Morgunblaðið - 05.02.1987, Side 34

Morgunblaðið - 05.02.1987, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987 i Á myndröðinni sést hvernig báturinn komst stig af stigi á flot í hinni einstæðu björgun. * Morgunblaðið/Kr.Ben. Gríndavík: Skúmur náðíst léttilega á flot Grindavík. VÉLBÁTURINN Skúmur GK 22, sem strandaði á þriðjudag- inn í innsiglingunni við Grindavik, náðist á flot í gær- morgun á flóðinu. Að sögn Björgvins Gunnarsson- ar, eins eigenda bátsins, stóð undirbúningur að björguninni óslitið alla nóttina og ýtt var upp gryiju meðfram bakborðssíðu bátsins og rennu aftur af henni. „Þetta var allt vandlega skipu- lagt í gær og lagði Kristján, skipstjóri á Goðanum, á ráðin hvemig björguninni yrði hagað en við Fiskanesmenn sáum síðan um framkvæmdina," sagði Björg- vin. „Ég valdi nýjan togvír sem við áttum af Grindvíkingi. Hann er 3V2“ sver og hengdum við hann aftan í 60 tonna jarðýtu frá Hag- virki og átti hún að snúa bátnum. Þeir á Goðanum voru með 4“ vír og átti að reyna á hann um leið og báturinn losnaði. Satt best að segja hafði ég ekki mikla trú á þessu en okkur fannst öllum sjálf- sagt að reyna.“ Klukkan fimmtán mínútur yfir tíu þeytti Birgir Smári skipstjóri fiautuna til merkis um að allir væru tilbúnir um borð í Skúmn- um. Vírinn í ýtuna stríkkaði og sneri ýtan bátnum léttilega og valt hann ofan í gryfjuna og flaut síðan. Goðinn tók hann svo í tog og hélt til Njarðvíkur þar sem báturinn var tekinn upp í slipp. Kr.Ben. Vömskiptajöfnuður hagstæður um tæpa 4 milljarða í fyrra Heildarverðmæti vöruútf lutnings jókst um 16 prósent milli ára VORUSKIPTAJOFNUÐURINN var hagstæður um 3.866 milljónir króna á síðast liðnu ári, en var í járnum árið áður, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Hagstofu íslands. Allt árið í fyrra voru fluttar inn vörur fyr- ir 41.1 milljarð króna (fob), en hins vegar nam verðmæti út- fluttra vara 45 milljörðum króna. Heildarverðmæti vöruútflutn- ings jókst um 16% frá árinu áður, og er þá miðað við breytingu á föstu gengi eins og hún mælist miðað við breytingu á meðal- gengi krónunnar á viðskiptavog. Hlutfallslega varð mest aukning á verðmæti útfluttra sjávarafurða, en þar varð 19% aukning frá árinu áður. Verðmæti útflutts áls jókst um 7%, en verðmæti útflutts kísil- jáms minnkaði um 5%. Verðmæti annarar útfluttrar vöru var 7% meira en árið áður. Miðað er við fast gengi. Árið 1986 var hlutdeild útfluttra sjávarafurða 77% af heildarútflutn- ingi, en var 75% árið 1985. Hlut- deild áls minnkaði hins vegar úr 10% í 9% milli áranna 1985 og 1986. Heildarinnflutningur vöruinn- flutnings árið 1986 varð 6% meiri en á árinu 1985. Á árinu voru flutt inn skip fyrir 371 milljón króna. Utgjöld til endurbóta og lengingar fiskiskipa erlendis námu 930 mjll- jónum og til landsins voru keyptar flugvélar og flugvélahlutir fyrir 561 milljón króna. Alls telst því verð- mæti innfluttra skipa og flugvéla hafa numið 1.862 milljónum króna, sem er miklu meira en árið áður. Verðmæti innfluttrar olíu á árinu 1986 varð 37% minna en árið áður vegna verðlækkunar á olíu á heims- markaði. Broddur í Aust- urstræti í dag Selfossi. SAMKÓR Selfoss býður höfuð- borgarbúum í dag brodd úr nýbærum af Suðurlandsundir- lendinu. Þessi vinsæla sala fer fram i Austurstræti og hefst klukkan 14.00. Það hefur sýnt sig að góður markaður er fyrir þessa land- búnaðarafurð í Reykjavík og þegar Samkórinn býður broddinn í Austurstrætinu er alltaf handa- gangur í öskjunni og allt selst á nokkrum mínútum. Nú mæta kór- félagar með 300 lítra af brodd meðferðis og eitthvað af rófum úr Samkórsakrinum í Sandvíkur- hreppi. Þessi sala kórsins er ein af úáröflunarleiðum vegna Kanadaferðar í sumar. Sig. Jóns. Fiskveiðasj óður: Lánstími f isk- vinnslu lengdur STJÓRN Fiskveiðasjóðs hefur lagt til við sjávarútvegsráðu- neytið að sett verði reglugerð um skuldbreytingu lána fisk- vinnslunnar hjá sjóðnum. Lán fiskvinnslunnar í Fiskveiðasjóði voru um áramót 2,3 milljarðar króna og af því voru 228 milljón- ir í vanskilum eða 9,9% lánaðs fjár. Vanskilin eru svipuð og síðustu þtjú ár. Reiknað er með að skuldbreyting geti náð til lána alls að upphæð 1,5 milljarður króna. Ráð er fyrir því gert að skuldbreytingunni geti verið lok- ið á fyrri hluta þessa árs. í drögum Fiskveiðasjóðs að reglugerð um skuldbreytinguna segir meðal annars að fiskverkend- ur skuli eiga þess kost að breyta stofnlánum sínum hjá Fiskveiða- sjóði, hvort sem þau eru í skilum INNLENT eða vanskilum, í ný lán. Fiskveiða- sjóður ákveði endanlega fjárhæð og endurgreiðslu hvers skuldbreyting- arláns og taki þá meðal annars tillit til reiknaðar greiðslubyrði frá árs- lokum 1985 til afgreiðslu skuld- breytingarláns. Skilyrði þess, að fiskverkendur eigi kost á slíku láni, sé að ljóst verði, að viðkomandi fyrirtæki verði í eðlilegum rekstri og það geti að mati sjóðsins staðið í skilum með greiðslur af öllum lán- um sínum úr sjóðnum. Sjóðsstjómin ákveður lánstíma skuldbreytingarlánanna og skal miðað við að hann verði 3 til 7 árum lengri, en veginn meðallánstími þeirra lána úr Fiskveiðasjóði sem breytt er. Lánin skulu tryggð með veði í viðkomandi fískvinnslustöð, sem sjóðurinn metur fullnægjandi. Fiskvinnslufyrirtækin munu eiga þess kost að taka alla þá skuld- breytingu, sem býðst eða enga. Undir hugtakið stofnlán falla öll lán sjóðsins, sem tryggð eru með veði í viðkomandi fiskverkunarstöð nema lán úr hagræðingar- og fram- kvæmdalánadeild, skuldbreyting- arlán frá 1975—1976 og 1985 og lán endanlega afgreidd eftir 31. desember 1986. Sjávarútvegsráðuneytið hefur ekki gefið út endanlega reglugerð um þessa skuldbreytingu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.