Morgunblaðið - 05.02.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987
23
Helgi Hálfdanarson:
Stig af stigi
Að undanfömu hefur orðið stig
stundum lent í nokkuð skuggaleg-
um ævintýmm og hvað eftir
annað fallið í hendur raufurum.
Ekki hef ég verið einn um það
að hneykslast á notkun samsetn-
ingarinnar hitastig, sem að eðli-
legum hætti merkir mælieiningu
á hitahæð (hundraðasta hluta
mismunarins á suðumarki og
frostmarki vatns), en er einlægt
haft líka um hitahæðina sjálfa
(t.d.: hitastigið er tíu stig!) Ætla
mætti, að engum dyldist hversu
hláleg þessi orðbeiting er, ekki
sízt þar sem beint liggur við að
kalla hitahæðina blátt áfram hita-
hæð, ef ekki bara hita. En að
stinga upp á því, sem beint liggur
við, er eins og að bjóða hundi
heila köku, og hér verður áreiðan-
lega engu um þokað.
Ég býst við að fá nýyrði hafí
farið á flot öllu vitlausari en pró-
sentustig. Orðliðurinn stig er þar
merkingarlaus, nema hann merki
það sama og prósent, svo þama
er komið sérdeilis ánalegt stagl-
yrði. Ætla mætti, að orð, sem
einna helzt virðist merkja prósent
af prósentu, væri þá einmitt haft
um prósent af prósentu, væri t.d.
haft um prósent af vaxtaupphæð
(sem reiknuð er í prósentum af
höfuðstól). En viti menn! pró-
sentustig er haft um prósent af
höfuðstól, til greiningar frá pró-
sentum af vöxtum, svo notkun
orðsins er jafn-vitlaus og orðið
sjálft. Og við þessu verður áreið-
anlega ekki hróflað fremur en
hitastiginu sæla, því ekki er það
laust sem fjandinn heldur.
Enn má geta þess, að ekki alls
fyrir löngu var rætt í útvarpi um
tiltekna grein iðnaðar, og bar þá
á góma of hátt sýrustig í vökva.
Af umræðunni var ljóst, að með
of háu sýrustigi var átt við of
súran vökva, þ.e.a.s. of lágt sýru-
stig.
Þetta var ekkert eins dæmi um
rugling af þessu tagi, þegar rætt
er um sýrustig. Og raunar er það
engin furða, fyrst orðið sýrustig
er notað um pH-stigann, sem er
þannig í laginu, að því súrari sem
vökvinn er, þeim mun lægra telst
sýrustigið. Ékki er nema von, að
það geti valdið misskilningi, að
svo virðist sem fjöldi mæiieininga
gangi í öfuga átt við magn þess
sem mælt er, og eðlilegt að slík
orðbeiting hneyksli málkennd
manna.
Orðið sýrustig á sér erlenda
samsvörun, og staða þess er
sterkari en svo, að við því verði
hróflað. Hins vegar mætti einnig
hafa hér annan hátt á, þegar svo
ber undir, svo að einhvetju öðru
orði yrði við komið, og þá notuð
mælitala, sem fengist af réttu
hlutfalli mælieininga og magns.
Auðvitað yrði sú mælitala að vera
í samræmi við pH-stigann og fást
hveiju sinni án reiknings að heitið
gæti. Lægi þá beint við að leggja
neikvæðá lógrímann af mólstyrk
hítroxíl-jóna til grundvallar. Ekki
mætti það þó vera nema óbeinlín-
is, og nota þyrfti aðra stærðar-
gráðu en tölur pH-stigans, til þess
að ekki yrði þar ruglingur á.
(Næsta stærðargráða fyrir ofan
yrði hæfíleg.) Einföld og þægilega
glögg lausn væri, að mælitalan
fylgdi pH-stiganum öfugum á
þann hátt, að pH=7 samsvaraði
tölunni 100. Sé pH-gildi lægra en
7 (í súrum vökva), samsvaraði það
hærri tölu en 100; en pH-gildi
hærra en' 7 (í bösuðum vökva)
samsvaraði lægri tölu en 100. Sé
tala þessi kölluð t.d. „súrtala"
(St), yrði hún hveiju sinni:
St = (-log [OH ]+3)xlO
en það jafngildir:
St = (17-pH)xlO
Með þeim hætti fengi hlutlaus
vökvi St=100; vökvi með pH=5
fengi St = (17-5)xl0 = 120; og
vökvi með pH=9,3 fengi á sama
hátt St=77. Eða, svo dæmi séu
tekin: hreint vatn hefði St=100;
en 0,1 M saltsýra hefði St=160.
Þannig yrði súrinn í hvaða
vökva, sem væri, tilgreindur svo
sem venja er til um mælingar, að
mælitalan verður þeim mun hærri
sem meira er af því sem mælt er,
en ekki öfugt.
