Morgunblaðið - 02.12.1986, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.12.1986, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1986 [sautján komma eitt prósent] Nafnvextir á Kjörbók eru 17,1% allt frá fyrsta degi. Vextir eru reiknaöir tvisvar á ári þannig að ársávöxtun getur farið yfir 18%. Að auki er svo verðtryggingarákvæði sem tryggir að eigendur Kjörbóka njóta ávallt hagstæðustu kjara, hvað svo sem verðbólgunni líður. Kjörbókin er algjörlega óbundin, - einstök ávöxtunarleið. Mundu að þú þarft ekki að sætta þig við lægri vexti en 17,1% og verðtryggingarákvæði að auki. Notaðu Kjörbók. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Eg þekki menn... Eg þekki menn er lauga sig í tinnusvörtu táli tröllum kné sín beygja. Menn er horfa á réttlætið til ösku brennt á báli og bara sitja og þegja. Menn sem kjósa hreinlega að halla réttu máli hafa margt að segja. Vita aldrei mæti þess að vera „drengur góður“ er vopnum slíkum beita. Hvað varðar þá ef gerist sumra gleðidagur hljóður sem grómsins alltaf leita. Skyldi þessi rottuhópur gerast göngumóður mun Gróa skjólið veita. Leggur sínar krumlur yfir þessa þokkapjakka sem þjóta um tún og engi. Hnusa, grafa, klóra, bíta, naga, niður rakka nærast vel og lengi. Margir eiga kerling Gróu kynstur öll að þakka kannski allt sitt gengi. Jóhann Halldór Albertsson Höfundur er lögfræðingur Ný listaverkakort frá Listasafni ASI og Lögbergi LISTASAFN ASÍ og bókaforlag- ið Lögherg hafa gefið út tvö ný iistaverkakort. Á öðru kortinu er myndin „Kompósisjón“ eftir Jóhannes Jóhannesson, en á hinu myndin „Norðurljós'* eftir Vetur- liða Gunnarsson. Bæði málverkin eru í eigu Listasafns ASÍ og eru úr frumgjöf Ragnars í Smára til stofnunar safnsins. Árið 1961 gaf Ragnar „samtökum íslenskra erfiðismanna" 120 verk eftir ýmsa af mætustu listamönnum þjóðarinnar. Prentsmiðjan Oddi sá um litgreiningn og prentun kortanna. Þess má geta, að um nokkurra ára skeið hefur verið samstarf milli Listasafns ASÍ og Lögbergs um útgáfu listaverkabóka og korta. Út eru komnar 6 bækur í röðinni „ís- lensk myndlist", sú sjötta kom á markað á dögunum og fjallar um Ásgrím Jónsson. Bækur þessar og listaverkakort eru til sölu í Listasafni ASÍ og helstu bókaverslunum. Orgeltónleikar _________Tónlist Egill Friðleifsson Ungur Akumesingur, Bjöm Steinar Sólbergsson, kvaddi sér hljóðs sl. föstudagskvöld og hélt orgeltónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík. Bjöm lauk námi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar árið 1981, en þar höfðu þau Fríða Lámsdóttir og Haukur Guðlaugsson kennt honum. Eftir það lá leiðin til Rómar og síðan einnig til Parísar, þar sem hann lauk einleikaraprófí, „Prix de Virtu- osite", í júní sl. í haust hóf hann störf sem organisti við Akureyrar- kirkju og mega þeir norðanmenn teljast heppnir að fá jafn vel mennt- aðan og ágætan músíkant til starfa. Á efnisskránni vom verk eftir þá J.S. Bach, F. Liszt, C. Franck, M. Duruflé, J.P. Leguay og C.M. Widor. Eins og sjá má var frönsk músík þama fyrirferðarmikil, enda fáir ef nokkrir sem sinnt hafa orgel- inu betur á þessari öid en einmitt Frakkar. Bjöm Steinar Sólbergsson hóf leik sinn með preludíu og fúgu í G-dúr BWV 541 eftir J.S. Bach. Nokkuð virtist sviðsskrekkur há Bimi í upphafi og var preludian órólega flutt en betur gekk með fúguna, sem á köflum var laglega leikin, og á það einnig við um þætt- ina úr Tríóinu í G-dúr, sem á eftir fylgdi. Þá heyrðum við lokaþátt úr fantasíu og fúgu um sálminn „ad nos salutarem undam“ eftir F. Liszt. Það er stórt stökk að hlaupa úr tæmm stíl gamla Bachs í þykkan og ábúðarmikinn tónbálk Liszts þar sem krómatíkin kom mjög við sögu. „Piéce heróique" eftir C. Franck er gott verk með sterkri framvindu sem leiðir til áhrifaríks lokaupp- gjörs og var hér alivel flutt. En best þótti mér Bimi takast upp við seinni hluta efnisskrárinnar. Scherzo op. 2 eftir M. Dumflé, en harin lést á þessu ári, er fínleg og nett tónsmíð, gædd sann-frönskum anda, þar sem þeir Ravel og De- bussy era ekki langt undan, og var hér ljómandi vel leikin. Sömuleiðis var gaman að kynnast tónsmíð J.P. Leguay — Madrigal VII. Þótt verk- ið minni lítið á hefðbundinn madrig- al er það framsækið og áleitið og vildi ég gjaman heyra það oftar. Raddir orgelsins vom þama nýttar á skemmtilegan og Iitríkan hátt. Bjöm lauk svo tónleikunum með þætti úr VI sinfóníu orgelsnillings- ins C.M. Widor og átti þar góða spretti. Bjöm Steinar Sólbergsson er efnilegur tónlistarmaður. Hann lék á köflum ágætavel, einkum á síðari hluta tónleikanna. Hann skortir öryggi og reynslu enda ungur að ámm og á framtíðina fyrir sér. Sem fyrr segir mega Akureyringar vel við una að hafa fengið slíkan mann til starfa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.