Morgunblaðið - 05.02.1987, Side 1

Morgunblaðið - 05.02.1987, Side 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 29. tbl. 75. árg.__________________________________FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Kúbönsk nýlenda í Sovétríkjunum Hflvnno Rnntar ■’ Havana, Reuter. ÞÚSUNDIR Kúbumanna halda senn frá hlýju ættlandi sínu til hinnar frostbitnu Síberíu. Þar eiga þeir að höggva tré og vinna við sögunarmyllur. Er þetta gert samkvæmt nýlegum samningi milli Kúbu og Sovétríkjanna. Það var Fidel Castro Kúbuleið- togi, sem upphaflega kom fram með þessa hugmynd fyrir tveimur árum, en þá stóðu Sovétmenn ekki við gerða samninga um timbur handa Kúbumönnum. Samkvæmt hinum nýgerða samningi eiga Kúbumennimir að búa og starfa í Khavarosk austast í Síberíu. Þar er frostið 20 stig að meðaltali á Celsius yfír vetrartímann. Um 8 klukkustunda flug er þangað frá Moskvu eða 7 daga ferðalag með járnbrautarlest. Aformað er að koma þar upp verksmiðju með íbúðarhverfí fyrir Kúbumennina, sem á að verða sér- stakt bæjarfélag með eigin verzlun- um og stjómarskrifstofum. Alls eiga sögunarmyllumar þar að verða þrjár, en auk þess verður reist tijá- verksmiðja. Þar munu Kúbumenn- Liberace látinn Palm Springs, Reuter. Píanóleikarinn frægi, Lib- erace, lézt í gær í Palm Springs í Kaliforníu. Hann var 67 ára að aldri. Banamein hans var hjartabilun. Hann hafði legið mjög sjúkur að undanförnu og ekki verið hugað líf. Mikill fjöldi aðdáenda lista- mannsins beið þess sem verða vildi fyrir utan hús hans og hélt á logandi kertum. „Hann var einstakur", var haft eftir einum þeirra. imir framleiða trjávörur, sem síðan verða ýmist fluttar til Kúbu eða notaðar innan Sovétríkjanna. Til þessa hafa tugir þúsunda Kúbumanna farið tii skemmri eða lengri námsdvalar í Sovétríkjunum. Þessi nýju áform em þó miklu stærri í sniðum. Er haft eftir kúb- önskum embættismönnum, að um 7500 Kúbumenn verði komnir til þessara nýju starfa í Sovétríkjunum á næsta áratug. Þegar á þessu ári munu 800 Kúbumenn, þar af 500 byggingarverkamenn, fara til Khavarosk og hefjast handa um að reisa þessa nýlendu Kúbumanna í Sovétríkjunum. í fyrsta hópnum verða 230 karlmenn og 41 kona. Gert er ráð fyrir, að hver þátttak- andi dveljist þama að jafnaði 2 ár, en haft er eftir embættismönnum, að margir þátttakendanna eigi sennilega eftir að „skrá sig aftur“ í lok tveggja ára tímabilsins. Svæðið, sem Kúbumenn fá fyrir starfsemi sína, verður um 20.000 km2 eða um V6 hlutinn af flatar- máli Kúbu. Sagt er, að á Kúbu séu menn þegar teknir að gera að gamni sínu varðandi þessa nýlendu. „ímyndið ykkur bara. Kúbanskt sjálfstjómarsvæði í Sovétríkjun- um,“ er haft eftir einum Kúbu- manninum. Þjakandi loftmengun víðaíEvrópu Loftmengun hefur verið þjakandi víða í Evrópu undanfarna daga. í gær neyddust dönsk flugmálayfirvöld til að loka Kastrup-flug- velli og beina flugumferð annað. Skyggni fór sums staðar niður fyrir 10 metra í Hollandi og Belgiu, og olli það erfiðleikum í umferðinni. Þegar móðuna lagði lengra í austurátt ráðlögðu borg- aryfirvöld í Stokkhólmi fólki með öndunarerfiðleika að halda sig innandyra og hafa votan klút fyrir vitunum. í Hamborg og Vest- ur-Berlín, þar sem þessi mynd var tekin í gær, var ástandið mjög slæmt. Þar var umferð einkabila bönnuð og fólk beðið að stilla kyndingu í hóf í húsum sínum, auk þess sem iðnfyrirtækjum var fyrirskipað að hægja á framleiðslu. Dollarínn hækkar London, Reuter. GENGI Bandaríkjadollara hækkaði verulega á gjaldeyris- mörkuðum í V-Evrópu í gær í kjölfar frétta af umtalsverðum efnahagsbata f Bandarikjunum i desember samkvæmt nýjum hagtölum þar í landi um ýmis mikilvæg svið atvinnulifsins. Nam þessi hækkun 2,1% í mán- uðinum og er hin mesta í 4 ár. Komst dollarinn í 1,8155 vest- ur-þýzk mörk í gær, en var 1.7975 mörk í fyrradag. Aðrir þættir, sem styrkt hafa gengi dollarans, eru fréttir síðustu viku um, að