Morgunblaðið - 05.02.1987, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.02.1987, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987 17 Öryggisnámskeið sjómanna Sigríður Dúna Kristmundsdóttir „Kvennalistinn er einn um það íslenskra stjórnmálaafla að setja málefni kvenna í önd- vegi, málefni allra kvenna yngri sem eldri, heimavinnandi sem úti- vinnandi.“ aðstæðum sem konur búa við. Þau leiðrétta ekki launamisréttið, rétta ekki hag húsmæðra, byggja ekki dagvistarheimili eða lengja fæðing- arorlof svo eitthvað sé nefnt af því sem raunverulega skiptir máli fyrir konur. Kvennalistinn var einn um það á Alþingi að vera ekki sam- mála tillögu Hjörleifs Guttormsson- ar um víðtæka könnun á kynjamisréttinu vegna þess að við vitum að hægt er að svæfa öll mál með tímafrekum könnunum og að ekki vantar upplýsinga heldur að- gerðir. Kvennalistinn er einn um það að hafa lagt til á Alþingi að gagngert endurmat fari fram á störfum kvenna og Kvennalistinn var einn um það að snúast öndverð- ur gegn þeim kjarasamningum sem gerðir voru í febrúar á sl. ári, þar sem fólki voru skömmtuð laun sem ekki var hægt að lifa af. Kvennalist- inn er einn um það að hafa alfarið hafnað stóriðju sem vænlegum kosti í íslenskum atvinnumálum, var einn um það á Alþingi að mótmæla byggingu kísilmálmverksmiðju við Reyðarfjörð. Sú verksmiðja hefur þegar kostað okkur 130 milljónir króna og er fjarri því nú en áður að rísa. Og á meðan Alþýðubanda- lagið kyijar „ísland úr NATO, herinn burt“ bendir Kvennalistinn á að friður er forsenda lífs á jörð- inni, að lífið sé konum nákomið og því sé þeim skylt að snýast gegn öllu sem fái grandað því. Þannig mætti áfram telja, af mörgu er að taka, en kjami málsins er vitaskuld sá að pólitík Kvenna- listans byggir á hugmyndum sem önnur pólitík hér á landi byggir ekki á. Að okkur viti snýst pólitík ekki eingöngu um máleftii eins og formaður Alþýðubandalagsins stað- hæfir í sunnudagsskrifum sínum í Þjóðviljanum, hún snýst ekki síður um hugmyndir og gildismat, hug- sjónir og réttlæti. Virðingarleysi við konur og hugmyndir Það er einmitt á gmndvelli þessa viðingarleysis við hugmyndir og gildi í stjómmálum sem menn stað- hæfa jaftit á vegum Morgunblaðsins sem Þjóðviljans að nú sé ekki leng- ur þörf á Kvennalista, konur em nú komnar í „sæmileg vonarsæti" hjá stjómmálaflokkunum og Kvennalistinn „skemmir" bara fyrir þeim. Skiptir engu máli fyrir hvaða hugmyndir þessar konur standa? Með sömu rökum má segja að allir karlamir sem em í framboði „skemmi" bara hver fyrir öðmm eða skiptir heldur engu máli fyrir hvaða hugmyndir þeir standa? Vitaskuld skiptir það máli og vitaskuld skiptir það einnig máli fyrir hvaða hugmyndir konur standa í stjómmálum. Röksemdir leiðarahöfunda og annarra sem hafa úttalað sig í þessa vera sýnir í rauninni ekki annað en virðingar- leysi fyrir skoðunum og hugmynd- um kvenna hveijar sem þær skoðanir og hugmyndir kunna að vera. Þær sýna einnig að í nauðum grípa menn til þess gamla karlaráðs að deila og drottna með því að reyna að etja konum saman. „Kvennalistinn verður að svara vel“ segir leiðarahöfundur Þjóðvilj- ans. „Kvennalistinn getur kannski réttlætt framboð sitt í þingkosning- unum 1983, sem sérstaka aðgerð til að vekja athygli á baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna. En þau rök duga ekki lengur...