Morgunblaðið - 05.02.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987
Starfsmenn bæjarfélaga semja:
Sarnningiirimi er til
þriggja mánaða en
ekki þriggja ára
- segir Kristján Thorlacius, formaður BSRB
„AÐ forminu til er samningurinn til þriggja ára, en í reynd er hann
ekki nema til þriggja mánaða í einu þar sem ákvæði samningsins
segja til um að hægt sé að segja honum upp fjórum sinnum á ári,“
sagði Kristján Thorlacius, formaður BSRB, um nýgerðan samning
bæjarstarfsmanna við launanefnd sveitarfélaganna sem undirritaður
var í gær á Akureyri.
Viðræðunefnd BSRB, sem nú
stendur í samningaþófí við ríkið,
kom saman í gær til að funda um
nýgerða kjarasamninga bæjar-
starfsmannanna. Kristján sagði
eftir fundinn að samningurinn væri
aðeins rammasamningur 17 bæjar-
starfsmannafélaga við launa-
nefndina, en eftir væri að fylla út
í þennan ramma í sveitarfélögunum
sjálfum og bera síðan undir at-
kvæði heima fyrir. Fyrr en það
hefur verið gert, er ekki fyllilega
hægt að leggja dóm á samninginn,
sagði Kristján.
„Það var vitað fyrirfram að
launanefnd sveitarfélaganna hefur
verið mun liðlegri í samningum
heldur en ríkið, en eftir er að raða
starfsmönnum í launaflokka. Hins-
vegar verður maður að vona að út
úr röðuninni komi fram sami vel-
vilji og nú og þá er ekki ástæðulaust
að binda vonir við að fjölmennir
hópar geti unað glaðir við sitt. En
ég þori ekki að leggja dóm á hvað
endanlega kemur út úr þessu."
Sjá nánar á bls. 35.
Áhugi á að leigja
svifnökkva í sumar
Vestmannaeyjum.
ÁHUGAMENN um bættar sam-
göngur milli lands og Eyja hafa
að undanförnu kannað mögu-
leika á þvi að leigja svifnökkva
í sumar til þess að sjá hvernig
slíkt farartæki reynist. Mikill
áhugi er á því að komið verði á
föstum ferðum með farþega
skemmstu sjóleið til lands.
Tvítugur Akur-
eyringur játar
fjölda íkveikja
TVÍTUGUR Akureyringur
var handtekinn af rannsókn-
arlögregiunni sl. mánudag,
grunaður um íkveikjur. Hann
hefur nú játað að vera valdur
að fjölda íkveikja og var úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til
2. mars nk. og gert að sæta
geðrannsókn.
Ungi maðurinn hefur áður
komið við sögu hjá löreglunni,
en þá fyrir annars konar afbrot.
íkveikjumar sem maðurinn hef-
ur játað hér á Akureyri eru
eftirtaldar: Hjallalundi 17, Ak-
ureyri, en þar var kveikt í
geymslu í sameign Qolbýlishúss.
Geislagötu 10, en þar var kveikt
í rusli í viðbyggðri kompu. Að
Eyrarvegi 18 kveikti hann í
bflskúr og þá sömu nótt í bifreið-
inni A-1216 þar skammt frá,
skúr á bak við Bókaverslunina
Huld, kyndiherbergi á neðstu
hæð hússins nr. 7 við Skipagötu
og einnig játaði hann að hafa
kveikt í rusli í kompu við hús
nr. 88 við Hafnarstræti.
í síðustu viku kom til Eyja full-
trúi bandaríska fyrirtækisins
Textron, sem framleiðir svifnökkva,
til viðræðna við sérstaka nefnd sem
vinnur að málinu. Á næstu dögum
er síðan fulltrúi frá breska fyrirtæk-
inu Hoover væntanlegur til við-
ræðna við nefndina.
Amaldur Bjamason bæjarstjóri,
einn nefndarmanna, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að fulltrúi Tex-
tron hefði kynnt fyrir nefndarmönn-
um nökkva sem er að dekkplássi
170 fermetrar og getur rúmað 160
farþega. Einnig er möguleiki að
minnka farþegarýmið og fá þannig
rúm fyrir bifreiðar.