viðskiptajöfnuður Bandaríkjanna hafí ekki verið jafn óhagstæður og gert var ráð fyrir og ótti gjaldeyriskaupmanna við að seðlabankar muni kaupa doll- ara til að draga úr álagi á evrópska peningakerfíð (EMS), sem fall dollarans hefur valdið. Engu að síður fara gjaldeyris- kaupmenn varlega í sakimar, hvað varðar hækkunina í gær og segja, að á markaðinum ríki efa- semdir um, að vænta megi frekari hækkana á gengi dollarans. Sjá ennfremur: Bandaríkin á batavegi? B2 Morðið á Olof Palme: Yfirsljórn rannsóknarinnar fengin í hendur nýjum mönnum Enginn árangur enn af leitinni að morðingjanum Stokkhólmi, AP., Reuter. NÝIR menn verða nú skipaðir til að stjórna rannsókninni á morði Olofs Palme, forsætisráðherra Ólga á meðal franskra kennara Kennarar i Frakklandi fóru í gær í mikla göngu um götur Parfs- ar til að mótmæla fyrirmælum frönsku stjómarinnar um aukið agavald skólastjóra f skólum landsins. Eins og myndin sýnir, var gangan geysifjölmenn. Henni átti að ljúka með miklum útifundi við skrifstofu Jacques Chirac forsætisráðherra. Svíþjóðar. Skýrði sænska sjón- varpið frá þessu í gærkvöldi. Til þessa hefur leitin að morðingjan- um reynzt með öllu árangurslaus og hefur það valdið megnri óánægju jafnt hjá stjórnvöldum sem almenningi í Svíþjóð. Tæpt ár er nú liðið, síðan Palme var skotinn til bana að kvöldlagi í miðri Stokkhólmsborg. Sænska sjónvarpið sagði, að ákvörðunin um að taka yfírstjóm rannsóknarinnar úr höndum Hans Holmer, lögreglustjóra í Stokk- hólmi, hefði verið tekin á fundi sænsku stjómarinnar síðdegis í gær. Var þessi ákvörðun tekin eftir miklar deilur undanfama daga milli lögreglunnar og ákæmvaldsins, með hvaða hætti leitinni að morð- ingjanum skuli haldið áfram. Á þriðjudag gaf eftirmaður Palmes, Ingvar Carlsson forsætis- ráðherra, þessum aðilum sólar- hringsfrest til þess að binda enda á deilumar og hefja síðan rannsókn málsins á ný. Stóðu viðræður yfír í þessu skyni allan þriðjudaginn og fram eftir degi í gær, án þess að endanlegt samkomulag næðist. Samkvæmt frásögn sænska sjón- varpsins verða þeir Holger Romand- er, yfirmaður sænsku lögreglunnar, og Axel Morath, saksóknari ríkis- ins, nú látnir taka við af þeim Holmer og Claes Zeime, yfirsak- sóknara í Stokkhólmi, til að stjóma rannsókn málsins. Þeir tveir síðastnefndu hafa deilt ákaft hvor á annan að undanfömu. Zeime vill, að rannsókn málsins verði tekin upp á ný alveg frá byij- un og þau vitni yfírheyrð aftur, sem nærri vom morðstaðnum, er Palme var myrtur. Jafnframt verði lögð áherzla á rannsókn ýmissa atriða, sem Zeime og aðstoðarmenn hans telja, að ekki hafí verið fylgt nægi- lega fast eftir. Carlsson forsætisráðherra sagði hins vegar á þriðjudag, að ríkis- stjómin teldi, að rannsaka bæri „öll þau atriði," sem þættu skipta einhveiju máli. Hafa ummæli hans verið túlkuð á þann veg, að ekki mætta kasta alfarið fyrir róða þeirri skoðun Holmers, að öfgamenn úr röðum Kúrda kunni að standa í tengslum við morðið. Conner endurheimti Ameríkubikarinn Fremantle,^ AP. BANDARÍSKI skútustjórinn Dennis Conner endurheimti Ameríkubikarinn, siglingaverð- launin eftirsóttu, í gær og meðal þeirra sem fögnuðu sigri hans í úrslitakeppninni var Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti. Conner vann fjórðu kappsigling- una í röð á skútu sinni Stars & Stripes og kom í veg fyrir að Ástral- ir héldu lengur bikamum, sem þeir unnu 1983. Fyrir Ástralíu varði skúta með nafninu Kookaburra III bikarinn. Hún var talin tæknilega betri bátur en Stars & Stripes en kunnugir sögðu að hæfileikar Conn- ers og sjómennska hefðu vegið þar upp á móti og rúmlega það. Búist er við að keppnin verði haldin næst sumarið 1990 og þá líklegast fyrir utan San Diego, heimaborg Dennis Conner. Ýmsar borgir aðrar hafa þó boðizt til að halda keppnina. Sjá ennfremur „Þetta er stór stund fyrir Dennis Conner“ á bls. 30 og 31.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.