Morgunblaðið - 02.12.1986, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 02.12.1986, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1986 57 Minning: Inga Rún Vigfús- dóttir Garcia Fædd 26. september 1935 Dáin 3. nóvember 1986 Það var einn harðan vetrardag að viðkvæmt móðurhjarta bað Drottinn — fyrir bömum sínum, föður þeirra ogframtíð. (Höf. Vigfus Einarsson Mig langar að minnast með nokkrum orðum bróðurdóttur minnar, Ingu Rúnar Vigfúsdóttur Garcia, sem andaðist 3. nóvember sl. í Kaliforníu í Bandaríkjunum, eftir erfíð veikindi. Inga Rún var einkabam foreldra sinna, hjónanna Valgerðar Jónsdóttur, ættaðri frá Akureyri, og Vigfúsar Einarssonar, sem ættaður var frá Olafsvík á Snæfellsnesi. Tvö hálfsystkin átti Inga Rún, sitt frá hvoru foreldri. Hákon Tryggvason, cand. mag. og Mar- gréti Vigfúsdóttur, húsmóður, sem búsett er í Maryland í Bandaríkjun- um. Margar eru minningamar sem leita á hugann, minningar frá æsku- og unglingsárum okkar beggja, þótt nokkurra ára aldursmunur væri á okkur. Minningar frá þeim árum þegar bróðir minn blessaður gegndi afahlutverkinu með elsta bami Ingu Rúnar, Kristínu. Það var dásamlegt að fylgjast með því fagra mannlífi sem í því hlutverki fólst. Kristín átti hér fyrstu fimm ár ævi sinnar undir verndarvæng ömmu sinnar, því þær mæðgur Valgerður og Inga Rún bjuggu saman þessi fyrstu æviár Kristínar litlu eða þar til Inga Rún giftist eftirlifandi eigin- mani sínum, John J. Garcia, og fluttist með honum vestur um haf. Það var að vonum erfitt að sjá á eftir þeim mæðgum svo langt í burtu, en það reyndu þau Valgerður og Vigfús að bæta sér upp með því að heimsækja fjölskylduna eftir því sem efni og aðstæður leyfðu. Af þeim ferðum bróður míns til dætr- anna tveggja í Bandaríkjunum naut ég og fjölskylda mín öll svo sannar- lega góðs. Hann kom alltaf færandi hendi með famað og fleira skemmt- legt. Inga Rún var pabba sínum alltaf innan handar við val á þessum vamingi. Fyrir þetta og allt annað gott og fagurt frá þeim feðginum vil ég nú þakka af heilum huga. Arið 1975 gafst okkur hjónunum tækifæri til þess að heimsækja Ingu Rún og fjölskyldu hennar til Banda- ríkjanna en sú heimsókn stóð aðeins yfir í tvo daga, tvo eftirminnilega daga. Inga Rún var mjög glaðsinna og hafði létta lund, en þó sagði hún mér að hitamir færu alltaf þannig í sig að hún yrði skapvond. Ekki bar samt á því þá tvo daga sem við vomm þama, þó að miklir hitar væm þar þá. Hún var kát og elsku- leg og lék á als oddi. Fjölskyldan öll, nema Kristín sem ekki var heima, fór með okkur upp í fjöll og í dýragarðinn í Washington. Kvöld- unum eyddum við svo við að borða góðan, grillaðan mat í dásamlega hlýju og fallegu umhverfi á verönd- inni heima hjá þeim og við að fara í gönguferðir um nágrennið í því hverfi sem þau bjuggu í þá. Þar hlustaði ég í fyrsta og eina skiptið á ævinni á hljóð skordýranna í hlýrri kvöldkyrrðinni. Þessar minn- ingar verða aldrei frá mér teknar. Inga Rún var mjög hamingjusöm í sínu einkalífi. Hún átti góðan mann og fjögur