkur „hálf-
færi“ sem runnu út í sandinn.
Eftir um hálftíma leik kom mark
íslands. Ásgeir tók aukaspyrnu við
vallarmiðju og gaf háa sendingu í
átt að markinu. Á vítateig vann
Atli skallaeinvígi, boltinn hrökk til
Ómars sem skaut upp í loftið og
inn í teiginn þar sem Pétur stökk
til að skalla og af honum og einum
sovéskum varnarmanni hrökk svo
boltinn til Arnórs „Maradona" sem
lagði hann laumulega fyrir sig meö
hendinni og þrumaði framhjá
Dassajev upp í þaknetiö af stuttu
færi. Sovétmennirnir urðu skiljan-
lega æfir, en línuvörðurinn taldi
knöttinn hafa farið í bringu Arnórs
og dómarinn dæmdi markið gilt.
ísland 1, Sovétríkin 0.
Sovétmenn fengu tvö þokkaleg
marktækifæri það sem eftir var
fyrri hálfleiksins, íslendingar ekk-
ert - enda hugsuðu okkar menn
fyrst og fremst um að halda forys-
tunni út hálfleikinn. En þó Blochin
hafi skotið framhjá úr fyrra færinu
náðu Sovétmenn að jafna úr því
síðara og það á versta hugsanlega
tíma — nokkrum sekúndum fyrir
leikhlé. Eftir barning framan við
vítateig íslands hrökk knötturinn
skyndilega inn í teiginn til hægri,
og þar kom hinn gamalreyndi
kappi Sulakvelidze askvaðandi og
skaut föstu skoti sem skaust af
Gunnari Gíslasyni og framhjá
Bjarna í markinu. (sland 1, Sov-
étríkin 1.
í seinni hálfleik lék íslenska liðið
enn betur en í þeim fyrri og átti
fjölmörg stórskemmtileg upp-
hlaup, sérstaklega eitt á 19.
mínútu, þegar boltinn barst mann
frá manni án þess að Sovétmenn
fengju rönd við reist alveg inn að
vítateig þar sem Ásgeir kom aðvíf-
andi og skaut þrumuskoti rétt yfir.
En á áttundu mínútu fékk hinsveg-
ar Olag Blochin lygilegt dauðafæri,
var aleinn með boltann á tánum
rétt utan við markteig. Bjarni varði
hinsvegar gott skot hans á gjör-
samlega óskiljanlegan, og um leið
snilldarlegan, hátt. Önnur færi
náði þetta sovéska landslið ekki
að skapa sér í síöari hálfleik á
meðan það íslenska komst í nokk-
ur þokkaleg, einkum eftir sóknir
upp vinstri kantinn þar sem Atli
og Ásgeir fóru stundum á kostum.
Allir leikmenn íslenska liðsins
léku vel í þessum leik, og er nánar
farið út í þá sálma annarstaðar hér
á íþróttasíðunum. Sovétmennirnir
áttu ef til vill ekki sinn besta leik
frá upphafi, en enginn er betri í
knattspyrnu en mótherjinn leyfir.
Blochin var hættulegastur þeirra í
sókninni, en liðið var annars mjög
jafnt. Andinn í liðinu virtist ekki
mjög góður og baráttugleði leik-
manna ekkert í líkingu við þá í
íslenska liðinu. Dómarinn Assen-
macher dæmdi leikinn þokkalega,
a.m.k. frá sjónarhóli okkar Islend-
inga. En óneitanlega gaf hann öðru
liðinu mark sem skipti sköpum
þegar upp var staðið. Hann sýndi
Pétri, Siguröi, Bessonov og Rats
gula spjaldið.
pumr
ÆFINGA-
V.M. 86
Frábærir skór. Hvítt leður,
blá rönd. Verð kr. 3.487,-
Stærðir 7— 11 ‘/2. „ -. ,
Top Winner
Góðir æfingaskór. Verð kr.
986,- Stærðir 28—35.
Handball
Frábærir leðurskór. Litur
hvitt/blátt. Verð kr. 2.494,-
Stærðir frá 3'/2.___
Speeder
Léttir nælonskór. Lltur
blátt/hvítt. Mjög góðir innan-
húss. Verð kr. 1.093,-
Stærðir 33—7'/2.
Volley-Pro
Frábærir blakskór. Litur
hvítt/blátt. Verð kr. 3.487,-
Stærðir 5—11.
Stenzer Universal
Þrælsterklr leðurskór. Litur
hvítt/svart. Verð kr. 2.253,-
Stærðir 372—8'/2.
Sporty
Hörkugóðir bað- og inniskór.
Litur hvitt/blátt. Verð kr.
597,- Stærðir 36—47.
•S enduntí*
PÓSTKRÖFU
SPORTVÖRMRSLUN
INGOLFS
ÓSKARSSONAR
Klapparstíg 40.
Á HORNI KlAimSTÍGS
OG GRETTISGÖTU
‘ S.1T7S3
4