Morgunblaðið - 05.02.1987, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987
félk í
fréttum
Má bjóða í tennis?
essi glæsilega stúlka heitir
Janet Jones og er leikkona
og fyrirsæta. Til þessa hefur hún
leikið í myndunum „The Flamingo
Kid“, „A Chorus Line“ og „Amer-
ican Anthem", en áður en hún var
uppgötvuð var hún helst þekkt
fyrir að vera heitmey tennisstjöm-
unnar Vitas Gerulaitis. Viðkom-
andi kvikmyndajöfur sá enda fyrst
til Janetar á tennisvellinum og
þótti honum limaburðurinn svo
aðdáunarverður að hann gerði
henni tilboð án frekari tafa. Nú
nýverið vann hún það sér til
frægðar að vera valin til þess að
vera forsíðustúlka marsheftis
bandaríska tímaritsins Playboy.
Er ekki að efa að menn bíða
spenntir eftir þessa hungurvöku.
Reuter
Minning
Natalie Wood
heiðrað
IHollywood, höfuðborg kvik-
myndaiðnaðarins hefur það verið
til siðs um langt skeið að heiðra
stjömur með því að greipa nöfn
þeirra í stein á sérstakri „frægðar-
stétt“ (Hollywood Walk of Fame).
Nú fyrir skemmstu var stjömu
númer 1.842 bætt við, en þar er
um leikkonuna látnu, Natalie Wood,
að ræða. Eiginmaður hennar, Ro-
bert Wagner, var viðstaddur og
veitti sérstökum viðurkenningar-
skildi móttöku, en þessi athöfn var
einnig upphaf hátíðahalda í tilefni
þess að Hollywood er nú hundrað
ára gömul. I heillaóskaskeyti, sem
barst frá Ronald Reagan, Banda-
ríkjaforseta, sagði hann að borgin
væri heimkynni yngstu listgreinar
mannsins, sem jafnframt væri ein
sú allravinsælasta. Einnig benti
hann á að borgin væri þekktari og
hefði meiri áhrif en mörg ríki heims
og væri hún þó hvorki fjölmennari,
né eldri en raun bæri vitni.
Robert Wagner ásamt vinum
viA „Frægðarstóttina, en í
höndum hefur hann viður-
kenningarskjöldinn.
Verötryggó skuldabtéf Glitnis hf.
með einum gjalddaga
Tísku-
og
hár-
symng
á Hótel
Borg
Glitnir hf. er fjármálafyrirtæki sem stofnað var í
október 1985 og er nú stærsta fjármögnunar-
leigufyrirtæki á innlendum markaði. Stærstu
hluthafar í Glitni hf. eru norska fjármálafyrirtæk-
ið A/S Nevi í Bergen, Iðnaðarbanki fslands hf.
og Sleipner Ltd. í London. Eigið fé og áhættufé
Glitnis hf. er nú um 110 milljónir króna.
Fyrirtækið er til húsa að Ármúla 7 og síminn er
68 10 40.
Skuldabréfin eru fullverðtryggð miðað við láns-
kjaravísitölu og bera vexti frá 5. desember
1986.
- mjög góð ávöxtun, höfuðstóll hækkar um
71,6% umfram verðbólgu á 5 árum
- sveigjanlegt form, einn gjalddagi eftir 1,2, 3,
4 eða 5 ár
- fé lagt inn á bankareikning á gjalddaga sé
þess óskað.
Ársávöxtun á skuldabréfum Glitnis hf.:
ártilgjalddaga
1
2
3
4
5
ársávöxtun
10,8%
11,0%
11,2%
11,3% •
11,4%
Hjá okkur eru verðbréfaviðskiptin einföld og örugg
Verðbréfamarkaður
fðnaðarbankans hf.
ÁRMÚLA 7, 108 REYKJAVlK, SlMI - 681040
Meöal annars var sýnt
hvernig skeyta má gervlhár
vlð elgiA, þannlg að hsegt er
að vera með sítt „hár“ eina
kvöldstund.
Síðastliðna helgi var haldin sýn-
ing á Hótel Borg, þar sem
sýndir voru kjólar eftir Jórunni
Karlsdóttur og hárgreiðslustofan
Papilla sýndi ýmsar nýjungar í hár-
greiðslu. Torfí Geirmundsson
kynnti bæði kjóla og hárgreiðslu,
en sjón er sögu ríkari.
ARGUS/SlA