— hkj.
Morgunbladið/Júlíus
Rússneski pianósnillingurinn Dmitri Alexeev, til vinstri, stuttu eftir komuna tíl Reykjavíkur í gær-
kvöld. Við hlið hans situr Frank Shipway, sem verður sijómandi Sinfóníuhljómsveitarinnar á
tónleikunum í Háskólabíói í kvöld.
Alexeev leikur með Sinfóníunni í kvöld:
Aheyrendur koma frá útlöndum
RÚSSNESKI píanósnillingur-
inn Dmitri Alexeev kom til
landsins í gærkvöld, en hann
mim leika með Sinfóníuhjjóm-
sveit íslands á tónleikum f
Háskólabíói f kvöld og halda
tónleika í Austurbæjarbfói nk.
laugardag á vegum Tónlistar-
félagsins.
Alexeev sagði við komuna til
landsins að það hefði komið sér
skemmtilega á óvart hve hlýtt
væri héma. Frosthörkumar sem
ríkt hefðu í Moskvu væru sér
ekki að skapi, þó hefði veðrið þar
skánað síðustu daga.
Alexeev hélt sfðast tónleika í
Moskvu fyrir nokkmm dögum.
Hann er nú að he§a tveggja mán-
aða tónleikaferðalag um gervalla
Evrópu og sagðist vonast til að
komast heim til Moskvu í þijá
daga áður en hann héldi til Ástr-
alíu, þar sem fyrirhuguð er röð
tónleika f aprfl.
Aðspurður sagðist Alexeev
verða að viðurkenna að hann
þekkti fremur lítið til íslensks tón-
listarlffs, en honum var kunnugt
um dvöl og starf píanóleikarans
og hljómsveitarstjómandans
Vladimirs Ashkenazy hér á landi.
„Ég hlakka mikið til að leika með
Sinfóníuhljómsveit íslands og ég
vonast til að fá tækifæri til að sjá
eitthvað af landinu ykkar," sagði
hann.
Nokkrar miðapantanir hafa
borist frá útlöndum og munu ekki
vera dæmi til þess að útlendingar
sjái ástæðu til að koma hingað
sérstaklega vegna tónlistarvið-
burða. Er það til marks um þá
frægð og virðingu sem þessi
rússneski pfanóleikarí nýtur.
Sjálfur kippti Alexeev sér ekki
upp við tíðindin um miðapantan-
imar, sagði ekki óalgengt að sér
væri fylgt landa á milli þegar
hann væri á tónleikaferðalögum.
Þess má að lokum geta, að Sin-
fóníuhljómsveitin hefur fallist á
að lána Steinway-flygil sinn úr
Háskólabfói á tónleika Alexeevs á
vegum Tónlistarfélagsins í Aust-
urbæjarbíói næstkomandi laugar-
dag.
Breyting Útvegsbankans í hlutafélag:
„Vonandi aðeins fyrsta skref-
ið til aukinnar hagræðingar“
segir Geir Hallgrímsson seðlabankastjóri
GEIR Hallgrímsson seðlabanka-
stjóri telur að sú leið, sem stjóm-
arflokkarair komu sér gaman »»m
að fara varðandi endurreisn Út-
vegsbankans, hafi verið sú sísta
sem í boði var, samkvæmt tillög-
um Seðlabankans frá þvi í
nóvember. Hann segir þó að sú
ákvörðun að stofna hlutafélag
um bankann sé af hinu góða.
Ákveðnar efasemdir eru uppi um
það að ríkinu takist að selja þær
650 milljónir sem það kemur til
með að leggja fram sem hlutafé.
Stjórnarmaður úr Fiskveiðasjóði
telur á hinn bóginn að hagsmuna-
aðilar I sjávarútvegi eigi eftir að
taka þvi fegins hendi að gerast
beinn eignaraðili að bankanum.
