Morgunblaðið - 03.12.1986, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1986
Freyja GK að leggjast að nótinni iyá Hring GK. Þórsnes SH er að
dœia úr nótinni.
Morgunblaðið/Garðar Rúnar Sigurgeireson
Verið að dæla úr nótinni i\já Hring GK um borð í Freyju GK.
Mikil síldveiði á Seyðisfirði
Sevðisfirði. •/
Seyðisfirði.
MIKIL síldveiði hefur verið að
undanförnu hér inni á Seyðis-
firði. Mörg skip hafa verið í
firðinum og fengið hvert risa-
kastið af öðru. Sum alveg hér
upp við landsteinana. Hafa allt
að þrír bátar getað fyllt sig úr
einu og sama kastinu.
Freyja GK kom með fullfermi til
löndunar í bræðslu hjá Sfldar-
bræðslu ríkisins hér á Seyðisfírði.
Voru þetta um 120 tonn sem feng-
ist hafði úr stóru kasti hjá Amey
KE hér inn á Seyðisfírði. Amey
fyllti sig einnig og sigldi suður til
Grindavíkur með aflan til söltunar
þar. Þegar var rétt verið að ljúka
að dæla upp úr Freyju kallaði skip-
stjórinn á Hring GK í Halldór
Þórðarson skipstjóra á Freyju og
sagðist hafa verið að fá mjög stórt
kast út í miðjum Seyðisfírði. Bað
hann Halldór að koma strax og
dæla upp úr nótinni með sér.
Fréttaritari Morgunblaðsins var
staddur um borð í Freyju GK þegar
þetta var og bauð Halldór honum
að koma með út á §örð.
Verið að setja tunnur í Iand úr Hvalvík.
Þegar komið var að Hring GK
var hann búinn að fylla sig, með
um 140 tonn. Þar var þá einnig
komið Þórsnes SH og var að dæla
upp úr nótinni hjá Hring GK. Hall-
dór lagði bátnum einnig að nótinni
þannig að bátamir þrír mynduðu
nokkurskonar þríhyming utan um
nótina. Halldór sagðist áætla að það
væm þó eftir í nótinni 300-400
tonn. Skipverjar á Freyju GK hóf-
ust þegar handa við að gera klárt
fyrir dælingu. Dælan var síðan sett
út og síldin rann niður í lestamar
á Freyju. Halldór sagði þetta vera
besta fáanlega hráefni, allt væri
þetta demant-sfld. Það væri synd
að þurfa að landa þessu svo til
bræðslu. En þar sem allar söltunar-
stöðvar á Austfjörðum vom tunnu-
lausar um þessar mundir væri ekki
um annað að ræða. Þetta stæði
allt til bóta því Hvalvík væri á leið-
inni til landsins með tunnur.
Þórsnesið var á undan Freyju að
fylla sig og hélt til hafnar með aflan
sem einnig átti að fara til bræðslu.
Þegar Freyja var komin með full-
fermi var þó nokkuð eftir í nótinni
hjá Hring GK og varð að sleppa
þeirri sfld. Hringur hélt svo af stað
suður til Þorlákshafnar með sinn
afla og hugðist landa sfldinni þar
til söltunar. Freyja GK hélt af stað
til hafnar á Seyðisfírði.
Halldór Þórðarson skipstjóri .
Þegar bátamir vom að leggja
af stað sást hvar Hvalvík kom inn
Seyðisijörð fullhlaðin af tunnum.
Halldór skipstjóri bölvaði hressilega
því hann sagðist hafa fengið upplýs-
ingar um að tunnumar kæmu ekki
fyrr en eftir einn til tvo daga og
ekki væri hægt að landa þessum
afla nú til söltunar því það væri
þannig sett í lestamar að eingöngu
væri hægt að dæla sfldinni upp til
bræðslu. Þegar Freyja GK lagðist
svo að bryggju hjá Sfldarverksmiðju
riksins á Seyðisfírði var verið að
landa sfld úr Sæborgu RE sem hafði
fengist þama rétt við landsteinana.
Garðar Rúnar
Ætlar bú að mála
fyrir jólin?
Málning og
lökk o.f 1.
Allir litir og áferðir á veggi, gólf,
glugga, vinnuvélar og skip.
Hitaþolinn lakkúði, margir litir.
Blakkfernis.
RYOCVOIR — RYDVÓRN
Málningaráhöld
Rúllur, penslar, málningarbakkar og sköfur — og allt annað sem
til þarf m.a. áltröppur og stigar, margar stærðir.
Fyllingarefni — Kítti
Polyfilla fyilingarefni og uppleysir.
Linolin — Silicon — Seal one — Kítti.
10.000 vöruteg-
undir að jafnaði.
Ananaustum, Grandagaröi 2, sími 28855.
HANS PETERSEN HF
Kort með umslagi. Minnsta pöntun er 10 stk. eftir sömu mynd.
Nú geturöu komiö vinum og vandamönnum
skemmtilega á óvart meö jólakorti sem skartar
þinni eigin Ijósmynd og sparaö um leiö dágóóa
upphæö.
Taktu mynd sem fyrst eöa veldu eina góöa úr
safninu og við sjáum um aö gera úr henni kort
sem stendur upp úr jólakortaflóóinu í ár.
Allt sem viö þurfum er filman þín.
Umboösmenn um land allt