Morgunblaðið - 02.12.1986, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1986
69
Prófkjör Alþýðuflokksiné um 4. sætið í Reykjavik
Morgunbladið/Þorkell
Frambjóðendurnir þrír sem buðu sig fram i 4. sæti á lista Alþýðu-
flokksins í Reykjavík. Frá vinstri eru Jón Bragi Bjarnason, Lára
V. Júliusdóttir og Björgvin Guðmundsson.
Kom miklu betur
út en ég átti von á
- segir Lára V. Júlíusdóttir sem
fékk flest atkvæði
Lára V. Júlíusdóttir
efst í kjöri um 4. sætið
Morgunblaðið/Þorkell
Tekið við kjörseðlum í prófkjöri Alþýðuflokksins í Reykjavík um
helgina.
Niðurstaðan er ótvíræð
- segir Björgvin Guðmundsson
„ÉG átti alls ekki von á að ég
hefði þetta. Ég er því mjög
ánægð með úrslitin og finnst
þetta hafa komið út miklu betur
en ég átti von á,“ sagði Lára V.
Julíusdóttir lögfræðingur Al-
þýðusambands Islands en hún
fékk flest atkvæði í prófkjöri um
4. sætið á lista Alþýðuflokksins
í Reykjavík.
- Nú var talað um að þú hefðir
stuðning flokksforustunnar.
„Það kom ýmislegt annað á móti,
það var talað’ um að ég væri
„koníóristi Alþýðusambandsins" og
ég var því ekkert of vongóð fyrir-
fram.“
- Reiknarðu með því að fara inn
á þing í þessu sæti?
„Miðað við spámar má ég reikna
með því. Hinsvegar veit maður aldr-
ei hvemig málin þróast því það er
langt til kosninga og margt getur
gerst þangað til.“
„Það má síðan koma fram,“ sagði
Lára, „að ég er mjög ánægð með
árangur kvenna í prófkjörum helg-
arinnar. Hjá Alþýðubandalaginu
varð Álfheiður Ingadóttir í 4. sæt-
inu sem kemur mér á óvart en ég
er mjög ánægð fyrir hennar hönd,
og eins með Olgu Guðrúnu Áma-
dóttir í 5. sætinu. Hjá Framsóknar-
mönnum komust tvær konur í 3.
og 4. sæti. Þó það séu ekki örugg
þingsæti sýnist mér þama vera um
að ræða ákveðna stefnubreytingu
hjá framsóknarmönnum sem hafa
verið manna íhaldsamastir í að hafa
konur ofarlega á listum hjá sér.“
sagði Lára V. Júlíusdóttir.
LÁRA V. Júlíusdóttir lögfræð-
ingur Alþýðusambands ís-
lands fékk flest atkvæði í
prófkjöri sem Alþýðuflokkur-
inn í Reykjavík hélt um
helgina en þar var aðeins kos-
ið um 4. sæti listans fyrir
komandi alþingiskosningar-
þar sem sjálfkjörið var í
fyrstu þijú sætin.
I prófkjörinu hlaut Lára V.
Júlíusdóttir 342 atkvæði, Björg-
vin Guðmundsson framkvæmda-
stjóri fékk 257 atkvæði og Jón
Bragi Bjamason prófessór fékk
231 atkvæði. Alls kusu 838 í
prófkjörinu en 1596 voru á kjör-
skrá. Jón Sigurðsson forstjóri var
einn í kjöri í 1. sæti listans, Jó-
hanna Sigurðardóttir alþingis-
maður var ein í kjöri í 2. sætið
og Jón Baldvin Hannibalsson al-
þingismaður og formaður Al-
þýðuflokksins var einn í kjöri í
3. sæti listans.
Úrslit þessa prófkjörs var ekki
bindandi heldur mun uppstili-
inganefnd skila tillögum um
skipan framboðslista flokksins til
fulltrúaráðsins sem síðan tekur
endanlega ákvörðun.
Hér á síðunni er rætt við Láru
og Björgvin, en ekki náðist í Jón
Braga.
„NIÐURSTAÐAN er ótvíræð og
þetta voru nokkuð hrein úrslit
svo ég hef lítið um það að segja,“
sagði Björgvin Guðmundsson
framkvæmdastjóri sem var einn
þeirra þriggja sém buðu sig fram
í 4. sæti á lista Alþýðuflokksins
í Reykjavík.
- Nú var talað um að flokks-
forustan hefði viljað fá Láru V.
JÚlíusdóttur í 4. sætið. Varðst þú
var við þetta?
„Ég vil ekkert segja um það á
þessu stigi. Hinsvegar las ég þetta
í Morgunblaðinu, í grein eftir Agn-
esi Bragadóttur. Hvort það hefur
verið skrifað til að hjálpa þessum
frambjóðanda, veit ég ekki.“
- Hefur þú hugleitt það hvort
þú tekur sæti á framboðslista
flokksins ef þér verður boðið slíkt?
„Ég hef ekki hugleitt það,“ sagði
Björgvin Guðmundsson.
::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::
(.■■■■■.jf
i 4 *
—■——
llllillllll
Sissy Spacek- Kevin Kline
Therc’sasuinmer
Vouilalways / >.
remember, and / \
ahopcthatif \
youKoback / ' "£ \
itwillall / - /mX
happenagain./ æk \
violets
LFBOUE tPATWCIv
ISTEIN -’CN.VUMI PO
violets
are
MYNDBANDALEIGA
BORGARTÚNI 24 8.11508
-thei/ mr/e asifi_,,
were no tornormw.
KKJHfi FRANMNHtlMtR-tDWAKD LtUlS Ptoductwn ^
OMAR SHARIF LEIGH TAYLOR-YOUNG JACK PALANCE
mTHE HORSEMEN ScrwpUvKDMTONJRUMBO Kmo on ttw nowH b> JOSfFH KISSH
Fwduwd hy fOWAST UVHS IVnW bs VHS IRASM NHDVUR Parov*^ COtCW
mmm
heildsöiudreifing
GHARIES BRONSO
WlíliÍM®!