Geir Hallgrímsson sagði í sam-
„Styrkur fyrir flokkinn að
standa einhuga að listanum“
- segir Albert Guðmundsson, efsti maður
á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
„ÞAÐ er mikill styrkur fyrir
flokkinn að hafa staðið ein-
huga að listanum og þvi fagna
ég að sjálfsögðu", sagði Albert
Guðmundsson iðnaðarráð-
herra er hann var inntur álits
á niðurstöðu fulltrúaráðs-
fundar sjálfstæðisfélaganna i
Reykjavík, þar sem framboðs-
listi flokksins til næstu Al-
þingiskosninga var samþykkt-
ur samhljóða. Fyrstu tiu sætin
voru ákveðin samkvæmt nið-
urstöðum prófkjörsins, sem
haldið var 18. október síðast-
liðinn, en þar varð Albert i
fyrsta sæti eins og kunnugt er.
Aðspurður sagði Albert að sér
kæmi niðurstaða fulltrúaráðs-
fundarins ekki á óvart. „Ég trúði
því aldrei að það yrðu átök um
listann þrátt fyrir sögusagnir í
þá veru. En sú eining, sem fram
kom á fundinum um skipan
framboðslistans í Reykjavík, er
að mínum dómi mikill styrkur
fyrir flokkinn og gott veganesti
í upphafí kosningabaráttunnar,"
sagði Albert Guðmundsson.
tali við Morgunblaðið í gær: „Þetta
er sú lausn sem við töldum sísta í
tillögum okkar frá því í nóvember.
Hún er þó betri að því leyti, að
þetta er gert í hlutafélagsformi. Það
er von mín að þetta sé aðeins fyrsta
skrefíð sem stigið verður. Ef látið
verður staðar numið við þetta, þá
á sér ekki stað sú hagræðing og
aukna skilvirkni I bankakerfínu sem
nauðsynleg er. Menn hljóta því að
halda áfram að teknu þessu skrefi,
enda er það tekið fram í samkomu-
lagi ríkisstjómarinnar að leitast
verði við að koma á samvinnu og
samruna viðskiptabanka í kjölfar
þessa."
Geir kvaðst vonast til þess að
hagsmunaaðilar í sjávarútvegi og
fyrirtæki brygðust þannig við í
hlutafíárkaupum, að þessi banki
gæti fljótlega orðið öflugur og
sterkur einkabanki.
Gunnar Óskarsson hjá Fjárfest-
ingarfélaginu var í gær spurður
hveijar hann teldi horfumar á því
að ríkinu tækist að selja þær 650
milljónir króna sem það leggur fram
með bankanum: „Þetta er náttúr-
lega gífurleg Qárhæð á íslenskum
fíármagnsmarkaði og þar af leið-
andi þarf mikið átak til þess að
þetta seljist á skömmum tíma.
Síðan fer það eftir því hvaða hags-
muni menn sjá í því að gerast
hluthafar í bankanum, hvort þeir
taka ákvörðun þess efnis eða ekki.
Þetta ræðst auðvitað af því hveijar
eru væntanlegar framtfðartekjur
hins nýja félags og hvemig tekst
að sannfæra væntanlega kaup-
endur um að það sem við nefnum
hagrænt verðgildi sé gott,“ sagði
Gunnar.
Stjómarmaður Fiskveiðasjóðs
sagðist í samtali við Morgunblaðið
í gær telja að Fiskveiðasjóður væri
það fjárhagslega öflugur, að hann
gæti auðveldlega lagt fram þær 150
milljónir króna sem talað er um að
verði hlutur Fiskveiðasjóðs í bank-
anum. Hann sagði að afstaða
stjómar sjóðsins myndi að sjálf-
sögðu ráðast af því hvað væri í
boði hjá nýja bankanum, en hann
taldi þó að hér gæti verið gullið
tækifæri fyrir heila atvinnugrein,
sjávarútveginn að gerast stór
eignaraðili að nýjum og öflugum
banka. Hann kvaðst ekki telja að
hlutafjársöfnunin yrði mikil fyrir-
staða, því ef erlendur banki gerðist
eignaraðili, þá væm strax komnar
250 milljónir króna, og ef sjávarút-
vegurinn yrði sterkur eignaraðili,
þá væri raunhæft að reikna með
lágmarksupphæð 250 milljónum
króna þaðan. Þá væra einkafyrir-
tæki, sparisjóðir og Fiskveiðasjóður
enn ótalin.