“ segir Stak- steinahöfúndur Morgunblaðsins. Hvemig væri að stjómmálaflokk- amir fæm nú að svara vel og réttlæta framboð sín með rökum sem duga? Er ekki kominn tími til? Auðvitað em þessi skrif leiðara- höfunda og Staksteina ekkert annað en óforskammaður hofmóður í garð kvenna og um hann geta annars andstæð stjómmálaöfl greinilega sameinast. Þennan hof- móð kannast konur vel við, til höfuðs honum er Kvennalistinn m.a. stofnaður og á meðan þessi afstaða til kvenna er við lýði mun Kvennalistinn áfram starfa. Höfundur er ein afþingkonum Kvennalistana. eftir Guðmund Haraldsson Dagana 20. til 23. janúar síðast- liðinn, að báðum dögum meðtöld- um, var haldið eitt af mörgum björgunar- og öryggisnámskeiðum, sem haldin hafa verið á vegum Slysavamafélags íslands. Þar sem ég var einn af þeim tuttugu sem komust að á þessu námskeiði, lang- ar mig að hafa nokkur orð um ágæti þessa námskeiða. Fyrst vil ég nefna kennslu um lífgun úr dauðadái. Þó svo að flestir okkar sem á nám- skeiðinu vom hafi eflaust fengið tilsögn og jafnvel æfingu í lífgun úr dauðadái áður, gleymast þessir hlutir furðu fljótt. Kennt var hjarta- hnoð og blástursaðferð á þartilgerð- um dúkkum og gátu menn séð árangurinn á línuriti. Kennd var meðferð og notkun á hinum ýmsu gerðum slökkvitækja, með tilliti til eðli þeirra elda sem „Vil ég þakka forsvars- mönnum Slysavarnafé- lagsins, sem standa að þessum námskeiðum, fyrir mjög svo lær- dómsríkt námskeið.“ upp kunna að koma um borð í skip- um. Þá var kennsla og æftng í reykköfun. Vom menn látnir kafa reykfyllt skip og leita manna sem hugsanlega kynnu að vera meðvit- undarlausir í reykfullu skipinu og koma þeim út. Reyndist þetta hin mesta þolraun. Þá var kynnt meðferð og notkun á flestum þeim björgunartækjum sem völ er á um borð í skipum. Að lokum var farið á æfíngu í notkun flotgalla, notkun og meðferð gúmmíbjörgunarbáta og björgun úr sjávarháska með þyrlu. Reynd- ust flotgallamir frábærlega vel og veitir það okkur sjómönnum mikla öryggiskennd að setja á þessa galla í íslensk skip á þessu ári. Er ég sannfærður um að þessir gallar eiga eftir að bjarga mörgum mannslíf- um, því eins og við vitum, hafa flestir íslenskir sjómenn sem farist hafa, látist úr kulda og vosbúð. En þessir gallar em ekki bara vatns- þéttir, heldur einnig mjög vel einangraðir. Vil ég þakka forsvarsmönnum Slysavarnaféalgsins, sem standa að þessum námskeiðum, fyrir mjög svo lærdómsríkt námskeið. Að lokum vil ég geta þess, að Slysavamafélagið ber allan kostnað af þessum námskeiðum, sem þó em nokkuð kostnaðarsöm. Skora ég því á útgerðimar og ekki síst trygg- ingafélögin að styrkja Slysavama- félagið í þessum námskeiðum. VIÐURKENND VÉL ROTAX 503 Lengsta beltið 397 cm. (á lið aftast) Breiðasta beltið 41 cm. Innifalið í verði: Rafstart (aukalega 18.000.-) Innifalið í verði: Afturábakgír (aukalega 32.000.-) Innifalið í verði: 2 gírar áfram, hár og lágur (aukalega 40.000. -) Til afgreiðslu strax. Verð 388.000.- GÍSLIJÓNSSON & CO. HF. Sundaborg 11. Sími 686644. ÞO GERR VftRT BETH KAUPl Verð MAZDA bíla hefur hlutfallslega aldrei verið lægra en núna. Verðlauna- bíllinn MAZDA 626 1.6L 4 dyra Sedan LX kostar nú aðeins 467 þús- und krónur. Örfáir bílar til afgreiðslu úr síðustu sendingu, sem er nýkomin til landsins. Tryggið ykkur því bíl strax. Opið laugardaga frá kl. 1 - 5. BILABORG HF SMIÐSHÖFÐA 23, SÍMI 68-12-S9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.