Eflaust mætti afgreiða þetta
atriði með öðru móti en hér var
fitjað upp á. Það sem máli skipt-
ir, er að geta rætt um hluti sem
þessa á þann hátt, sem almenn-
ingi getur þótt eðlilegur, án þess
brotið sé gegn því sem tíðkast í
fræðunum. Þess gerist æ ríkari
þörf í þjóðfélagi sívaxandi iðn-
væðingar, enda þótt fræðimenn
vorir geti fyrir sitt leyti eftir sem
áður notazt við það eitt sem fyrir
er.
Vestmannaeyjar:
Skólafólk sækir í
að komast á vertíð
Vestmannaevjum.
FRY STIHU SUNUM í Vest-
mannaeyjum tekst ekki að
manna húsin í vetur með heima-
fólki og hafa þau flest auglýst í
Morgunblaðinu eftir fólki til
starfa. Samkvæmt upplýsingum,
sem fréttaritari aflaði sér hjá
verkstjórum, hefur gengið mjög
vel að ráða vertíðarfólk, betur
en oftast áður. Fólk á öllum
aldri, en einkum þó skólafólk,
virðist stefna á að næla sér í
góða vertíðarhýru á skattfría
árinu.
Sérstaklega hefur gengið vel að
fá karlmenn til starfa en enn vant-
ar 15—18 konur í hvert frystihús.
Þeir verkstjórar, sem rætt var við,
voru sammála um það, að áberandi
væri hvað ungt fólk á skólaaldri
sækti eftir vinnu og sagði Páll
Sveinsson, yfírverkstjóri í Fiskiðj-
unni, að um 60% af þeim sem
svöruðu auglýsingu fyrirtækisins
væri fólk um og undir tvítugsaldrin-
um. Það kom og fram hjá verkstjór-
unum að margir hefðu sagt upp
störfum sínum á höfuðborgarsvæð-
inu og ætluðu í uppgripavinnu
skamman tíma á vertíð.
Þá var það álit verkstjóranna,
með gríni blandinni alvöru, að kvik-
myndin Nýtt líf, sem sýnd var í
sjónvarpinu tvo síðustu laugardaga,
en hún gerist einmitt á vertíð í
Eyjum, hefði virkað sem góð við-
bótarauglýsing fyrir frystihúsin.
Sagði Páll Sveinsson, að áberandi
mikið hefði verið hringt í sig síðast-
liðinn sunnudag, daginn eftir að
síðari hluti myndarinnar hefði verið
sýndur.
„Þessi mynd kom á besta tíma
fyrir okkur, en ég vona þó að við
fáum til starfa duglegra starfsfólk,
en þeir kumpánar Þór og Danni
reyndust," sagði Páll Sveinsson.
Það stefnir því í líflega vertíð í
Eyjum, þó vafalítið jafnist hún ekk-
ert á við það, sem var áður fyrr á
árum þegar vertíðarfólkið skipti
mörgum hundruðum.
-hkj.
Tengivagnar
Staö í Hútafirði.
NÚ SJÁST hér oft í viku stórir
tankbílar með tengivagna hlaðna
bensíni á leið frá Reykjavík til
Norðurlands. Miklu munar hið
einmuna góðar veðurfar sem hér
ríkir og hefur gert allan þennan
nýliðna janúar-mánuð. Hvergi er
snjór á vegum og meðal annarra
sem eru hér á ferð þessa dagana
eru flutningabifreiðastjórar frá
Austfjörðum.
- m.g.
D-basc II
Byrjendanámskeið í notkun hins öfluga
gagnasafnskerfls D-base III.
Dagskrá:
* Grundvallaratriði við notkun PC-tölva.
* Uppbygginggagnasafnskerfa.
* GagnasafnskerfiðD-baselII.
* Helstu aðgerðir í D-base III, æfingar.
* Forritun í D-base III.
* Límmiðaútprentanir.
* Umræðurogfyrirspurnir.
Tími: 9.—12. febrúarkl. 17—20.
Innritun í símum 687590 og 686790.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28, Reykjavík.
GÓÐA VEISLU
GJÖRA skal
VEISLU- OG RÁÐSTEFIMUSALUR
í Þórshöll, Brautarholti 20, símar: 29099, 23333 og 23335.
Góð aðstaða til allra
veislu- og ráðstefnu-
halda oggreið aðkoma
fyrir fatlaða.
Höfum til útleigu einn glæsilegasta
veislu- og ráðstefnusal borgarinnar. Ut-
análiggjandi glerlyfta flytur gesti upp í
Norðurljósin. Salurinn hentarfyrir hvers
konar veislur og mannfagnaði, svo sem
árshátíðir, þorrablót, erfidrykkjur, hádeg-
isverði, ráðstefnur, brúðkaups-og
fermingarveislur, auk annarra mann-
fagnaða eða funda.
Útbúum allan mat og
aðrarveitingar, allt eftir
óskum hvers og eins.
Sjón ersögu rikari
Veitingastjóri Norðurljós-
anna gefur allar nánari
upplýsingar.