Morgunblaðið - 02.12.1986, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 02.12.1986, Blaðsíða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1986 \ \ —V- y s, H«nn leng'isl! hvert 5inn sem 'eg fer mcb hann út abjjarigci!" | ást er___ . . . að faðma hana fallega. TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rights reservea ®19B4 Los Angeles Times Syndicate Láttu þumalfingurinn fylgja. Ég er búin að borga fyrir hann líka. Ég var búinn að vara þig við stálpressunni! Um þessa mynd ræðir Ólöf en á henni eru Magnús Guðjónsson, Sveinbjöm Sveinbjarnarson, Árelíus Níelsson, Pétur Sigurgeirsson biskup, Valgeir Ástráðsson og Úlfar Guðmundsson. Það er bæði rétt og skylt að biðja séra Sveinbjöra velvirðingar á að nafn hans skyldi falla niður í áðuraefndum myndatexta en hitt er einnig rétt að komi fram að blaðamenn Morgunblaðsins leggja á það mikla áherslu að nafn- greina menn á myndum er birtast í blaðinu. Hann heitir séra Svein- björn Sveinbjarnarson Þann 9. október sl. birtist í Morg- unblaðinu frétt um endurvígslu Stokkseyrarkirkju vegna nýaflok- inna viðgerða, ef ég man rétt. Greininni fylgdi mynd af flmm hempuklæddum prestum ásamt biskupi vorum i hátíðarskrúða. Voru nöfn flmm þessara manna Óðinn Pálsson skrifar í grein sinni „íslendingar hætti sölu áfeng- is“, þ. 18.11. 1986: Hvergi stendur að nýja vínið hafi verið áfengt og er ég viss um að Kristur hefur aldrei bruggað né drukkið áfengi, því þá væri hann í sama flokki og Satan og þjónar hans. í Matteus 11:18 stendur: „Jó- hannes kom og át hvorki né drakk talin upp en einu sleppt. Duldist þó ekki þeim er tilþekkja að það var Sveinbjöm Sveinbjamarson prófastur í Hmna, sem um þessar mundir er að láta af embætti fyrir aldurssakir. Því miður kemur það fyrir að myndir em illa merktar í blöðum, og menn segja: Hann hefír illan anda. Mannssonurinn kom, át og drakk, og menn segja: Sjá, átvagl og vínsvelgur! Vinur tollheimtu- manna og syndara." Hann Óðinn er ekki búinn að lesa Biblíuna nógu vel. Virðingarfyllst, S.R. Haralds. hverju sem um er að kenna. Gaman væri ef Velvakandi birti mynd þessa aftur svo menn sjái svo ekki verði um villst hver er hver á umræddri mynd. Virðingarfyllst Ólöf Benediktsdóttir Skrifið eða hringið tii Yelvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 17 og 18, mánu- daga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, em ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér i dálkunum. Mannssonurinn kom, át og drakk Víkverji skrifar * Alaugardaginn ætlaði Víkveiji að sækja hádegisverðarfund á vegum Samtaka um vestræna sam- vinnu og Varðbergs og hlýða á Michael Voslensky ræða um leið- togafundinn í Reykjavík og sam- skipti austurs og vesturs. Þegar til átti að taka, kom í ljós, að ræðu- maðurinn var strandaglópur í New York, þar sem Flugleiðir höfðu fellt niður áætlunarflugið aðfaranótt laugardagsins. Þetta kom jafnt fundarboðendum sem fundarmönnum í opna skjöldu. Eina haldbæra skýringin á þessari ráðstöfun flugfélagsins var sú, að ekki hefðu nægilega margir far- þegar látið skrá sig í vélina með Voslensky til að félaginu þætti taka því að senda hana yfír hafíð til Luxemborgar. Sú spuming vaknar, hvort þetta komi oft fyrir og hvort þetta sé viðunandi framkoma gagnvart þeim, sem skipta við flugfélagið. Víkveiji telur, að niðurfeliing áætl- unarflugs vegna skorts á farþegum gangi þvert á þær hugmyndir, sem viðskiptavinir flugfélaga gera sér um þá þjónustu, sem þeir eru að kaupa. XXX Michael Voslensky er einn hæst setti maður í sovéska stjóm- kerfinu, sem hefur leitað hælis á Vesturlöndum. Hann hefur skrifað heimsfræga bók, Nomenklautura, um sovéska stjómkerfið og þá hefð- arstétt, sem þar ræður ríkjum í nafni alþýðunnar. Hann kom hingað síðastliðið vor og flutti erindi á veg- um sömu félaga og boðuðu til fundarins á laugardag. Voru nokk- ur hundmð manns á þeim fundi. Líkaði honum dvölin hér á landi svo vel, að hann vildi koma hingað aft- ur. Voslensky er búsettur í Vestur- Þyskalandi og er eftirsóttur fyrirlesari víða um lönd. Þótti hon- um ákjósanlegt að fá tækifæri til að ræða við Islendinga á heimleið frá Bandaríkjunum. Af fyrrgreind- um ástæðum varð ekki af því að þessu sinni. Það á eftir að koma í ljós, hvort Michael Voslensky velur þann kost oftar að hafa hér viðdvöl til að flytja fyrirlestur. XXX Vissulega er áhætta tekin með því að boða fund í hádegi með ræðumanni, sem ætlar að koma til landsins snemma sama morgun. Þegar ákvarðanir eru teknar um það, treysta menn því alfarið, að þeir, sem annast flutninga til lands- ins, standi við sitt. Það er úr sögunni, að ástæða þyki til að gefa flugfélögum 24 eða 48 stunda svigrúm til að standa við auglýsta áætlun. Vonandi er niðurfellingin á flugi Voslenskys einsdæmi en hún kom sér illa fyrir alla, sem þar áttu hlut að máli. í lokin er rétt að geta þess að undanfama daga hefur Víkveiji haft þá ánægju með skömmu milli- bili að hitta tvo sænska embættis- menn, sem voru á leið frá Bandaríkjunum til Svíþjóðar með Flugleiðum. Hældu þeir félaginu á hvert reipi og fannst mikið til þess koma, hve mikla áherslu það legði á að gera þeim, sem ferðast á „Saga Class" milli Bandaríkjanna og Skandinavíu, allt til hæfís.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.