Morgunblaðið - 23.01.1987, Síða 13

Morgunblaðið - 23.01.1987, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1987 13 Greinargerð lögmanns Ragnars Kjartanssonar: Utanaðkomandi saksókn- ari væri ekki síður í þágu embættis ríkissaksóknara HÉR á eftir fer hluti bréfs þess er Jón Magnússon, lögmaður Ragnars Kjartanssonar, sendi ríkissaksóknara og yfirlit nok- kurra meginatriða að baki kröfu um að ríkissaksóknari og emb- ætti hans viki sæti í Hafskipsmál- inu. I bréfi sínu bendir Jón Magnús- son m.a. á að ríkissaksóknari hafí á sínum tíma tekið ákvarðanir um málsmeðferð, kröfu um gæsluvarð- hald og hafi mótað að öllu leyti vinnubrögð við rannsóknina auk þess sem hann hafi ítrekað gefið mjög afdráttarlausar yfirlýsingar í fjölmiðlum á hvernig rannsókn mið- aði og fleira varðandi málið á fyrstu stigum þess hjá RLR. Síðan segir í bréfi lögmannsins: „Af þessum sökum og fleirum er það mat mitt, að það sé sjálfsagt og eðlilegt að hvorki þér, herra ríkissaksóknari, né nokkur annar starfsmaður embættis yðar annist um málið, en víki því sæti í málinu en dómsmálaráðherra skipi annan löghæfan mann til að fjalla um það. Afskipti yðar af málinu á rann- sóknarstigi eru svo afgerandi að ég tel það mjög gagnrýnisvert, að aðilar sem þér hafið skipunarvald yfír annist málið á ákærustigi." Greinargerð með kröfunni um utanaðkomandi saksóknara í mál- inu er svohljóðandi: 1. Hallvarður Einvarðsson var rannsóknarlögreglustjóri ríkisins við upphaf rannsóknar Hafskips- málsins og á meðan mestur þungi var á rannsókn þess fram í júlímán- uð er honum var veitt embgetti ríkissaksóknara. 2. Hallvarður Einvarðsson mótaði umdeild vinnubrögð er leiddu til fjötdahandtöku, 20. maí sl. og gæsluvarðhalds. 3. Hallvarður Einvarðsson hafði forystu um að krafist var framleng- ingar gæsluvarðhalds þeirra Björ- gólfs Guðmundssonar og Ragnars Kjartanssonar þann 11. júní sl. til 25. júní, í samræmi við upphafskr- öfu RLR og þrátt fyrir að Hæstirétt- ur hefði áður stytt hana um 2 vikur. Höfðu skýrslutökur reynst óveru- legar fyrstu daga gæsluvarðhalds- ins og m.a. aðeins rætt við þá Björgólf Guðmundsson og Ragnar Kjartansson stuttlega í eitt skipti fyrstu 14 daga varðhaldsins. Hæsti- réttur hafnaði kröfu RLR og felldi gæsluvarðhaldið úr gildi. 4. Hallvarður Einvarðsson hafði neitað sakborningum að neyta kosningaréttar en Hæstiréttur tók á ný fram fyrir hendurnar á RLR og sakadómi og tryggði sakbom- ingum stjórnarskrárvemdaðan rétt þeirra. 5. Hallvarður Einvarðsson gaf í embættisnafni margvíslegar yfir- lýsingar í fjölmiðlum, sem reyndust mjög umdeildar og að hluta illskilj- anlegar. Er talið að sumar þessara yfirlýsinga brjóti í bága við þagnar- skyidu opinberra starfsmanna. Sem nokkur dæmi um fjölmiðlayfirlýs- ingar Hallvarðs Einvarðssonar má nefna: 5.1. Sjónvarpsviðtal við HE 20. maí um handtökur og eðli meintra brota. 5.2. Þjóðviljinn 21. maí — viðtal við HE þar sem hann upplýsir m.a. að nú fari fram rannsókn á því hvort ástæða væri til frekari hand- töku manna! 5.3. Viðtal á forsíðu Þjóðviljans 23. maí: Fyrirsögn með tilvitnun í HE „Hundruð milljóna — Auðgunarbrot sem forráðamenn Hafskips hf. eru grunaðir um nema hundruðum milljóna króna“. 5.4. Tíminn 27. maí — viðtal við HE með fyrirsögninni: „Rannsókn styrkir grunsemdir". 5.5. Frétt á forsíðu Þjóðviljans 28. maí þar sem m.a. er rætt við HE. Fyrirsögn: „Endurskoðandi neitar". I fréttinni segir af því að endurskoð- andi Hafskips hf. neiti að hafa skrifað undir tiltekin uppgjör Haf- skips hf. Einnig segir að Björgólfur Guðmundsson og Ragnar Kjartans- son hafí fallið saman við yfírheyrsl- ur og játningar streymi frá þeim. Hvorugt reyndist rétt. Umfjöllun um hvort endurskoðandi kannaðist við undirritun sína fóru aldrei fram og fréttin birtist áður en byijað var að yfírheyra þá Björgólf og Ragnar. 