Morgunblaðið - 05.02.1987, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987
39
500 kanínur skila jafn-
miklu og 500 kindur
Morgunblaðið/Jón Sig.
Halldóra handleikur hér 1.
flokks fiðu.
• •
- segja Ásbjörn Jóhannesson og Halldóra
Jónmundsdóttir kanínubændur á Auðkúlu
Blönduósi.
AÐ UNDANFÖRNU hafa verið
miklar umræður um framleiðslu-
mál landbúnaðarins og þá
byggðaröskun sem óhjákvæmi-
lega hlýst af samdrætti í hinum
hefðbundnu búgreinum. Reynt
hefur verið að benda á ýmsar
búgreinar sem fyllt gætu upp í
það skarð sem myndast við sam-
dráttinn m.a. loðdýrarækt,
fiskeldi og ferðaþjónustu svo
fátt eitt sé nefnt. Ein búgrein
virðist þó alveg hafa orðið útund-
an i þeirri umræðu en það er
ullarframleiðsla af angórakanín-
um. Hvað sem því veldur, þá er
þessi búgrein stunduð hér á landi
og þeir sem leggja einhveija
rækt við hana og stunda hana í
einhverju mæli telja sig hafa
þokkaiegar tekjur af þessum
búskap.
Á Áuðkúlu í Svínavatnshreppi
búa hjónin Ásbjörn Jóhannesson og
Halldóra Jónmundsdóttir með 300
ullarkanínur. Það eru um 5 ár síðan
þau hófu kanínuræktina og þau
hafa verið að reka sig á og gera
mistök fyrstu árin en þau telja sig
' vera komin yfir byijunarörðugleik-
anna. Halldóra og Ásbjöm sögðu
að fram til þessa hefði þessi bú-
grein notið lítils skilnings af hálfu
búnaðarsamtakanna í landinu og
nánast fallið í skuggann á refnum.
Öll fyrirgreiðsla af hálfu hins opin-
bera hefur beinst að refum og
minkum og það er sérstaklega tek-
ið fram í reglugerð um eftirgjöf
gjalda á fjárfestingavörum í loð-
dýrarækt, að kanínubændur séu þar
ekki með. Þau sögðu þó að núna
fengju kanínubændur eftirgjöf á
söluskatti og aðflutningsgjöldum á
rekstrarvömm en engin reglugerð
væri um það. Halldóra sem jafn-
framt er stjómarmaður í Landssam-
bandi kanínubænda sagði í samtali
við Morgunblaðið að kanínubændur
hefðu setið uppi með ullina (fiðuna)
síðan 8. júlí en það stæði til bóta.
Það er stefnt að því að verksmiðja
sem nýlega var keypt til landsins
og vinnur úr fiðunni taki til starfa
1. mars nk. Afkastageta þessarar
verksmiðju er 80-120 tonn af fíðu
á ári svo mikið vantar á að hún sé
fullnýtt. Þau hjónin sögðu að 5-6
þúsund kanínur væm til í landinu
og af þeim væm um 1000 í A-
Húnavatnssýslu. Um afkomumögu-
leika í þessari búgrein sögðu þau
Auðkúluhjón: „500 kanínur gefa af
sér til að greiða laun og fastan
kostnað svipað og 500 kindur. Það
fengust um 125 þýsk mörk fyrir
kílóið af fíðu en það samsvarar um
2750 krónum. Kostnaðurinn við að
fóðra kanínuna á ári er 735 krónur
sé farin dýrasta leiðin. Hver ang-
órukanína gefur af sér 1000-1200
gr af fíðu á ári svo eftir standa
þegar fóðrið er greitt um 2000
krónur". Þau sögðu að þetta dæmi
miðaðist við að 90-95% af fíðunni
færi í 1. flokk. Til að ná þeim ár-
angri þarf þekkingu og nákvæmni
í vinnubrögðum. Þau hjónin Ásbjöm
og Halldóra töldu að það sem helst
skorti í þessari búgrein væri öflug
leiðbeiningastarfsemi og aðgengi-
legar upplýsinga svo þeir sem em
að byija í kanínuræktinni þurfí ekki
að falla í allar þær gryfjur sem þau
hefðu lent í. Ef þetta á að geta
tekist þurfa bændasamtökin sjálf
að viðurkenna kanínuræktina í
fullri alvöm.
- Jón Sig.
Halldóra og Ásbjörn á Auðkúlu hafa stundað kanínuræktina í 5 ár.
Hér halda þau á angórakanínunni Höddu og 3. vikna afkvæmum
hennar.
ORYGGISGÆSLA
-EROKKARFAG
ÖRYGQISVERÐIR
Staðbundin gæsla eða farandgæsla til lengri eða skemmri tíma.
Peningaflutningar og önnur sérverkefni.
ÖRYGGISKERFI
Qera aðvart um innbrot, eld, flæðandi vatn, vélabiianir,
afbrigðilegt hitastig o.fl.
ÖRYGGISMIÐSTÖÐ
Tekur við boðum frá aðvörunarkerfum um hvað sem er
hvaðan sem er af iandinu, hvenær sem er
sólarhringsins og gerir strax
viðeigandi ráðstafanir.
m/
ORYGGISÞJONUSTA
Ódýr, vönduð og viðurkennd af tryggingarfélögum og
dómsmálaráðuneytinu.
VARI ÖRYGGISÞJÓNUSTA S: 91-29399
Austur-Húnavatnssýsla:
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans! J
m
Conference
ráðstefna
Malthus AS, Noregi:
Quotim AS, Danmörfcu:
Esgard Teem AS, Svíþjóð:
Liquid Piastics Ltd., Englandi:
Einar Háland, Ame Hálsen, John Lásn-
egord, Morthen Hvamm.
Percy Finsen.
Tony Blomqvist.
Graham Jones, Poul Bennison.
Velkommen til den tredje nordiske to dages conference
om betonskader og betonreperation dagene 6.-7. febmar 1987.
Velkomnir til þriðju norrænu ráðstefnunnar um steypuskemmdir og viðgerðir steypu-
skemmda dagana 6.-7. febrúar 1987.