elskuleg böm, þijár stúlkur og einn dreng, sem hún þráði að fá að lifa lengur fyrir. Elsta dóttirin, Kristín, er orðin tveggja bama móðir og býr ekki lengur heima. Hin bömin þijú em öll heima, Michelle 20 ára, Jóhanna 16 ára og John Thomas sem er yngstur og aðeins 10 ára gamall. Inga Rún þráði að fá frest á því sem koma skyldi til þess að geta lokið uppeldishlutverkinu. En því miður, finnst okkur eigingjömum mönnum, fékkst sá frestur ekki. Eg trúi því að hún hafi verið kölluð til enn mikilvægari starfa hjá Guði sínum á öðm tilvemstigi. Inga Rún og fjölskyldan öll komu hingað nokkmm sinnum. í næstsíð- ustu heimsókn sinni hingað fylgdu henni þijú yngri bömin og eigin- maðurinn, þá gafst okkur tækifæri til þess að fara dagsferð austur í sveit og nutum við þeirrar ferðar mjög vel. Við fómm einnig í Arbæj- arsafn, en litla kirkjan þar var í miklu uppáhaldi hjá Ingu Rún. Þar hafði Kristín, elsta dóttirin, verið skírð. Síðasta ferð Ingu Rúnar hing- að til lands var eins konar hraðferð. Þá kom hún ásamt eiginmanninum John til þess að vera viðstödd há- tíðahöld á Akureyri í tilefni 25 ára stúdentsafmælis síns. Þá talaði hún aðeins við mig í síma, kát og hress að vanda. Stuttu síðar hófust átök- in við veikindin. Síðan em liðin um það bil þijú ár. Vigfús, faðir Ingu Rúnar, andað- ist 23. nóvember 1973, en Valgerð- ur lifir dóttur sína. Ég bið móður, eiginmanni, bömum, litlu bama- bömunum og systkinum guðs blessunar og styrks í þeirra mikla missi. Mig langar til þess að enda þessi minningarorð með öðm erindi úr kvæðinu „Örlagabikar", sem er eft- ir pabba hennar, úr bókinni „Þræðir“ sem höfundur gaf út sjálf- ur á sínum ungdómsámm. Fylgdu þeim á lífsins hálu leið. Lýstu þeim í hverri sorg og neyð, helgi faðir, fóður bama minna frelsa þú, lát storminn dagsins linna. Faðir, heyr þú málið mittí Miskunna þig yfir bamið þitt. (Höf. Vigfús Einarsson) Fari hún í friði. Guðrún S. Einarsdóttir Clausen NYVINNUSTOFA OPNUÐ hefur verið á Barónsstíg 22 vinnustofa Þóru. Þar eru unnar andlitsmyndir eftir ljósmyndum, aðallega í pastel, en einn- ig í blýant og vatnsliti. Einnig sér stofan um auglýsingagerð hverskonar, hönnun, skiltagerð og uppstillingar. Lögð verður áhersla á „öðruvísi" auglýsingar. Stofan framleiðir stafi og merki skorin í frauðplast, svo og hvers kyns skraut- ritun á bækur, kort ofl. Vinnustofa Þóm er opin frá kl. 9-5 virka daga. Eigandi vinnustofunnar og aðalstarfsmaður er Þóra Þórisdóttir. LEITIN AÐ 9 •)•> JOIAQÖF ENDAR HJÁ ESSO Á bensínstöðvum ESSO fast ódýrar en vandaðar vörur af ýmsu tagí, sem eru tílvaldar í jólapakkann. Þar fæst líka jólapappír ásamt merkispjöldum og margs konar vamíngí til jólaundírbúnings s.s. litaðar perur í útiseríuna, framlengingarsnúrur og öryggi, að ógleymdum reykskynjurum og slökkvitækjum. TVEIR KERTASTJAKAR MEÐ KERTUM. VÖNDUÐ SÍMTÆKI MEÐ TÓNVALI STEREÓ ÚTVARP VHS MYNDBAND 3 KLUKKUSTUNDIR Komdti víð á næstu bensínstöð ESSO og Athugaðti að það er opið bæði á kvöldin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.