5.6. Þjóðviljinn 11. júní — viðtal við HE. Fyrirsögn: „Aukist að um- fangi“. (Samdægurs kröfu um framlengingu á gæsluvarðhaldi Björgólfs Guðmundssonar og Ragn- ars Kjartanssonar). 6. Undir stjóm Hallvarðs Ein- varðssonar gaf embætti að auki ýmsar yfirlýsingar opinberlega, sbr. t.d. DV 27. maí, fyrirsögn: „Yfír- heyrslur styrkja gruninn um misferli" — segir Þórir Oddsson. 7. A meðan rannsókn stóð yfir undir stjórn Hallvarðs Einvarðsson- ar fengu ýmsir fjölmiðlar og fleiri óviðkomandi aðilar trúnaðarupplýs- ingar, sem óheimilt var að veita þeim. Forsvarsaðilar RLR og/eða starfsmenn embættisins hljóta því að hafa með margvíslegum hætti brotið í bága við þagnarskylduá- kvæði og starfsskyldur opinberra starfsmanna. 8. Handtökur og gæsluvarðhald er framkvæmt 10 dögum fyrir kosn- ingar. Vitað var að málið tengdist beint og óbeint pólitískum aðilum og ljóst að reynt yrði að gera það að kosningamáli. Þá var hálft ár liðið frá því að rannsókn á gjald- þroti Hafskips hófst. 9. Hallvarður Einvarðsson lét dómsmálaráðherra og forsætisráð- herra í té skýrslur um málið en slíkt samrýmist ekki þagnarskyldu þessa embættismanns. 10. Á sama tíma og Hallvarður Einvarðsson hafði forystu um að- gerðir í Hafskipsrannsókninni, sat fyrir svörum og deildi trúnaðar- skýrslum til tiltekinna ráðherra, var vitað að hann mundi sækja um embætti ríkissaksóknara, sem dómsmálaráðherra veitir. 11. Bent hefur verið á fjölmörg gagnrýnisverð atriði í rannsóknar- meðferð RLR undir stjóm Hallvarðs Einvarðssonar þ.m.t. mörg atriði sem munu bijóta í bága við lagafyr- irmæli til. stofnunarinnar sem rannsóknaraðila opinberra mála. 12. Til athugunar er að krefjast opinberrar rannsóknar á rannsókn- armeðferð Hafskipsmálsins, hjá skiptarétti og RLR, og verði orðið við þeirri beiðni, munu störf Hall- varðs Éinvarðssonar sem og annarra rannsóknaraðila verða til opinberrar umfjöllunar. 13. Á síðara stigi verður farið í mál við íslenska ríkið vegna mistaka RLR og fleiri við rannsókn málsins. 14. Fyrrverandi rannsóknarlög- reglustjóri getur hvorki talist óvilhallur við mat á hugsanlegum kærum eða endurupptöku á grund- velli rannsóknar, sem hann sjálfur stýrði að hálfu RLR. Niðurlag í 22. grein laga nr. 74/1974 er kveðið á um að ríkissaksóknari víki sæti, þegar hann er svo riðinn við mál að hann mætti ekki gegna dóm- arastörfum í því. Undir slíkum kringumstæðum tekur vararíkis- saksóknari við málinu eða annar löghæfur maður. Mun það fara nokkuð eftir því hversu mikið ríkis- saksóknari er talinn viðriðinn mál hvort vararíkissaksóknari tekur við því eða löghæfur aðili utan embætt- isins. Leitað hefur verið umsagna nokkurs fjölda löglærðra manna og hafa þeir verið á einu máli að af- skipti ríkissaksóknara af málinu sé með þeim hætti að óumflýjanlegt sé að skipaður verði utanaðkomandi saksóknari til umQöllunar um mál- ið. Geti það ekki síður talist í þágu embættis ríkissaksóknara en sak- bominga í málinu. Brids Arnór Ragnarsson Bridsfélag Akureyrar Akureyrarmótið í tvímenningi hófst sl. þriðjudag með þátttöku 40 para sem er svipaður fjöldi og í fyrra. Spilaður er barometer 3 spil milli para. Staðan: Símon I. Gunnarsson — Jón Stefánsson 149 Magnús Aðalbjörnsson — Gunnlaugur Guðmundsson 97 Árni Bjamason — Kristinn Kristinsson 80 Anton Haraldsson — Ævar Ármannsson 79 Arnar Jónsson — Örlygur Örlygsson 75 Björgvin Leifsson — Ormar Snæbjörnsson 65 Pétur Guðjónsson — Frímann Frímannsson 53 Sigfús Aðalsteinsson — Ragnar Gunnarsson 48 Sigfús Hreiðarson — Kári Gíslason 46 Gunnar Berg — Örn Einarsson 42 Meðalskor 0 Keppnisstjóri er Albert Sigurðs- son og reiknimeistari er Margrét Þórðardóttir. Næstu umferðir verða spilaðar á þriðjudaginn kemur í Félagsborg kl. 19.30. Bikarkeppni Norðurlands Átta sveitir eru eftir í bikar- keppninni sem er útsláttarkeppni. Dregið hefir verið í næstu umferð sem þarf að vera lokið fyrir 15. febrúar. Fyrrtaldar sveitir eiga heimaleiki: Gunnlaugur Guðmunds- son, Akureyri — Valtýr Jónasson, Siglufirði, Ásgrímur Sigurbjöms- son, Siglufirði — Hellusteypan hf., Akureyri, Haukur Harðarson, Ak- ureyri — Steinar Jónsson, Siglufirði, Reynir Pálsson, Fljótum — SS Byggir, Akureyri. Ljósmynd/Norðurmynd, Akureyri Nýlega lauk Akureyrarmótinu í sveitakeppni með sigri sveitar Gunn- laugs Guðmundssonar. Meðfylgjandi mynd er af sigursveitinni. Aftari röð: Friðfinnur Gíslason og Magnús Aðalbjörnsson. Fremri röð: Páll H. Jónsson og Gunnlaugur Guðmundsson. Svæðamót Norðurlands eystra Svæðamót vegna undankeppni Islandsmótsins í sveitakeppni fer fram á Akureyri dagana 30., 31. janúar og 1. febrúar nk. Tvær efstu sveitirnar öðlast rétt til að spila í undanúrslitum íslandsmótsins í Reykjavík. Þátttökutilkynningar þurfa að berast Erni Einarssyni í síma 96-21058 eða Herði Blöndal í ;íma 96-23124 fyrir 26. janúar nk. Þátt- tökugjald á sveit er 4000 krónur. Spilað er um silfurstig. Bridsdeild Rangæinga- félagsins Búnar eru 3 umferðir í aðal- sveitakeppninni og er staða efstu sveita þessi: Sigurleifur Guðjónsson 72 Gunnar Helgason 69 Gunnar Guðmundsson 59 Lilja Halldórsdóttir 58 Loftur Þ. Pétursson 44 Spilað er í Ármúla 40 á miðviku- dagskvöldum kl. 19.30. Bridsfélag Breiðholts Nú stendur yfir aðalsveitakeppni félagsins með þátttöku 12 sveita. Síðastliðinn þriðjudag var aðeins spiluð ein umferð og var smá uppá- koma í tilefni 10 ára afmælis félagsins. Að þremur umferðum loknum er röð efstu sveita þessi: Steindórs Ingimundarsonar 55 Guðmundar Baldurssonar 55 Baldurs Bjartmarssonar 53 Burkna Dómaldssonar 48 Bergs Ingimundarsonar 46 Rafns Kristjánssonar 45 Næsta þriðjudag heldur keppnin áfram. Spilað er í Gerðubergi kl. 19.30 stundvíslega. Dagskrá um Snorra Hjartarson í Gerðubergi DAGSKRÁ, helguð Snorra Hjartarsyni skáldi og fyrrver- andi borgarbókaverði, fer fram á vegum Borgarbókasafns i Gerðubergi laugardaginn 24. janúar kl. 16.00. Dagskráin er opin öllum. Umsjónarmaður þessarar dag- skrár verður Páll Valsson, bókmenntafræðingur, sem ræðir um höfundarverk Snorra, ein- kenni skáldskapar hans og þróun, og lesið verður úr verkum skálds- ins. Snorri Hjartarson var meðal fremstu ljóðskálda íslands. Fyrsta Ijóðabók hans, Kvæði, kom út 1944 og átta árum síðar ljóðabók- in Á Gnitaheiði. Síðar komu út ljóðabækumar Lauf og stjörnur (1966) og loks Hauströkkrið yfír mér (1979). Fyrir þá bók hlaut Snorri Hjartarson bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs 1981, í sænskri þýðingu eftir Inge Knutsson, Höstmörket över mig. Ljóð Snorra komu einnig út á norsku í þýðingu Ivars Orglands, Lyng og krater (1968) og Höst- skyming over mig (1981). Einnig birtust þýðingar af Ijóðum hans í ýmsum tímaritum og úrvalsljóð- um á Norðurlöndum og eins hafa þýðingar á ensku og rúmensku á ljóðum hans verið birtar. Snorri Hjartarson samdi eina skáldsögu, Höjt flyver ravnen, á norsku og kom hún út í Osló 1934, en þar dvaldist hann við myndlist- arnám sem og í Kaupmannahöfn. Snorri Hjartarson varð bóka- vörður við Bæjarbókasafn Reykjavíkur, síðar Borgarbóka- Snorri Hjartarson safn, frá 1939 til 1943, er hann varð yfirbókavörður og síðar borgarbókavörður, uns hann lét af störfum 1966. Hann var heiðursfélagi Rithöf- undasambands íslands og á 75 ára afmæli Háskóla íslands í októ- ber sl. var Snorri kjörinn heiðurs- doktor í íslenskum bókmenntum, doctor litterarum Islandicarum honoris causa. Snorri Hjartarson lést 27. des- ember 1986. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.